Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Side 27
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. n Nýjar bækur Nýjar bækur Blöndalsættin Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur gefið út bókina Blöndalsæltin, niðjatal Guðrúnar Þórðardóttur og Björns Auðunssonar Blöndals sýslu- manns í Hvammi í Vatnsdal. Lárus Jóhannesson, hæstaréttar- dómari, sá um samantekt verksins. Hann tók að fást við ættfræði á efri árum. Safnaði hann saman óhemju fróðleik og leitaði víða fanga. Aðallega fékkst hann við að semja niðjatal Björns Blöndals, sýslumanns i Hvammi í Vatnsdal, og Þórarinsjóns- sonar á Grund i Eyjafirði (Thoraren- sensætt). Lárusi entist ekki ævi til að vinna úr þessum fróðleik nema að nokkru leyti og raunar var tilgangur hans ekki sá, að þetta yrði gefið út. Jón Gíslason, fræðimaður, tók að sér að fullgera Blöndalsættina og búa hana til prentunar. Blöndalsættin er niðjatal Björns Auðunssonar Blöndals, sýslumanns í Hvammi í Vatnsdal, og Guðrúnar Þórðardóttur, konu hans. Niðjatalið nær fram til ársins 1977 og í sumum til- fellum lengra. Þetta niðjatal er að ýmsu frábrugðið öðrum slíkum ritum, m.a. eru ættir þeirra, sem tengjast Blöndals- ættinni, oft raktar i marga liði; þá eru víða umsagnir um menn úr bókum eða öðrum heimildum eða frá höfundi sjálfum. I ritinu eru á áttunda hundrað myndir, eða á annað þúsund myndir af einstaklingum, ef þannig er talið. Hönd i bagga með þessari útgáfu hefur Guðjón læknir, sonur Lárusar heitins, haft,Hann hefur skrifað langa ritgerð sem inngang að bókinni. [tarleg nafna- skrá er i bókinni og einnig er hér prentuð æviminning Björns Blöndals eftir séra Svein Níelsson á Staðastað sem og ættarlala hans, handskrifuð. Blöndalsættin var sett í Prentstof- unni Blik hf., filmuunnin í Prentþjón- ustunni hf., prentuð í Offsetmyndir sf., og bundin í Bókfelli hf. Kápu gerði Auglýsingastofa Lárusar Blöndal. Haltu kjafti og vertu sæt Fáir kvenrithöfundar hafa vakið jafn mikla athygli á síðari árum og Vita Andersen. Fyrsta bók hennar: Tryg- hedsnarkomaner seldist í stærri upp- lögum en dæmi voru um ljóðabækur og var mikið lesin af fólki sem aldrei áður hafði opnað ljóðabók. Sagnasafnið Haltu kjafti og vertu sæt, hlaut óhemju góðar viðtökur er það kom út i Danmörku. Það seldist strax í yfir hundrað þúsund eintökum og fyrir það var Vita sæmd helztu bók- menntaverölaunum Dana: Gullna lár- viðnum. Þetta er engin venjuleg kvennabók. Sögur Vitu eru oft ógnvekjandi og miskunnarlausar, stundum erótískar og stundum fyndnar. Hún skrifar um líf kvenna í velferðarþjóðfélaginu af beitt- um skilningi þess sem hefur upplifað atburðina. Hún er engin blóðlaus menntakona heldur er stíll hennar hrár og blóðmikill eins og gaddavimtónlist. Vita er ekki óþekkt á íslandi. Ljóða- bók hennar Tryghedsnarkomaner kom út hjá Lystræningjanum 1979 og nefndist : í klóm öryggisins, þýðandi var Nína Björk Árnadóttir. Þessi bók er löngu uppseld, en ný útgáfa er vænt- anleg í sambandi við heimsókn Vitu Andersen til íslands, en hingað kemur hún í boði Lystræningjans, Norræna hússins, Dönskukennarafélagsins og Alþýðuleikhússins, en það sýnir um þessar mundir leikrit hennar: Elskaðu mig. Hingað mun Vita koma 8. janúar nk. Kristján Jóhann Jónsson þýðir bók- ina, en Guðjón Ó. prentar. ,;yy | ÁSMl Lárus í Gríms- tungu Út er komin bókin Lárus í Gríms- tungu, ævisaga Lárusar Björnssonar í Grímstungu í Vatnsdal. Gylfi Ás- mundsson bjó bókina til prentunar. Lárus í Grímstungu er einn þeirra manna sem hefur orðið þj óðsagnaper- sóna í lifanda lífi. Hann hefur staðið fyrir búi í meira en 70 ár, síðustu árin blindur. Hann neitar að beygja sig fyrir Elli kerlingu og þráast við að setjast í helgan stein. Lárus í Grímstungu er löngu þjóð- kunnur maður, ekki fyrir þá verðleika, sem flestir verða þekktir af, svo sem