Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1981, Síða 6
22
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981.
Síðustu sýningar á Ástar-
sögu aldarinnar
Ástarsaga aldarinnar, cftir Mörtu Tikkanen, sem
sýnd hefur verið á Litla sviði Þjóðleikhússins undan-
farið hefur vakið töluverða athygli og fengið ágæta
aðsókn. En nú eru siöustu forvöð að sjá þessa
sýningu því verkið verður einungis á fjölunum
þrisvar sinnum enn og lýkur sýningum í byrjun
desembermánaðar.
Það er Kristín Bjarnadóttir sem fer með eina hlut-
verkið í leiknum, en hún hefur sem kunnugt er
einnig snúið verkinu á isienzku. Leikstjóri er Krist-
björg Kjeld, en þær Kristin hafa búið verkið til
flutnings á leiksviði. Leikmynd og búning gerði
Guðrún Svava Svavarsdóttir en David Waltes
annaðist lýsinguna.
Gagnrýnendur luku miklu lofsorði á sýninguna og
túlkun Kristinar Bjarnadóttur á þessu nærfærna og
opinskáa eintali um ástina, samband kynjanna,
alkóhólisma og örvæntingu og síðast en ekki sízt um
vonina sem verkið boðar.
Ástarsagan verður sýnd fimmtudaginn 26. nóvem-
ber, sunnudaginn 29. nóv. og i siðasta sinn fimmtu-
daginn 3. des. Sýningar á Litla sviðinu hefjast kl.
20.30.
Leikfélag Selfoss
Leikfélag Selfoss sýnir Fjölskylduna eftir Claes
Anderson í Félagsheimili Seltjarnarness, föstudags-
kvöld kl. 21.00 undir leikstjórn Ásdisar Skúladóttur.
Laugardagskvöld 28. nóvember verður leikritið sýnt
í Selfossbíói kl. 16.00. Eftir sýningu verða umræður
um áfengisvarnir og áfengisvandamál.
Alþýðuleikhúsið
Hafnarbíói
Gamanleikurinn Illur fengur eftir Joe Orton:
3. sýning föstudagskvöld kl. 20.30.
4. sýningsunnudagskvöld kl. 20.30.
Sterkari en Superman.
Fösiudag kl. 16.00.
Sunnudag kl. 15.00.
Elskaðu mig.
Laugardagskvöld kl. 20.30.
Síðasta aukasýning á gamanleiknum Stjórnleysingi
ferst af slysförum:
Laugardagskvöld kl. 23.30. Vegna fjölda áskorana.
Á laugardaginn kl. I7.00sýnir Leikfélag Keflavíkur
Rauðhettu i Jeikgerð Jevani Schwarz.
Kópavogsleikhúsið
sýnir fjölskyidugamanleikinn Aldrei er friður Iaug-
ardagskvöld kl. 20.00 og sunnudag kl. 15.00. Miðar
teknir frá í síma 41985.
örfáar sýningar eftir á Hótel
Paradís
Nú eru einungis örfáar sýningar eftir á franska
gamanleiknum Hótd Paradís, eftir Georges Feydeau,
í Þjóöleikhúsinu. Verkið hefur veriö sýnt 20 sinnum
við ágæta aðsókn og mikla kátlínu, en sýningum
lýkur fyrir jól.
Feydeau, sem oft hefur verið kallaður konungur
skopleikjanna, gerir í þessu leikriti vægðarlaust grín
að þeirri tvöfeldni sem „vammlausir” betri borgarar
byggja hjónabönd sín á. Og í ótrúlega snjallri leik-
fléttu tekst honum að hnýta saman i einn rembi-
hnút örlög flestra þeirra fjölmörgu persóna sem
koma fyrir í ieiknum þannig að áhorfandinn trúir
þvi varla að hnútinn megi leysa öðru vísi en að
höggva á hann; en meistari Feydeau leysir fléttuna
átakalitið og auðveldlega í lokin, þannig að persón-
urnar standa eftir íklæddar hræsninni einni saman.
