Dagur - Tíminn - 01.11.1996, Blaðsíða 2
14 - Föstudagur 1. nóvember 1996
íOagur-Œtnmm
HELGARLÍFIÐ í LANDINU
pabba
Það er algengt að börn á íslandi búi einungis hjá
öðru foreldri sínu en dvelji hjá hinu t.d. aðra hvora
helgl Slíkar helgar kallast í daglegu tali pabbahelg-
arþar sem mœðurnar hafa jafnan börnin.
Hvernig er hin ákjósanlegasta pabbahelgi í augum
helgarfeðra? Er dagskráin kannski fullskipuð, t.d.
vaknað snemma, svamlað í sundi, keyptar pylsur og
kók, rúntað niður að höfh með viðkomu í ísbúðinni,
farið á þrjú bíó og að lokum brunað á nœsta skyndi-
bitastað áður en bardaginn við Óla lokbrá hefst.
í sund á simnudögum
Annan hvern miðvikudag
fær Skúli G. Jensson
fjögura ára dóttur sína,
Aldísi Hlín, og hefur fram á
sunnudag. „Við reynum að hafa
virku dagana sem venjulegasta
en um helgar gerum við okkur
dagamun, segir Skúli.“
Feðginin fara alltaf í sund á
sunnudögum og fá sér jafnan ís
á eftir. „Það er langbesta að-
staðan fyrir börn í sundlaugun-
um í Árbæ og Kópavogi.“
Stundum fara þau
í Húsdýragarðinn
en Aldís Hlín
heldur mest upp á
sehnn Snorra. Þá
bregða þau sér
endrum og eins í
þrjúbíó, þó ekki
nema um talsettar
myndir sé að
ræða. Ennfremur
finnst þeim gam-
an að fara í leik-
hús, síðast sáu
þau Línu Laiig-
sokk og skemmtu
sér bæði konung-
lega.
Skúli segir
dóttur sína syngja
vel og að hún læri
fullt af lögum á
leikskólanum. „Ég
keypti sönghefti af
skólanum þannig
að nú get óg sung-
ið með henni. Við
syngjum oft há-
stöfum, sérstaklega þegar við
erum á ferð í bílnum.“
- Hefur Aldís Hlín eignast
leikfélaga í nágrenni við heimili
þitt? „Nei, hún er það lítil að ég
þori ekki að hleypa henni einni
út svo erum við líka alveg á
fullu um helgar. Eldri stelpur
hafa komið og boðist til að
passa en ég vil bara hafa hana
út af fyrir mig rétt á meðan hún
er hjá mér.“
gos
„Fjarlægðin hamlar
meiri samvistum“
Dóttir Skúla
og Halldóru
Geirharðs-
dóttur er Steiney,
sex ára gömul,
dvelst tíðum hjá
föður sínum sem
starfar hjá Leikfé-
lagi Akureyrar.
„Ég veit ekki
hvort segja skal að
ég sé helgarpabbi.
Dóttir mín er oft
hjá mér, kannski
má segja að hún
eigi heimili bæði
hér á Akureyri og í
Reykjavík hjá
mömmu sinni og
finnst það svolítið
spennandi."
Skúli segir að
hann og dóttir sín
geri sér sitthvað til
gamans þegar hún
dvelst nyrðra.
Skautar, sund, hjól-
reiðar og gönguferðir eru með-
al dagskrárliða - og einnig sæk-
ir hún mikið með föður sínum í
leikhúsið, þar sem hún er orðin
hagvön öllum hlutum. Einnig á
hún sínar vinkonur á Akureyri,
rétt einsog fyrir sunnan.
„Steiney er alveg orðin
brynjuð fyrir ofbeldi eða
erótískum senum á leiksviðinu.
En það fer afskaplega illa í
hana að fylgjast með rifrildi
fuilorðins fólks á leiksviði. Þeg-
ar hún sér það dæmir hún leik-
ritið úr leik, hversu gott sem
það er að öðru leyti. Kannski er
það sársaukafyllsta við að búa
hér, að geta ekki verið meira
með dóttur minni,“ segir Skúli.
