Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Síða 8
g DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. Hann reisti stærsta íslenzka veitingahúsið frá grunni: ...ÞAÐ ER AUÐVELT AÐ KOM- ASTÁ TOPPINN EN ERFITT AÐHALDA SIGÁ HONUM... spjall Wð ÓlafLaufdal veitingakóng um hann sjálfan ogatvinnuna „Fyrir um tiu árum setti ég mér það takmark að 45 ára ætla ég að ráða mínum vinnutíma. Helzt að vinna ekki meira en þrjá til fjóra tíma á dag. Ég stefni ennþá að þessu marki mínu.” Það er Ólafur Lauf- dal, veitingakóngurinn svonefndi, sem þetta segir. Reyndar á Ólafur ennþá nokkur árin í að ná 45 ára aldrinum — hann er aðeins 37. En þetta er ekki eina takmarkið sem ÓIi hefur sett sér. Hann hefur sett sér mörg takmörk og hingað til hafa þau staðizt. Það nýjasta er veitingahúsið Broadway sem reist var á mettima — vegna þess að Óli ákvað að þannig yrði það. En hver er hann þessi Ólaf- ur Laufdal sem er svo mjög á milli tannanna á fólki þessa dagana? „Ég er fæddur í Vestmannaeyjum 10. ágúst 1944. Foreldrar mínir eru Guðlaug Guðbrandsdóttir og Jón Ólafsson. Við erum sex systkinin og vorum öll skírð Laufdal. Börn okkar systkinanna halda þvi nafni,” sagði Ólafur, er við I ófum samtalið yfir kaffibolla í Ho ivwood. Og hann helduráfratii. . . „Þegar ég var ellefu ára fluttist fjölskyldan til Reykjavík- ur. Á sumrin fór ég alltaf austur und- ir Eyjafjöll — eða allt frá því að ég var 6 ára —og var þar hjá fi ðursystur minni og afa. Nei, bóndasurfið átti engin ítök i mér enda fór ég á sjóinn strax 13 ára. Áður hafði ég gegnt starfi piccalo á Hótel Borg með skól- anum.” Kokkur á Sjöstjörn- unni Ólafur fékk ungur áhuga fyrir framleiðslustörfum og var farinn að dútla við matargerð aðeins 13 ára gamall á olíuskipinu Kyndli.Eftir það fór hann á síld með Sjöstjörnunni frá Eyjum þar sem hann fékk starf sem kokkur. Þar meö var áhuginn á þ jóna- og veitingaskólanum vaknað- ir. f hann fór Óli 15ára. ,,Ég byrjaöi sem nemi á Hótel Borg. Skólinn tók þrjú ár. Átján ára útskrifaðist ég úr skólanum og um það leyti var Hótel Saga að opna. Ég réð mig á grillið, sem var alveg nýtt þá og starfaði þar í eitt ár. Þjónn var égáGullfossiísexár. Þar á eftir hóf ég störf 1 Glaumbæ og var þar með eigin bar þar til húsið brann, 5. desember 1971. í Glaumbæ kynntist ég ógrynni af fólki. Fólki sem kom alltaf á minn bar og venju- lega voru mín borð í húsinu þau fyrstu sem pöntuð voru. Ég var á þessum tíma með bitlahár óg i bítla- buxum sem varla þekktist nema meðal poppara. Ég fékk ýmis nöfn á mig vegna þess, til dæmis bítlaþjónn- inn eða bítlapabbinn. Vegna þess hvernig ég var, sótti til mín það fólk sem var vinsælast í þjóðfélaginu meðal ungs fólks. Hljómsveitin Hljómar, sem þá var „Ég geröi mór fulla grein fyrir því að einn staður verður ekki vinsæll endalaust Staðireru fíjótirað detta upp fyrir... " aðalhljómsveitin, Sævar i Karnabæ, tízkusýningarfólk auk fjölda ann- arra. Á þessum tíma komst ég í sam- band við margt fólk sem í gegnum ár- in hefurfylgt mér. Eftir að Glaumbær brann vann ég í Glæsibæ í nokkra mánuði eða þang- að til ég fór yfir á Óðal sem yfir- Ólafur Laufdal í HoHywood. „Eg nehaþví ekki að þegar óg keypti Hollywood átti óg enga peninga — en óg fókk staðinn á góðum kjörum." þjónn. Á þessum tima var Óðal ein- ungis matsölustaður. Eigendur voru Jón og Haukur Hjaltasynir. Þeir ráku einnig Sælkerann í Hafnar- stræti þar sem Hafsteinn Gilsson var yfirkokkur. Þegar Sælkerinn var lagður niður og Óðali um svipað leyti breytt í diskótek fór Haukur úr fyrirtækinu og við Hafsteinn gerðumst meðeig- endur með Jóni. Ég kom með margs konar nýjungar á þessum stað sem áður voru óþekktar í íslenzku skemmtanalífi. Mig langaði þó alltaf til að reka minn eigin stað og árið 1978 keypti ég Sesar. Nei, það var enginn ágreining- úr milli okkar eigendanna í Óðali og við skildum í miklu bróðerni. Ég við- urkenni að kaupin á Sesari komu mjög óvænt. Það er ekkert leyndar- mál aö staðurinn hafði slæmt orð á sér og gekk illa. Ég átti engan pening á þessum tíma og fólk hélt i alvöru að ég væri brjálaöur, að kaupa stað sem var gjörsamlega búinn að vera. En ég leyni því ekki að ég fékk staðinn á góðum kjörum og hafði möguleika á að kljúfa greiöslur. Ég hafði sterka trú á, hvaö sem aðrir sögðu, að ég gæti komið staðnum upp aftur. Mig óraði þó aldrei fyrir að það yrði svo fljótt sem raun bar vitni. TakS mér trú um að Ég hafði aldrei hugsað mér neina samkeppni við Óðal, þó óbeint séu allir veitingastaðir i samkeppni. Ég taldi bara sjálfum mér trú um að ég gæti gert þennan stað vinsælan. Við Sesari tók ég á mánudegi. Geröi smá- vegis lagfæringar á staðnum, breytti nafninu og bauð öllu því fólki sem ég hefði kynnzt í gegnum starf mitt og vildi að kæmi inn á þennan stað f framtíðinni. Boðskvöldið var fimmtudaginn eftir að ég tók við staðnum, þannig að litill tími var til undirbúnings. Þetta kvöld var fullt hús og það hefur verið það siðan. Smátt og smátt þróaði ég staðinn upp í það sem ég vildi að hann væri. Ég byrjaði á að auglýsa mikið, hafa tizkusýningar og kynningar og þetta gekk í fólkið. Þaö fólk sem var hér á staðnum áður hvarf og fór annað og ég fékk inn það fólk sem ég vildi fá. Eins og í öðrum bisness voru aðrir fljótir að taka upp mínar hugmyndir. Að auglýsa meira og stærra og vera með skemmtiatriði. Það er ekki svo erfitt að komast á toppinn en það er erfitt að halda sig á honum. í gegnum árin hef ég reynt að fylgjast meö öllu sem gerist á þessu sviði erlendis. Ég hef farið í ótal ferðir til aö skoða diskótek og ég tei mig vera nokkuð vel inni í hvernig á að reka slíkan stað. Hitt veit ég líka að einn staður getur ekki verið vinsæll að eillfu. Staðurinn verður þreyttur og fólk langar til aö breyta til. Þetta hef ég iengi haft i huga og þess vegna var ég farinn að leita fyrir mér að lóö,” seg- ■ir Ólafur. Er Úfí að missa hús- næóió umfír Hofíy- wood AUir vita að hann hefur fengið lóð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.