Dagur - Tíminn - 22.11.1996, Side 10
22 - Föstudagur 22. nóvember 1996
JDagur-'ðlmTOm
80 ára afmæli
Guðvarður Jónsson, málara-
meistari, Aðalstræti 10, Akur-
eyri, verður áttræður laugar-
daginn 23. nóvember. Hann
tekur á móti gestum í Húsi
aldraðra frá kl. 16 til 19.
Söngtónleikar
í Freyvangi
Tónlistarskóli Eyjaíjarðar held-
ur söngtónleika í Freyvangi í
Eyjaíjarðarsveit sunnudaginn
24. nóv. kl. 20.30. Tónleikarnir
eru liður í stigsprófi Önnu Júlí-
önu Þórólfsdóttur, sem er að
ljúka áttunda stigi í söng frá
skólanum. Auk Önnu Júlíönu
koma fram söngnemendur og
kennarar og flytja Qölbreytta
efnisskrá. Aðgangur er ókeypis.
Spilakvöld
Nú er komið að hinum vinsælu
spilakvöldum í Eyjaíjarðarsveit.
Fyrsta spilakvöldið verður í Sól-
garði sunnudagskvöldið 24.
nóv. kl. 21.
Skákfélag Akureyrar
15 mínútnamót verður haldið
sunnudaginn 24. nóv. í Skák-
heimilinu og hefst það kl. 14.
Allir velkomnir.
KVAK
Næstkomandi sunnudag, 24.
nóv., mun Kvikmyndaklúbbur
Akureyrar (KVAK) sýna mynd-
ina Jerúsalem. Sýnt verður í
Borgarbíói kl. 17. Myndin er
eftir danska leikstjórann Bille
August og er gerð eftir sögu
Selmu Lagerlöf. Með aðalhlut-
verk fara Maria Bonnevie, Ulf
Friberg, Max von Sydow og
Olympia Dukakis.
Sönghópurinn Sólar-
megin
Út er kominn geisladiskurinn
Sólarmegin með sönghópnum
Sólarmegin.
Eilíft líf - Kökubasar
Núna um helgina eru síðustu for-
vöð að sjá sýningu Þorvaldar Þor-
steinssonar, Eilíft líf. í Listasafn-
inu á Akureyri. Sýningin hefur
vakið mikla athygli og fengið
mjög góða aðsókn. í tengslum
við sýninguna heldur Slysavarna-
deild kvenna á Akureyri laufa-
brauðs- og kökubasar í Listasafn-
inu á laugardaginn kl. 15.
Heimsmetabók
Guiness
Einn viðskiptavina Foldu á Ak-
ureyri hefur beðið fyrirtækið að
hjálpa sjö ára, alvarlega veikri
stúlku að fá draum sinn upp-
fylltan. Hana langar til að kom-
ast í „Guiness Book of World
Records" með stærsta safn við-
skiptanafnspjalda í heimi (ath!
aðeins eitt kort á fyrirtæki). Við
biðjum ykkur að senda henni
eitt nafnspjald: Sonja-Christi-
ana Magalhaes-Sememe, Rue
de Saint Lucain 763 1 A, 420
Proto, Portugal.
Ljóðakvöld í Deiglunni
Á sýningu Haraldar Inga í Deiglunni á Akureyri föstudaginn
22. nóv. kl. 20.30. mun Þorsteinn Gylfason prófessor lesa úr
ljóðaþýðingum sínum auk þess sem Michael Jón Clarke flyt-
ur sönglöng í þýðingum Þorsteins. Undirleik annast Richard
Simm. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Á sýningunni
Haraldar Inga eru 14 verk í tímaritsformi sem eru sam-
stofna verkum úr túnaritinu SÝNEX. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 24. nóv. Deiglan er opin frá kl. 14-18.
