Dagur - Tíminn - 29.10.1996, Blaðsíða 6

Dagur - Tíminn - 29.10.1996, Blaðsíða 6
18 - Þriðjudagur 29. október 1996 ÍOiigur-íIItmnm MENNING O G LISTIR Grillir? Margir vildu eignast hlutdeild í ummynd- un náttúrunnar með því að spreyta sig á að nefna nýja Jjallið í VatnajöklL Lesendur Dags-Tímans sendu blaðinu nœr tvö hundruð tillögur sem eru birtar hér til gamans auk skondinna útskýringa sem nokkrir létu jylgja með. Ekkert eitt nafn þótti bera af en Heimir Þór Gíslason, Höfn í Hornafirði, hreppir útsýnisflugið með Flugtaki yjir nýja fjallið, sem hann vill að heiti Grillir. Rétt er að taka fram að samkeppni Dags- Tímans hefur ekki formlegt vœgi þar sem venja er að örnefnanefnd nefni ný börn náttúrunnar. Nefndin fœr umboð frá menntamálaráðuneyti og gerir þá tillögu að nafhL Flestir sem sendu inn tillögur reyndu að láta nafngiftina fela í sér um- rœðuna um gosið, biðina eða Magnús Tuma. Síðan voru hinir sem létu í veðri vaka að varla væri um myndarlegt Jjall að ræða og stungu því að heitum eins og bunga, fell og kollur. Prófessor í Flórída, sem ann landi voru og tungu, lét ekki sitt eftir liggja og gaukaði því að okkur að nefna fjallið eftir frú Vigdísi Finnbogadótt- ur. Því miður sendi hann engar tillögur þar að lútandL Tölurnar í svigum sýna ef fleiri en einn mœlti með tilteknu heitL -mar Askur (2) Álfaran Bárðarfell Bárðarfjall Blekkir (2) (sbr. blekkti fræði menn og landsmenn stórkost- lega í óþrcyju þeirra eftir hamfaraflóði í Skeiðará og jafnvel öðrum ám!) Brandur Bráðnarinn Bunga Dísarfell Dráttólfur Eftirvænting Eldbunga Eldfell Eldtindur Éljagrímur Fjallakirkja Friðþjófur Funafell Funi (2) (minnir á hvernig fjallið myndaðist og á Tuma sem annars er ómögulegt nafn á ijalli því það er dverganafn) Gaddur (Gosefni valda gaddi í búpeningi, fjallið er sem gadd- ur neðan í jöklinum og verður umlukið gaddi er frá líður) Galdur Gáta (eldsumbrot í Vatnajökli komu stöðugt á óvart og því allt ein ráðgáta) TUMALINGUR Það er sagt að sérhver íslendingur, sé í orðum bæði klár og slyngur. Og fyrst þið spyrjið alla, hvað fjallið megi kalla, - mér finnst það geti heitið Tumalingur. (Sent inn undir kennitölu/ Gjáfell (2) Gjóska Gjóskufjall Glóra Gnýr Gnæfir Rökstuðningur jarðfræðings - nöfnin Mókollur og Undirfell Aður en ég legg til nafn- gift á fjallinu tel ég nauðsynlegt að ræða forsendur hennar, þar sem gæta þarf tvenns. í fyrsta lagi er hér vart um eiginlegt fjall að ræða; fjall er skv. Orðabók Menningarsjóðs „hæð á yfirborði lands sem gnæfir hátt yftr umhverflð". Nýja eldfjallið er vissulega fjall undir ísnum, en er jafn- framt geil á yflrborði lands- ins/íssins, sem gnæfir ekki yfir umhverfið nema síður sé; nafn á fyrirbærinu þarf að taka tillit til þessarar tvöföldu náttúru þess, sem sameinar hið karllega og hið kvenlega, jin ogjang. í öðru lagi er hér um nýtt jarðfræðifyrirbæri að ræða, sem verðskuldar nýtt safn- heiti, þó sjaldgæft sé. Við köll- um Qöll sem skjóta kollinum upp úr yfirborði sjávar eyjar eða sker, sbr. Surtsey. Sömu- leiðis köllum við fjöll sem verða til við eldgos undir jökli móbergsstapa eða móbergs- hryggi eftir að ísa leysir. Okk- ur vantar hins vegar tilfinnan- lega heiti sem nær almennt yfir eldQöll sem skjóta kollin- um upp úr þykkri jökulbrynju. Orðið „kollur" vekur upp hug- renningatengsl við orðtakið „að skjóta upp kollinum", um eitthvað sem kemur upp úr kafinu, sbr. æðarkollur. Hugsanlegt safnheiti yfir eldfjöll af þessu tagi væri mó- bergskollur, en þar sem gos- efnin hafa ekki harðnað í berg enn sem komið er legg ég til nafnið mókollur, sem er þjált í munni og næði yfir bæði hörðnuð sem óhörðnuð eld- fjöll undir ís. Heiti eldfjallsins mætti þá draga af þessu safnheiti og gæti þá verið t.d. Eldkollur, nú eða Bárðarkollur, sem er lík- lega betra, þar sem vísinda- menn telja að eldfjallið tengist líklegast megineldstöðinni í Bárðarbungu og nafnið myndi þá vísa í það að loksins sæjum við ofan á hvirfilinn á þessum e.t.v. virkasta eldjötni Islands, sem hefur