Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Side 16
16
Fólk
Fólk
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981.
Fólk
Fólk
Afmœlisbamið ásamt miginkonu sinni, GuOiaugu Guðmundsdóttur. Utia
hnátan á myndinni er sannáaga bamabam þakra hjóna.
„Jæja Rúnar mktn, ktks artu komktn í fknmtugra manna tölu." EgHi Skúái
Ingibargsson borgarstjóri hailsar upp á afmæiisbamið.
Úr stórafmæli Rúnars
Biama yfirslöhkvara
Einn er sá maður sem nokkuð var í
sviðsljósinu hér á dögunum vegna
bruna mikils sem upp kom í húsi
Egils Vilhjálmssonar við Lauga-
veginn. Eitthvað var deilt á hann sem
yfirmann Slökkviliðsins i Reykjavík
fyrir stjórnun slökkvistarfsins, en
hvort þær ásakanir eru á rökum reist-
ar skal ósagt látið.
En hvað um það. Rúnar heitir
þessi maður og er Bjarnason og hans
starf er yfirstjórn slökkviliðsins í
Reykjavík. Rúnar átti fimmtugsaf-
mæli á dögunum, sem haldið var upp
á með pompi og prakt i Félagshcimili
Rafveitunnar upp með Elliðaánum.
Þar voru saman komnir helztu
frammámenn borgarinnar og hylltu
þeir afmælisbarnið ákaft eins og
vinsælt er í boðum sem slíkum.
Ljósmyndari DV, Sveinn Þor-
móðsson, var mættur á staðinn og
smellti nokkrum myndum af mann-
skapnum og árangurinn fáið þið að
sjá hér á siðunni.
-SER.
„Jæja strákar, hvamig væri að skáia?" Þórk HUmarsson brunamálastjóri, Jón Bargsson varkfræðingur og af-
mælisbamið klingja giðstwn.
trÆ, ég vissi akkert hvað ég áttiað kaupa handaþór svo óg kayptibara bók." Afmælisbarnið tekur við gjöffrá
Sigurgaki Sigurðssyni bœjarstjóra á Saitjamam osi.
HEILÖG BARBARA í KAPELLUHRAUNI
Síðastliðinn l'östudag fór Iram i
Kapelluhrauninu, gegnt Álverinu í
Straumsvík, fremur óvenjuleg en
jafnframt guðdómleg athöfn. Þar
Itöfðu safnazt saman nokkrir með-
limir i Félagi kaþólskra leikmanna á
íslandi til að vigja afsteypu al' forn-
frægri slyttu sem ku vera af heilagri
Barböru sem dýrkuð var mjðg á
öldum áður.
Frummynd styttunnar fann, árið
1950, dr. Kristján Eldjárn, þáverandi
þjóðminjavörður, í hraunkapellu
nokkurri í hrauninu sem það dregur
naln sitl af. Það sem gerir þennan
fund merkilegan er það að Barbara
þessi var dýrlingur elds og málma og
var lieilið á hana sem slíka. Og það
verður að teljast undarleg lilviljun i
Ijósi þessa, að líkneskið hafi fundizi
við þann stað, sem síðan var reist ál-
Ogsvo...
. . . er það visa dagsins. 1 Keflavík
reyndist ekki vera til innislæða fyrir
húsaleiguávísun nefndrar stofnunar.
Þáorti Brellu-Brandur.
Frá ar graint af frómum rekkum,
furðu vekur saga slik,
að gengur fyrir gúmm'rtókkum,
gæsla heilsu í Kefíavik.
ver, en eins og að líkum lætur er
mikið unnið með eld og málma á
Sóra Ágúst K. Eyjólfsson fíytur
ritningarorð við vrgsluathöfnkia.
Afstaypan af heilagri Barböru ar
honumá vinstri hönd.
DV-mynd Bjarnleifur.
þeim vinnustað.
En hvað sein þessari tilviljun við
kemur, þá er afsleypa frummyndar-
innar komin á sinn upprunalega slað
— og er öllum almenningi til sýnis,
virka daga sem helga. -SER.
Eins og sjá má á myndinni höfðu töluvert margk safnast saman i hrauninu við vigslu líknaskisins. Efst i hægra
hornimyndarinnar má sjá hluta Álversinsi Straumsvik. DV-mynd Bjarnleifur.