Dagur - Tíminn - 29.10.1996, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn - 29.10.1996, Blaðsíða 4
T 16- Þriðjudagur 29. október 1996 |Dagur-'3ftmirat jlnibúd aÉcu lót Vilt þú leitast við að hafa Jesúm Krist að leiðtoga lífs þíns? Friðrik Erlingsson skrifar Einu sinni á ævinni játum við þessari spurningu með feimnislegu hvísli, krjúpandi við altarið á ferming- ardaginn. Að því loknu er lof- orðið gleymt og lífið tekur við eftir fermingarveisluna. Eitt er sameiginlegt með nær öllum sem játa þessari spurningu, að eftir fermingardaginn er játn- ing trúar á Jesúm Krist orðin feimnismál, hlægilegur barna- skapur, rugl. Samt, á okkar erf- iðustu stundum, snúum við okkur til veggjar í myrku her- bergi þar sem enginn sér til okkar og biðjum til Guðs. Að biðja til Guðs er nokkurskonar neyðarlína þegar öll sund virð- ast lokuð. A stund neyðarinnar erum við skyndiiega barmafuli af trúarhita. Það er athyglisvert að í okk- ar „kristna" þjóðfélagi er sá sem játar opinberlega trú á Jesúm Krist álitinn meðlimur í sértrúarsöfnuði! En hinn sem hlær að þess háttar vitleysu, en segist samt vera trúaður, „bara svona eins og alhr aðrir“, er talinn fullkomlega heilbrigður á geði. Svo magnaður er boð- skapur Jesú Krists eftir tvö þús- und ár, að sá sem játar trú sína á hann er hættulegur og er brennimerktur sem skrýtinn, sértrúarsinni, ruglaður, í besta falli heilaþveginn. AUt er reynt tU að gera þannig manneskju ómerka. f raun hefur viðhorf almenn- ings ekkert breyst frá því að Kristur gekk á jörðinni. Orð hans voru óþægileg þá, því þau hittu beint í mark og boðskapur hans gerði of miklar kröfur. Eitt laugardagskvöldið var íslenskur „skemmtiþáttur“ í Ríkissjónvarpinu þar sem eitt atriðið átti að vera skopstæling á útsendingu Omega, kristilegr- ar sjónvarpsstöðvar. En þessi skopstæling gerði ekki annað en að hitta þá sjálfa fyrir sem stóðu að baki þessu „gríni". Því sá sem hæðist að einlægri trú annarra er ekki að særa hinn trúaða. Hann er að troða sjálf- an sig niður í svaðið. Ég hef um nokkurt skeið fylgst með útsendingum Omega til þess að komast að því sem þar fer fram. f stuttu máli er það þetta: Fólk kemur saman og ræðir í einlægni um trú sína, hvernig trúin hefur breytt lífi þess til betri vegar og hvernig þetta fólk ræktar sína trú. Þarna eru líka útskýringar á hinum ýmsu Biblíutextum, lík- ingar skýrðar og settar í tengsl við okkar samtíma; fróðlegt, áhugavert og löngu tímabært sjónvarpsefni. Það eina sem ég hef við útsendingarnar að at- huga er það að íslenski hlutinn mætti vera mun lengri og margþættari. Fólki er gefinn kostur á að hringja inn með fyr- irbænir og í lok hverrar útsend- ingar er sameiginleg bæna- stund fyrir öllum þeim sem þess hafa óskað. Ékkert of- stæki, engin dulræna, ekkert kukl, engin helgislepja eða til- gerð. Aðeins einlæg, bjargföst trú á orð Bibhunnar og innileg sannfæring um tilvist Jesú Krists og fullvissa um að hann sé leiðtogi h'fsins. Hvað er svona hættulegt og fráhrindandi við það? Jú, líkt og fyrir tvö þúsund árum gera orð Jesú Krists kröfur til ein- staklingsins. Margir segjast finna frið og fullnægju í hinum mörgu dulrænu leiðum sem nú eru í boði. En er það ekki ein- mitt vegna þess að þær leiðir eru svo þægilegar? Þar er eitt- hvað fyrir alla, enginn þarf að leggja neitt á sig. „Gangið inn um þrönga hliðið; því að vítt er hliðið og breiður vegurinn, er liggur til glötunarinnar og margir eru þeir, sem ganga inn um það; því að þröngt er hliðið og mjór er vegurinn, er liggur til lífsins, og fáir eru þeir, sem finna hann.