Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Side 15
DV — HELGARBLAÐIЗ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981.
15
Jólamaturinn
kostar tæp
þrjú þúsund
—ef ekkert er fil sparað
Hvað skyldi jólamatur-
inn eiginlega kosta? Þessi
spurning brennur áreiðan-
lega í hugum þeirra fjöl-
mörgu sem eftir eiga að
kaupa megnið af krásun-
um. „Fólk sparar allt við
sig til þess að geta veitt sér
reglulegan veislumat á jól-
unum" sagði Guðjón Guð-
mundsson verzlunarstjóri í
Glæsibæ. Og því fórum við í
búðina til hans og völdum í
körfur reglulegan veislu-
mat handa vísitöluf jöl-
skyldunni.
Við gerum ráð fyrir að
hún borði hamborgarhrygg
á aðfangadagskvöld. Á
jóladag verður síðan hangi-
kjöt. Ný lambasteik verður
síðan á borðum á annan
dag jóla. Á gamlársdag
verður svínasteik og kjúk-
lingar á nýársdag.
Þessu fylgja hlutir eins
og kartöflur, rauðkál,
baunir, nýtt grænmeti, así-
ur, sulta, franskar kartöfl-
ur, kokkteilsósa og maís. Á
eftir kemur ís, niðursoðnir
ávextir eða búðingur. Borð-
haldið hefst hins vegar með
súpu eða forrétti.
AAeð öllu saman eru
drukknir gosdrykkir en
ekki má samt mjólkin
gleymast. AAikið þarf af
rjóma, smjöri, smjörlíki,
hveiti, sykri og jurtafeiti
(til að steikja úr laufa-
brauð eða soðið brauð).
Kaffi þarf einnig og brauð
meðsúpunni.
Ekki má gleyma nýjum
ávöxtum, hnetum, kar-
töfluflögum og sælgæti
að narta í. Suðusúkkulaði
verður einnig að kaupa ef
drekka á heitt súkkulaði
með jólasmákökunum.
Hrísgrjónin í möndlu-
grautinneru líka á sínum
stað.
Þegar þetta allt er reikn-
að saman er kostnaðurinn
hvorki meiri né minni en
2922 krónur og 90 aurar.
Einhverjum kann að finn-
ast þetta þó tiltölulega vel
sloppið en hafa verður í
huga að þetta er meira en
helmingur af mánaðar-
launum lægst launaða
fólksins í landinu.
Það er auðvitað hægt að
spara bæði margtog mikið.
Lambakjöt er til dæmis
mun ódýrara en svínakjöt.
Ekki þarf heldur öll þessi
ósköp af meðlæti og meira
að segja má sleppa með
mun minna magn af mat
2922krönur og 90 aima kostaöi altt þogar búéð var aö reikna saman.
D V-myndir Bj.Bj.
heldur en hér er tekinn. Á
móti kemur að jólamatur-
inn kostar alltaf mun meira
þegar upp er staðið en
menn halda í fyrstu. Það
tínast til ótal hlutir sem
fólki finnst af einhverjum
ástæðum að megi ekki
vanta.
Tökum ávexti sem dæmi.
Ég þekki engan sem hefur
hið minnsta pláss fyrir
nýja ávexti á jólunum. En
ég þekki heldur engan sem
ekki kaupir þá af því að það
tilheyrir.
En jólin eru auðvitað
ekki annað en það sem við
viljum gera þau. Við ráð-
um því algerlega hvað
keypt er og getum blásið á
venjur og siði ef okkur sýn-
ist svo.
DS
GuOrún Magnúsdóttír aðstoðaði okkur við að tma ofan í körfurnar handa
visitölufjölskyldunni. Þetta varð ekkert smáræði enda hvargi tíl sparað fyrir
jólin.
& //*\\ VTi
--'K^Sólveig Leifsdóttir
\ | hárgreióslumeistari ^
Hárgreiöslustofan Gígja
Stigahlíð 45 — SUÐURVERI
-C. hœð — Sími 34420
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14 - S 21715. 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615. 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubilum erlendis
JOIA „
matseoíliinn
iýrirjólaboröið
mæ um við sérstaklega með
SS hangikjöti
SS dilkahamborgarhrygg
SS dilkahamborgarlæri
SS dilkahamborgarsteik
SS dilkakryddhrygg
SS dilkahrygg og læri fyllt
meó ávöxtum
<|j
SS Gæðafæða bragðast best
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS