Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1981, Page 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1981.
25
íþróttir
íþróttir
íþrótt
íþróttir
„Engin skömm að tapa
fyrir þessum unglingum”
„Við vorum hálfmóðgaðir þegar við fréttum að við ættum
að keppa við unglingalið íslands og það hefur kannski setið í
mínum mönnum þegar þeir fóru inn á," sagði Per Otto Furu-
seth þjátfari norska handknattleiksliðsins eftir leik þess við
UL-liðið undir 21 árs á Selfossi á laugardaginn.
„En það var engin skömm að þvi að
tapa fyrir þessu unglingaliði. Það setti
okkur strax út af laginu með frábærum
leik og við náðum aldrei að svara al-
mennilega fyrir okkur.”
íslenska liðið byrjaði af krafti og var
yfir í hálfleik, 12—9. í byrjun síðari
hálfleiks bætti það enn við — komst i
19—10 og var þá mikið skorað úr
hraðaupphlaupum eftir léleg skot
Norðmanna.
„Við vorum orðnir dauðhræddir um
að vera hreinlega rassskelltir af íslensku
strákunum, og þá náðu minir menn að
sýna svolitið af því sem þeir kunna og
geta,” sagði Furuseth.
Norðmenn náðu á þessum kafla að
minnka muninn úr 19—10 í 19—17, en
Þorbergur Aðalsteinsson skoraði 7 af mörkum Íslands i fyrri leiknum við Norðmenn i gær.
Ljósmynd GVA.
Diðrik Ölafsson, markvörður
íslandsmeistara Vikings í knatt-
spyrnu,hefurákveðiðað leggja knatt-
spyrnuskóna á hilluna.
Diðrik mun ætla að fara að standa
í byggingarframkvæmdum á næsta
ári og segist ekki hafa tima til þess
nema hætta alveg að æfa knatt-
spyrnuna.
„Ég er búinn að vera i markinu
hjá meistaraflokki Víkings siðan
1968 og það er kominn timi til að fara
að hætta og gefa þeim yngri
tækifæri,” sagði hann í viðtali við
DB & Vísi í gær.
-klp-
—sagði norski þjálfarinn eftir leikinn
á Selfossi á laugardaginn
islensku strákarnir fundu þá aftur leið-
ina í markið hjá þeim norsku og sigr-
uðu þá með 6 marka mun 25—19.
Þjálfari norska liðsins sagði okkur
Núáað
hefna...
Síðasti leikur norska handbolta-
landsliðsins í heimsókninni til
Íslands að þessu sinni verður í
Laugardalshöllinni í kvöld og hefst
hann kl. 20.00. Einhverjar
breytingar verða gerðar á íslenska
liðinu fyrlr þann leik því þar eru
Hilmar Björnsson & c/o ákveðnir
að hefna ófaranna frá í gær með
góðum sigri.
að hann ætti von á þvi að islenska liðið
gæti staðið sig vel í HM-keppninni í
Portúgal. Það yrði þó erfitt því hann
vissi til dæmis að sovéska liðið væri
hreint frábært. Hollendingarnir, sem
væru i sama riðli og ísland og Sovét,
hefðu slegið Finna út í forkeppninni og
væru til alls liklegir.
Aðspurður sagði hann að Norðmenn
væru ekki með í þessari heimsmeistara-
keppni — það væri verið að byggja allt
upp á nýtt í norskum handknattleik um
þessar mundir en þeir kæmu sterkir til
leiks í næstu HM-keppni í staðinn.
Mörk unglingaliðs íslands í leiknum
við norska liðið gerðu: Kristján Arason
9, Páll Ólafsson 6, Brynjar Harðarson
3, Guðmundur Guðmundsson 3, Val-
garður Valgarðsson 2 og Þorgils Óttar
2 mörk. Sigmar Þröstur stóð í markinu
og varði mjög vel.
-klp-
‘0 Guðrún Fema Ágústsdóttir.
Ætla að
synda í
Danmörku
Norðurlandameistaramót ungl-
inga í sundi verður haldið um næstu
helgi í Tysted í Danmörku og verða
sendir þrir islenskir unglingar þang-
að.
Það eru þau Eðvarð Þór
Eðvarðsson, UMFN, Árni Sigurðs-
son, ÍBV, og Guðrún Fema Ágústs-
dóttir, Ægi. Guðrún og Eðvarð
hafa bæði verið í íslenska landslið-
inu i sundi þótt ung séu að árum —
eða rétt 15 ára — en Árni mun
keppa þarna í fyrsta sinn fyrir ís-
land. -klp-
Við bjóðum
skíðaferðir
í beinu leiguflugi
og opnum um leið nýjar dyr að
skíðaparadís Austurrísiku
Samvinnuferðir-Landsýn flýgur nú íMéinu
leiguflugi (án þreytandi millilendinga) i
skíðalönd Austurrikis. Pannig lækkum við
verð og flýtum för, auk þess sem nýir mögu-
leikar hafa oþnast á hópafslætti, barna-
afslætti, greiðsluskilmálum og annarri
fýrirgreiðslu.
Við látum yfirhlaðna ferðamannastaði með
allri sinni örtröð liggja á milli hluta. „Aðeins
þaðallra besta" þótti nógu gottog við vonum
aðfarþegarnirverði sammála þeim skíða-
sérfræðingum okkar sem völdu Sölden,
Zillertal og Niederau. Par er skíðaaðstaða í
senn fjölbreyttog spennandi, skíðakennarar
á hverju strái, skíðalyftur í tugatali og síðast
en ekki síst einstaklega friðsælt og notalegt.
Og þegar skíðabrekkunum sleppir er tilvalið
að bregða sér á gönguskíði, fara í æsispenn-
andi bobsleðaferðir, leika sérá skautasvellum
eða bregða sér í hestasleðaferðir um fallega
dalina. Þreytanlíðursíðanúrísundlaugumog
saunaböðum og á kvöldin bíða þín fjölmargir
veitinga- og skemmtistaðir með ósvikinni
Tíróla-stemmningu, bjölluspili og
harmonikkuleik.
Nú er tilvalið að maa saman vinum og
kunningjum, næla sér í myndarlegan hóp-
afslátt og láta drauminn um skíðaparadis
Austurrikis rætast í góðra vina hópi.
•'•r ■
Brottfarardagar:
Des. 19. (jólaferð, heimkoma 2. jan.)
Jan. 16, 30.
Feb. 13,27. (heimkoma 13. mars)
Verð frá
kr. 5.880
Innifalið: Flug til og frá Munchen, flutningur
til og frá áfangastað, gisting með hálfu
fæði i tvær vikur og íslensk fararstjórn.
Hópafsláttur kr. 500, barnaafsláttur kr. 1.000
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899