Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 10
10
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981.
aö vinna við grunninn hófst og þar til
staðurinn var opnaður. Ýmsar spurn-
ingar hljóta að koma upp.
— Hvernig cr það mögulegt að
koma upp svona glæsilegu veitinga-
húsi á fimm mánuðum?
,,Það er eins núna og þegar ég
keypti Hollywood. Ég átti enga pen-
inga. Við Árni eigum húsið saman og
það skiptist svo til jafnt. Það var gert
útboö í bygginguna og það var uppá
700 gamlar milljónir auk verðbóta.
Ákveðið var að húsiö afhentist 4.
desember. Hins vegar fengi ég kjall-
arann fokheldan 21. september.
Ég hefði áður en byrjað var á bygg-
ingunni sett mér það takmark að
opna 26. nóvember. Enginn trúði að
ég gæti það. Menn sögðu við mig, í
fyrsta lagi næsta vor. Nei, þessi dag-
ur táknaði ekkert sérstakt fyrir mig,
ég varð bara að ákveða einhvern dag.
Auk þess var 26. nóvember fimmtu-
dagur og fimmtudagar hafa ailtaf
verið mínir dagar. Tveimur og jafn-
vel einum degi fyrir opnunardaginn
töidu menn að engin leið væri fyrir
mig að opna húsið á réttum tima en
það tókst.
Ótrú/egt /ánstraust
— Hefurðu einhverja hugmynd um
hvað Broadway hefur kostað þíg?
„Það er gjörsamlega útilokað að
slá á einhverjar tölur um það. Mér
hefur ekki einu sinni gefizt tími tii að
hugsa um þá hlið.”
— Nú heyrast ýmis nöfn sem sögð
eru eiga hlut i staðnum og sem hafi
veitt þér fjárstuðning. Hver á Broad-
way og hvernig er það fjármagnað?
„Broadway er hlutafélag og hlut-
hafar eru ég, sem i á langstærsta hlut-
ann, könan mín, tengdaforeldrar og
faðir mirrn. Aðrir eiga ekki Broadway.
Ég hef haft þann sið i gegnum árin að
borga allar skuldir um leið og reikn-
ingar hafa borizt. Ég hef komið mér
upp miklu lánstrausti. Þaö sýndi sig
áþreifanlega núna þegar byggingin
fór af stað að ég hef mjög gott láns-
traust og það var sama hvort ég bað
um eitt hundrað eða tvö hundruð
þúsund. Viðskiptabanki minn hefur
verið mér mjög hliðhollur og meira
að segja bankastjórinn minn trúir á
þessa hluti og hefur veriö sérstaklega
liðlegur. Það er augljóst að það tekur
mig langan tíma að borga upp þenn-
an stað og einhverjir erfiðleikar verða
en ég á von á að þetta gangi upp.
Þaö hefur iengi vantað stað sem
þennan, þar sem hægt er að bjóða
upp á „show”. Broadway er byggt
þannig aö hvar sem er úr salnum sjá
gestir það sem fram fer á sviðinu.
Staðurinn er heppilegur fyrir ráð-
stefnur, hvers kyns sýningar, hljóm-
leika og svo margt fleira. 1 húsinu er
fullkomnasta loftræstikerfi sem til er
hér á iandi. Ég fékk ráðgjöf erlendis
frá i sambandi við ljós og hljómtæki.
Fyrirtækið sem það annast hefur séð
um á fimmta hundruð staði víðs veg-
ar um heim. Þar á meðal er stærsta
veitingahús í heimi, Billy Bobs, en
það tekur tiu þúsund manns.
Broadway er ekki ennþá full-
mótaður staður og ennþá á margt
eftir að koma upp. Ég á von á að upp
úr áramótum fari endalokin að
nálgast. Núna um helgina verður
byrjað að afgreiða mat. Ég á ýmis
tæki meö MS Selá, sem varð fyrir
vélarbilun og seinkaði. Skipið er
væntanlegt núna, þannig að um
næstu helgi ætti að vera hægt að
bjóða mat eins og hann verður í
framtíðinni.
Við verðum ekki með langan mat-
seðil. Boðið verður upp á einn rétt
sem afgreiðist fyrir allan saUnn á
sama tima. Um leið og fólk kaupir sig
inn I mat kaupir það i leiðinni
„show” sem verða alltaf fyrir matar-
gesti. Og ég mun fá hingað bæði
innlenda og erlenda skemmtikrafta.
Ég get lofað þvi að eftir áramótin
verða stór nöfn á sviðinu í
Broadway.”
...það erauðveltað komastá toppinnen erfitt að halda sigáhonum...
„Ég varó áþrerfanlega var við þegar hafízt var handa við
bygginguna að ég hef mjög gott lánstraust Meira að segja
bankastjórinn minn trúðiáþessa hiuti..."
DV-myndir Einar Ólason.
,Ég var kallaður bttiaþjónninn eða brtiapabbinn..."
