Dagur - Tíminn - 01.11.1996, Síða 8
I
20 - Föstudagur 1. nóvember 1996
jriagur-(Eíttrtim
FOLK O G ICETTIR
Barti verður frægur!
Kötturinn Barti á Öldugöt-
unni er á góðri leið með
að verða heimsfrægur í
Ameríku! Skyldi engan undra
eftir að þessi mynd var send í
samkeppni katta um að komast
á nýtt dagatal í þeirri stóru (og
kattmörgu) álfu. Barti verður
„köttur mánaðarins" einhvern
tímann árið 1998 og snýr þar
með á ótalmarga aðra ketti sem
reyndu að öðlast þennan heið-
ur. (Samanber „leikfang mán-
aðarins" í herratímaritum!)
Auglýst var eftir þátttöku á
Internetinu og fór myndin sím-
leiðis vestur, „eftir það leit ég
aldrei um öxl,“ sagði Barti í
einkaviðtali við Dag-Tímann, en
hann horfir nú til framtíðar og
á von á fleiri fyrirsætustörfum.
Barti er til heimilis hjá Nönnu
og Viðari á Öldugötu. Þess má
geta að Barti er bróðir Kára,
ritstjórnarkattar Dags-Tímans,
sem útvegaði reyndar einkavið-
tal þetta við bróður sinn. (Kári
fullyrðir að myndin sé æsku-
mynd af honum sjálfum, en því
er harðlega mótmælt í fjölskyld-
unni).
Myndin fræga afBarta sem fara mun um víða veröld. Til vinstri er bróðir hans Kárl
Stykkishólmur
Mynd: Pjetur
Það er ráð að leika sér ífótbolta áður en vetur konungur tekur öll völd.
Tveir ungir piltar ífótboltaleik fyrir utan Grunnskólann í Stykkishólmi ífallegri
haustblíðunni
Mynd: Pjetur
Vetrardekkin undir
Viðar Halldórsson framkvœmdastjóri Gúmmívinnustof-
unnar þurfti heldur betur að taka til hendinni þegar -
snjóafór í höfuðborginni á dögunum.