Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Blaðsíða 2
14- Miðvikudagur 20. nóvember 1996 Jlagur-®mrám „Ekkert val um að vera heima“ Flest fólk á mínum aldri starfar utan heimilis. í þeim efnum er í rauninni ekkert val. Nauðsjmlegt er fyrir ungt fólk að vinna úti þegar það er að kaupa íbúð eða koma undir sig fótunum með öðrum hætti,“ segir Lilja Valdimars- dóttir á Akureyri. Hún starfar hálfan daginn á leikskólanum Krógabóli, sem er á jarðhæð Glerárkirkju. Fyrir hádegi, á meðan dóttirin Valdís Lilja, þriggja ára, er á leikskóla er Lilja heima og les námsbæk- urnar. Hún er í ijarnámi leik- skólakennara í Fósturskóla ís- lands og er á öðru námsári af fjórum. Lilja og Valgeir Magnússon, maður hennar, hafa komið sér vel fyrir í nýrri íbúð í fjölbýlis- húsi við Helgamagrastræti. íbúðarkaupin hafa vissulega tekið í budduna og mánaðarleg útgjöld vegna þeirra eru um 45 þús. kr. á mánuði. „Við teljum okkur standa ágætlega pen- ingalega, bæði laun Valgeirs fyrir kennsluna í Síðuskóla og mín fyrir störf hálfan daginn á Krógabóli. Þá tek ég 75% náms- lán, sem eru um 30 þús. kr. á mánuði," segir Lilja. Eitthvað minna en fulla vinnu... „Staðan er sannast sagna sú að maður verður að vinna utan „Nauðsynlegt er fyrir ungt fólk að vinna úti þegar það er að kaupa íbúð eða koma undir sig fótunum með öðrum hætti,“ segir Lilja Valdimars- dóttir á Akureyri. heimilis. Dæmið gengur ekki upp öðruvísi. „Mér finnst mikilvægt fyrir hvern sem er að afla sér ein- hverrar menntunar, til að tryggja stöðu sína og lífsviður- væri, enda þótt margir komist í ágæta vinnu án þess að hafa neina menntun. En sé fólk í lág- launavinnu getur hreinlega borgað sig að vera heima, að teknu tilliti til ýmissa þátta - s.s. dvalar tveggja barna allan daginn á leikskóla, sem kostar um 30 þús. kr. Annað sjónar- mið er að margt fólk sækir vinnu út fyrir heimilið hrein- lega af félagslegri þörf, enda þótt slíkt borgi sig tæpast pen- ingalega. Á meðan foreldrar eru í vinnu dveljast börnin til dæmis í leikskóla með jafnöldr- um sínum, sem er þeim hollt. Þannig geta sjónarmið og þarfir beggja farið saman,“ segir Lilja. Ég held að allir foreldar vilji gefa börnum sínum meiri tíma en víða er raunin. Ef fólk er í vinnu frá kl. 8 á morgnana og fram til kl. 6 á daginn er ekki mikill tími allögu. En einsog ég segi eiga margir foreldrar ekk- ert val um að vinna eða vinna ekki utan heimilis." -sbs. Lilja Valdimarsdóttir og Valgeir Magnússon með dóttur sína, Lilju Valdísi. Mynd: GS Menntun getur úrelst á 5 árum Guðmundur Kristjánsson og Hólmfríður Jónsdóttir með börn sín tvö, þau KrÍStján Og SonjU. Mynd:JHF. „100% karla vinnur úti“ Hraðinn í þessu sem við vinnum við úreldir menntun á 5-10 árum. Það eru tíu ár síðan ég kláraði há- skólann hér. Ég settist aldrei við PC Anna María og Finnur vinna bæði úti og eiga 3 börn: Árna 6 ára, Ebbu 4ra ára og Oliver 1 s árs. tölvu, hún var ekki til. Á síðasta ári var okkur sýnt inm herbergi með einkatölv- um. En á 10 árum er komið Internet o.s.frv.," sagði Finnur Árnason, sölu- og markaðsstjóri, um möguleika fólks til að komast í almennilegt starf eftir að hafa tekið sér 5-10 ára frí frá vinnumarkaðn- um til að sinna börnum og búi. Kona sem hefði skellt sér í barneignir beint eftir nám væri vart gjaldgeng á mark- aðnum eftir ákveðinn tíma. Finnur og kona hans, Anna María Ur- bancic, aðstoðarmarkaðsstjóri, eru bæði viðskiptafræðimenntuð. Finnur vinnur frá morgni til 7 á kvöldin en Anna María er í 75% starfí. Þau eru hátekjufólk en gætu þó ekki lifað eingöngu af launum hennar. Hins vegar kæmust þau af á hans launum ef Anna María væri alfarið heimavinnandi. „Ég er fyrst og fremst úti á vinnumarkaðnum til að nýta menntun- ina. En mér finnst 75% vinna vera alveg hámark.