“ (Matt. 6:13). Sjónvarpsstöðin Omega býð- ur okkur að verða vitni að lif- andi trúarsannfæringu venju- legs fólks. Og það kostar ekki krónu. Læknamiðill ferðast um landið og hálftími af dulrænum skammti kostar fimm þúsund krónur. Peningar eru afl hlut- anna, sannarlega, en ef þú hef- ur eitthvað raunverulega að gefa, þá gefurðu það líka án skilyrða og treystir að þér muni og gefið verða, ekki satt? Eg vil benda öllum þeim sem erfiði og þunga eru hlaðnir, sem sitja við sjónvarpið á kvöldin og reyna að gleyma áhyggjum sín- um yfir spennumyndum, sápu- óperum og morðsögum, að skipta öðru hverju yfir á Omega og verða vitni að einlægni fólks sem er ekki að þykjast vera neitt annað en það er: Fólk, eins og þú og ég, sem leitast við að hafa Jesúm Krist að leiðtoga lífs síns. Horfðu með opnum huga, hlustaðu og spurðu sjálf- an þig: Ef þetta fólk hefur rétt fyrir sér; ef eina lausn alls vanda er í raun að játa Jesúm Krist sem leiðtoga lífs míns, ekki aðeins með vörunum held- ur líka með hjartanu, hverju get ég mögulega tapað ef ég fylgi því ráði? Játningin sem þú hvíslaðir feimnislega við altarið á ferm- ingardaginn, er hún svo óskap- leg og ógnvekjandi að þú, sem fullorðinn einstaklingur, getur ekki endurtekið hana upphátt óhræddur? Að sturla heilbrigðisstétt virkaði Sturla Böðvarsson, varaformaður ijárlaga- nefndar, vann mark- visst að því í gær að sturla heilbrigðisstéttirnar með krafmiklum yfirlýsingum. Þessar sturlandi yfirlýsingar Sturlu snerust um það sem allir vita en aðeins fáir hafa haft kjark til að segja. Hann sagði að niður- skurðurinn og sparnaðurinn í heilbrigðiskerfinu miklu meiri en hann raun- verulega er. Ástæðan væri fyrst og fremst sú að heil- brigðisstéttirnar væru svo vel menntaðar að þær ættu auðvelt með að setja á svið leikrit um vandræðagang með sjúklinga og óþægindi sem af sparnaðartillögum hljótast. Érfiðleikar heil- brigðiskerfisins eru því að verulegu leyti tilbúningur, tálsýn sem dregin er upp af snjöllum leikritahöfundum og leikurum inni á spítulun- um. Garri hefur enda oft velt því fyrir sér hvers vegna svo margir úr Herra- nótt MR eða meðlimir leik- félaga framhaldsskólanna hafa endað í heilbrigðis- stéttum, ýmist sem læknar eða húkrunarfræðingar. Banna leikhúsferðir Einfalda leiðin til að spara í heillbrigðiskerfinu með góð- um pólitískum árangri er því augljóslega sú að draga úr möguleikum heilbrgiðis- stétta til að kynna sér grundvallaratriði leiklistar og dramatúrgíu. Þetta mætti eflaust gera með ýmsum hætti en ágætt byrjunar- skref væri að banna heil- brigðisstéttum að fara í leikhús eða lesa fagurbók- mentir og skikka þær til að horfa á Hemma Gunn alla laugardaga. Þannig væri vandinn úr sögunni. En það sem Sturla sá ekki fyrir þegar hann tók að sér að sturla heilbrigðis- stéttirnar var mótleikur þess- ara stétta. Gunnar formaður Fréttir berast nú af því að heil- brgiðisstéttirnar ætli að stilla upp sínum eigin pólitíska kand- ídat og vinna nú að því að gera sjálfan læknaforingj- ann, Gunnar Inga Gunnars- son, að næsta formanni Jafnaðarmannaflokks ís- lands, Alþýðuflokknum. Gunnar Ingi gat sér gott orð á dögunum fyrir að setja á svið heimilislæknaleikrit sem olli gríðarlegri röskun á þjóðlífinu og kom átakan- lega niður á þeim sem síst skyldi. Hann náði í leiðinni umtalsverðum kjarabótum fyrir skjólstæðinga sína heimilislækna, sem voru fyrir mikill hátekjuhópur. Það er því sérstaklega við hæfi að slíkur maður verði foringi jafnaðarmanna, því auk þess að jafna kjörin hjá þeim launahæstu í samfé- laginu gæti hann orðið af- bragðs leikstjóri í heilbrigð- isleikritinu. Ef Gunnar yrði formaður Alþýðuflokksins gæti hann líka einbeitt sér að því á hinum pólitíska vettvangi að sannfæra vara- formann íjárlaganefndar um ágæti og nauðsyn stærra og dýrara heilbrigðiskerfis. Þannig myndi hann geta lokað hringnum. Hann myndi einfaldlega sturla Sturlu, af því að Sturla sturlaði heilbrigðisstéttirnar 1'gær- Garri.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.