Með nokkur stærstu hlutverkin fara Róbert
Arnfinnsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Árni
Tryggvason, Bessi Bjarnason, Þóra Friðriksd.,
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Randver Þorláks-
son. Leikstjóri er Benedikt Árnason, leikmynd og
búningar eru eftir Robin Don frá Bretlandi, Kristinn
Daníelsson annaðist lýsinguna, en Sigurður Pálsson
þýddi leikinn á islenzku.
Næstu sýningar á Hótel Paradis verða fimmtu-
daginn 26. nóvember laugardaginn 28. nóv. og
þriðjudaginn 1. des.
Nemendaleikhúsið
Nemendaleikhúsið sýriir Jóhönnu frá örk föstudag
og sunnudag. Síðustu sýningar. Miðasala frá kl. 17.
í Lindarbæ, sími 21971.
Kvikmyndir
i Jí MiÉáÉklMÉÁÆ f
f. V * >;■ . \ " i ' •N.y ■-» \ /
(Jr myndinni Direction eftir Christine Koenigs.
Kvikmyndir
listamanna
Kvikmyndasýningar sem staðið hafa yfir í rúma viku
í Nýlistasafninu enda laugardaginn 29.11. með
sýningaprógrammi sem samanstendur af úrvali kvik-
mynda sem gefa yfirlit yfir fjölbreytta notkun
listamanna á þessum miðii.
Hér er um að ræða fjölbreytta samsetningu: Til-
raunakvikmyndir, dokúmentarímyndir, auk annars
konar persónulegrar túlkunar listamanna í formi
„lifandi myndar”. Er hér í fyrsta sinn sett saman
semheild, þróun myndlistar síðustu 25 ára, þar sem
íslenzkir listamenn hafa unnið með kvikmyndina
samhliða fjölbreyttri efnisgerð nútimalistar.
Christine Koenigs skýrir notkun kvikmyndar i.
myndlist, jafnframt sem reynt verður að meta stöðu-
kvikmyndar í islenzkri samtimalisi.
Sýningar byrja kl. 14.óu.
Kvikmyndasýning MÍR
Sunnudagur 29. nóv. kl. 16:
Hlýja handa þinna mynd frá Grúsfilm ár 1972.
Leikstjórn: Sjota og Nodar Mamagadze. í myndinni
segir frá konunni Sidonju og hvernig meiriháttar
atburðir í viðburðarikri sögu Grúsiu fléttast inn i
ævi hennar. Lýst er afdrifarikum pólitískum at-
burðum, hatrammri baráttu bolsévíka og mensevika
á árinu 1918 og T9, erfiðleikum í endurreisnar-
starfinu eftir borgarastríðið og síðar innrás Þjóð-
verja 1941. — í upphafi myndarinnar er eiginmaöur
Sidonju kvaddur í herinn og verður hún þá ein að sjá
börnunum farborða, en siðar gerist maðurinn lið-
hlaupi og snýr heim. í lok myndarinnar getur
Sidonja þó tekið þátt í ósvikinni grúsískri veizlum
með börnum sínum og barnabörnum.
Skemmistaðir
KLÚBBURINN: Hljómsveitin Hafrót spilar sín
beztu lög, bæði föstudags- og laugardagskvöld.
Ekki má gleyma diskótekinu, þar er hægt að fá
„hristiútrás með tilheyrandi dillibossagangi”.
LEIKHÚSKJALLARINN: Þægileg tónlist. Opið
föstudags- og laugardagskvöld.
LINDARBÆR: Gömlu dansarnir laugardagskvöld,
hljómsveit Rúts Kr. Hannessonar og Valgerðar
Þórisdóttiur sér um sönginn.
MANHATTAN: Opið föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld. Logi Dýrfjörð verður i
diskótekinu, hann drífur alla í dansin. Frá kl. 120
laugardagskvöld verða tilbúnir rjúkandi réttir.
Sunnudagskvöld verður tizkusýning.
laugardagskvöld verða tilbúnir rjúkandi réttir. Gra-
ham Smith kynnir plötu sína.
