Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 26
26 DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. Menning Menning Menning Menning Æska og ásfir Engilberfs Hús málarans Minningasjór Jóns Engilberts eftir Jóhannes Helga 2. útgáfa. Arnartak, Reykjavík 1981. 192 bls. Bókin er tileinkuð Ragnari í Smára með svofelldum orðum. „Ragnar Jónsson í Smára hvatti á sínum tíma til samantektar þessa verks og kostaði hana og skar ekkivið nögl. Þegar hann hafði lesið handrit- ið þakkaði hann fyrir skemmtunina og afhenti mér handritið með þeim orðum að ég mætti eiga það, þannig að ég hefði eitthvað sem um munaði fyrir minn snúð. Ég lét ekki segja mér þetta tvisvar. Ég seldi öðrum útgefanda handritið fljótt og vel. Fyrri útgáfan var tileinkuð barni, Grétu, dótturdóttur og augasteini Jóns Engilberts, en þessa útgáfu þyk- ir mér hlýða að tileinka Ragnari með sittstórahjarta. Jóhannes Helgi.” Ætli viðbrögð Ragnars Jónssonar, sem hér er lýst, gefi ekki nokkra vís- bendingu um bókina sem hann hafn- aði, að hún væri hispurslaus eins og sagt var í þá daga eða kannski stór- orð og umtalsill — og Ragnar sem var vinur allra listamanna treysti sér ekki til að gefa hana út? Nú, tuttugu árum síðar, ættu sum ummæli hennar að vera orðin mátt- lausari — en svei mér þá ef svo er. Mér finnst satt að segja nóg um. Sigurjón nirfill og Krist- mann fmynd glæsileikans Jóhannes hefur þann háttinn á að koma í heimsókn til viðmælanda síns, Jóns Engilberts. Þar af leiðir að sögumenn verða tveir. Jóhannes lýsir Jóni, umhverfi, hátterni og heimilis- lífi eins og það kemur honum fyrir sjónir á ritunartíma, þ.e. 1960 — Jón segir aftur á móti frá lífi sínu (f. 1908. d. 1972) allt frá barnæsku á Njálsgötunni og fram að ritun sög- unnar. Frásaga hans einkennist af miklu fjöri og hann talar oft ótugtar- Iegar um menn en saklausum lesanda iimist þeir eiga það skilið. Hann segir frá foreldrum sínum og uppvexti og menningarlifi í borginni frá sjónar- hóli unglings. Helsta uppörvun hans eru árlegar málverkasýningar Ás- gríms í Gúttó uppi, og þá „talaði enginn um illa upphengdar myndir.” Þetta var Jóni stórkostleg upplifun. Inn í þessa frásögn fléttast stráka- pör unglinga í hverfinu og síðan er haldið til Kaupmannahafnar til náms fyrir erfðafé frá Jóni kaupmanni frá Hjalla (blessuð sé hans minning). Svona verða ýmsir góðir menn til að styrkja listina, auk Ragnars í Smára. Til Óslóar fer Engilberts í nám og einhvern veginn verða honum fáir minnisstæðir þaðan nema Kristmann Bókmenntir Rannveig G. Agustsdóttir og Eggert Stefánsson — já og Snorri Hjartarson. Á þeim árum var hann nýgiftur Tove sinni, svo að það getur verið skýringin. Að sjálfsögðu koma fram í sögu þessari margir listamenn sem gaman er að heyra sögur um, því það er það sem þessi bók er — sögur um lista- menn. Minnisstæðastar verða mér mynd- irnar af Sigurjóni Ólafssyni mynd- höggvara (hissa að hann skuli ekki vera reiður nirfilssögunum af sér, en kannski er hann það einmitt) — og sögurnar af Kristmanni í Ósló (sem ímynd glæsileikans) og Snorra Hjart- ar (sem er þögull og intressant). Fleiri mætti telja. Hvar lærði Kjarval að leika ffffl? Ásgrímur spurði Jón athyglisverðr- ar spurningar: „Hvar lærði hann Kjarval að leika fífl, Jón?” (60). Ás- grímur fékk það svar hjá Jóni að Kjarval hefði lært þetta af danskin- um og á þá Ásgrímur að hafa hlegið. Þetta samtal kom upp í hug mér daginn eftir að ég fór að velta þessu fyrir mér. Það var í rauninni „fatalt” i þá daga að gefa sig út fyrir að vera fífl. Ég vildi vita hvort þeir Jón og Jóhannes hefðu haft eitthvað meira um þetta að segja. Ég mundi ekki hvar þetta var í bókinni, fletti þá upp í hinu mjög svo ítarlega efnisyfirliti og fann: „Ásgrimur. . . (60)” og þar var það og sannaðist nú hve yfirlitið var hjálplegt. Hins vegar er ónauð- synlegt að endurtaka það út allar spássíur bókarinnar. Það beinir skilningi lesandans um of inn á ákveðnar brautir