Dagur - Tíminn - 01.11.1996, Blaðsíða 15
iDagur-©mtmt
Föstudagur 1. nóvember 1996 - 27
Uf>páJia£dó útucvtpó- ag, ójéctucvtpóefaií
íslensk dagskrárgerð í molum
Örn Ingi Gíslason
Jjöllistamaður
Það fer eftir því hvort ég
er latur eða upptekinn
hvort ég horfi á sjón-
varp. Ef ég er upptekinn get-
ur oft komið fyrir að ég sjái
ekki sjónvarp í tvo mánuði. Sé
ég hins vegar alveg á lausu
sækist ég helst eftir íslenskri
dagskrárgerð," segir Örn Ingi,
ijöllistamaður á Akureyri.
Hann er þó ekki sáttur við
hvernig þessu uppáhaldssjón-
varpsefni hans er háttað og
segir íslenska dagskrárgerð í
molum. „Stóra gatið er að
sjónvarpskvikmyndir eru ekki
gerðar. Slíkt hefur ekki verið
gert í mörg ár.“
„Mér er alveg sama um
fréttir en mér finnst helgarn-
ar hálf ónýtar ef ég fæ ekki
einhverjar spennumyndir til
að halda mér vakandi. Varð-
andi útvarp hlusta ég aldrei á
Bylgjuna, veit varla að hún sé
til. Ég hlusta á Gufuna til
svona ijögur og þá skipti ég
stundum yfir á Rás 2. Er þó
farinn að hlusta meira á víð-
sjána hjá Ævari. Einnig hlusta
ég á svæðisútvarpið og hef oft
gaman af Laufskálanum.
Reyndar finnst mér að mætti
hafa meira fyrir því að ná í
viðmælendur þannig að þeir
séu ekki bara einhverjir sem
búa í næsta nágrenni við
stúdíóið.“
Peir Örn Ingi og Sigurður Valgeirsson hefðu eflaust um nóg að tala
myndu þeir hittast. Örn Ingi segir íslenska dagskrárgerð í molum en
Sigurður er, eins og flestir vita, dagskrárstjóri innlendrar dagskrár hjá
Ríkissjónvarpinu.
AHUGAVERT I K V OL D
Sjónvarpið kl. 21.15
Landsleikur í handbolta
Islenska karlalandsliðið í handbolta á í
harðri keppni við Grikki, Dani og
Eista um laust sæti á Heimsmeistara-
mótinu í Japan. Nýlega vann liðið stór-
sigur á Grikkjum hér heima en gerði síð-
an jafntefli við þá ytra. í lok nóvember
og í byrjun desember verður spilað við
Dani heima og heiman en í kvöld og á
sunnudagkvöld verður keppt við piltana
frá Eistlandi. Sjónvarpið sýnir seinni
hálfleiki beggja leikjanna beint. I kvöld
hefst útsending frá leiknum klukkan
21.15 en á sunnudagskvöld hefst seinni
hálfleikur kl. 20.40.
Meimingar-
síður DV
Fyrir nokkrum mánuð-
um fékk flettiþörf rýn-
is rækilega útrás við
að fá DV í hendurnar. Nú er
öldin önnur og er þar fyrir
að þakka nýjum liðsmanni
ritstjórnar, Silju Aðalsteins-
dótttur.
Frá því rýnir fór að fletta
DV daglega hefur menning-
arumijöllun verið illilega af-
skipt og helst ekki sinnt
nema aðilar menningargeir-
ans tækju að rífast, kýta eða
haga sér eins og bjánar, t.d.
í liðinni deilu Viðars og LR.
Þá hljóp dágott líf í umljöll-
unina en það sem þetta
listapakk var að gera og
hugsa sér og stundum öðr-
um til skemmtunar vakti
sjaldnast áhuga DV. Auðvit-
að er hasar spennandi og
ekki síst þegar menn fara
að rífast af almennilegri
heift þannig að í hana slæð-
ast einhverjar eftirhreytur
tilfinninga og hugsjóna. En
þess á milli hefði kannski
verið snjallt að bjóða les-
endum upp á örlítið meira
kjöt en finnst á innslegnum
fr éttatilkynningum.
Síðan Silja tók við í sum-
ar hefur rýnir orðið að leita
sér annarra blaða til að full-
nægja flettiþörfinni. Menn-
ingarsíðurnar hafa tekið á
sig fasta og litríka mynd. Og
óhkt því sem segja má um
menningarsíður risans eru
þær hlýlegar. Það er á þeim
einhver svona vinalegur
tónn - ekki sá hinn sami og
útgáfustjóri Vöku-Heigafells
finnur í skrifum Skúla
Björns sem nú má nefna í
sömu andrá og Ilalldór Lax-
ness - heldur frekar þannig
að skrifin eru ekki upphafin
eða ijarlæg heldur íjölbreytt,
fljótlesin og upplýsandi.
SJÓNVARP - TJ T V A R P
o
S T O Ð
Jj #svn 0
SJONVARPIÐ
16.20 Þingsjá. Umsjónarmaður er
Helgi Már Arthursson.
16.45 Leiðarljós. Bandarískur mynda-
flokkur.
17.30 Fréttlr.
17.35 Táknmálsfréttir.
17.45 Auglýsingatími - Sjónvarps-
krlnglan.
18.00 Malli moldvarpa og Bílaleikur.
18.25 Horfna frímerkið. (Jakten pá
Mauritius).
18.50 Fjör á fjölbraut. (Heartbreak'
High III).
19.50 Veður.
20.00 Fréttir.
20.35 Happ í hendi.
20.40 Dagsljós.
21.15 Landsleikur í handbolta. Bein
útsending frá seinni hálfleik viðureign-
ar íslendinga og Eista sem fram fer í
Laugardalshöll.
