Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Blaðsíða 4
20
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981.
SKAUTAR -
SKAUTAR
Svartir skór
Stœrðir 34—46
Verð kr. 329.-
Hvítir skór
< * Stœrðir 33-41
f Verðkr.312.-
\\
*.v
V
"ö
<5
,2
«0
'SL
O
Barnaskautar
Stærðir 28-35
Litir: hvftt og svart.
Verð kr. 125.-
PÓSTSENDUM.
LAUGAVEG113.
SÍM113508.
SUNNUDAGS
BLADIÐ
DIOmiUINN
alltaf
um
helgar
Snekkjan+ Skútan
Strandgötu 1 — 3, Hafnarfirði
Dansbandið og diskótek
sjá um stemninguna
" ---------til kl. 3
í SKÚTUNNI verður
matur framreiddur frá
kl. 19.00. Borðapantanir
i símum 52501 og 51810.
Spariklæðnaður
Hvaðeráseyðium
Það er oft mikil rekistefna á milli leikmanna og dómara i körfuboltanum eins og
t.d. béma þar sem þeir Bjarni Gunnar Sveinsson tS, Rikharður Hrafnkeisson
Val og Kristbjörn Albertsson dómari eru að ræða málin i miðjum leik. En það
þarf ekki að ræða mikið i leikjunum f körfuboltanum um þessa heigi, þeir era ör-
fáir og aðeins einn i sjálfri úrvalsdeildinni. DV-mynd Friðþjófur.
íþróttimar um helgina:
Aðalvöllurínn
er í Portúgal
Rólegt á heimavígstöðvum hjá
íslensku íþróttaf ólki um þessa helgi
land, Vestur-Þýskaland eða Argent-
Það verður lítið um að vera
íþróttalífinu hér heima um helgina.
Það er kannski ekki hægt að segja
lítið, en að minnsta kosti fátt um
stórviðburði. Ekki er nema einn
leikur í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik, einn leikur f 1. deild karla í blaki
og enginn í 1. deild karla í handknatt-
leik.
Stórviðburður helgarinnar verður í
Portúgal, þar sem íslenska landsliðið
í handknattleik karla tekur þátt í
heimsmeistarakeppni landsliða 21 árs
ogyngri.
Þar leika 16 lið I 4 riðlum. fsland
leikur í kvöld (föstudag) við gestgjaf-
ana frá Portúgal og á morgun (laug-
ardag) á ísland leik við Holland og á
sunnudag við Sovétríkin. T.vö Iið
komast áfram úr riðlinum, og ef ís-
land nær því, á liðið leik á þriðjudag
og fimmtudag við Svíþjóð, Frakk-
ínu, sem koma úr D-riðlinum.
Eini leikurinn í úrvalsdeildinni í
körfubolta hér heima um helgina er
viðureign Fram og Vals á laugardag.
Á sunnudag leika svo í 1. deild
Grindavík og Haukar í Njarðvík.
Víkingur-Þróttur leika í 1. deildinni i
blaki á sunnudagskvöldið og strax á
eftir þeim leik fara Þróttur og Breiða-
blik af stað f I. deild kvenna.
Þar sem handboltaliðið er í Portú-
gal er lítið um að vera i þeirri íþrótt
um helgina. Þó er einn mikilvægur
leikur í 2. deild karla í Laugardals-
höllinni á sunnudaginn, er þar
mætast þá f R og Breiðablik.
Sjá annars nánar íþróttir helgar-
innar hér á öðrum stað í Helgardag-
bókinni.
-klp-
Blakið um helgina:
VfKINGAR SPREYTA
SIG A MEISTURUNUM
Víkingum gefst kostur á að reyna
sig gegn Þrótturum í 1. deild karla i
blaki um helgina. Vikingur náði í
fyrra oft að velgja Þrótti sem margir
eru farnir að halda að sé jafnvel
ósigrandi, hressilega undir uggum.
Víst er að Víkingar hafa fullan hug
á að sýna að jafnvel Þróttarar eru
ekki ósigrandi. Nái þeir góðum leik
er aldrei að vita nema meistararnir
falli, þeir hafa ýmsa veikleika eins og
glögglega kom í ljós í leik þeirra gegn
Stúdentum um síðustu helgi er þeir
töpuðu einni hrinunni 15—2.
Leikur Víkings og Þróttar verður i
Hagaskóla á sunnudagskvöld kl. 20.
Að þeim leik loknum mætast í
kvennaflokki Þróttur og Breiðablik.
Tveir leikir verða i 2. deild karla
um helgina. Þróttur Neskaupstað
kemur suöur og leikur tvo leiki, fyrst
i kvöld við B-lið Þróttar. Hefst leik-
urinn kl. 20.30 og verður í Voga-
skóla. Á morgun kl. 14.30 leika
Norðfirðingar svo við Samhygð á
Selfossi. . -KMU.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
f MÍR-salnum
Viðhorf Sovétmanna til meiriháttar deilumála á
alþjóðavettvangi og ferð islenskrar þingmanna-
nefndar til Sovétrikjanna á sl. sumri eru viðfangsefni
þriggja 20—50 min. langra kvikmynda, sem sýndar
verða í MÍR-salnum, Lindargötu 48, 2. hæð (gengið
inn frá Frakkastig) Fimmtudagskvöldið 10. desem-
ber kl. 20.30.