“ Henni finnst alltof h'till tími vera eftir fyrir börnin ef það dregst fram yfir fjögur að hún komi heim. „En þó ég væri heimavinnandi þá hefði ég börnin á leikskóla hálfan daginn. Þetta er orðið ákveðið uppeldisatriði að þau séu á leik- skóla.“ Eftir lögbundin fæðingarorlof tók Anna María í öll skiptin lengra frí, vann ýmist heima eða var launalaus. Finnur hins vegar tók ekkert frí - nema meðan Anna María lá á fæðingardeildinni. „Um- hverfið ætlast til þess af stjórnendum, körlum og konum, að þeir standi vakt- ina. Auðvitað hefði ég getað hugsað mér að vera einhvem tíma heima en starfsins vegna þá kemur það ekki til greina. Þegar þú ert kominn í yfir- mannastöðu þá labbarðu ekki bara í burtu,“ sagði Finnur. í vetur ákváðu þau að leysa gæslumálin á þann veg að ráða til sín finnska au- pair stúlku sem sér um börnin á daginn, fyrir ut- an dótturina sem er á leikskóla all- an daginn. Þau eru mjög sátt við þetta fyrirkomu- lag enda dóttirin alsæl á leikskólanum og eldri strákurinn getur leikið sér heima við á morgnana. Alls fara þannig um 55.000 kr. á mánuði í barnagæslu og hefði ekki orðið ódýrara án au-pair stúlkunnar. „Ég er kannski svohtið gamaldags í þessu. Ef Finnur segði við mig: Jæja, nú skal ég vera heima og þú mátt vera að vinna til 7, þá er ég ekki viss um að ég vildi skipta. Börnin eru mér svo mikils virði. Ég tæki þau fram yfir vinnuna ef ég þyrfti að velja,“ sagði Anna María að lokum. LÓA Nei, mér hefur aldrei dottið í hug að hafa hlutverkaskipti við Hólmfríði og vera heima að passa annarra manna börn. Hinsvegar finnst mér gam- an að gæta minna eigin barna. En mér finnst alls ekki fráleitt að sjá konu í vinnu á bílaverkstæðinu hjá mór. Ef hún væri vel verklagin og hefði þekkingu og tilfinningu gagnvart bílvélum fyndist mér koma vel til greina að ráða hana til starfa.“ Ágætt að starfa sem dagmamma Þetta segir Guðmundur Kristjánsson á Dalvík, yfirmaður Bflaverkstæðis Dalvík- ur. Hann er útivinnandi húsfaðir, en Hólmfríður Jónsdóttir, eiginkona hans, starfar heima sem dagmamma. Er þann- ig á sinn hátt útivinnandi - þó vinnan sé innan veggja heimilisins. „Mér finnst það koma ágætlega út að starfa sem dag- mamma. Fyrir fólk í láglaunastörfum Finnst ekki fráleitt að sjá konu í vinnu á bílaverk- stæðinu. Ef hún væri verklagin og hefði þekk- ingu og tilfinningu gagn- vart bílvélum kæmi vel til greina að ráða hana. borgar sig varla að vinna úti ef þú ert með kannski þrjú börn og þarft að greiða í dagvistargjöld 15 þús. kr. fyrir hvert og eitt. Þá miða ég við vistun allan daginn,“ segir Hólmfríður. í aprfl á þessu ári fluttu Guðmundur og Hólmfríður og börn þeirra, Kristján sex ára og Sonja Kristín tveggja ára, í nýtt einbýlishús að Skógarhólum 32 á Dalvík. „Það er talsvert átak að standa straum af afborgunum vegna þess. Þær gætu verið um 50 þús. kr á mánuði og því hef ég talsvert sótt aukavinnu til að standa straum af afborgunum. Ég vinn stundum á kvöldin sem þjónn á Pizza 67 hér á Dalvík, en það er nú aðeins vinna sem hugsuð er til skemmri tíma. En engu að síður hef ég samviskubit af því að vera ekki heima - þótt ég sé kominn heim flesta daga af bflaverkstæðinu milli kl. 16 og 17 á daginn," segir Guðmundur. Klink í kassann „Líf flests ungs fólks er í svipuðum far- vegi og hjá okkur. Ég fullyrði að 100% karlanna vinni úti og allflestar konurn- ar,“ segir Guðmundur. Hólmfríður tekur í sama streng. Hún segir að reyndar sé ekki örgrannt um að hún sæki vinnu út fyrir heimilið. Hún ræstir á afgreiðslu Samskipa á Dalvík og í 10 klst. sinnir hún liðveislu við fatlaða einstaklinga. Með þessari vinnu hennar og því sem Guðmundur aðhefst fá þau klink í kass- ann. -sbs. Finnur Árnason og Anna María Urbancic. Mynd:Pjetur

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.