Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Blaðsíða 5
helgina? Hvaðeráseyðiiu Basarar 'Basar Sjáifsbjargar í Reykjavík verður haldinn i Lindarbæ nk. iaugar- dag 5. desember kl. 14.00. Tekið á móti basar- munum á skrifstofunni, Hátúni 12 fram til föstu .dags. Jólabasar f Yferi-Njarðvfk Systrafélag Ytri-Njarðvikurkirkju heldur jólabasar nk. iaugardag 5. des. kl. 15 í safnaðarsal kirkjunnar. Félagskonur hafa haft einn tii tvo vinnufundi i viku í vetur og búið til aðventukransa, borð- og veggskreytingar, óróa, málað keramik og fleira. Þá verður á boðstólum kaffi og með þvi, i fund- arsal. En það koma fleiri við sögu. Kór Tónlistar- skólans undir stjórn Gróu Hreinsdóttur, syngur í kirkjunni kl. 15.30 og kl. 16 og er kirkjan öllum opin á meðan. Svo er iíka búist við skemmtiiegri uppákomu áður en basarinn hefst. Það mun veita öllum mikla gleði að koma i kirkjuna á laugardaginn og eiga þar góða stund um leið og kirkjunni er veittur stuöningur. Sýning á bókasafninu, ísafirði Laugardaginn 5. desember nk. verður opnuð i bóka- safninu ísafiröi, sýning á litljósmyndum eftir Jón Hermannsson. Sýningin nefnist „Myndir frá Horn- .ströndum” og verða þar sýndar um 50 stækkaðar lit ijósmyndir sem Jón hefur tekið á Hornströndum tvö Myndir frá Homströndum. síðastliðin sumur. Jón hefur sjálfur stækkað myndirnar og sett upp. Sýningin verður opnuð laugardag 5. desember og stendur yfir til sunnudags 13. desember sem verður síðasti sýningardagur. Myndirnar eru flestar til sölu. Musica Nova ó Kjarvalsstöðum N.k. mánudag (7. des.) ki. 20.30 mun Musica Nova gangast fyrir tónieikum að Kjarvalsstöðum. Átthagafólag Stranda- manna f Reykjavík heldur kökubasar að Haliveigarstöðum laugar- daginn 5. desember kl. 14 til ágóða fyrir sumarhús féiagsins. Það yar hress hópur sem æfði fyrir skemmtikvöldið á miðvikudagskvöldið er Einar Ólason Ijósmyndari DV leit inn í Hlégarð. Varla verður fjörið minna annað kvöld. Mosfellingar bregða á leik Mannlíf gerist æ fjölbreyttara i Mosfellssveitinni og nú um helgina verður bætt um betur fyrir sveitunga og aðra þá sem vilja leggja leið sina í sveitina. Leikfélag Mosfellinga verður annað kvöld með skemmti- kvöld í kabarettformi á sínum vegum í Hlégarði. Eftir sýninguna verður dansleikur þar sem hljómsveitin Aría leikur fyrir dansi. Leikfélagið í Mosfellssveit hafði hugsað sér að setja upp leiksýningu nú fyrir áramót en af því gat ekki orðið. Ekki þýddi þó að sitja auðum höndum og því var tekið til þess ráðs að æfa skemmtidagskrá. Skemmtunin mun standa yfir í tvo tíma og verður boðið upp á margvís- leg atriði. Má t.d. nefna revíusöng, stílfærðan þátt úr Skugga-Sveini, tveir ungir menn fella klæði og syngja auk ýmislegs annars. f Leikfélagi Mosfellssveitar eru um fjörutíu manns og mikil gróska. í bígerð er nú hjá leikfélaginu að æfa barnaleikrit sem flutt verður eftir áramót. -ELA. Nokkrir af þeim munum sem boóið er upp á á basar KFUK, sem haldinn verður á morgun. Nú eru allir að komast í jólaskap: KFUK með sinn árlega jólabasar Nú eru jólabasararnir að komast í fullan gang og má í þvi sambandi minnast á hinn árlega basar KFUK sem haldinn verður á morgun, laugardag, að Amtmannsstig 2b. Boðið verður upp á fjölbreytt og glæsilegt úrval heimagerðra muna svo sem jóladúka, jólalöbera, dregla, prjónuð leikföng, barnabuxur að ógleymdum öllum gómsætu kökunum. Um leið verður boðið upp á kaff og kökur og geta því gestir setzt niðui og notið góðra veitinga um leið og þeir styrkja gott málefni. Þá má geta þess að annað kvöld verður samkoma í KFUK-húsinu kl. 20,30 og eru að