Frá æfingu á leikritinu Undir berum himni sem er jólaverkefni
Leikfélags Akureyrar.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Listaklúbburinn fær einstaka heimsókn næsta mánudag 25.
nóv., en þá ætlar Leikfélag Akureyrar að bregða undir sig
betri fætinum og halda glæsilega afmælisveislu í Leikhús-
kjallaranum. Leikfélag Akureyrar hefur aldrei fyrr gert slíka
bæjarför til Reykjavíkur, enda tilefnið ærið, 80 ára afmæli
þessa helsta menningarfélags norðan heiða.
Höfuðborgar-
svæðið
Árnesingafélagið
Árnesingafélagið í Reykjavík
heldur aðalfund á Grand Hótel,
Sigtúni 28, mánudaginn 25.
nóv. kl. 20.30.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Félagsvist í Risinu kl. 14.
Göngu-Hrólfar fara í létta
göngu inn borgina kl. 10 laug-
ardag. Almennur félagsfundur
verður í Risinu kl. 17 þriðju-
daginn 26. nóv.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Spiluð verður félagsvist og
dansað að Auðbrekku 17,
Kópavogi (Dansskóla Sigurðar
Hákonarsonar), í kvöld kl.
20.30.
Hana-nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga
Hana-nú í Kópavogi verður á
morgun. Lagt af stað frá Gjá-
bakka, Fannborg 8, kl. 10.
Samhjálp Hvítasunnu-
manna
heldur sína árlegu hátíðarsam-
komu í Ffladelfíukirkjunni í
Reykjavík sunnudaginn 24.
nóvember. Samkoman hefst kl.
16.30.
Menningar- og friðar-
samtök ísl. kvenna
halda opinn félagsfund laugar-
daginn 23. nóvember að Vatns-
stíg 10 (MÍR-húsinu) kl. 14.
Fundarefni: Elísabet Berta
Bjarnadóttir félagsráðgjafi
heldur erindi: „Fjölskyldan og
S3&S
unglingurinn“. Laugardaginn 7.
des. kl. 14 verður bókmennta-
kynning á sama stað.
Norræna húsið
Um þessar mundir halda Ung-
verjar upp á 1100 ára búsetu í
landi sínu. Af því tilefni efnir
Félagið Ísland-Ungverjaland til
tónleika í Norræna húsinu á
morgun kl. 17. Velunnarar
Ungverjalands eru sérstaklega
boðnir velkomnir á tónleikana.
Eins og alla sunnudaga verður
kvikmyndasýning í Norræna
húsinu kl. 14 á sunnudag. Sýnd
verður sænska teiknimyndin
„Resan till Melonia“.
Dagur harmonikunnar
verður haldinn í Danshúsinu í
Glæsibæ v/ Álfheima sunnudag-
inn 24. nóv. kl. 15. Þetta er ijöl-
skylduskemmtun þar sem leikin
verður tónlist úr ýmsum áttum.
Tónleikar Lúðrasveit-
ar verkalýðsins
verða að þessu sinni haldnir
sunnudaginn 24. nóv. í Lang-
holtskirkju og hefjast kl. 17. Á
efnisskránni verður úrval tón-
listar sem sveitin hefur verið að
æfa síðustu vikurnar undir
dyggri handleiðslu stjórnanda
síns, Tryggva M. Baldvinssonar.
Þar verður vonandi eitthvað við
allra hæfi. Að venju er aðgang-
ur ókeypis.
Brim með tónleika á
Rósenberg
Hljómsveitin tírim heldur tón-
Ieika í tilefni útgáfu breiðskífu
sinnar, Hafmeyjar & Hanastél á
Rósenberg, Austurstræti, laug-
ardaginn 23. nóvember á mið-
nætti. PPPönk annast upphitun
af alkunnri smekkvísi og einnig
mun Örlygur Örlygsson leika í
fyrsta skipti á íslandi opinber-
lega á Þeramín. Aðgangseyrir
kr. 400.