og kemur í veg fyrir eigið mat á mikilvægi efnis — minnir mann á glósaða sögubók. Jón Egilberts listmálari. En spurningunni hans Ásgríms er í sjálfu sér ósvarað enn. Kannski þurfa íslenzkir listamenn að leika fífl, að minnsta kosti að vera eitthvað skrítn- ir til að þola erfitt lif listamannsins, líf afneitunar og einangrunar. HÚS MÁLARANS er faUeg bók i stóru broti, prentuð á góðan pappír og vel myndskreytt. Það eru ekki bara myndir af málverkum — heldur einnig fjöldi mynda af þeim mönn- um, sem við sögu koma, og ætti það að kæta íslendinginn í okkur. Bókin er í alla staði verðug minn- ing mikils listamanns sem Jón Engil- berts var og er út yfir gröf og dauða. HVAÐ A ÉG AÐ GERAVH) KRAKKANN? Brattatröm, Ingar: Handan við hraðbrautjna. fslenak þýfllng: Þurfður Baxtar. RaykJavBt, Mál og menning, 1981. Bókaútgáfa Máls og menningar hefur gefið út bókina Handan við hraðbrautina eftir sænskan rithöf- und Inger Brattström. Inger Brattström fæddist í Gávle árið 1920. Foreldrar hennar voru bæði rithöfundar Gösta Högelin og Lisa Norrel. Hún byrjaði ung að skrifa bækur og kom sú fyrsta út í Svíþjóð 1939. Brattström hefurskrif- að á fimmta tug barna- og unglinga- bóka. Má þar nefna sakamálasögur fyrir unglinga og einnig bækur sem fjalla um ástir unglinga. Inger Brattström er mikils metinn rithöfundur í heimalandi sínu og hef- ur hún hlotið ýmis verðlaun fyrir bækur sinar. Má þar nefna Nils Hol- gersson Plaketten fyrir unglingabæk- ur, en hann hlaut hún árið 1967. Auk þess naut hún á árunum 1964 og 1965 sérstaks listamannsstyrks frá sænska ríkinu. Bókin HANDAN VIÐ HRAÐ- BRAUTINA kom fyrst út í Sviþjóð árið 1973. Hún var lesin í Ríkisút- varpinu 1978, þá undir nafninu Ferð úf í veruleikann. Þetta er fyrsta bók Inger Brattström sem út kemur á ís- lensku að því er ég best veit. Sagan Handan við hraðbrautina fjallar um unglingsstrák, Jónas að nafni sem vinnur á barnaheimili. Einn föstudag er hann einn eftir með fáeinum krökkum. Foreldrarnir koma hver á fætur öðrum og sækja börn sín, en þegar sá tími er liðinn sem foreldrar eiga að sækja börnin á kemur i ljós að ein litil hörundsdökk stelpa er eftir. Enginn kemur að sækja hana og lýsir sagan viðbrögðum Jónasar við þessum óvæntu kringumstæðum. Það reynist hreint ekki auðvelt að leysa vandamálið og helgarferð sem Jónas ætlaði í með vinum sínum er úr sögunni. Sagt er frá samskiptum Jónasar og Sólong, en það heitir sú litla. Les- andinn kynnist heimilisaðstæðum stúlkunnar vel, en móðir hennar er einstæð. Sagan Handan við hraðbrautina er á margan hátt óvenjuleg unglinga- bók. Hún lýsir sérstökum kringum- stæðum og því hvernig Jónas bregst við þeim. Höfundur fer mjög vel með þetta efni. Hún lýsir t.d. hvers konar aðkast hörundsdökkt fólk verður að þola frá sumu fólki. Meira að segja barn og sakleysingi. Bókmenntir Sigurður Helgason f bókinni er töluvert minnst á at- vinnumál ungs fólks í Sviþjóð. Þar eins og í flestum nágrannalöndum okkar er verulegt atvinnuleysi, eink- um meðal ungs fólks og atvinnutæki- færin sem bjóðast eru sorglega fá. Góðu heilli hefur þetta ástand ekki náð hingað til lands, Guði sé lof. En það er hollt fyrir fslenska unglinga að fá dálitla mynd af því hvað atvinnu- leysi er. Handan við hraðbrautina er kannski athyglisverðust fyrir það hversu vel bókin lýsir erfiðleikum þeim sem einstæðir foreldrar geta staðið frammi fyrir. Einnig sýnir hún dálítið hvernig lífið gengur fyrir sig í stórri Jbúðablokk, þar sem flestir hugsa aðallega um sjálfa sig, en láta sig litlu skipa hvernig ástatt er fyrir nágrannanum. Þá má að siðustu geta þess hvernig meðferð „kerfið” veitir stúlkunni þegar erfiðleikarnir eru hvað mestir. Handan við hraðbrautina er mjög Jan Terlouw: Dulmálsbrófið. ísl. þýðing: Ingi Karl Jóhannesson. Roykjavfk, Iðunn, 1981. Greinilegt er, að íslenskir bókaút- gefendur leita víða fanga í leit að góðum unglingabókum til útgáfu. Lengst af hafa þýddar barna- og