HOLLVWOOD: föstudags- og laugardagskvöld
verður Villi i diskótekinu. Sunnudagskvöldin eru
alltaf fjölbreytt, að þessu sinni verður Módel ’79
með tízkusýningu, kynnt ný hljómplata með hljóm-
sveitinni Start. Endurtekin veða atriði úr fjóröa og
síðasta skemmtikraftavali sem fram fór í Holly-
wood.
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Giæsir leikur fyrir
dansi. S diskótekinu er Grétar Laufdal.
HOLLYWOOD: Fösludagur: Þeim sem koma fyrir
kl. 12 er boðið upp á léttar veigar. Villi er í
diskótekinu. Laugardagur: Villi í diskótekinu.
Sunnudagur: Skemmtidagskrá. Kynnt verða úrslit
úr 3. riðli skemmtikraftavalsins. Módel '19 með
tízkusýningu. Plötukynning. Villi í diskótekinu.
HÓTEL BORG: Föstudags- og laugardgskvöld
verður diskótek, en sunnudagskvöld gömlu
dansarnir, hljómsveit JónsSigurðssonar.
HÓTEL SAGA: Föstudagskvöld lokað vegna einka-
samkvæmis. Laugardags- og sunnudagskvöld leikur
hljómsveit Ragnars Bjarnasonar, Samvinnuferðir
sjá um skemmtuninasunnudagskvöld 15. nóvember.
ÓÐAL: Föstudagskvöld er það Sigga
diskódrottning sem ser um diskótekið, Fanney
diskódansmær mætir laugardagskvöld, sunnudags-
kvöld Dóri búldulciti i diskótekinu og danskeppni
fyrir heimsmeistaramót Emi.
SIGTÚN: Hljómsveitin Radíus frá Vestmanna-
eyjum, föstudags- og laugardagskvöld. Bingó í
Sigtúnikl. 14.30 laugardag.
SNEKKJAN: Föstudags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Dansbandið.
Matsölustaðurinn SKÚTAN: Opinn föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
ÞÓRSCAFfe: Galdrakarlar galdra góða tónlist, öll
kvöld helgarinnar. Sunnudagskvöldin verða frábær i
vetur:
Kl. 19.00 er húsið opnað og þeir sem koma fyrir kl.
20, fá „lystauka”.
Kl. 20.00 hlyypur Stefán Hjaltested, yfirmat-
Broadway—veitingahús helgarinnar:
Glæsilegasta veitingahús
hérlendis reist á mettíma
Ólafur Laufdal veitingakóngur á hinum nýja skemmtistað i fyrradag. Þá voru á
milli 80 og 100 manns að vinna til að unnt væri að opna í gærkvöld.
DB-mynd KÖE.
Eiti glæsilegasta veitingahús lands-
ins, Broadway, opnaði í gærkvöld og
verður því að þessu sinni veitingahús
helgarinnar. Broadway rúmar um
1200 gesti. Aldurstakmark er 21 ár —
og því verður fylgt. „Veitingamenn
ráða sjálfir hvaða aldurstakmark þeir
setja og ég setti þetta einungis til að
fólk skilji að ég vil ekki neina ungl-
inga hingað. Ég vil fá sparibúið
hjónafólk á aldrinum 21 til 50 ára,”
vsagði Ólafur Laufdal veitingakóngur
i viðtali við Dagblaðið & Vísi.
Ákvörðun um að opna staðinn 26.
nóvember var tekinn áður en hafizt
var handa við byggingu hússins að
Álftabakka 8 i Breiðholti. Byggingin
hófst síðan þann 18. júní og eftir
vinnu dag og nótt undanfarið var
hægt að opna með pompi og prakt i
gærkvöld.
Mjög erfitt er að lýsa Broadway en
óhætt að fullyrða að glæsilegri salur
finnst ekki hér á landi og þó vjðar
væri leitað. — En af hverju nafnið
Broadway? ,,Jú, Ijósin héreru ættuð
frá Broadway og hér verður boðið
uppá ýmsar leiksýningar, tónleika og
margt margt fleira, þannig að
staðurinn mun líkjast Broadway,”
,sagði Ólafur Laufdal.