Ensk guðsþjónusta í
Hallgrímskirkju
Næstkomandi sunnudag 24.
nóv. kl. 14 verður í Hallgríms-
kirkju haldin guðsþjónusta á
ensku. Er hún ætluð enskumæl-
andi íbúum höfuðborgarsvæðis-
ins, sem og ferðafólki. Séra
Karl Sigurbjörnsson annast
guðsþjónustuna. Áslaug Stef-
ánsdóttir leikur á orgelið og
stýrir safnaðarsöng.
Langholtskórinn
frumflytur
„Óð Skálholts“
Á morgun munu Kór Langholts-
kirkju og Gunnar Eyjólfsson
ásamt 23 manna blásarasveit
undir stjórn Jóns Stefánssonar
frumflytja „Óð Skálholts“ eftir
dr. Victor Urbancic við texta
séra Sigurðar Einarssonar.
Verkið var samið fyrir Skál-
holtshátíð 1956, en hefur aldrei
verið flutt opinberlega. Tónleik-
arnir hefjast kl. 16.
Fræðslufundur
HÍN í Odda
Mánudaginn 25. nóvember kl.
20.30 verður haldinn næsti
fræðslufundur Hins íslenska
náttúrufræðifélags á þessum
vetri. Fundurinn verður að
venju haldinn í stofu 101 í
Odda, hugvísindahúsi Háskól-
ans. Á fundinum heldur Oddur
Villibráðarkvöld
á Hótel KEA
Okkar árlega villibráðarkvöld
verður haldið á laugardags-
kvöldið. Að vanda verður boðið
uppá stórglæsilegt hlaðborð
hlaðið allri hugsanlegri villi-
bráð. Kristján Edelstein og Jón
Rafnsson leika fyrir matargesti.
Hljómsveitin Miðaldamenn frá
Siglufirði leikur fyrir dansi.
Borðapantanir eru hjá veitinga-
stjóra í síma 462 2200.
Tvísöngur
Söngkonurnar Signý Sæmunds-
dóttir og Björk Jónsdóttir ásamt
píanóleikaranum Gerrit Schuil,
halda tónleika á vegum Tónlist-
arfélags Akureyrar í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju sunnu-
daginn 24. nóv. kl. 17. Á efnis-
skránni eru einsöngs- og tví-
söngslög eftir Brahms, Dvorak,
Haydn, Purcell, Rossini og
Strauss, ásamt enskum og
skoskum þjóðlögum.
Sigurðsson, jöklafræðingur hjá
Vatnamælingum Orkustofnunar,
fræðsluerindi sem hann nefnir:
„Jöklar taka á rás“.
Rússneskur „Hamlet"
í bíósal MÍR
Sunnudaginn 24. nóv. kl. 16
verður fræg sovésk verðlauna-
mynd sýnd í bíósal MÍR, Vatns-
stíg 10. Þetta er kvikmyndin
Hamlet (Gamlet), byggð á sam-
nefndu leikriti Williams Shake-
speare. Myndin var gerð árið
1964 undir leikstjórn Grigorís
Kozintsév. í myndinni er flutt
þýðing Borisar Pasternak, en
tónlistina samdi Dmitri Sho-
stakovits. Enskir skýringatext-
ar eru með myndinni. Aðgang-
ur öllum heimill og ókeypis.
Forsala hafin
á tónleika Todmobile
Hljómsveitin Todmobile heldur
útgáfutónleika í íslensku óper-
unni þann 5. desember n.k.
Forsala aðgöngumiða er hafin í
flestum hljómplötuverslunum í
Reykjavík og er miðaverð kr.
1.200. Todmobile hafa sjö sinn-
um áður haldið tónleika í ís-
lensku óperunni.
Myndskreytingar
barnabóka
Sýning á myndskreytingum í
norrænum barnabókum verður
opnuð í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi laugardaginn 23.
nóvember. Fulltrúar Islands á
sýningunni eru myndlistar-
mennirnir Áslaug Jónsdóttir og
Erla Sigurðardóttir.