ung- lingabækur í flestum tilfellum átt rætur sínar að rekja til Norðurland- anna og Bretlands. En ekki er ástæða til að efast um að víðar séu gefnar út góðar barna- og unglingabækur, sem er og raunin t.d. i Hollandi. Nú fyrir skömmu birtist ritdómur eftir undir- ritaðan um mjög góða hollenska ung- lingabók, Einn í stríði eftir Evert Hartman. Og nú tek ég til umfjöllun- ar bók eftir landa hans Jan Terlouw. íslenskir unglingar hafa fengið að kynnast bókum Jan Terlouw á und- anförnum þremur árum og Dulmáls- bréfið er fjórða bók hans sem þýdd hefur verið á íslensku. Þær sem fyrr hafa komið eru: Striösvetur, í föður- leit og Fárviðriö. Dulmálsbréfið er ekki alveg ný af nálinni, kom út í Hollandi 1973. En það rýrir gildi hennar ekki. Bækur Terlouw sem út hafa komið á íslensku hafa notið mikilla vinsælda og verðskuldaðra. Dulmálsbréfið er í grundvallar- atriðum byggð upp á svipaðan hátt og t.d. bækur Enid Blyton og ann- arra höfunda sem fengist hafa við að skrifa spennandi sögur fyrir ung- linga. Hún er spennandi og í henni gerast atburðir sem eru yfirleitt ekki góð bók. Hún er dálltið óvenjuleg, einkum vegna þess sem ber fyrir aðal- persónuna. En höfundurinn gefur góða lýsingu á kjörum margra í nú- tímasamfélögum á Norðurlöndum. daglegt brauð hjá krökkum. En ■efnismeðferð Terlouw er mun betri en maður á að venjast með bækur af þessu tagi og það veldur því að skörp skil eru á milli bóka hans og flestra annarra sem skrifa spennandi ung- lingabækur. Munurinn felst m.a. í persónusköpun og í vali á vettvangi sögunnar, sem er daglegt líf krakka en ekki dularfull höll, leyndardóms- fullur dalur eða eitthvað annað sem ætlað er að skapa dularfullan blæ, sem samkvæmt uppskriftinni hentar vel i spennandi sögum. Dulmálsbréfið er nútimasaga. Hún fjallar aðallega um þrjá krakka, Evu og vini hennar systkinin Bínu og Tómas. Þau tengjast af tilviljun ýms- um dularfullum málum og oft standa þau nærri því að vera í mikilU hættu. Ég ætla ekki að rekja söguþráðinn — því að með því myndi ég kannski spilla ánægju væntanlegra lesenda. Segja má að heimilislífið heima hjá Evu gangi eins og rauður þráður gegnum alla söguna. Foreldrar henn- ar rífast á stundum og það hefur í för með sér hvimleitt ástand sem veldur Evu ómældum leiðindum og verður kveikjan að ýmsu sem gerist í sög- unni. Þ.e.a.s. þolinmæði Evu þrýtur og hún ákveður aðgerðir sem hún vonar að verði til bóta. En það fer öðru vísi en ætlað er. Eins og ég sagði áður er persónu- sköpun Terlouw mjög skýr. Reyndar eru krakkarnir þrir ósköp venjulegir Þuríður Baxter þýddi bókina og er gott eitt um þýðinguhennarað scgja. Frágangur bókarinnar er útgefanda til sóma. Sigurður Helgáson krakkar, en það telst jákvætt að það sem þau hugsa og framkvæma er rökrétt miðað við kringumstæður á hverjum tíma. Ein persóna i sögunni er mjög skýrt mótuð og vel gerð. Það ér faðir Evu, enda kemur hann langt mest við sögu að krökkunum sleppt- um. Höfundurinn kryddar frásögnina með ýmsum sniðugum tiltækjum eins og t.d. rottuævintýrinu þegar gestir, sem ekki eru allt of velkomnir koma i heimsókn. Það vandamál er leyst á fljótan og áhrifaríkan hátt og um leið tryggt, að þeir komi ekki alveg á næstunni aftur. Eins og ég sagði áðan er ástæða til að fagna því að leitað sé sem viðast að bókum til að þýða og gefa út á ís- lensku. Mismunandi reynsla og mis- munandi kringumstæður skapa mis- munandi bækur. Það ætti að auka víðsýni lesendanna og um það er gott eittað segja. Ingi Karl Jóhannesson hefur þýtt Dulmálsbréfið og er bókin á lipru ís- lensku máli. Bókina prýða margar snyrtilegar teikningar, og það vekur furðu að nafn teiknarans, sem teikn- að hefur myndir og gert kápu sé ekki getið. Það er ástæðulaust. Dulmáls- bréfið er spennandi og skemmtileg unglingabók sem á áreiðanlega eftir að njóta vinsælda ekki síður en fyrri bækur höfundarins. Sigurður Helgason Dularfull ráðgáta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.