Á Broadway er þegar upppantað
fyrir ráðstefnur fram til ársins 1983.
Auk þess hafa fjölmargir sýnt
staðnum áhuga, enda býður hann
upp á allt það sem slíkir saiír eiga að
bjóða upp á. Á Broadway verður
boðið upp á mat en það verður þó
ekki fyrr en um næstu helgi. Og að
lokum má geta þess að spariklæðn-
aður er sá klæðnaður sem hæfir
Broadway og síðan er ekkert annað
en sjón er sögu ríkari.
-ELA.
Hljómsveitin The Cut er komin til landsins og lætur að sér kveða á Borginni i
kvöid.
HUÓMLEIKAR HELGARINNAR
—TheCut:
Nýbylgjurokk með
funk — Tilbrigðum
— í kvöld á Hótel Borg
Hljómsveitin The Cut kom til
landsins á miðvikudaginn. Um
kvöldið spiluðu þeir á skólaballi hjá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og
tókst það sæmilega. En almenningur
fær líka að heyra þá og sjá augliti til
auglitis á hljómleikum núna um helg-
ina. Þeir sem skipa hljómsveitina
heita Volker Zibell, syngur og leikur
á hljómborð og synthesizer, Don
Buchanan,, gítar, Atel Gundersen,
gítar, Torgrim Eggen, bassa, og Arne
Lund á trommur. Þeir syngja á ensku
og þýzku en söngvari hljómsveitar-
innar er Þjóðverji, en býr í Noregi.
Hinir eru Norðmenn. Tónlistin sem
þeir spila er nýbylgjurokk með funk-
tilbrigðum og er víst ágætt að fá sér
snúning við undirleik sveitarinnar.
Plötur þeirra Cutara eru ein smáskífa
og ein breiðskífa sem ber nafnið
Shadow Talks og fást þær báðar í
Fálkanum. Annars var fjallað um
hljómsveitina í Dagblaðinu 25. þ.m.
Hljómleikar The Cut verða eins og
hér segir: í kvöld, föstudag, á Hótel
Borg ásamt Fræbbblunum. Laugar-
dagskvöld, klúbbur NEFS ásamt
Egó. Sunnudagskvöld í Tónabæ á
vegum Æskulýðsráðs. Mánudags-
kvöld í Fjölbrautaskólanum á Akra-
nesi. Miðaverð verður ekki hátt svo
að allir sem vilja geti ráðið við það,
eða um 70—80 kr. Þess má kannski
einnig geta að Fræbbblarnir fara til
Noregs í janúar á næsta ári og halda
hljómleika í Osló. Það er bara rokna
samvinna milli Norðurlanda núna.
-OVJ.
reiöslusnillingiu meö meiru, á milli borða og eld-
•steikir fyrir matargesti, enda er maðurinn eldhress.
Þegar borðhaldi lýkur kemur Þórskabarett meö
glænýja skemmtun, sem þau Jörundur, Laddi,
Júlíus, Guðrún, Birgitta og Ingibjörg sýna.
Matsölustaðir
REYKJAVÍK
ASKUR, Laugavegi 28 B. Simar 18385 og 29355:
Opið kl. 9—24 alla daga. Vínveitingar frá kl. 18 virka
daga og ailan daginn á sunnudögum.
ASKUR, Suðurlandsbraut 14. Sími 81344: Opið kl.
11-23.30.
BRAUÐBÆR Þórsgötu 1, við Óðinstorg. Sími 25090:
Opið kl. 9—23.30 virka daga og 10—23.30 i sunnu-
dögum.
ESJUBERG, Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2. Simi
82200: Opið kl. 7—22. Vínveitingar.
HLlÐARENDI, Brautarholti 22 (gengið inn frá Nóa-
túni). Borðapantanir I sima 11690. Opið kl. 11.30—
14.30 og 18—22.30. Vínveitingar.
HOLLYWOOD, Ármúla 5. Borðapantanir i sima
83715. Matur framreiddur kl. 21—23 öll kvöld vik-
unnar. Vinveitingar.
HORNIÐ, Hafnarstræti 16. Sími 13340: Opið kl.
