Dagur - Tíminn - 22.11.1996, Blaðsíða 15
|Dagur-®TOmm
Föstudagur 22. nóvember 1996 - 27
Bestu þakkir fyrir ykkar framlag til listarinnar
Þetta verk er hluti sýningarinnar EILÍFT LÍF í Listasafninu á Akureyri og er styrkt af Degi-Tímanum
■ • ■. ■ . ■ .
ÁHUGAVERT I KVÖLD
illlllil
Sjónvarpið kl. 22.20
Nikulásarkirkjan
Þýsk sjónvarpsmynd frá 1994 gerð eftir sögu Erichs Loests um
fjölskyldu í Leipzig á árunum frá 1987 til Mánudagsmótmæl-
anna í október 1989 sem leiddu til þess að kommúnistastjórnin
lirökklaðist frá völdum. Leikstjóri er Frank Beyer og aðalhlut-
verk leika Barbara Auer, sem leikur aðalhlutverkið í nýrri mynd
Einars Heimissonar, Maríu, Ulrich Matthes, Daniel Minetti og
Otto Sander. Seinni hluti myndarinnar verður sýndur á sunnu-
dagskvöld.
Stöð 2 kl. 22.40
Tímalöggan
Seinni frumsýningarmynd föstudagskvöldsins á Stöð 2 heitir
Tímalöggan, eða Timcop. Petta er hörkuspennandi mynd með
Jean-Claude Van Damme, Miu Söru og Ron Silver í aðalhlutverk-
um. Árið er 2004 og ferðalög um tímann eru daglegt brauð.
Slæmur fylgiliskur þessara ferðalaga er að komin er fram ný teg-
und glæpamanna sem ferðast aftur í tímann og breyta þar því
sem þeim hentar. Feir geta snúið við sögulegum viðburðum, stýrt
þróun ijármálamarkaða sér í hag og jafnvel haldið heilu þjóðun-
um í heljargreipum. Þess vegna var tímalöggan stofnuð til að sjá
til þess að enginn færi aftur á bak í tíma. Myndin, sem er frá ár-
inu 1994, er stranglega bönnuð börnum.
Tími mynd-
bandaleiganna
Stærsti kosturinn við sjón-
varpsdagskrá undan-
farna daga er sá það er
hægt að slökkva á sjónvarp-
inu án þess að hafa bak-
þanka út af því að eitthvað
bitastætt fari fram hjá
manni. Þetta er svo sem
ekkert nýtt á þessum árs-
tíma, rétt eins og sjónvarps-
stöðvarnar séu að búa sig
undir að senda út stórkost-
lega dagskrá um jól og ára-
mót. En því miður, af biturri
reynslu undanfarinna ára
er reynslan sú að það eru
myndbandaleigurnar sem
helst hagnast á jólahátíð-
inni, því sjónvarpsstöðvarn-
ar senda annað hvort út
drápsmyndir með 111
dauðum, lágmark, eða ís-
lenska mynd sem er orðin
útþvæld í bíósölunum und-
anfarnar vikur. Þrátt fyrir
það heitir sýningin í sjón-
varpinu svo frumsýning!!
Ég bíð spenntari eftir des-
emberhefti myndbandaleig-
anna en dagskrá sjónvarps-
stöðvanna eða þá að út-
varpið fái meiri hlustun því
þar er oft margt gott. Þó
varla morgunútvarp RÚVAK
á Akureyri því mér er til efs
að margir hafa áhuga á því
að vita hvar er ófært og
hvar ekki eða hvort flogið
hafi verið á réttum tíma,
engar aðrar fréttir. Þeir
sem þurfa að ferðast hlusta
ekki á útvarp til að fá þess-
ar upplýsingar, þeir hringja
í Vegagcrðina eða viðkom-
andi flugfélag. Helst að
stutt viðtöl í kjölfarið á veð-
urpistli RÚVAK lífgi upp á
sálartetrið í morgunsárið.
Þátturinn Byggðalínan ligg-
ur einnig róttu megin
hryggjar, þar má oft heyra
fróðleik frá hinum dreifðu
byggðum þessa lands.
SJONVARP - UTVARP
£
Ú
: svn 0
SJÓNVARPIÐ
16.20 Þingsjá. Endursýndur þáttur.
16.45 Leiðarijós (525) (Guiding Light).
17.30 Fréttir.
17.35 Táknmálsfréttir.
17.45 Auglýsingatími - SJónvarpskringF
an.
18.00 Blinka kann ekki aö fljúga (Blin-
ke kan inte flyga). Sænsk teiknimynd
um lítinn fugl sem lærir seint að fljúga
og lendir fyrir vikið i miklum vandræðum.
18.25 Horfna frímerkið (4:4)
18.50 Fjör á fjölbraut (14:26).
19.50 Veöur.
20.00 Fréttir.
20.40 Happ í hendi.
20.45 Dagsljós.
21.20 Félagar (11:26) (Die Partner).
Þýskur sakamálaflokkur um tvo unga
einkaspæjara og ævintýri þeirra.
22.20 Nikulásarkirkjan (1:2) (Die Nicho-
laikirche). Þýsk sjónvarpsmynd frá 1994
gerð eftir sögu Erichs Loests um fjöl-
skyldu í Leipzig á ðrunum 1987-89 þeg-
ar múrinn féll. Leikstjóri er Frank Beyer
og aðalhlutverk leika Barþara Auer, sem
leikur aöalhlutverkiö í mynd Einars Heim-
issonar, Marfu, Ulrich Matthes, Daniel
Minetti og Otto Sander. Seinni hluti
myndarinnar veröur sýndur á sunnudags-
kvöld.