21.55 Félagar. (Die Partner).
22.45 Helluparís (Heartstones). Bresk
spennumynd byggð á sögu eftir Ruth
Rendell um tvær systur sem gruna föð-
ur sinn um græsku eftir að móðir
þeirra deyr en vandræði þeirra eru rétt
að byrja. Aöalhlutverk leika Anthony
Andrews, Emily Mortimer, Helen
Mitchell og Daisy Haggard. Atriði I
myndinni eru ekki við hæfi barna.
00.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
STOÐ 2
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Ys og þys út af engu (Much
Ado about Nothing). Rómantískur gam-
anleikur eftir Shakespeare. Aðalhlut-
verk: Kenneth Branagh, Emma Thomp-
son, Michael Keaton, Keanu Reeves
og Denzel Washington. 1993.
15.00 Taka 2 (e).
15.30 Hjúkkur (13:25) (Nurses) (e)
16.00 Fréttir.
16.05 Köngulóarmaðurinn.
16.30 Sögur úr Andabæ.
16.55 í Erilborg.
17.20 Mínus.
17.25 Vatnaskrímslin.
17.30 Glæstar vonir.
18.00 Fréttlr.
18.05 íslenski listinn.
19.00 19 20.
20.05 Lols og Clark.
21.05 Karatestelpan.
22.55 Gildran (Trapped in Space).
Framtíðarmyndir eru þema mánaðar-
ins á Stöð 2 og viö byrjum á þessari
spennandi geimmynd með Jack
Wagner, Jack Coleman og Kay Lenz í
aöalhlutverkum. Stranglega bönnuð
börnum.
0.20 Ys og þys út af engu (Much Ado
about Nothing). Sjá umfjöllun að ofan.
2.15 Dagskrárlok.
STOð 3
08.30 Heimskaup. Verslun um víða
veröld.
17.00 Læknamiðstöðln.
17.20 Borgarbragur. (The City).
17.45 Laus og liðug. (Caroline in the
City). Bandarískur gamanþáttur.
18.10 Heimskaup. Verslun um víða
veröld.
18.15 Barnastund.
19.00 Ofurhugaíþróttir.
19.30 Alf.
19.55 Murphy Brown.
20.20 Umbjóðandinn. (John Gris-
ham's The Client). Vinsæll spennu-
myndaflokkur sem byggður er á sam-
nefndri metsölubók Johns Grisham.
21.05 Réttlæti. (Gunsmoke - One
Man's Justice). Spennandi vestri með
James Arness, Bruce Boxleitner, Amy
Stock-Poynton og Alan Scarfe í aðal-
hlutverkum. Myndin er ekki við hæfi
barna.
22.35 Skollaleikur. (Blue Murder)
00.05 Ofríki. (Sexual Advances).
Paula Pratt er hamingjusamlega gift
og forsvarsmaöur blómlegs fyrirtækis.
Samstarfsmaður hennar og félagi til
margra ára tekur upp á því aö gefa
henni undir fótinn og þegar hann finn-
ur mótspyrnu Paulu færist hann allur í
aukana.
01.35 Dagskrárlok Stöðvar 3.
SYN
17.00 Spítalalíf (MASH).
17.30 Taumlaus tónlist.
20.00 Framandi þjóð (Alien Nation).
21.00 Butch og Sundance (Butch and
Sundance: The Early Days).
Skemmtileg mynd með Tom Berenger,
Brian Dennehy, Peter Weller og fl.
Leikstjóri: Richard Lester. 1979.
Bönnuð börnum.
22.45 Undirheimar Miami (Miami
Vice).
23.35 Körfuboltastrákarnlr (Above
the Rim).
Skemmtileg og heillandi mynd um
unglingspilt sem er efnilegur körfu-
boltamaöur og samskipti hans við tvo
afvegaleidda bræöur sína. 1994.
Stranglega bönnuð börnum.
1.10 Spítalalíf (MASH).
1.35 Dagskrárlok.
RÁS 1
9.00 Fréttir. 9.03 „Ég man þá tíð“.
9.50 Morgunlelkfimi með Halldóru
Björnsdóttur. 10.00 Fréttir. 10.03 Veð-
urfregnir. 10.15 Sagnaslóð. 11.00
Fréttir. 11.03 Samfélagið í nærmynd.
12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.20 Há-
degisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. 12.50
Auðlindin. 12.57 Dánarfregnir og aug-
lýsingar. 13.05 Hádegisleikrit Útvarps-
leikhússins. Ástir og árekstrar eftir
Kenneth Horne. 13.20 Hádegistónar -
létt lög á föstudegi. 14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan, Lifandi vatnið
eftir Jakobínu Sigurðardóttur (14).
14.30 Miödegistónar. 15.00 Fréttir.
15.03 Afreksmenn í 40 ár. 15.53 Dag-
bók. 16.00 Fréttir. 16.05 Fimm fjórðu.
Djassþáttur. 17.00 Fréttir. 17.03 Víð-
sjá. 18.00 Fréttir. 18.03 Þingmál.
18.30 Lesið fyrir þjóðina: Fóstbræðra-
saga. Dr. Jónas Kristjánsson les. (Upp-
taka frá 1977.) 18.45 Ljóð dagsins.
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar
og veðurfregnir. 19.40 Sónata. 20.20
Sagan bak við söguna. 21.20 Heimur
harmóníkunnar. Umsjón: Reynir Jónas-
son. 22.00 Fréttir. 22.10 Veðurfregnir.
22.15 Orö kvöldsins: Þorsteinn Har-
aldsson flytur. 22.20 Tónlist á síö-
kvöldi. 23.00 Kvöldgestir. Þáttur
Jónasar Jónassonar. 24.00 Fréttir.