Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Page 18
18 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981. Menning Menning Menning Menning „Ósýtáeg- urrammT’ Raymond Holland, bandariskur listamaður, sýnir um þessar mundir listave-k í Djúpinu. Listamaðurinn er líestnk iiuari á haustönn hjá M>iidlisl.i- og handíðiiskólanum. ilolland kynnu okkur afrakstur tormrannsókna sem hann heí'ur stundaðá hreyfingu forma í abstrakt- málverki. Listamaðurinn segir sjálfur, að hann hafi mikinn áhuga á að vinna á því sviði þar sem skúlptúr og málverk mætast. Listamaðurinn býr sjálfur til pappirinn sem hann notar. Hann er úr 60% bómull og 40% belgísku líni. Þá notar listamaðuÞm olíuliti blandaða með vaxi, og oi.apastel. Ustfórm í gerjun Myndverk Raymond Holland minna okkur á að afstraktionin er enn í fullri gerjun. Einnig er það á sama tíma greinilegt að afstrakt- málverkið hefur orðið fyrir miklum áhrifum frá öðrum liststefnum, sem unnar hafa verið á síðastliðnum tveimur áratugum, eins og til dæmis pop og conceptlist. Undanfarna tvo áratugi hafa átt sér stað mikil umbrot í hinu svo nefnda óhlutlæga málverki. Gerðar hafa verið miklar rannsóknir til að endurnýja málverkið og hefur það verið liður í þessari leit að sprengja upp sjálfa mvndlögunina/tnyndina. Einn að ilhntttakandinn í þessu umróti h lu' veríð bandaríski list- maðurinn I 'ank Siella, sem kom fram með hina svonefndu „shaped canvas”. Hér er um að ræða mynd- verk þar sem horfið er l'rá hefðbundinni ferhyrndri myndlögun og þess í stað fær myndverkið lögun innri forma. f rauninni er það ekkert nýtt í listasögunni að spila með lögun myndverka, því td. á miðöldum voru yfirleitt í gangi þrjár myndtegundir, þ.e. kross, ferhyrningur og fimmhyrningur. En það sem er merkilegt hjá F. Stella, er að mynd- lögunin er orðin hluti af mynd- byggingunni, sem i hans síðustu verkum fjallar fyrst og fremst um „möguleika jafnvægisins” í myndverki. „Ósýnilegur rammi" Bandaríkjamaðurinn í Djúpinu hefur tileinkar sér þá hugmynd að sníða lögun myndverksins samkvæmt gerð innri forma. Ekki getum við sett neitt samasem merki milli hans og F. Stella, því þeir vinna nánast hvor í sina áttina. Holland er hógvær i sinum rannsóknum og þrált fyrir að hann Myndlist GunnarB. Kvaran hafi hafnað hefðbundnu myndformi, þá raðar hann formum sínum á vegginn, samkvæmt hefðbundnu jafnvægi. Þannig skapast eins konar „ósýnilegur rammi”. (No. 10). En þó Holland vinni verk sín á afar tvihverfan hátt (symetrique), og nýti lítt hina nýju myndlögun í sjálfa myndbygginguna, kynnumst við at- hyglisverðum niðurstöðum á úr- vinnslu innri forma. (No. 9). Tvöföld skynjun Holland vill sameina málverk og skúlptur, og í myndverkum lista- mannsins skerast tví- og þrívídd, sem spila með skynjun áhorfandans. Holland brýtur uppá pappírinn og fær þannig þrívídd í myndverkið, — en á sama tíma beislar hann þessa víddarkennd með því að láta sömu línuna ganga úr fletinum yfir á hið uppábrotna form og aftur inn á myndflötinn. (nr . 6). Þannig fær áhorfandinn tvöfalda skynjun málverk/skúlptúr, en þó virðist flat- areðli málverksins vera til grund- vallar. Hreyfiform Flest myndverkin í Djúpinu eiga, það sameiginlegt að byggjast á hreyfiformi, eins konar flugform. Formin eru úrklippt og þannig frelsuð undan hinum hefðbundna myndfleti. En þessi flugform eru unnin á tvennan hátt. Annars vegar er hið úrklippfa form undirstrikað með línuáherslu ( nr . 2) og hins vegar er það brotið upp með kvikri pensil- skrift. Hvor urvinnslan fyrír sig stuðlar að hreyfingu. f fyrri teg- undinni er samsvörun milli formsins og línunnar, þ.e. ein stefna, en í þeirri seinni er sem hin kvika pensilskrift gefi nýja stígandi í hreyfingu formsins. (nr . 9). Kerfisbundin vinna Myndverkin í Djúpinu vitna um að hér er vecið að fikra sig áfram í myndrænum rannsóknum. Og þótt myndverkin hafi oft Ijóðrænan svip, er spurningin ekki um beina tjáningu eða tilfinningalega upplifun heldur um kerfisbundna rannsókn á hreyllngu og formi. Við sjáum að Holland leggur eitl form til grund- vallar, sem síðan gengur í gegnum vitsmunalega úrvinnsiu listamannsins. Uppörvandi sýning Þessi sýning ælti að vera uppörvun fyrir íslcn/ka listunnendur og lista- menn, þar sem.hún minnir okkur á að afstraktmálverkið hefur enn mögulcika lil að endurnýjast. Það er oft fljótfærni aðafskrifa liststelnur. GBK. „Listamaðurinn raðar formum sínum á vagginn samkvsamt hefðtxjndmi jafnvœgi." (TOTEM nr. 10) „Flugform frelsuð undan hefðbundnum myndfleti" (nr. 7) Bonmarangs. Ljósmyndir: GBK. ÆVINTÝRAMAÐURINN L0FTUR RÍKI - 0G MAGNÚS BJARNFREÐSSON ÁRITA BÓK SÍNA í PENNANUM Loftur Einarsson hefur fyrir löngu fengið viðurnefhið Loftur „Ríki”. Það hefur þó ekki alltaf verið sann- nefni, þar sem fáir hafa verið snauðari af veraldlegum auði en hann á köflum. En Loftur er sannarlega maður ævintýranna. Þegar þau hafa ekki komið til hans af sjálfsdáðum hefur hann bókstaflega leitað þeifra, og fáir menn hafa reynt hið sama og hann. Loftur var á sín- um tíma í landhelgisgœzlunni en skömmu síðar var hann landhelgisbrjótur. Hann rak hótel á Akureyri og á Spáni og hvort tveggja endaði með ósköpum. Hann hafði á hendi margvíslega fyrirgreiðslu fyrir íslenzka sjómenn á stríðsárunum, stofnaði naglaverksmiðju með Halldóri E. í Borgarnesi og tók sér sitthvað fyrir hendur, sem engum öðrum hefði dottið í hug. Frá öllu þessu segir Loftur í bók sinni: ÞÁ LÆT ÉG SLAG STANDA en bókin er skráð af hinum vinsœla sjón- varpsmanni Magnúsi Bjarnfreðssyni. Þeir Magnús og Loftur verða í bókadeild Pennans við Hallarmúla frá kl. 16.00—17.00 laugardaginn 12. desember og árita þar bók sína. UfsW-AU^^f MftGNÚS BJAaNFRÉÍ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.