-sbs.
Athugasemdir
ónafngreindra
helgarpabba
og annarra
vidmælenda:
„Það er best að hafa
ákveðna reglu á því
hvenœr pabba-
helgarnar eru,
allar breytingar /costa
bara vesen. “
•
„Þarna er enn einn
helgarpabbinn hugsar
fólk þegar það mœtir
manni með barnið. “
„Pabbahelgarnar
eru of stuttar. “
•
„Það er erfitt þegar
maður er staddur á
almannafœri með
barnið og það fer að
suða um hitt og þetta. “
•
„Pabbahelgar eru í
sumum tilvikum miklu
frekar ömmuhelgar. “
•
„Efég vœri helgar-
pabbi, eins og hinir
strákarnar, þá myndi
ég hafa afsökunfyrir
því að djamma ekki
um hverja helgi og
gœti þess í stað rölt
um bœinn með
krakkann, gefið
öndunum brauð
o.s.frv.“
Dætumar
með í ráðum
Jón Ingi Árnason á tvær
dætur, Lottu 14 ára og
Sigrúnu sem er rétt að
verða 13. Þær búa hjá móður
þeirra í Hveragerði en á sumrin
Íh og tvær helgar af hverjum
þremur á veturna eru þær
hjá Jóni Inga í Reykjavík.
„Þessi regla er eitthvað að
breyast núna enda eru
stelpurnar orðnar það
stórar að þær vilja vera
með í ráðum,“ segir
Jón Ingi.
- Hvað gera feðg-
inin helst þegar þau
hittast um helgar?
„Það er svo margt,
við förum oft í
bíó, bíltúra og í
heimsóknir til
vina og ætt-
ingja. Við gerum líka margt
saman hérna heima, erum t.d.
mikið í tölvuleikjum en þær eru
ekkert voða hrifnar af húsverk-
unum.“ - En eru dæturnar með
ákveðnar skoðanir á helgar-
matseðlinum? „Já, þær myndu
helst vilja panta pizzu eða fara
á Hlölla og kaupa línubát og
pinnabát um hverja helgi.“
Hafa pabbahelgarnar
breyst eftir að dæturnar komust
á táningsaldurinnn? „í rauninni
hafa helgarnar sáralítið breyst
- þær eru alltaf jafnt ljúfar - að
öðru leyti en því að núna taka
stelpurnar oft vinkonur sínar úr
Hveragerði með. Svo er félags-
lífið farið að verða meira hjá
þeim, það eru t.d. stundum
uppákomur á föstudagskvöld-
um í skólanum." gos
Sprækir í sportinu
Björn Steffensen
er tiltölulega ný-
byrjaður að
umgangast son sinn
Davíð Aron sem er 7
ára. „Við höfum haft
hægan stíganda í
þessu, ég tók strákinn
bara stutta stund fyrst
í stað en núna er hann
farinn að gista hjá
mér.“
Björn hefur farið
töluvert í Skálafell með
soninn, þar renna þeir
sér á skíðum og keyra
stundum um á snjó-
sleða. „Stráknum
finnst þetta mjög gam-
an og er orðinn nokkuð spræk-
ur á skíðunum. Honum finnst
líka mikið sport að fá að taka í
stýrið á sleðanum.“ Feðgarnir
hafa einnig farið saman á æf-
ingar í Eróbiksport, sá litli
hleypur þá sem mest hann get-
ur á hlaupabrettinu meðan sá
stóri fer hringinn í líkamsrækt-
artækjunum.
Aðspurður segir Björn Hús-
dýragarðinn alltaf standa fyrir
sínu. Skyndibitastaði borgar-
innar hafa þeir feðgar prófað
flesta en maturinn hjá ömmu er
líka voða vinsæll. gos