embættisstörf, skáldskap eða íþróttir hgldur vegna persónueiginleika sinna, sem höfða beint til íslendinga og vekja ímyndunarafl þeirra og aðdáun. Sagan segir að hann hafi verið fjárrikasti bóndi á íslandi. Sagan segir líka, að hann eigi svo mörg hross, að ekki verði tölu á komið. Sagan segir, að á heið- inni þekki hann hvern stein og hverja þúfu, að hann sé ratvísari en fuglinn og klókari en tófan. Allar hafa sögurnar einkeni þjóðsögunnar. Þær eru ólík- indasögur, kímnissögur, hreystisögur, og jaðra stundum við að vera útilegu- mannasögur. í þeim felst ímynd hins ís- lenska manndóms. Gylfi Ásmupdsson, sem búið hefur bókina til prentunar, lætur frásögn Lárusar halda sér eins og kostur er og gætir þess að sérkennilegt orðfæri hans komi sem best í fram. í bókinni er fjöldi mynda, bæði svart/hvítra og litmynda. Bókin er 284 blaðsíður, prentuð og bundin í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri. Sálin og skugg- inn eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur. Skuggsjá hefur sent frá sér bókina Sólin og skugginn, nýja skáldsögu eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur. Eftir sama höfund kom út í fyrra smásagnasafnið Þetta er ekkert alvarlegt, sem hlaut gíf- urlega góða dóma gagnrýnenda. Bókin fjallar um lífið á sjúkrahúsi og FRIÐA A SIGURÐAR DOTTIR tðgru og euðugu máH, hún er $aga þtrj og mtn. persónur sem þar dveljast sem sjúkling- ar. Þetta er átakasaga úr hugarheimi sjúklinganna, frelsi þeirra og helsi, saga um lífsástinaogdauðann, saga af fólki, grímum þess, brynjum og vopn- um. Sólin og skugginn var sett og prentuð í Prisma sf. og bundin í Bókfelli hf. Kápuna vann Auglýsingastofa Lárusar Blöndal. Útlaginn Komin er út bókin „Útlaginn” byggð á Gísla sögu Súrssonar og kvikmynda- handriti Ágústs Guðmundssonar leik- stjóra. Bókin er samnefnd kvikmynd- inni sem verið er að sýna um þessar mundir. Saga Gísla er dæmigerð um siðvenj- ur fornaldar, hin hörðu lög hefndar- innar, ættarböndin og hetjulundina, sem menn ólu í brjósti sér og var sam- hljóma þeirri vitund, að vopndauðir menn einir gistu hetjuhöll annars lifs. Þessi einkenni koma mjög við sögu í Útlaganum. Gísli Súrsson stígur fram búinn öllunt þeim venjum sem samtími hans setti honum. Þó er hann mann- legur og skiljanlegur nútímafólki, alveg eins og hver ein íslendingasaga er í dag annað og meira en fornt handrit. Hún er lifandi saga. Bókin um Útlagann er skreytt fjölda litmynda úr kvikmyndinni og er að þeim mikil bókarprýði. Aftast í bók- inni er útdráttur á norsku, þýzku og ensku. Indriði G. Þorsteinsson tók saman texta bókarinnar. Útlaginn er einstætt verk að allri gerð hvort sem efnið birtist i formi bókar eða kvikmyndar og gerir þessa miklu örlagatíma í lífi þjóðarinnar aðgengilegri nútímanum. Togarasaga með tilbrigðum ef tir Haf liða Magnússon Ægisútgáfan hefur sent frá sér bókina „Togarasaga nteð tilbrigðum” eftir Hafliða Magnússon. Hafliði er fæddur i Hergilsey á Breiðafirði en ólst upp á Bíldudal. Hann hefur unnið í ýmsum atvinnugreinum en þó aðallega til sjós. Hann var 16 ára þegar fyrsta bók hans kom út og 18 ára hlaut hann 1. verð- laun í smásagnasamkeppni. Togarasaga er skrifuð í léttum dúr og hún kemur lesandanum oft til að hlæja. Togarasaga er 144 blaðsíður. Teikn- ingar eru eftir Magnús Óskarsson. Prentrún prentaði, en um bókband sá Nýja bókbandið. SUNNUDAGS BLAÐIÐ PJOÐVIUINN alltaf um helgar r Oskum viðskiptavuuim okkar^ | og landsmömmm öllum gleðilegmr hátiðar VELTIR Hr Urval af bílaáklæðum (coverum) Sendum ■ póstkröfu Altikabúðin Hverfisgötu 72 S 22677 JÓLAGJÖFIN SEM Cl 11 11 „REIKNAÐ ER MEÐ ÚRVAL VASATÖLVA FYRIR HEIMILI OG SKÓLA ÚRVAL AF SMÁTÖLVUM MED PRENTUN SALA, ÁBYRGÐ OG ÞJÓNUSTA ShrífuÉlin hf Eu SUÐURLANDSBRAUT 12. SÍMAR 85277 OG 85275.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.