Dagur - Tíminn - 15.11.1996, Blaðsíða 11
;Ðagur-®mrimT
Föstudagur 15. nóvember 1996 - 23
FÍNA FRÆGA FÓLICIÐ
ÚLfur í
sauðargæru
Anthony Hopkins keyrir þegar hann vill slappa af. Nýlega var hann í frfi og keyrði
átta þúsund kílómetra á tíu dögum.
g hef verið að leika hálf-
dauða menn í mörg ár en
Jl—i ég er alls ekki þannig
karakter í alvörunni, sagði leik-
arinn Anthony Hopkins nýlega í
blaðaviðtali. (Ég leyfi mér að
minna á hlutverk Hopkins í Ho-
wards end, Remains of the day,
og Shadowlands). - Og þetta er
víst alveg rétt. Hopkins var á
árum áður drykkjusvoli sem
var þekktin- fyrir svakaleg
reiðiköst. - Á leiksýningu á
Broadway skammaði hann
áhorfendur fyrir að koma of
seint og í London strunsaði
hann eitt sinn út í miðri sýn-
ingu.
Hopkins hætti að drekka fyr-
ir 21 ári og vinir hans segja að
hann hafi meiri stjórn á púkan-
um í sér en áður. Reyndar segir
leikkonan Emma Thompson að
Hopkins líkist eldijalli sem þurfi
að senda frá sér spýju við og
við. (Móðir Emmu sendi Hopk-
ins skilaboð þegar ákveðið var
hann og Emma myndu leika
saman í Howards end þar sem
stóð: Vinsamlega ekki éta hana!
og var þar væntanlega að vísa
til mannætunnar Hannibals í
myndinni Lömbin þagna, sem
Hopkins lék af svo mikilli innlif-
un.
Margir stórleikarar taka
leikhúsið fram yfir kvikmynd-
irnar, en Hopkins því sem næst
hatar leikhúsið. Hann segir að
sviðsskrekkurinn sé hræðileg
tilfinning, honum finnist hann
innilokaður í leikhúsinu og
hann þoli ekki endurtekningar.
Það er ömurlegt að fara upp á
svið og þurfa að gera áhorfend-
um til geðs... Mér líkar illa að
láta áhorfendur góna á mig -
500 pör af augum sem horfa á
mig. Mér líkar betur við kvik-
myndaleik vegna þess hve
ópersónulegur hann er.
Satt
og logið
Það getur verið erfitt að vera lág-
vaxin stórstjarna, ég tala nú ekki
um ef maður er karlkyns og gift-
ur hávaxinni konu. Sagt var að Tom
Cruise væri hundleiður á því að þurfa
alltaf að horfa upp til hinnar hávöxnu
eiginkonu sinnar, Nicole Kidman. í ör-
væntingarfullri tilraun til að bæta
nokkrum sentimetrum við líkams-
hæðina tók Tom upp á því að hanga á
hvolfi í 90 mínútur á hverjum degi. Því
var haldið fram að leikarinn gæfi til-
rauninni þrjá mánuði til að virka. -
Aldrei bárust fregnir af því hvort að
þetta bar árangur og líklega var þetta
bara skröku-lygi, eins og Eiríkur (jalar
segir. A.m.k. sagði talsmaður stór-
stjörnunnar þetta alls ekki vera satt.
Tom væri fullkomlega ánægður með
hæð konu sinnar - og sína eigin. Til
fróðleiks má geta þess að Tom er 1,75
metrar á hæð en kona hans er rúmum
þremur sentimetrum hærri.
Hjónakornin Tom Cruise og Nicole Kidman.
Teitur Þorkelsson
skrifar
Að sá
fræjum
að er ótrúlegt hverju ímynd-
unarafl manneskjunnar get-
ur komið til leiðar, sérstaklega
ef það fær nægan tima til að
reika um alla þá heima sem
gætu orðið, allt sem gæti gerst.
Þannig er hægt að sá fræjum í
huga fólks, fræjum sem munu
vaxa og verður hægt að upp-
skera þegar fram líða stundir.
Stundum uppsker maður ást og
stundum vináttu þó flest verði
aðeins minningarbrot um fólk
sem maður hitti á lífsleiðinni,
spennandi afleggjarar út frá
þeim vegi sem maður gekk og
manni gafst ekki tími til að
kanna til hlítar. Nokkur augna-
tillit og bros frá sömu mann-
eskjunni og maður fer að
kunna vel við hana, hún fer að
eiga sér stað í hjarta manns. Og
hjólin fara að snúast í huga við-
komandi, hvort sem um er að
ræða sæta strákinn úti í búð
eða konuna sem brosir til
manns á hverjum morgni í
sundlauginni. Öll þessi litlu at-
vik eru fræ sem munu vaxa og
besti áburðurinn er tíminn. Því
þegar þú hefur lagt slíkt fræ inn
í huga manneskju gætir þú orð-
ið hluti drauma hennar, lausn í
hvert skipti sem erfiðleikar
steðja að eða þegar hugurinn
leitar að einhverjum til þess að
deila með lífi. Og ef heppnin er
með gætir þú orðið stærri hluti
af daglegum raunveruleika
þeirrar manneskju sem þú
brostir til fyrir tilviljun.
Rabbfundur
um feröamál
Tómas I. Olrich alþingismaður heldur rabbfund um
ferðamál á veitíngahúsinu Bautanum á Akuregri
föstudaginn 15. nóvember kl. 16.00.
Allfr velkomnir!
Viðtalstími
verður á skrifstofu SjálfstæOisflokks-
ins að Haupangi við Mgrarveg laugar-
daginn 16. nóvember nk. kl. 10.00 -
12.00 og 13.00 - 15.00.
Deildarfundir
KEA1996
Höfðhverfíngadeild
Deildarfundinum, sem halda átti þriðju-
daginn 19. nóvember, er frestað um
óákveðinn tíma.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. nóvember 1996 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 24. útdráttur
1. flokki 1990 - 21. útdráttur
2. flokki 1990 - 20. útdráttur
2. flokki 1991 - 18. útdráttur
3. flokki 1992 - 13. útdráttur
2. flokki 1993 - 9. útdráttur
2. flokki 1994 - 6. útdráttur
3. flokki 1994 - 5. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
föstudaginn 15. nóvember.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi
í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
HÚSNÆHSSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900