Fyrsta myndin nefnist „Sannleikurinn um Apríl-
byltinguna” og fjallar um alþýðubyltinguna í
Afganistan og þróun mála þar í landi síðustu misser-
in. Skýringar með myndinni eru á ensku.
önnur kvikmyndin nefnist „Samkomulag” og
segir þar frá deilum og átökum í austurlöndum nær,
Camp David samkomulaginu og afstöðu ýmissa
arabaríkja til þess. Skýringar með myndinni á
norsku.
Loks er 20 mín. litmynd um Sovétferö sendinefnd-
ar Alþingis undir forystu Jóns Helgasonar, forseta
sameinaös þings á sl. sumri. Brugðið er upp svip-
myndum frá heimsókn þingmannanna til Moskvu,
Tallinn og Kiev. Skýringar með myndinni eru á ís-
lensku, fluttar af Vladimír Jakúb prófessor, sem var
túlkur þingmannanefndarinnar.
Aðgangur að kvikmyndasýningunni í MÍR-saln-
um er ókeypis og öllum heimill.
MÍR.
Ferðalög
Útivistarferðir
Föstudag 4. desember kl. 20,00, aðventuferð í Þórs-
mörk, gönguferðir við allra hæfi um Mörkina í
vetrarskrúða. Fararstjóri Jón 1. Bjarnason. Kvöld-
vaka, smákökur og jólaglögg, kertaljós og klæðin
rauð. Gist i nýja Útivistarskálanum i básum. Uppl.
og farseðlar á skrifstofunni, Lækjargötu 6 A, simi
14606. Skrifstofan verður opin til kl. 18.00
fimmtudaga og föstudaga.
Ferðafélag íslands
Dagsferð sunnudaginn 6. des. kl. 11: Gengið á
Skálafell (774 m) við Esju. Gönguleiðin á Skálafcll
er frekar auðveld og fær öllum, sem eru vel útbúnir.
Fararstjóri: Þorsteinn Bjarnar, Verð kr. 50.- Farið
frá Umferðamiðstöðinni austanmegin. Farmiðar við
bíl.
Listasöfn
'ÁRBÆJARSAFN: Árbæ. Opið samkvæmt umtali í
síma 84412 milli kl. 9.00 og 10.00. Strætisvagn 10'
frá Hlemmi gengur að safninu.
ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaða^træti 74, simi 13644.
Opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl.
13.30—16.
ÁSMUNDARSALUR, Freyjugötu simi 14055:
Siðasta sýningarhelgi á sýningu Guðmundar Páls-
sonar. Hann sýnir vatnslita- og krítarmyndir. Sýn-
ingin nefnist Hljóðafrum, á henni eru 21 myndverk.
Daglega er opið frá kl. 14—22, siðasti sýningardagur
er 6. desember.
DJÚPIÐ: Raymond Holland með myndir unnar á
pappír sem listamaöurinn býr til. Sýningin stendur
til 23. desember. Daglega er opið frá 11—23.30.
Aðgangur ókeypis.
GALLERl KIRKJUMUNIR: Sigrún Jónsdóttir
sýnir batik. Opið alla virka daga frá kl. 9—18, en
laugardaga og sunnudaga frá kl. 9—16.
GALLERÍ LANGBRÓK, Amtmannsstíg 1, síml
13622: Jólasýning Langbróka. Opið á laugardag frá
kl. 13—16, annars alla virka daga frá kl. 12—18.
Sölusýning þessi stendur fram að jólum.
HAMRAGARÐAR, Hávallagötu 24, simi 21944:
Engin sýning í vetur.
HÖGGMYNDASAFN Ásmundar Sveinssonar
v/Sigtún. Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga kl. 13.30—16.
KJARVALSSTAÐIR Mlklatúni, simi 26131:
Haukur Clausen og Margrét Reykdal sýna oliumál-
verk. Sýning Hauks stendur yfir til 13. des. en sýn-
ingu Margrétar lýkur 6. desember. Daglega er opið
frá kl. 14—22.
LISTASAFN ALÞÝÐU, Grensásvegi 16, sími
81770: Guernica sýning eftir Picasso, framlengd
fram á sunnudagskvöld. Daglega er opið frá kl. 14—
22.
LISTASAFN Einars Jónssonar Skólavörðuholti, s.
13797: Safnið er lokað í desember og janúar.
NORRÆNA HÚSIÐ v/Hringbraut, sími 17030:.
Sýning á listiðnaði frá Fjóni. Vefnaður keramik,
ljósmyndir, glermunir og tekstilar.
Keramiksýning
á Hulduhólum
Steinunn Marteinsdóttir sýnir keramik á verkstæði
sínu, Hulduhólum i Mosfellsveit. Hún er opin laug-
ardaginn 5. desember frá kl. 14—19 og sunnudaginn
6. desember kl. 14—22.
Grótar Reynisson
sýnir (Nýlistasafninu
Föstudaginn 4. desember kl. 20:00 mun Grétar
Reynisson opna sýningu i Nýlistasafninu, Vatnsstig
3b. Þetta er fyrsta einkasýning Grétars en hann hef-
ur áður tekið þátt í nokkrum samsýningum. Nú sýn-
ir Grétar skúlptúrverk unnið úr tré o.fl.
Sýningin stendur frá 4.—13. desember 1981 og er
opin daglega frá kl. 20:00-22:00, en um helgar frá kl.
16:00-22:00.