Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981.
11
Mannlíf
Mannlíf
Mannlíf
Mannlíf
AGNETU FÁLTSKOG
SPÁÐ FRÆGÐ OG
FRAMA ÍHOLLYWOOD
Orðrómurinn um f>að að Agneta
Faltskog sé ætlað að taka við hlutverki
Victoriu Principal í sjónvarpsþáttun-
um, Dallas, gerist æ þrálátari í Holly-
wood.
Victoría hefur alveg gengið fram af
framleiðendum með kaupkröfum sín-
um og sagt er að þeir hafi nú skipað
handritahöfundunum að Dallas að láta
Pam og Bobby skilja til að losa þá við
Victoríu Principal. Og þá er Agnetu
leiðin greið til Hollywoodframa.
Patrick Duffy, sem leikur Bobby, er
ekki mótfallinn þessari hugmynd, þar
sem honum finnst að meira hafi verið
gert úr hlutverki Victoríu en sínu. í við-
tali sem nýlega var tekið við hann hót-
aði hann að hætta, ef hlutverkið yrði
ekki bitastæðara en það hefur verið.
Aðrir meðleikendur Victoríu í Dallas
eru heldur ekki hrifnir af henni. Þeir
segja hana þrasgjarna og ætíð tilbúna
til að koma einhverju illu af stað.
Framleiðendur hafa ekki verið fúsir
að tjá sig um málið, en viðurkenna að
þeir gætu vel hugsað sér að gefa
Agnetu tækifæri til að spreyta sig i
Dallas þætti.
Það er sænski leikstjórinn Gunnar
Hellström sem reynt hefur að koma
Agnétu á framfæri, en hann hefur
bæði skrifað og leikstýrt mörgum af
Dallasþáttunum. Og takist honum ekki
að koma henni að í Dallas, hefur hann í
hyggju að gefa henni hlutverk i annarri
mynd sem hann á að leikstýra.
— Ég held að Agneta hafi allt það til
að brunns að bera sem þarf til að gera
hana að alþjóðlegri kvikmyndastjörnu,
segir Gunnar. — Hún er bæði góður og
tilfinninganæmur listamaður. Við það
bætist að hún hel'ur ómetanlega reynslu
af sviðsframkomu eftir samstarfið við
ABBA.
— Nei, það er ekkert á milli okkar,
flýtir hann sér að bæta við. — Við
erum að vísu bæði ástfangin — en
hvort af sinni persónunni.
(Lennart Cedrup)
Se/nt fymast
fomar ástír
Þau hittust fyrst i París árið 1939.
Jean Gabin vár þá nýlega orðinn
heimsfrægur sem kvikmyndaleikari, en
átti að baki sér brogaða fortíð sem
farandverkamaður. Marlene Dietrich
hafði aftur á móti alltaf verið Marlene
Dietrich, sem var í sjálfu sér alveg nóg.
Hún átti að baki sér mörg ástarævin-
týri með þekktum leikurum eins og t.d.
Maurice Chevalier, James Stewart,
Douglas Fairbanks og John Wayne.
Þau hittust aftur í Hollywood, en þá
var heimsstyrjöldin síðari skollin á.
Jean Gabin var þangað komin til
að leika í kvikmyndeftirað nasistar
hertóku Frakkland. En honum geðjað-
ist ekki að liinu Ijúfa líl'i i Kalifoníu,
yfirgaf Marlene og bauð sig fram til
herþjónustu í Norður-Afriku. Hann
tók m.a. þátt í lokaorrustunni um
París 1944. Er hann sneri aftur heim
frá herþjónuslu, beið Marlene hans á
flugvellinum.
Hann var þá skilinn við eiginkonu
nr. tvö og þau Marlene þurftu ekki
lengur að hafa fyrir því að leyna sam-
bandi sínu. Þau léku saman í kvik-
ntynd, sem misheppnaðisl og sluttu
siðar kvæntisl Jean Gabin annarri
konu. Sagt er að Marlene hafi aldrei
gleymt honum og er Jean lézt, mörgum
árum siðar, syrgði hún hann mjög.
Þetta er forsaga meðfylgjandi
myndar, en hún var tekin er Marlene
sótti Jean á llugvöllinn að striðinu
loknu. Og hún segir okkur nteira um
þessar tvær persónur en nokkur orð.
Hörmungar striðsins hafa greinilega
markað sín spor í andlitsdrætti Jeans,
og hann er hættur að hirða um klæða-
burð sinn. En Marlene er jafn yndisleg
og áhyggjulaus og áður, klædd eftir
nýjustu forskrift tízkuhönnuðanna.
Jean er hlaðinn farangri, en Marlene
treystir sér greinilega ekki til að halda á
öðru en dýru hönzkunum sinum.
— Það er eins og þau hafi verið
sköpuð hvort handa öðru, sagði kvik-
myndaleikarinn Danie Gelin á sinum
tíma um þau Marlene og Jean.
Það getur varla verið að hann liafi
séð þessa mynd.
Kaupmenn — Kaupfélög
GLÆSILEGT ÚRVAL SPÁNSKRA LEIKFANGA
ÚR STÁLI Á MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI
Línustýrður lögreglubíll með sírenu o.ft.,
38 y. 16,5 Y.20J5 cm.
Línustýrður fjórhjóladrífinn
um, 53 y25 y27 cm.
Útsöluverð ca 787,-
Mercedes m/ljós-
Línustýrður sjúkrabHI m/sjúkrabörum o.fl.,
38y16,5y21,5.
Útsöluverð ca 579,-
Ingvar Helgason 1
Vönarlandi iSogamýri 6
simi 33560
Varahlutaverslurk Rauðagerði Simar: 84510 8. 84511
Fjarstýrður Mercedes, fjórhjóladrifinn,m/ljós-
um, 53 y25 y26, cm.
Útsöluverð ca 1.285,-
Línustýrð lest með sírenu o.fí.,56,5 y39y9 cm.
Útsö/uverð ca 380,-
Línustýrður SOS-hjálparbíll m/björgunarbáti,
38 x 16,5 y21,5.
Útsöluverð ca 579,-
Stórkostiag eldhús með öllum heimilis-
tækjum, 65 y 37 y 29,5 cm.
Útsöluverð ca 479,-