Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Qupperneq 5

Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Qupperneq 5
®agur-®mmtrt A F R E T T I R Miðvikudagur 20. nóvember 1996 - 5 -gpWPKMHjllil ^ipillM Talið er líklegt skv. heimildum Dags-Tím- ans að ekki verði kos- ið um prest í Lang- holti enda sóknar- börn allflest orðin þreytt á sundurlyndi og væringum. Þó rennur frestur til að skila undirskriftum ekki út fyrr en í dag og er ljóst að einhver hluti sóknarbarna er ekki sáttur og starfar á laun eins og meðfylgjandi bréf frá árinu 1991 sýnir, en það var sent nafnlaust inn til ristjórnar Dags-Tímans. Þetta er bréf sem Jón Stefánsson organisti og sr. Sigurður Haukur Guðjónsson, þáverandi sóknarprestur í Langholtskirkju, sendu sóknar- nefnd Langholtssóknar 02.04. 1991 þegar prestskosningar voru framundan í Langholti. Þar kemur fram vilji þeirra, að sr. Jón Helgi Þórarinsson, hijóti brauðið. „Niðurstaða okkar er mjög eindregin, sú að séra Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestiu á Dalvík, hafi það til að bera, er við leitum eftir. Starfa okkar vegna þekkjum við mjög vel til presta, og án þess að kasta rýrð á einn eða neinn, er það bjarg- fast álit okkar, að séra Jón sé svar okkar nú“, segir m.a. í bréfinu sem birt er í heild sinni hér annars staðar á síðunni. Dagur-Tíminn hafði sam- band við Jón Stefánsson og spurði hvort hann hefði þá á einhvern hátt beitt sér fyrir því nú nýverið að sr. Jón Helgi fékk kosningu sem arftaki sr. Flóka Kristinssonar, sem hætt hefur Frá safnaðarfundi í Langholtskirkju í fyrravetur. störfum í Langholti eftir róstu- samt samneyti við Jón. „Ég get sagt það með góðri samvisku að ég hafði hvorki samband við Jón Helga eða sóknar- nefndina nú, ég beið eins og allir aðrir sem létu sig þessi mál einhverju varða eftir að heyra fréttirnar þegar niðurstaðan var kynnt. Ég lýsti því yfir við sóknarnefnd að ég myndi starfa með hverjum og einum sem valinn yrði úr þessum hópi, ég er búinn að vinna með þessu fólki og þekki það svo vel að ég hefði í raun getað stutt hvern sem er.“ Og samstarf þitt við sr. Flóka hefur þá ekki litast af fyrir- framvilja þínum að sr. Jón Helgi myndi starfa með þér í Lang- holtskirkju? „Nei, þá voru kringumstæður einfaldlega allt aðrar, Þá var ekki komin þessi reynsla sem nú er af vali presta. Það var t.d. Mynd: GS nýbúið að velja sr. Pálma í Bú- staðakirkju, sóknarnefndin kallaði hann einfaldlega til starfa og það var sá háttur sem búist var við að yrði í Lang- holtskirkju. Sóknarnefndin þurfti þá að vita hvort ég væri sáttur við þennan mann og þannig var þetta bréf til komið. Það sótti enginn um á móti Jóni Helga þangað til að hann dró sig til baka rúmum sólarhring áður en umsóknarfrestur rann út og það var vegna mjög per- sónulegrar ástæðu. Þetta at- burðaferli átti sér mjög eðlileg- ar skýringar og nú er búið að skýra þessar reglur mun betur en var á þessum tíma,“ segir Jón Stefánsson. BÞ Jón Stefánsson organisti „Ég hafði hvorki samband við Jón Helga eða sóknarnefndina nií Ennþá væringar í Langholti Til sóknar- nefndar Langholts- sóknar Kæra samstarfsfólk. Þar eð prestskosning er á næsta leyti í Langholts- prestakalli í Reykjavík, þykir okkur undirrituðum ekki óeðlilegt, að við tjáum okkur um það mál við sóknarnefnd, sem stendur frammi fyrir því að velja öðrum okkar samstarfs- mann, hinum eftirmann. Metnaður okkar, eins og ykkar, er mikill fyrir hönd safnaðarins og því höfum við lagt niður fyrir okkur hver presta væri líklegast- ur til þess að svara þeim væntingum. Niðurstaða okkar er mjög eindregin, sú að séra Jón Helgi Þórar- insson, sóknarprestur á Dalvík, hafi það til að bera er við leitum eftir. Starfa okkar vegna þekkjum við mjög vel til presta og án þess að kasta rýrð á einn eða neinn, þá er það bjarg- fast álit okkar, að séra Jón