„Já, ég sagði aö meðalaldur í
Broadway ætti að vera frá 21 árs til
fimmtugs. Ekki þar fyrir að fólk
sem komið er yfir fimmtugt fái ekki
inngöngu á staðinn. Auðvitað eru
aUir velkomnir hvort sem þeir eru
fimmtugir eða áttræðir. Ég hef
fengið margar símhringingar út af
þessu með aldurinn, meira að segja
frá borgarfulltrúa. Hvað varðar ald-
urstakmark þá hafa margir lýst yfir
ánægju með 21 árs takmarkið og ég
mun fylgja þvl. í miðri viku verð ég
með lægra aidurstakmark.
Það er staðreynd að krakkar um
tvítugt hafa enga peninga. Þeir hafa
ekki efni á að skemmta sér og veit-
ingahús getur aldrei borið sig á
rúllugjaldinu einu saman. Þetta
rúUugjald er eitt óréttlætið hér.
Hvergi i heiminum er jafnlágt rúUu-
gjald og hér á landi. Þeir veitinga-
menn sem vilja bjóða upp á
skemmtiatriði, eins og ég verð með
á Broadway, eiga ekki að hafa sama
inngangseyri og þeir sem ekkert gera
fyrir sína viðskiptavini.
Ég hef reynt að fara nýjar leiðir,
t.d. með glösin á Broadway, sem
eru algjörlega mín hugmynd. Ég
fékk þessi glös frá Frakklandi og
eins og fram hefur komið I blöðum
hefur ógrynni af þeim brotnað.
Núna strax þarf ég að panta fleiri
glös. Ég hef orðið var við að um-
gengnisvenjur íslendinga, og þá
verð ég að segja frekar eldra fólks-
ins, eru afar slæmar. Starfsfólkið á
fullt i fangi með að halda staðnum
hreinum fram eftir kvöldi. Einhvers
staöar las ég það líka að gosið hjá
mér væri minna en á öðrum
skemmtistöðum og dýrara. Þetta er
ekki rétt, skemmtistaðirnir eru hver
af öörum að taka upp það sama og
ég er með, að setja vissan skammt
af gosi i glösin. Og hjá mér er sama
verð og á öðrum stöðum þó mér
fyndist allt i lagi að hafa hærra verð
á stað eins og Broadway.”
Vrifáadráda
opnunartímanum
— Hefur ekki verið mikil tauga-
spenna því samfara að koma upp
veitingastað á svo stuttum tíma?
„Ég varð ekki var við neina
taugaspennu fyrr en tvo síðustu
dagana fyrir opnun. Annars finnst
mér gaman aðþví að geta skemmt
fólki, auk þess sem á þessum tveim-
ur stööum minum veiti ég um 150
manns atvinnu. Nei, það verður
enginn milli af svona rekstri. Maður
eignast kannski steinsteypu en lausa-
fé á miili handanna verður aldrei
mikið,” sagði Ólafur Laufdal.
Hann er kvæntur Kristinu Ketils-
dóttur og eiga þau þrjú börn 9—11
og 12 ára. — Að lokum Óli, hvað
finnst þér verst?
„Mér finnst verst að þurfa að
pína fólk, sem ekki vill eða getur,
til að fara snemma út að skemmta
sér. Mér finnst að veitingamenn eigi
að ráða sínum opnunartíma. Og
veitingahús eiga að fá að vera opin
til fimm á morgnana ef veitinga-
menn vilja það,” svaraði Ólafur
Laufdal, veitingakóngurinn sem
reist hefur stærsta veitingahúsið á ís-
landi frá grunni.
-ELA
— Eitt af því sem gagnrýnt hefur
verið eru nöfnin sem þú hefur valið á
skemmtistaðina, samanber Holly-
wood og Broadway. Hvaða skýringu
gefurðu á þessu vali?
„Ég skil nú ekki þessa gagnrýni
sem allt í einu er komin upp. Ég veit
ekki betur en í áraraðir hafi verzlanir
hér borið erlend nöfn, eins og
London, Liverpool, Hamborg, Lissa-
bon, fyrir utan nöfnin á tizkuverzlun-
um og hárgreiðst'istofum. Það er
ekkert vafamái aðeilendnöfri ganga
betur i íslendinga. Auk þess sem
ferðamenn takafrekar eftir nöfnum á
þeim stööum, sem bera erlend nöfn.
Ég hef lika valið nöfn á staðina í
stíl við anda þeirra. í Hollywood hef
ég komið upp leikaramyndum og gert
staðinn þannig úr garði að hann
minni á þessa borg. 1 Broadway býð
ég upp á skemmtiatriði sem eru fyrsta
flokks, og sem áður hafa ekki tiðkazt
hér. Þessi skemmtiatriði verða öll í
anda þeirrar stemmningar sem rikir á
Broadway. Ég hef þá skoðun að
erlend nöfn trekki frekar að.
akturmn
— Nú hefur einnig komið fram
gagnrýni á aldurstakmark i Broad-
way?
t
TAKIÐ EFTIR:
Við eigum skíði—skó
stafi og bindingar
fyrir börnin.
SyP0RTVAL ^
LAiJfíAX/Fm 11« v/m Ml PMMTnnfr
J
LAUGAVEGI 116, VIO HLEMMTORfr
SÍMAR 14390 tt 26690