Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981.
21
Allt um
íþróttir
helgarinnar J
Meistararnir fengu
aðeins þrjú stig
Janus skoraði
með skalla
— og tryggði Fortuna Köln jafntefli
Janus Guðlaugsson tryggði Fortuna
Köln jafntefli (2—2) gegn SV Waldhof
i Köln í gærkvöldi, þegar liðin mættust
í 2. deildarkeppninni. Janus skoraði
markið þegar 4 min. voru til leiksloka.
— Það var tekin aukaspyma fyrir utan
vitateig og knötturinn sendur yfir varn-
armúr Waldhof. Ég kastaði mér fram
og náði að skalla knöttinn sem hafnaði
uppi i markhominu, sagði Janus i
stuttu spjalli við DB&Vísi I gærkvöldi.
Janus sagði að leikmenn Fortuna
Köln hefðu sótt meira í leiknum. —
Við fengum á okkur klaufamark þegar
staðan var 1 — 1, þannig að það kom
mikil pressa á okkur. Sem betur fer
náðum við að tryggja okkur jafntefli,
sagði Janus.
— Ertu búinn að ná þér eftir meiðsl-
in?
— Já, ökklinn er að verða góður,
þannig að ég get farið að leika á fullu.
Fortuna Köln er nú í fimmta sæti í 2.
deildarkeppninni og á liðið eftir að
leika tvo leiki fyrir áramót. Fortuna
Köln leikur ágóðaleik gegn Bayern
Miinchen 19. desember í Köln, en gegn
Hannover 96 15. desember. — Það
verður gaman að leika gegn Jóhannesi
Eðvaldssyni, sagði Janus.
-sos
Ingi Þór Jónsson settl fimm glæsileg Islandsmet á sundmótinu 1 Vestmannaeyjum um helgina.
Janus Guðlaugsson.
Kamerún
til Spánar
21 þjóð búin að fá far-
seðilinn í HM úrslitin
Kamerún tryggði sér rétt til að leika i
HM-keppninni á Spáni, með þvi að
vinna slgur (2—1) yfir Marokkó í gær-
kvöldi. Kamerún og Alsír komust því
áfram úr Afríku-riðlinum.
Nú hefur 21 þjóð tryggt sér rétt til
að leika á Spáni 1982. Spánn,
Argentína, Brasilía, Chile, Perú,
Austurríki, Belgía, Tékkóslóvakía,
England, Ungverjaland, Ítalía, N-
frland, Pólland, Skotland, Rússland,
V-Þýskaland, Júgóslavía, E1 Salvador,
Honduras, Alsir og Kamerún.
Allt bendir til þess að Kína og
Kuwait komist áfram frá Asíu og
Frakkland er einnig næsta öruggt að
komasttilSpánar. -SOS.
— í bikarkeppni 1. deildar í sundi — Ingi Þ6r setti 5 íslandsmet en HSK
sveitin sigraði í keppninni í f jarveru Ægis
Ingi Þór Jónsson sundkappi frá
Akranesi var stóra stjarnan á bikar-
móti 1. deildar i sundi sem haldið var í
Vestmannaeyjum um helgina. Ingi Þór,
sem varð í 5. sæti i kjöri um íþrótta-
mann ársins á Akranesi i siðustu viku,
setti fimm glæsileg íslandsmet á mót-
inu i Eyjum og jafnaði það sjötta.
Metin sem hann setti voru í 50 metra
Tómas aftur
til Eyja
Tómas Pálsson, knattspyrnu-
maður frá Vestmannaeyjum, sem
lék með FH-ingum i 1. deildar-
keppninni i sumar, er nú kominn að
nýju til Eyja. Það er ekki ljóst hvort
Tómas ætlar að gerast leikmaður
með Eyjaliðinu eða leggja skóna á
hilluna. Það getur einnig farið svo
að hann taki að sér þjálfun. -SOS
flugsundi, þar sem hann synti á 27,6
mín, 100 metra flugsundi (59,4 mín,)
og 200 metra flugsundi (2:12,5 mín.)
Gömlu metin í þessum greinum átti
hann sjálfur. Þá setti hann fslandsmet í
200 metra skriðsundi — synti á 1:58,3
mín, — en gamla metið þar átti Sig-
urður Ólafsson og var það 1:59,6 mín.
Þá setti Ingi Þór nýtt met í 800 metra
skriðsundi, synti þá vegalengd á 8:49,6
mín, en gamla metið, sem Bjarni
Björnsson átti, var 8:50,4 mín. Ingi Þór
jafnaði svo sitt eigið met í 100 metra
baksundi en þar fékk hann tímann
1:03,0 mín.