11—23.30. Eldhúsinu lokað kl. 21. Léttar vínveit-
ingar.
HÓTEL HOLT, Bergstaðastræti 37. Borðapantanir i
síma 21011. Opið kl. 12-14.30 og 19-23.30. vín-
veitingar.
HÓTEL LOFTLEIÐIR, Reykjavíkurflugvelli.
Borðapantanir í sima 22321: Blómasalur er opinn kl.
8—9.30 (morgunmatur), 12—14.30 og 19—22.30.
Vínveitingar. Veitingabúö Hótels Loftleiða opin alla
daga kl. 5—20.
HÓTEL SAGA við Hagatorg. Boröapantanir i
Stjörnusal (Grill) I sima 25033. Opið kl. 8—23.30.
Matur framreiddur kl. 12—14.30 og 19—22.30. Vín-
veitingar. Borðapantanir I Súlnasal I sima 20221. Mat-
ur er framreiddur föstudaga og laugardaga kl. 19—21.
Vlnveitingar.
KAFFIVAGNINN, Grandagarði 10. Símar 12509 og
15932. Opið kl. 4 eftir miðnætti til kl. 23.30. Vínveit-
ingar.
KRÁIN viö Hlemmtorg. Sími 24631. Opið alla daga
kl. 9-22.
LAUGAÁS, Laugarásvegi 1. Sími 31620. Opið8—24.
MATSTOFA AUSTURBÆJAR, Laugavegi 116.
Simi 10312. Opið kl. 8—21 virka daga og 9—21
sunnudaga.
NAUST, Vesturgötu 6—8: Borðapantanir I síma
17759. Opið alla daga kl. 11 —23.30.
NESSÝ, Austurstræti 22. Sími 11340. Opið kl. 11-
23.30 alla daga.
ÓÐAL við Austurvöll. Borðapantanir I síma 11322.
Matur framreiddur kl. 21—01 sunnudaga til fimmtu-
daga, kl. 21 —03 föstudaga og laugardaga.
SKRÍNAN, Skólavörðustíg 12. Sími 10848. Opið kl.
11.30— 23.30. Léttar vínveitingar.
VESTURSLÓÐ, Hagamel 67. Sími 20745. Opið kl.
11 —23 virka daga og 11 —23.30 á sunnudögum. Létt-
ar vinveitingar.
ÞÓRSCAFÉ, Brautarholti 20. Borðapantanir I sima
23333. Matur framreiddur föstudaga og laugardaga
kl. 20—22. Vinveitingar.
KÓPAVOGUR
VERSALIR, Hamraborg 4. Simi 41024. Opið kl. 12—
23. Léttar vínveitingar.
HAFNARFJÖRÐUR
GAFL-INN, Dalshrauni 13. Simi 54424. Opið alla
daga kl. 8—23.30. Sunnudaga kl. 17—21 er opinn
veizlusalur með heita og kalda rétti og vínveitingar.
SNEKKJAN og SKÚTAN, Strandgötu 1—3. Borða-
pantanir i síma 52502. Skútan er opin 9—21 sunnu-
daga til fimmtudaga og 9—22 föstudaga og laugar-
daga. Matur er framreiddur í Snekkjunni á laugardög-
umkl. 21—22.30.
AKRANES
STILLHOLT, Stillholti 2. Simi 93-2778. Opið kl.
9.30— 21 virka daga og 9.30—22 laugardaga og
sunnudaga. Léttar vinveitingar eftir kl. 18.
AKUREYRI
BAUTINN og SMIÐJAN, Hafnarstræti 22. Sími 96
21818. Bautinn er opinn alla daga kl. 9.30—21.30.
Smiðjan er opin mánudaga, þriðjudaga og miðvlku-
daga kl. 18.30—21.30. Föstudaga, laugardaga og
sunnudaga kl. 11.30—14 og 18.30—21.30. Vínveit-
ingar.
HÓTEL KEA, Hafnarstræri 87—89. Sími 96-22200.
Opið kl. 19—23.30, matur framreiddur til kl. 21.45.
Vinveitingar.