verið grafinn í fönn um aldir. Að lokum vil ég koma á framfæri athyglisverðri til- lögu, sem kemur frá Sigmundi Einarssyni jarðfræðingi, sem er nafnið Undirfell. Þar er vís- að til þess að fjallið eða fellið er undir umhverfinu og mun að líkindum hverfa undir ísinn innan skamms, verði ekki frekari eldsumbrot í fjall- inu/mókolhnum. Nafnið er myndrænt og tekur að mínu mati tillit til hinnar tvöföldu náttúru þessa sérstaka jarð- fræðifyrirbæris. Hugi Ólafsson, BA íjarðfræði. Gosfell (2) Gosfjall Gosgjá Gosi (5) Gospilla (fjallið varð til i gosi og stendur eins og pilla upp úr öllu saman) Gráfell Grillir Grýla (Hræðir íbúa og vísindamenn með Skeiðarárhlaupi) Grímsfjall Gunga (dró sig í hlé áður en það náði al- mennilegri reisn) Gýgja Gýgjarkollur (Gýgur = skessa, fjallið gæti minnt á skessukoll upp úr jöklinum) Gýmir Hallgrímur Hildibrandur Hjálmur Hlaði Hlaupagosi Hlaupatindur Hleypir Hrappur Hrekkur Hrellir Hrollur Húsa Hvers manns fjall Hyrna ísbelgur ísbráð (Það bræddi sér leið upp í heiminn) fsbunga ísbúi (2) ísfell (4) Ísgrímur (svona í minningu Ásgríms héraðshöfðingja þeirra Austfirðinga) IsfjaU ískollur ísstrompur Jaki Jóð (sbr. jökul-jóð) Jökulbelgur Jökulbunga Jökultindur Jökulfell (3) Jökulfjall Jökulund (fjallið er sár í jökJin- um) Jötunfell (Jötnar einir ráða við þau firna átök sem brjótast úr iðrum jarðar, eins er þá hægt að nefna fjöll sem myndast í gosum eftir þetta eftir jötnum með endingunni fell, líkt og gert var í Vestmannaeyjum) Kambur Kóróna Kverk Loki Magni Magnúsar-melur (Þctta verður aldrei annað en melur sem fer á kaf) Það rétt grillir í Grilli, sem kannski sést ekki nema í eitt til tvö ár áður en hann grefst undir jökulinn. Hrmmir og Gjálp Guðrún Larsen, jarðfræð- ingur á jarðfræðistofu Raunvísindastofnunnar Háskólans, sendi Magnúsi Tuma Guðmundssyni jarðeðl- isfræðingi tvær jötnanafnatil- lögur á nýja fjallið en eins og fram kom í Degi-Tímanum fyrir helgi er oft farið eftir fornum sögnum þegar nefna á náttúruvætti. Magnúsi Tuma fannst bæði nöfnin góð en þau eru Hrímnir og Gjálp. „Hrímn- ir er elds- og jötnaheiti en hrím getur þýtt bæði sót og héla sem á ekki illa við gýg sem varð strax hvítur af snjó þegar gosinu lauk og sem á nú eftir að hyljast ís,“ segir Guðrún. „Gjálp er gýgjar- eða tröllkonunafn sem kemur fyr- ir í Snorra-Eddu. Gjálp var jötnadóttir sem gerði mikinn vatnsflaum á Ása-Þór. Þar segir: „Þá sér Þór upp í gljúfr- um nokkrum, að Gjálp, dóttir Geirröðar stóð þar tveim meg- in árinnar, og gerði hún ár- vöxtinn. Þá tók Þór upp úr ánni stein mikinn og kastaði að henni og mælti svo: -Að ósi skál á stemma. Eigi missti hann, þá er hann kastaði til. Og í því bili bar hann að Iandi og fékk tekið runn nokkurn og steig svo úr ánni. Því er það orðtak haft, að reynir er björg Þórs.“ Norðurbunga Nýborg Nýbúi Ólgandi Órói Ragnarsfell TUMATINDUR Dýrð þín himnesk, Drottinn minn, döprum slysum varni. Þar sem Tumi tindinn sinn teygir upp úr hjarni Vigfús Sigurðsson frá Brúnum. Risi Seiður Sést varla (Ég hef aldrei komið auga á fjallið á myndunum sem sýndar eru í sjónvarpi og blöðum) Skelfir Skorri Skrattakollur (Eftir allan hit- ann og gauraganginn sem fylgdu fæðingunni) Sindri Snæfell Sporður Stokkur Storka Strompur (3) Strókur Syðribunga (sbr. tengshn við Bárðarbungu) Tumabunga Tumafell Tumagjá Tumatindur (8) Tumaþumall (sbr. fjallið Þum- all á sama svæði) Tumi (3) Tunga („anatómísk" líking) Undur (sbr. und-úr) Týndur Upprisa Vatnabunga Vatnafeh (3) Vatnagjá Vatnalaki Vatnajökulsfjall Vatnar (2) Vatna-Tindur Virapi Vísundur (Gosið í Vatnajökli er búið að vera vísindamönnum mikið undur) Þarna er það („There it is“ frá Steve) Þrumutindur Þrymsfell Þrymur Þurs Leiðrétting Kjartansson ekki Kvaran Þau mistök áttu sér stað í fróð- legu viðtali við Thor Vilhjálms- son skáfd í föstudagsblaðinu að hann var sagður halda upp á Ævar Kvaran þegar hið rétta er að Thor nefndi Ævar Kjartans- son sem ágætismann í útvarpi.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.