Ingi Þór var ekki einn um að setja
met í þessari keppni. Hinn efnilegi
sundmaður frá Vestmannaeyjum, Árni
Sigurðsson, setti 3 piltamet — í 100 og
200 metra bringusundi og 200 metra
fjórsundi. Þá setti sveit HSK íslands-
met í 4x 100 metra skriðsundi karla og
tók þar metið af sveit Ægis.
Mót þetta bar þess merki að meistar-
arnir á síðustu 11 árum, sveit Ægis,
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
L
„Krakkarnir
eru mjög sárir”
- segir þjátfari Ægis sem komst ekki með tvö sundlið út í Eyjar
,,Það fer ekki neitt á miili mála og
við erum óhress með þetta og krakk-
arnir eru mjög sárir að komast ekki
út i Eyjar,” sagði Kristinn Kolbeins-
son þjálfari sundfélagsins Ægis í
viðtali við DB&Visi i gær, en hann og
tvö lið hans komust ekki til Vest-
mannaeyja til að keppa i 1. deild
bikarkeppninnar i sundi.
,,Við treystum á flug út í Eyjar á
föstudaginn en það féll niður og þá
vorum við orðin of sein að ná Herj-
ólfi,” sagði Kristinn. Hin liöin, frá
Selfossi og Akranesi, fóru með bátn-
um og mættu í tæka tíð, en þau neit-
uðu síöan að fresta keppninni þegar
ljóst var aö við kæmumst ekki á
föstudeginum.
Við eigum eftir að kanna okkar
mál betur í sambandi við þessa neit-
un. Það er vitað mál að bæði í knatt-
spyrnu, handknattleik og öðrum
greinum er leikjum frestað ef ófært
er ámilli lands og Eyja og við skiljum
ekki hvers vegna ekki mátti gera það
núna.”
Ægir átti tvö lið af fimm í þessari
keppni og liö frá Ægi hefur sigrað í
henni öll skiptin síðan 1970.
-klp-
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
mætti ekki til leiks. Ægisfólkið sem átti
að skipa 2 lið á mótinu komst ekki út í
Eyjar og fékk ekki mótinu frestað.
Spurningin var því hvort það yrði A
eða B lið Ægis sem félli í 2. deild. En
Axel Alfreðsson, gamli sundkappinn úr
Ægi, tók af allan vafa um það en hann
var staddur úti í Eyjum um helgina.
Hann brá sér út í laugina í 200 metra
baksundinu og kom fjórði i mark og
náði þar með í 3 stig fyrir A-lið Ægis.
Það var sveit Héraðssambandsins
Skarphéðins sem sigraði í keppninni
eftir harða keppni við sundliðið frá
Akranesi. HSK hlaut samtals 233 stig,
Akranes 225 stig, Vestmannaeyjar 139
stig, A lið Ægis 3 stig og B lið Ægis 0
stig. GÞBÓ/Vestmannaeyjum/-klp-
Tony Knapp
með
Fredrikstad
Tony Knapp fyrrverandi landsliðs-
þjáifari íslands I knattspyrnu ætlar að
ílengjast i Noregi.
Hann hcfur þjálfað Víking frá Stav-
anger með góðum árangri undanfarin
ár, en hættir þar núna. Hann hefur nú
ráðið sig í nýtt starf i Noregi og er það
hjá 1. deildarliðinu Fredrikstad. Þar
byrjar hann i febrúar á næsta ári en
þessa stundina er Knapp heima hjá sér i
Norwich i Englandi. , -klp-
Óskar Sæmundsson.
GRí
11. sæti
— á Evrópumóti
klúbbliða í gotfi
Sveit Golfklúbbs Reykjavíkur
varð í 11. sæti á Evrópumeistara-
móti klúbbliða í golfi, sem lauk á
hinum fræga Aioha-golfvelii á
Marbella á Spáni á laugardaginn.
Þar kepptu 19 sveitir frá jafn-
mörgum Evrópulöndum þar sem
lögð er stund á golf. Sveit GR, sem
skipuð var 3 mönnum, var á sam-
tals 654 höggum en sigurvegararnir,
sem voru sveitir frá Danmörku og
Spáni, voru á 603 höggum.
Óskar Sæmundsson lék best af ís-
lensku keppendunum eða 42 hol-
urnar samtals á 330 höggum.
Árangur þeirra var annars þessi:
Óskar Sæmundsson:
89—80—78—83 = 330högg
Ragnar Ólafsson:
85—84—80—83 = 332högg
Sigurður Pétursson:
84—87 —89—80 = 340högg -klp-