sjálfsögðu allir vel- komnir. -ELA. Kvennadeild Rangæingafólagsins verður með kökubasar og flóamarkað að Hallveig- arstöðum til styrktar Kór Rangæingafélagsins 6. desember kl. 14.Sfjórnin. Bazar óháða saf n- aðarins í Kirkjubæ Kvenfélag óháða safnaðarins heldur bazar i Kirkjubæ laugardaginn 7. dsember kl. 14.00. Félags- konur og velunnarar safnaðarins, góðfúsiega komið gjöfum í Kirkjubæ föstudaginn 6. desember kl. 17— 20 og laugardag 7. desember frá kl. 10—12. LAUGARDAGUR: Körfuknattleikur: íþróttaskemman Akureyri kl. 15, 2. deild, KFÍ-Þór og síðan Hörður-Tindastóll. Hagaskóii kl. 14, Úrvalsdeild, Fram-Valur. Hellisandur kl. 14, 2. deild.Víkingur-Breiðablik. Blak: Seifoss kl. 14. 2. deild. UMF Samhygð-Þróttur Nesk. Handknattleikur: Laugardalshöll kl. 15.30. 3. deild, Ögri-Selfoss og síðan Ármann-Dalvík. SUNNUDAGUR: Körfuknattleikur: íþróttaskemman Akureyri kl. 13. 2. deild. Hörður- KFÍ. Hagaskóli kl. 14, 2. deild, Bræður-Akranes. Njarðvik kl. 14, 1. deild karla, Grindavík-Haukar. Strax á eftir 1. deild kvenna. Njarðvík-ÍR. Blak: Hagaskóli kl. 19, 1. deild karla, Vikingur-Þróttur. Strax á eftir 1. deild kvenna. Þróttur-Breiðablik. Handknattleikur: Laugardalshöll kl. 14, 2. deiid karla. ÍR-Breiðabiik. Seltjarnarnes kl. 14, 3. deild. Grótta-Skallagrímur. Badminton: Seltjarnarnes, A-flokksmót Gróttu. Akranes: Bikarmót ÍA. Opið unglingamót. Júdó: Kennaraháskólinn kl. 14. Reykjavíkurmótið. Komdu inn úr kuldanum Á efnisskránni eru 5 verk: 1) Nýtt tónverk, „Mansöngvar-Kantata nr. 4” eftir Jónas Tómasson sem hann hefur samið fyrir Háskólakórinn að tilhlutan Musica Nova. Þetta er litríkt verk og viðamikið, samið við 12 kvæði Hannesar Péturssonar. 4 hljóðfæraieikarar taka þátt í flutningi verksins auk kórsins. Stjórnandi er Hjálmar Ragnarsson. 2) Nýtt tónverk eftir norska tónskáldið Lasse Thoresen: „Interplay” fyrir fiautu og píanó. Þetta verk er samið fyrir Manuelu Wiesler sem mun frumflytja það á tónleikunum ásamt Þor- keli Sigurbjörnssyni. 3) „Variations III” eftir John Cage (1963). Flytj- andi: Óskar Ingólfsson”. 4) Variations IV” eftir John Cage (1963) Flytjandi: Snorri S. Birgisson. 5) „Glopplop” (hljóðverk fyrir kór) eftir Magnús Guðlaugsson. Að auki verða kynnt nokkur verk Magnúsar Guðlaugssonar m.a. fyrir video. Flytjendur auk þeirra sem fyrr er frá greint eru: Nora Kornblueh og Michael Shelton. Tónleikar Kór Kenaraháskóla íslands mun halda tvenna tónleika á næstunni. Eru það fyrstu opinberu tónleikar kórsins. Fyrri tónieikarnir verða í Ytri- Njarðvíkurkirkju sunnudaginn 6. desember kl. 16 og hinir síðari í Háteigskirkju þriðjudaginn 8. desember kl. 20.30. Á efnisskránni eru jólalög frá ýmsum löndum, m.a. eftir Jan Pieters Sweelinch, Bach, Mozart, Dietrich Buxtehude, Britten o. fl. Stjórnandi kósins er Herdís H. Oddsdóttir. Þeta er 3. starfsár kósins. og fáðu þér heitt jóla- glögg með piparkökum. Þaðyljar þér í jólaönnun- um og kemur þér í jóla- Kór Víðistaðasóknar f Haf narfjarðarkirkju Sunnudaginn 6. des. kl. 20.30 verða tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju. Þar flytja þau Pavel Smid og Violeta Mintcheva Smidova, orgeltónlist eftir Widor, Kanacek og Franch. Kór Víðistaðasóknar flytur Eðhmische Mirtenmesse (Tékkneska jólamessu) eftir Jakob Jan Ryba, ásamt einsöngvurunum Guðrúnu Tómas- dóttur, Rut Magnússon, Friðbirni G. Jónssyni og Halldóri Vilhelmssyni. Undirleikari er Pavel Smid. er Kristín Jóhannesdóttir. við innganginn. Ágóði rennur í orgelsjóð Víðistaðakirkju. íþróttir fóla íjólaönn Tónlist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.