Dagur - Tíminn - 22.11.1996, Side 11
jOagur-Œtntmrt
Föstudagur 22. nóvember 1996 - 23
FÍNA FRÆGA FÓLKIÐ
Iistrænt
áttræðisafmæU
Yehudi Menuhin getur varla
komið hnífnum í sjálfa
afmælistertuna fyrir
alls konar auglýsingaskiltum.
Um 35 af helstu fiðluleikurum
heimsins léku á sérstökum góð-
gerðartónleikiun sem nýlega voru
haldnir í París í tilefni af 80 ára af-
mæli Yehudi Menuins. Ágóðinn af
tónleikunum rann til alþjóðlegrar
góðgerðarstofnunar lækna án
landamæra, sem heldur upp á 20
ára afmæli á þessu ári. Claude Cirac
var fulltrúi manns síns, Frakklands-
forseta, á samkomunni.
Yul mundaði linsuna
Leikarinn með bónskallann,
Yul Brynner, hafði mikinn
áhuga á Ijósmyndun og tók vél-
ina sína með sér hvert sem
hann fór. Nú hefur dótið hans
verið valið saman í bók um ljós-
myndir sem stjarnan tók. Þar
er að finna myndir af frægum
samleikurum hans, má þar
nefna Elizabeth Taylor, Chaplin,
Soffíu Loren o.fl. Elizabeth
Taylor sagði eitt sinn um Ijós-
myndarann Yul Brynner: „Yul
var svo heillandi að það var
heiður ef hann tók mynd af
manni.“
Yul Brynner
með myndavélina,
þegar hann lék í myndinni
„Boðorðin tíu“.
Teitur Þorkelsson
skrifar
Hetjan
að virðist lengi hafa verið
talið til mannkosta á meðal
drengja á unglingsaldri að hafa
sofið hjá sem ílestum stelpum.
Þegar menn komast til vits og
ára minnkar þó glansinn yfir
slíkum hausaveiðum enda hef-
ur ávallt leikið nokkur vafi á því
hvort aðdáunin á slíkum eigin-
leikum sé nokkurn túnann til
staðar hjá stelpunum sjálfum.
Yfirleitt kemur þó að því að lok-
um að slíkir riddarar gefast
upp á að vinna „sigra“ sína
enda verða þeir sjálfir æ ólyst-
ugri eftir því sem kemur yfir á
tvítugsaldurinn. Er kannski nóg
að hinn mikh flagari hnjóti um
stól á leið sinni út frá síðasta
fórnarlambi til að hann hugsi
sig um? Gefum Andra Snæ
Magnasyni orðið í Ijóði.
Hetjan
sem haföi lagt fleiri að velli en
nokkur okkar hinna og aldrei
dvalist
lengur en til dögunar í rúmum
þeirra,
hnaut um stól á leiðinni út einn
laugardagsmorguninn. Honum
varð
litið til rúmsins og vífsins í
rúminu.
Þá mœlti hann: Fögur er
stúlkan svo
að mér hefur hún aldrei
jafnfögur
sýnst, bleikir vangar og slegið
hár, og
mun ég ríða aftur og fara
hvergi.
I dag búa þau í Árbænum.
A
KÓPAVOGSBÆR
Frá Manntali
Kópavogsbæjar
Þeir sem flutt hafa í Kópavog og eins þeir sem hafa
flutt innan bæjarins, eru beðnir að tilkynna nýtt heimil-
isfang fyrir 1. des. nk. á þar til gerðum eyðublöðum,
sem liggja frammi á Bæjarskrifstofunum, Fannborg 2
og á Lögreglustöðinni, Auðbrekku 10.
Manntalsfulltrúi.
Framsókn
í 80 ár
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
ÍQIÓ-1996
24. flokksþing Framsóknarmanna
Hótel Sögu 22.-24. nóvember 1996
Dagskrá:
Föstudagurinn 22. nóvember 1996
Kl. 9.15
Kl. 10.00
Kl. 10.10
Afhending þinggagna
Þingsetning
Kórsöngur
Félagar úr Karlakórnum Fóstbræðrum
Kosning þingforseta (6)
Kosning þingritara (6)
Kosning kjörbréfanefndar (5)
Kosning dagskrámefndar (3)
Kosning kjömefndar (8)
Kosning kjörstjómar (8)
Kl. 10.30 Skýrsla ritara
Kl. 10.45 Skýrsla gjaldkera
Kl. 11.00 Mál lögð fyrir þingið Skipan í málefnahópa v/ nefndarstarfa Umræður um skýrslur og afgreiðsla þeirra
Kl. 12.00 Matarhlé
Kl. 13.15 Yfirlitsræða formanns
Kl. 14.15 Almennar umræðu
Kl. 16.30 Nefndarstörf-starfshópar-undimefndir
Laugardagurinn 23. nóvember 1996
Kl. 09.00 Almennar umræður, framhald
Kl. 11.00 Afgreiðsla mála - umræður
Kl. 12.00 Matarhlé
Kl. 13.15 Kosningar: Fulltrúar í miðstjóm samkv. lögum
Kl. 13.45 Opin afmælisdagskrá í Háskólabíói
Kl. 16.15 Nefndarstörf - starfshópar - undifnefndir
Kl. 19.30 Kvöldverðarhóf í Súlnasal
Sunnudagurinn 24. nóvember 1996
Kl. 10.00 Afgreiðsla mála - umræður
Kl. 12.00 Matarhlé
Kl. 13.20 Kosningar:
Kl. 14.00
Formanns
Varaformanns
Ritara
Gjaldkera
Vararitara
Varagjaldkera
Afgreiðsla mála og þingslit að dagskrá
tæmdri
Tímasetning dagskráliða kann að taka breytingum fram að flokksþingi.