sé svar okkar nú. Lög gera ekki ráð fyrir að við höfum neitt um valið að segja, leggja alla ábyrgð á ykkar herðar, sóknanefndar- manna, það vitum við, en þau banna okkur ekki að segja ykkur okkar áht og h'tinn vinargreiða teldum við það við ykkur að þegja þunnu hljóði, við svo ör- lagaríka ákvörðun. Ef sóknarnefnd er okkur sam- mála, að séra Jón Helgi sé svarið, munum við beita okkur fyrir því að hann sæki. Með bestu kveðjum, Sigurður Haukur Guðjónsson Jón Stefánsson Suðurland: Miklu var slátrað heima í haust Jafnréttisnefnd BSRB JaMaunasamningar Mikið af kjöti sem tekið var hjá Kamba kjöti í Hveragerði í fyrradag var af heimaslátruðu. Já, ég hef það á tilfinning- unni að mikið hafi verið slátrað heima af sauðfé á Suðurlandi í haust. Slíkt er svartur blettur sem til dæmis forysta Bændasamtakanna verður að bregðast við. Mikið af því kjöti sem tekið var hjá Kambakjöti var af heimaslátr- uðu, var ekki heilbrigðisskoðað og tekið til vinnslu fyrir fólk úti í bæ,“ segir Matthías Garðars- son, framkvæmdastjóri Heil- brigðiseftirlits Suðurlands. Kjötvinnslu Kambakjöts hf. í Hveragerði var lokað af lög- reglu í fyrradag en starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands fundu þar mikið magn af kjöti sem ekki hafði verið heilbrigð- isskoðað. Kjötinu var fargað og sölubann sett á þær fram- leiðsluvörur fyrirtækisins sem komnar voru í verslanir. Þá þótti aðbúnaður í kjötvinnsl- unni ófullnægjandi, þannig að hreinar línur voru um að loka skyldi. „Það þarf ekki nema einn að- ila til að skemma fyrir hinum. Svona háttalag setur svartan blett á alla hina sem standa sig vel og eru til sóma í sunnlensk- um matvælaiðnaði. Nei, ég tel að ekki hafi mikið af vörum frá Kambakjöti farið í verslanir, þetta var það lítið fyrirtæki. Engu að síður töldum við rétt að vara við þessari vöru - og það gerðum við í samvinnu við Hollustuvernd ríkisins," sagði Matthías Garðarsson. Það er mat Matthísar að helst séu það smærri aðilar í matvælaiðnaði, sem ef til vill standa veikt peningalega, sem freistist til að fara út fyrir ramma reglugerða - með því að til dæmis að taka inn óskoðað kjöt eða hafa aðbúnað ófull- nægjandi. Ilinir þeir sem sterk- ari standa sjá sér hag í að hafa allt á hreinu og eiga samstarf við heilbrigðisyfirvöld. -sbs. Jafnréttisnefnd BSRB hvetur aðildarfélög þess til gerðar jafnlaunasamninga, þar sem sérstaklega verði hugað að hækkun lægstu launa og t.d. með eingreiðslum. Þá er því einnig beint til aðildarfélaga BSRB að þau sameinist um að fá bókun um starfsmat í kom- andi kjarasamninga. Áherslur nefndarinnar á sviði jafnréttis- og ljölskyldu- mála voru kynntar fulltrúum á bandalagsráðstefnu BSRB sem Aðalfundur Félags hrefnu- veiðimanna skorar á stjórnvöld að leyfa veiðar á hrefnu eigi síðar en næsta vor í samræmi við alþjóðlegar sam- þykktir um sjálfbæra nýtingu á auðlindum hafsins. Jafnframt er minnt á að hrefnuveiðar tilheyra menningu þjóðarinnar. í ályktun fundarins kemur fram að vísindaleg sjónarmið standa ekki í vegi fyrir því að lauk í gær. Þar kemur fram það sjónarmið nefndarinnar að stytting vinnutíma samfara hækkun grunnlauna muni jafna stöðu karla og kvenna jafnt á vinnustað og heimilum og gefa báðum kynjum aukin tækifæri til að sinna sameiginlegum mál- efnum íjölskyldunnar. Síðast en ekki síst mun það koma konum sérstaklega til góða ef tekst að semja um það að flytja hluta af yfirvinnutekjum yfir í grunn- laun. -grh veiðar geti hafist að nýju. Þá sýnir reynsla Norðmanna að engin ástæða sé að óttast að hrefnuveiðar muni hafa skaðleg áhrif á markaði fyrir íslenskar afurðir. Þvert á móti telja hrefnuveiðimenn að veiðar á hrefnu geti stuðlað að fjölgun ferðamanna til landsins og auk- ið umfang hvalaskoðunarferða. -grh Hrefnuveiðimenn Hrefnuveiðar í vor

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.