Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Blaðsíða 36
40 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981. Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur Sagan um Þráin eftir Hafiiða Vilhelmsson Bókaútgáfan örn og örlygur hf. hef ur sent frá sér nýja skáldsögu eftir Haf- liða Vilhelmsson. Nefnist bókin „ Sag- an um Þráin” og er hún þriðja skáld- saga Hafliða. Fyrsta bók hans kom út árið 1977 og nefndist hún „Leið 12 Hlemmur — Fell” og ári síðar kom út bókin „Helgalok” Sagan um Þráin er saga úr nútíman- um og er Reykjavík aðalsögusviðið en leikurinn berst þó víðar. Aðalsöguhetj- an, Þráinn er bam sins tima, mótaður af umhverfinu og föstum venjum, bæði i einkalifi sínu og atvinnu. Bak við skel- ina býr persóna búin mörgum eðlisþátt- um sem togast á og eiga í innbyrðis styrjöld. Hvað geríst þegar viðjarnar bresta? Fellur lifið i þann farveg sem HAFLIÐI VILHELMSSON ætlað er — eða fer persónan í enn smærri einingar en áður. Er niðurlæg- ing sjálfskaparviti, eða eitthvað sem maðurinn verðskuldar og það getur meira að segja verið spurning hver nið- urlægir hvern. Sagan um Þráin er sett, umbrotin, filmuunnin og prentuð hjá Prentstofu G. Benediktssonar, en bundin hjá Arnarfelli hf. Kápan er hönnuð af Sig- urþór Jakobssyni, en ljósmynd á kápu ereftir Friðþjóf Helgason. Saganum 444 gátur Sigurveig Jónsdóttir þýddi og staðfærði Bókaútgáfan Vaka hefur sent frá sér bók, sem ber nafnið 444 gátur. Hún er eins og nafnið gefur til kynna uppfull af gátum og þrautum, sem ætlaðar eru börnum og unglingum, en slík bók hef- forlaginu í Danmörku, en Sigurveig Jónsdóttir, fréttamaður, hefur þýtt bókina og staðfært þannig að hún henti íslenskum lesendum. Um bókina segir á bókarkápu: Þessi bók hentar hvar sem er og efni hennar lífgar alls staðar upp á tiiveruna. Hún er tilvalin heima eða i skólanum, í bíln- um eða sumarbústaðnum, í garðinum eða á ferðalaginu. Hér er að finna nýj- ar og gamlar gátur, langar og stuttar, léttar og erfiðar, en þeim er það eitt sameiginlegt að þær eru allar smellnar. Gátubókin er að öllu leyti unnin í Prentsmiðjunni Odda hf, allt frá setn- ingu texta til bókbands. Sigrún Eldjárn : GLEYMMÉREI '** Þórarinn Eidjárn Ijóöikreytti ur ekki verið á boðstólum hér á landi um langt árabil. Gátubókin er ættuð frá Politiken- „Gleymmérei" eftir Sigrúnu Eldjárn Út er komið hjá IÐUNNI barnabókin Gleymmérci eftir Sigrúnu Eldjárn, Þór- arinn Eldjárn ljóðskreytti. — Þetta eru myndir af lítilli stúlku og er ætlast til að börnin liti myndirnar. Hveri opnu fylgja rimaðir textar og hafa myndirnar þann tilgang að kenna litlum börnum að þekkja ýmsa nauðsynjahluti sem nota þarf í daglegu lífi. Texti við fyrstu mynd er til dæmis þannig: „Buxurnar Gleymmérei hefur á hælum./haldast þær uppi með lími? Með nælum?/ Hún þarf ekki að grufla svo langt út i lönd- in,/þvi lausnin er heima:” — Svarið kemur svo með mynd ef blaðinu er flett: „AXLABÖNDIN”. Gleymmérei er prentuð og bundin hjá Cuðjóni Ó hf. Sakamál aldar- innar eftir Georg V. Bengtsson Bókaútgáfan Vaka hefur sent á markaðinn bók fyrir unnendur saka- málasagna, „Sakamál aldarinnar”, en hún ber undirtitilinn: „Sannar frásögur byggðar áöruggum heimildum”. Á bókarkápu segir meðal annais: Sakamál aldarinnar er safn mögnuðustu sakamála heims á þessari öld. Þótt efn- ið sé sett fram í spennandi formi, sem minnir á bestu sakamálasögur, er mun- urinn sá að hér er allt sannleikanum samkvæmt, frásagnirnar byggðar á öruggum heimildum, lögregluskýrsl- um, vitnaleiðslum og málsskjölum. alAI Höfundur bókarinnar er kunnur danskur, rithöfundur, Georg V. Bengtsson, en hann hefur fært í letur margar bækur af svipuðum toga. Margar samtimamyndir prýða Saka- mál aldarinnar og minna þær á að þeir atburðir, sem hér er lýst, hafa allir gerst í raun og veru. Það sannast í bókinni, að raunveruleikinn er oft magnaðri en nokkur skáldskapur. Sakamál aldarinnar er sett, brotin um, prentuð og bundin í Prentsmiðj- unni Odda hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.