Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Síða 9
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981.
9
og byggt. En áður en það kom til sög-
unnar gekk sú saga fjöllunum hærra
að Óli væri að missa húsnæði sitt,
þar sem Hoilywood er núna. Aðrir
töldu að hann væri að stækka stað-
inn þar sem risið hefur bygging á
þaki Hollywood nýlega. Er það rétt
Óli aö þú sért að missa Hollywood?
„Kjartan Ólafsson héraðslæknir í
Keflavík, sem er nýiátinn, átti þetta
þúsnæði. Ég á ennþá eftir átta ára
léigusamning og hef ekki heyrt um
neina breytingu á því. Varðandi
bygginguna hér uppi þá á ég for-
gangsrétt en það hafa engar ákvarð-
anir verið teknar ennþá um það mál.
Hoilywood hefur ekkert og mun ekk-
ert breytast á næstunni. Að vísu hef
ég misst eldra fólkið sem hér var i
Broadway en það yngra heldur áfram
að koma hingað og alltaf bætist við
.nýttfólk.”
— Þú ert þi ekkert hræddur við að
missa fólk úr Hollywood?
,,Nei, alls ekki. Þó hefur Holiy-
wood núna fyrst, með tilkomu
Broadway, fengið samkeppni.”
— Hvernig vildi til að þú fékksf
lóðina i Mjóddinni?
„Ég var alltaf spenntur fyrir þess-
ari staðsetningu. Bæði vegna þess að
i Breiðholtinu búa um þrjátiu þúsund
manns og ég bý þar sjálfur. Staður-
inn býður upp á mikla möguleika —
meiri möguleika heldur en aðrir stað-
ir. Annars hélt fólk að ég væri rugl-
aður þegar ég minntist á Breiðholtiö.
Þarna i gegn kemur hraðbraut sem
tengist Keflavíkurveginum, Höfða-
bakkabrúin er að komast í gagnið og
þarna verða ótal verzlanir. Ég hef
heyrt aö ef einhver staður verði nýr
miðbær þá verði það þessi. ”
Ætíadi aö hafa ióó í
bakhöndhmi
— En hver er forsaga lóðaúthlut-
unarinnar?
„Þessari lóð hafði verið úthlutað
undir kvikmyndahús til Saga-film.
Þeir féllu hins vegar frá henni vegna
fjárhagsvöntunar. Eins og ég sagði
var ég að leita mér að lóð ef illa færi
að ganga í Hollywood. Staðir geta
dottið niður skyndilega og ég hafði
hugsað mér að hafa þessa lóð í bak-
höndinni. Jón Róbert arkitekt, sem
ég hef þekkt i nokkur ár, er í góðum
samböndum við ýmsa menn og ég
minntist á það við hann að hafa mig í
huga ef hann vissi af lóð á þessum
staö. Áxni Samúelsson, bíóstjóri i
Keflavik, hafði sama áhuga og ég á
lóð á þessum stað undir kvikmynda-
hús. Það vissi Jón Róbett. Það var
hann sem sagöi okkur frá þessari lóð
og kom okkur i samband hvorn við
annan.
Við sóttum um lóðina sameiginlega
og fengum hana. Það hafði ekki ver-
ið gert ráð fyrir að veitingahús kæmi
á þessum stað en þeir voru mér mjög
hliðhollir. Það var einmitt siíkur
staöur sem vantaði þarna,” segir
Ólafur.
Aðeins fimm mánuðir liðu frá því
Hly skimi, ilmandí vídur
listafallegar nytiayörur
o
Klub stólar aðeins kr. 254.
Hlýr mokkafatnaður aðeins 1000 kr. títborgun.
Gjafavörur: franskt postulín, trévörur og
jólaskraut.
Lundia hillukerfið er úr massívri furu og með
óendanlega uppsetninga möguleika.
Við bjóðum fjölbreytta vöru fyrir
alla aldurshópa.
Falleg hönnun sameinar gagn og gildi.
Gott verð og afborgunarskilmálar, þar að
auki erum við í miðju Bankastræti.
.... f fáum orðum sagt, Gráfeldur býður
þér gleðileg jól. ^
GRÁFELDUR **\
Þingholtsstræti 2, Reykjavík Símar: 26540 og 26626