Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 6
6 DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. Tæplega fjögur þúsund fslendingar í Svíþjóö — íslendingafélög standafyrir fjölskrúdugu félagslífi 3916 íslendingar bjuggu í Svíþjóð um siðustu áramót. Hvergi, utan ís- lands, er að finna svo marga islenzka ríkisborgara. fslendingar í Danmökru voru á sama tíma um 2600. í Bandaríkjunum bjuggu um 2400 fslendingar og í Noregi voru þeir 1400. íslendingar í Sviþjóð eru ótrúlega dreifðir um landið. Þeir finnast í hvorki meira né minna en 152 sveitarfé- lögum, liggur við frá syðsta odda til hins nyrzta, frá Málmey til Luleá. Fjölmennastir eru íslendingarnir í Frá móttöku sem Vigdís Finnbogadóttír hólt Islendingum í Sviþjóð er hún kom þangaö i opinbera heimsókn í október. Móttakan var í Sjöhistoriska museet i Stokkhóimi. OV-myndir: Kristján Mór Unnarsson. Gautaborg og Málmey og nágrenni, þar með talið Lundi. Á hvorum staðn- um eru tasplega 900 manns. f Stokk- hólmi og naesta nágrenni eru um 600 ís- lendingar og280 í Uppsölum.leftirtöld- um bæjum eru yfir 50 islendingar: Vásterás, Váxjö, Jönköbing og Troll- háttan. Nokkur félög íslendinga eru starf- andi I Svíþjóð. Sumarið 1980 var lands- samband íslendingafélaga í Svíþjóð stofnað. Eiga sjö félög aðild að því. Eins og gefur að skilja standa íslend- ingafélögin fyrir gróskumiklu starfi sem aöaflega miðar að því að viðhalda sambandi við ísland. Félögin gefa út fréttabréf, halda samkomur af ýmsu tagi og sinna sameiginlegum hags- munamálum. Eitt af þvi athyglisverðasta í starf- semi félaganna eru útvarpssendingar. Efni tengt íslandi er sent reglulega út, á íslenzku að sjálfsögðu. Var t.d. í blaði íslendingafélagsins í Stokkhólmi, Landa, nóvemberhefti, auglýstar út- varpssendingar þess mánaðar. Voru þær tvisvar í viku, í hálftíma á föstu- dögum og klukkutíma á sunnudögum. Til að gefa smámynd af því sem fram fer í félagslifi íslendinganna skal skyggnzt aðeins í dagskrá íslendingafé- lagsins í Stokkhólmi í nóvember. Myndlistarsýning tólf íslendinga hófst 27. október og var opin til 6. nóvem- ber. Sviðamáltíð, jasskvöld og ölkvöld voru haldin. Einnig teiknimyndasýning fyrir börn. Ölkvöldin eru haldin reglu- lega og eru alltaf vel sótt. Félagið hefur til umráða þriggja hæða, gamalt hús, um 300 fermetra að flatarmáli. Er það nefnt íslendingahús- ið og er miðstöð starfseminnar. Þar eru ölkvöldin haldin, jasskvöldið og sviðamáltíðin fóru einnig þar fram og Úr íslendingahúsinu í Stokkhólmi. Þrír íslendingar viröa fyrir sár verk 6 myndlistarsýningu. Búöarráp i desember. Allar verzl- anir troðfullar af fólki sem er komiö þangað í sama tilgangi og þú: Að leita að hentugum jólagjöfum. Slíkt getur svo sannarlega reynt á taugarn- ar. En að sögn sérfræðinga er unnt að létta taugaálagið nokkuð með betra skipulagi og hér koma fáein "óð ráð í hvi sambandi: I. Frestaöu \ erzlunarferðinni cklti vegna jlæins veðurs, notfærðu þér einmitt að margir sitja heima af þeim ástæðum. Þess vegna eru verzlanir Jólainnkaupin geta reynt á taugamar —■ en það er óþarfiað láta þau alvegfara með síg ^ ...- æ5s$ fjmijjjl WB tni ekki jafntroðfullar af fólki á sllkum dögum, afgreiðslufólkið ekki jafn- önnum kafið. Meiri líkur til að þú ná- ir í stæði fyrir bílinn 1 miðbænum. 2. Verzlaðu heldur fyrri hluta vik- unnar. Yfirleitt fer um 70% af ailri sölu fram frá fimmtudegi til laugar- dags. 3. Komdu litlum börnum i gæzlu á meöan þú verzlar. Það er óneitan- lega mun óþægilegra að vera með lit- iö barn 1 togi 1 yfirfullum verzlunum — og venjulega vilja þau skoða allt aöra hluti en þá sem þú ert á höttun- um eftir. 4. Skipulegðu búðarferðina vandlega. í þvi skyni er gott að fyigj- ast vel með augiýsingum. Þær gefa þér bæði hugmyndir að jólagjöfum og segja þér hvar þær fást. Keyptu ekki föt nema þú sért viss um hvaða stærð viðkomandi notar. 5. Gættu þess að týna ekki greiðslukvittunum fyrir keyptar vör- ur svo unnt sé að skipta þeim nokk- urn veginn átakalaust ef með þarf eftir jólin. 6. Reyndu að sjá skemmtilegu hliðina á jólainnkaupunum. Gefðu þér tima tii að njóta fagurra skreyt- inga sem verzlanir bjóða upp á i sam- bandi við þessa mestu hátíð ársins, návist jólasveinsins og láttu gömlu góðu jólalögin ylja þér um hjartaræt- ur. Og siðast en ekki sizt: Farðu ekki í verziunarferð nema heilsan og skapið séu i fullkomnu lagi. Frestaðu henni þá heldur þar til betur stendur á. 4t Skemmtilega hliðin á jóla- innkaupunum: Jólastemmning f miðbænum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.