Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Page 1

Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Page 1
Atvinnuleysistryggingar Breytingar gagnrýndar Stjórnarandstæðingar eru ósáttir við frumvarp um atvinnleysistryggingar, sem félagsmálaráðherra mælti fyrir á alþingi í gær. I>að er ekki síst ákvæði um að fólk öðlist ekki rétt til atvinnuleysisbóta fyrr en það hefur náð 18 ára aldri, sem þeir telja varhuga- vert, en með því á að spara 48 til 56 milljónir króna. Bryndís Hlöðversdóttir, Al- þýðubandalagi, sagði launafólk hafa yfir fáu að gleðjast í frum- varpinu, enn væri verið að herða skiiyrði og þrengja rétt manna á bótum. Rannveig Guðmundsdóttir, Alþýðuflokki, gagnrýndi ákvæði um að atvinnulaust fólk verði að vera tilbúið að ráða sig í fullt starf og sagði þar vegið sérstaklega að fjölskyldufólki með ung börn. í frumvarpinu er einnig ákvæði um að ef fólk segi sjálft upp störfum, fái það ekki atvinnuleysisbætur fyrr en að 55 dögum liðnum. Þetta gagnrýndi Kristín Ástgeirsdótt- ir, Kvennabsta, og benti á að fólk gæti neyðst til að segja starfi sínu lausu af ýmsum ástæðum, t.d. vegna kynferðis- legrar áreitni. Handknattleikur Enn engar greiðslur til félaganna Ekki er enn farið að greiða handknattleiksfélögunum þeirra hlut af samningi HSÍ og Félagi 1 .deildarfélaga við RÚV og Stöð 3, en félögin áttu að fá fyrri greiðslu sína af tveim 1. nóv sl. Að sögn Arnar Magnússonar, framkvæmda- stjóra HSÍ, er ástæða þess fjár- námið sem gert var í samningn- um, en unnið er að lausn þess máls. Örn tók það skýrt fram að RÚV og Stöð 3 hafi staðið við sitt, það séu HSÍ og Félag 1. deildarfélaganna sem ekki hafi sent reikninginn til þeirra. Einnig tók Örn fram að félögin sjálf ættu að sjá um að inn- heimta sinn hluta greiðslunnar. Páll Alfreðsson, formaður KA, segist aldrei hafa heyrt að félögin ættu að standa í að rukka RÚV og Stöð 3 enda gæti hann ekki séð hvernig það ætti að vera hægt þar sem samning- urinn væri ekki á kennitölu KA heldur HSÍ. Þá höfðu KA-menn aldrei samþykkt samninginn eða skrifað undir hann og því vissi hann lítið um hvað stæði í honum. Um skuld HSÍ við KA frá fyrra ári sagði Páll að upp- gjöri vegna hennar væri ekki lokið en eitthvað hefði þó grynnkað á henni. gþö Milljónatjón varð þegar sendibíll af Benz-gerð sprakk við Urriðavatn í fyrrakvöld. Tveir menn voru að störfum skammt frá en sluppu ómeiddir. Bíllinn var í raun verkfærageymsla á hjólum, notaður af hitaveitumönnum. Akureyri úorsteinn EA-810 tók niðri á hóbnim Nótaskipið Þorsteinn EA-810 tók niðri á hólnum suður af ÚA- bryggjunum í Akureyrarhöfn þegar hann var að halda á miðin í gærmorgun. Grafin er renna með bryggjunum en kanturinn þar suður af hefur stundum orðið til þess að skip hafa tekið þar niðri. Hafnsögubáturinn Sleipnir kippti í Þorstein og tókst að losa hann, en útfall var þegar þetta gerðist. Skipið er væntanlega komið á miðin þegar þessi lesning kemur fyrir augu lesenda Dags-Tím- ans. GG/'v'yna. jhf Hafrannsóknarstofnun \1111.600 þús. tonn af loðnu Haustmæhngum á stærð loðnustofnsins sem fram- kvæmd var á rannsókn- arskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni, er ný- lokið. Eins og undanfarin haust er loðnan alls staðar mjög blönduð, þ.e. mildð er af smá- um og ókynþroska fiski saman við hrygningarstofn og þar með veiðistofninn. Við útreikning á aflakvóta út frá haustmælingu hefur jafnan verið gert ráð fyrir því að aflinn dreifðist tiltölulega jafnt yfir þann hluta vertíðar- innar sem eftir er; 400 þúsund tonna hrygningarstofni í lok vertíðar og auk þess nokkurri þyngdaraukningu og náttúru- legum dauða. Samkvæmt þess- ari vinnureglu reiknast leyfileg- ur hámarksafli um ein milljón tonna á tímabilinu nóvember 1996 til vertíðarloka 1997. Vegna þess að ókynþroska loðna var saman við veiðistofn- inn víðast hvar á útbreiðslu- svæðinu er líklegt að stærð hrygningar- og veiðistofnsins sé eitthvað ofmetin. Því leggur Hafrannsóknarstofnun til að heildarkvótinn á ver- tíðinni 1996/1997 verði 1.600 þúsund tonn en það er í sam- ræmi við fyrri spár um stofnstærð og afla- mark. Sverrir Leós- son, útgerðarmaður á Akureyri, segir ákvörðun Hafrann- sóknarstofnunar skyn- samlega og hann álíti að það sé áht all- flestra útgerðar- manna enda tryggi ákvörðunin það að stofnstrætin haldi sér og áframhald verði á góðum loðnuvertíðum. GG Sverrir Leósson útgerðarmaður Skynsamleg ákvörðun og það er sátt um þessa ákvörðun Haf- rannsóknarstofnunar meðal útgerðarmanna sem tryggir það að stofhstœrðin haldi sér. Lífið í landinu Útivinnandi konur SÍMANÚMER Á RITSTJÓRN ER 800 7080

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.