23.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
STOÐ2
12.00 Hádegisfréttlr.
12.10 Þrúgur reiðinnar.
13.15 Flokksþing Framsóknarflokksins.
Sýnt veröur frá stefnuræðu formanns.
14.10 Þrúgur reiðinnar.
15.30 Taka 2 (e).
16.00 Fréttir.
16.05 Köngulóarmaöurinn.
16.25 Snar og Snöggur.
16.50 Kisa litla.
17.20 Mínus.
17.25 Vatnaskrímslln.
17.30 Glæstar vonir.
18.00 Fréttir.
18.05 islenski listinn (7:30).
19.00 19 20.
20.05 Lois og Clark (4:22).
21.00 í beinni (Airheads).
Rokksveitin The Lone Rangers starfar í
Los Angeles, þaö lítur e.nginn við henni
og meira aö segja löggan getur ekki
hugsaö sér aö handtaka meölimina.
22.40 Tímalöggan (Timecop).
Stranglega bönnuö börnum.
00.20 Spilavítiö (Four for Texas).
Frank Sinatra, Dean Martin, Anita Ek-
berg og Ursula Andress fara á kostum í
þessari gamanmynd frá 1963. Myndin
gerist í villta vestrinu og meö önnur
helstu hlutverk fara menn á borö viö
Charles Bronson og Victor Buono.
02.25 Dagskrárlok.
STOÐ3
08.30 Heimskaup - verslun um víða
veröld.
17.00 Læknamiöstööin.
17.20 Borgarbragur (The City).
17.45 Bonnie (e).
18.10 Heimskaup - verslun um víöa
veröld.
18.15 Barnastund.
19.00 Ofurhugaíþróttir.
19.30 Alf.
19.55 Murphy Brown.
20.20 Umbjóöandinn (John Grisham’s
The Client).
21.05 Elton John á tónleikum.
22.35 Bíómynd.
00.05 Aö eilífu glataö (e) (A Child Lost
Forever: The Jerry Sherwood Story).
Sannsöguleg sjónvarpsmynd um unga
konu sem var þunguö í fangelsi. Hún var
þvinguö til aö láta barniö frá sér til ætt-
leiöingar og tuttugu árum síöar hefur
hún leit aö frumburöi sínum. Hún kemst
aö því aö sonur hennar hafi látist þriggia
ára gamall og er ákveöin í aö komast aö
þvf hvað raunverulega geröist.
01.35 Dagskráriok Stöövar 3.
SYN
17.00 Spítalalíf (MASH).
17.30 Taumlaus tónlist.
20.00 Framandi þjóö (Alien Nation).
21.00 Maöurinn í rauða skónum (The
Man with One Red Shoe).
Spaugileg mynd sem óskarsverðlauna-
hafinn Tom Hanks lék í á upphafsárum
ferils sfns. í öörum helstu hlutverkum
eru Dabney Coleman, Lori Singer,
Charles Durning, Carrie Fisher og Jim
Belushi. Leikstjóri: Stan Dragoti. 1985.
22.30 Undirheimar Miami (Miami Vice
2).
23.20 Blástrókur (Blue Tornado). Hörku-
spennandi flughasar um færustu orr-
ustuflugmenn Nato sem þurfa aö glfma
viö nýstárlegar ógnir. Aðalhlutverk: Patsy
Kensit og Dirk Benedict. Stranglega
bönnuö börnum.
00.45 Spítalalíf (e) (MASH).
01.10 Dagskrárlok.
RÁSl
09.00 Fréttir. 09.03 Ég man þá tíö.
09.50 Morgunleikfimi. 10.00 Fréttir.
10.03 Veðurfregnir. 10.15 Sagnaslóö.
11.00 Fréttir. 11.03 Samfélagið í nær-
mynd. 12.00 Fréttayfirlit á hádegt.
12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veöurfregn-
ir. 12.50 Auðlindin. 12.57 Dánarfregnir
og auglýsingar. 13.05 Hádegisleikrit Út-
varpsleikhússins. Lesiðí snjóinn, byggt
á skáldsögu eftir Peter Höeg (10). 13.20
Hádegistónar. 14.00 Fréttir. 14.03 Út-
varpssagan, Kátir voru karlar eftir John
Steinbeck (7:18). 14.30 Miödegistónar.
15.00 Fréttir. 15.03 Afreksmenn í 40
ár. 15.53 Dagbók. 16.00 Fréttir. 16.05
Fimm fjórðu. DjassþáttUr f umsjá Lönu
Kolbrúnar Eddudóttur. 17.00 Fréttir.
17.03 Víðsjá. 18.00 Fréttir. 18.03 Þing-
mál. 18.30 Lesið fyrir þjóöina: Gerpla
eftir Halldór Laxness. Höfundur les.
(Frumflutt 1957.) 18.45 Ljóö dagsins.
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Augiýsingar
og veöurfregnir. 19.40 Norrænt. Af mús-
fk og manneskjum á Noröurlöndum. Um-
sjón: Guðni Rúnar Agnarsson. 20.20
Sagan bak viö söguna. 21.15 Kvöldtón-
ar. 22.00 Fréttir. 22.10 Veöurfregnir.
22.15 Orö kvöldsins: Málfrfður Jóhanns-
dóttir flytur. 22.20 Tónlist á síökvöldi.
23.00 Kvöldgestir. 24.00 Fréttir.