Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Blaðsíða 1
T \ X B LUR Vrntm i oUm {/xbMtl. •E557 9555 agur-tEEimtrar Ö LIFIÐ I LANDINU Miðvikudagur 20. nóvember 1996 - 79. og 80. árgangur - 222. tölublað LUR Vwttm Á dÍM {ttttuul. ‘B‘557 9555 VTKUR BFAÐIÐ SSúid «Æ mmmÁi/ns ÁhrifVíkurblaðsins, sem nú er falt, eru mikil miðað við áskrif- endafjölda. „Við gerum okkur nú einu sinni út fyrir að vera blað alls mannkyns, “ segir ritstjórinn. 700MANNSVILJA KAUPA VÍKURBLAÐIÐ Já, það er allstór hópur manna sem vill kaupa Víkurblaðið. Áskrifendur þess eru til dæmis eitthvað xun 700. Hinsvegar hefur enginn, að minnsta kosti ennþá, sagst ætla kaupa blaðið með manni og mús, einsog nú stendur til boða. Hinsvegar er málið mikið rætt hér í bænum og margir sýna því áhuga. Segja sem svo að ef stofnað verður hlutafélag um reksturinn séu þeir til- búnir til að slá í púkkið. En meðal ann- ars er þessi auglýsing sett fram til að leita eftir leiðum og hugmyndum um bestu leiðirnar sem tryggt geta framtíð blaðsins," segir Jóhannes Sigurjónsson, ritstjóri Víkurblaðsins á Húsavík. Sautján ára blað Farið var af stað með útgáfu Víkurblaðs- ins fyrir 17 árum. Þeir sem stóðu að stofnun þess, auk Jóhannesar Sigurjóns- sonar, voru Kári Arnór Kárason, nú framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Norður- lands, og Arnar Björnsson, sem síðustu ár hefur gegnt starfi íþróttafréttamanns hjá RÚV. Félag þeirra þremenninga heit- ir Vxkurblaðið sf. Kári Arnór og Arnar hafa lítið sem ekkert komið að rekstri blaðsins síðustu ár „en eflt það með ráð- um og dáð,“ einsog Jóhannes, félagi þeirra, orðar það. Húsavík og helstu nærsveitir í Þing- eyjarsýslum er það svæði þar sem flestir áskrifendur Víkurblaðsins eru. „Blaðið sinnir ákveðinni þörf Þingeyinga um fréttir úr sínu nánasta umhverfi. Eldra fólk eru okkar þakklátustu áskrifendur og þeir sem ég held að bíði með mestum ákafa eftir því á fimmtudögum í viku hverri. Yngra fólkið er hinsvegar alið upp í öðru fjölmiðlaumhverfi. Það er vant myndmiðlum og ef til vill er Víkur- blaðið ekki nógu poppað fyrir þeirra smekk. Síðan var veruleikinn í Ijölmiðl- un á Norðurlandi allt annar þegar við fórum af stað með þetta blað árið 1979. Þá kom Dagur ekki út nema þrisvar eða íjórum sinnum í viku, Svæðisútvarp RÚV var ókomið og DV og Morgunblaðið voru ekki komin með útibú frá ritstjórnum sínum hér nyðra.“ Einyrkjabúskapur engum hollur Fyrr á þessu ári fór Húsvísk íjölmiðlun hf. af stað með útsendingar á gervi- hnattsjónvarpi á Húsavík - en renndi sér jafnframt fótskriðu á fleiri sviðum fjöl- miðlunar með því að ganga í samstarf við Víkurblaðið. Samningur, sem rennur út um áramót, er þess efnis að hlutafé- lagið annast veraldlega umsýslu í rekstri þess, það er fjárhagshliðina. Jóhannes starfar hins vegar á andlegum vettvangi útgáfunnar, það er að annast ritstjórn þess. Af þessu samstarfi lætur ritstjórinn bærilega, en segir að böggull fylgi skammrifi. Einyrkjabúskapur í útgáfu sé engum blaðamanni hollur. Hætta sé á að menn einangrist í eigin ranni og sjónar- horn á málefni líðandi stundar verði þröngt. Fyrir sér vaki meðal annars að fá fleiri í samstarf við sig þannig að brjóta megi þennan vítahring upp. Blað alls mannkyns „Jú, ég get viðurkennt að áhrif Víkur- blaðsins eru mikil miðað við áskrif- endafjölda. Við gerum okkur nú einu sinni út fyrir að vera blað alls mannkyns - hvort sem heimsbyggðin öll les okkur. Hitt er annað að víða kannast menn við Víkurblaðið á Húsavík og hafa heyrt í það vitnað," segir Jóhannes. Ritstjóri Víkurblaðsins var í miðjum önnum þegar Dagur-Tíminn ræddi við hann í gærmorgun. Þá lágu fyrir helstu línur um hvað í blaðinu yrði þessa vik- una. Meðal annars verður sagt frá 60 ára afmæli Sjúkrahúss Þingeyinga, frumsýningu Leikfélags Húsavíkur á Sölumaður deyr, nýjum meirihluta f bæj- arstjórn Húsavíkur og fyrsta foreldra- röltinu í þessum snotra kaupstað við Skjálfandaflóa. -sbs.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.