Dagur - Tíminn - 29.10.1996, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn - 29.10.1996, Blaðsíða 3
1 Mamma vinmir heima Meirihluti landsmanna, er skv. skoðana- könnun Gallup á íslandi, þeirrar skoðunar að hið besta mál sé að annað hvort for- eldrið sé heimavinnandi - og þá í flestum tilvikum móðirin. Dagur-Tíminn tók hús á nokkrum heima- vinnandi húsmæðrum sem búsettar eru bæði fyrir norðan og sunnan. Og þær virð- ast vera býsna sáttar við sitt hlutskipti. Vill vera sem lengst heima Unnur Friðriksdóttir er 28 ára og á 3 stráka, einn 2ja ára og 4ra mánaða tvíbura. Hún hefur ekki verið í fullri vinnu síðan sá eldri fæddist og ekkert síðan tvíburarnir komu í heiminn. Unnur er nánast orðin fullgild- ur hjúkrunarfræðingur, á ein- ungis eftir lokaritgerðina sem hún ætlar að vinna á kvöldin í vetur, en hún ætlar ekki út á vinnumarkaðinn á næstunni enda flnnst henni mjög gaman að vera heima. „Ég ætla að vona að ég hafi efni á að vera sem lengst heima. Helst af öllu vildi ég vera heima þangað til tvíbur- arnir verða sex ára og byrja í skóla." Ef tekjur eiginmannsins hrökkva ekki til sagðist Unnur myndu fara í 50% vinnu, taka þá kvöld- og næturvaktir til að fá álagið. Dagvinna myndi varla borga sig þar sem pössun hálf- an daginn fyrir 3 börn færi lík- lega í um 35.000 kr. Unnur segist ekki undra sig á því að meirihluti þjóðarinnar vilji að móðirin sé frekar heima. Bæði sé stutt síðan kon- ur fóru að vinna mikið úti og engin hefð fyrir því að karlarnir séu heima. Sjálf treystir hún manni sín- um til að sinna börnum og búi eins vel og hún en sagði það ekki hafa komið til greina að hann væri heima eftir komu tví- buranna. „Ég er náttúrulega með brjóstin.“ En fyrirkomulag- ið mun ekki breytast þegar brjóstamjólkina þrýtur. „Hann er bifyélavirki og þyrfti þá að segja upp vinnunni. Ég hugsa að það yrði erfiðara fyrir hann að fá vinnu en mig. En við höf- um reyndar aldrei spáð í það því ég var ekki í fastri vinnu.“ Hún sagðist þó alveg geta hugs- að sér að karlinn tæki við henn- ar hlutverki á heimilinu. Unnur er viss um að mikil- vægt sé fyrir strákana hennar að hún sé heima enda hafi hún þá tíma til að elda, kenna þeim og lesa fyrir þá. Kvöldin væru of stuttur tími til þess. LÓA Unnur Friðriksdóttir með tvíburastrákana sína, sem heita Haukur Ingi og Hákon Örn. Sá elsti heitir Halldór Friðgeir. Mynd.sg. Anna Steindórsdóttir á 4 börn á aldrinum 3ja-13 ára. Hún er sjúkraliði að mennt og vann sem slíkur í sumar en þarjyrir utan hefur hún verið heimavinn- andi sL 3 ár. Anna er mjög ánægð með að geta verið heimavinn- andi. „Við þraukum svona með því að maðurinn vinnur 14 tíma á dag. Það er bara ekki hægt að vera útivinn- andi frá ijórum börnum. Ég gæti ekki hugsað mér að fara að vinna frá þeim á daginn. Það þarf að sinna þeim það mikið. Það er svo margt sem þessi börn þurfa að segja frá þegar þau koma heim úr skóla. Þá er mjög mikilvægt að það setjist einhver niður með þeim og hlusti á þau.“ Anna segir að ekki væri möguleiki að sinna þeim öllum nægjanlega eftir vinnu á kvöldin. „Kvöldin eru Anna Steindórsdóttir með þrjú barna sinna. að koma sér einhvers staðar inn og eru jafnvel komin til hennar kl. 8 á morgnana. „Þetta heimili hefur nánast ver- ið félagsmiðstöð og ég kann vel við það. Það er algjört mottó hjá mér að heimilið er opið fyr- ir vini barnanna eins og mína vini. Þó maður sé oft hund- þreyttur," segir hún og hlær. Eiginmaður Önnu var heima í um hálft ár þegar elsta dóttir þeirra var lítil og gekk það mjög vel. „En það er auðvitað þessi tekjumunur. Og ég hef þá staðföstu trú að börnin hafi meiri þörf fyrir móður sína fyrstu 2-3 árin.“ Sjálf segist hún meta það óskaplega mikils að móðir hennar var heimavinnandi. „Ég man hvað það var mikið öryggi að koma heim úr skólanum og sjá mömmu á sínum stað.“ LÓA oft á tíðum algjör sprengja. Við þurfum að vera tvö til að ná því að koma þeim í rúmið þó að ég sé heima allan daginn.“ „Ég vildi gjarnan hafa þann möguleika að vinna úti hálfan daginn og ætla ekki að vera heima alla ævi.“ Það verður varla í vetur því skóli barnanna er ekki einsetinn en á næsta ári verða eldri börnin þrjú á sama tíma í skólanum og það yngsta komið í leikskóla og þá ætlar hún að fá sér 50% vinnu. En hún á ekki von á að fara í fulla vinnu næsta áratuginn. Anna er sannfærð um mikil- vægi þess að einhver sé til staðar fyrir börnin á heimilinu. Hún segir börn þeirra foreldra sem bæði eru útivinn- andi vera ráfandi um hálfan dag- inn að reyna Mamma á símim stað

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.