Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Qupperneq 17
17
DAGBLAÐIÐ & VÍSlR. MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982.
r Lesendur Lesendur Lesendur L<
Athugasemd við Morgunblaðsgrein:
Guðmundur frá Miðdal var fyrstur til
þess að hagnýta íslenzkan leir
notaði Búðardalsleir þegar árið 1940
Einar Guðmundsson, leirkerasmíða-
meistari, skrifar:
Vegna greinar í Morgunblaðinu
6.1. sl. um tilraunavinnslu Kolbrúnar
Björgúlfsdóttur á Búðardalsleir, vil ég
koma leiðréttingum á framfæri.
í greininni er sagt að íslenzkur leir
hafi ekki verið notaður hér á landi
áður, sem er ekki rétt. Faðir minn,
Guðmundur Einarsson frá Miðdal,
stofnaði leirmunaverkstæðið List-
munahús árið 1927, hið fyrsta hér á
landi og notaði hann jökla- og hveraleir
i 37 ár.
Á árunum 1940—1960 var notaður
jökulleir frá Búðardal, ca 8—lOtonná
ári, ásamt hveraleir frá Laugarvatni og
sunnan af Reykjanesi. 1946 voru
keyptar vélar til þess að hreinsa og
blanda íslenzka leirinn. Voru þær
notaðar til ársins 1964, með mjög
góðum árangri.
Hugmyndir um framleiðslu hluta
fyrir byggingariðnaðinn, t.d. múr-
steina, flisar, rör o.s.frv., eru heldur
ekki nýjar af nálinni. Þegar 1940 hafði
faðir minn prófað og látið prófa
Búðadalsleirinn og hélt þvi eindregið
fram að stofna ætti iðnfyrirtæki i Búð-
ardal fyrir slíka starfsemi.
Gleymum ekki
Laugarnessleirnum
í þessu sambandi skal þess getið, að
listafólkið Sigrún Guðjónsdóttir og
Gestur Þorgrímsson fylgdu fordæmi
Guðmundar frá Miðdal og notuðu ein-
göngu islenzkan leir i framleiðslu sína,
Laugarnessleirinn, en þar var Búðar-
dalsleir aðaluppistaðan. Þetta var á ár-
unum 1948 til 52-3.
-FG.
Einar Guðmundsson, sonur Guð-
mundar Einarssonar frá Miðdai, er
ósáttur við Morgunblaðsgrein, um
fyrirtækið Dalaleir í Búðardai, og
telur hana þurfa leiðróttingar við.
Fyrsta prófunin gekk
framar öllum vonum
segir Kolbrún Björgólfsdóttir um
tilraunaleirvinnslu í Búðardal
FYRIRTÆKIÐ Dalaleir í Búðardal
hefur að undanfornu staðið fyrir tiF
raunavinnslu með leir með það fyrir
augum að framleiða úr honum ýms-
ar byggingarvörur, t.d. flísar. KoF
brún Björgólfsdóttir hefur veg og
vanda af tilraunavinnslu þessari og
ræddi Mbl. stuttlega við hana á dög-
unum til að forvitnast um árangur.
— Þessi tilraunavinnsla hófst
um miðjan nóvember og á að
standa í 6 mánuði. Ég er einmitt
nýbúin að taka úr ofninum fyrstu
brennsluna, en þá bjó ég m.a. til
bakka, svona til að sýna hvernig
nota má þetta hráefni og mun fólk
og síðar stundaði hún framhalds
nám í Danmörku. Eftir það ra
hún um skeið eigið verkstæði
Reykjavík og kenndi.
— Þetta er algjörlega nýtt fyri
mér og mjög spennandi ef hæg
verður að vinna hluti úr íslenskun
leir, en það hefur aldrei verið ger
áður. Við höfum nóg hráefn
þarna fyrir vestan því alls staða
er leir og fólk verður jafnvel a>
skipta alveg um jarðveg í görðun
sínum ef takast á að rækta eitt
hvað. Hráefnið er því við húsvegg
inn og hefur áhugi Dalamanna :
Finnst títið fara fyrir þakklæti til
björgunarsveita varnarliðsins
— einnig þreytt á
vanþakklætiog
öf und í garð
sjómanna
frá löndum sínum ensifelli vanþakklæti
ogöfund.
Þótt ekki sé það í beinum tengslum
viðofangreintefni.þá langar mig til þess
að nýta þetta tækifæri til þess að senda
Hannesi Hafstein innilegt þakklæti,
svo og áhöfn varnarliðsþyrlunnar, sem
sótti annan son minn, þegar hann slas-
aðist alvarlega um borð í Harðbak, 50
milur út af Horni í vonzku-veðri.
Ég er ekkiaðhalla á okkar flugmenn,
en mér finst litið fara fyrir þakklæti til
björgunarsveita og þyrluflugmanna
varnarliðsins, sem margoft hafa hætt
lífi sínu til þess að bjarga okkar ástvin-
um; sonum og eiginmönnum úr háska.
0348-4661 hringdi:
Ég hringi vegna fréttaauka útvarps-
ins, þann 6. janúar sl. Þar var reynt að
etja saman sjómönnum og fiskverkun-
arfólki. Sem betur fer tókst það ekki,
en ég reiddist þessu kjaftæði. Auk þess
er ég orðin þreytt á þessum sífelldu við-
tölum við einungis þá aflahæstu.
Ég á tvo syni á sjó, auk tengdasonar.
Annar sonur minn er á Rauðanúpi, sem
ekki er aflahár togari, en hinn er á
Harðbak, sem er meðal aflahæstu tog-
ara á landinu. Tengdasonur minn er á
strandferðaskipi.
Þessir strákar vinna allir geysilega
mikið og svo sannarlega fyrir hverjum
eyri, sem þeir fá, og vel það. Ég tel
þessar ádeilur á sjómenn vera mjög
ranglátar. Vitanlega ber fólk mikið úr
býtum, þegar það leggur á sig mikla
vinnu, en ekki skal skattinum gleymt né
fjarverum frá fjölskyldu.
íslcnzkir sjómenn eiga betra skilið
þakkiæti og öfund.
Gerizt
áskrifendur
Síminn
er 27022
Isuzu-bíllinn
dreginn út
27. janúar
Vatteruð
klippiefni
fyrir barnasmekki
og barnateppi
VIRKA
Klapparstíg 25—27,
sími 24747.
Morgunnámskeið í
bútasaum 30 teg-
undir bútasaums-
blaða
V/RKA
Klapparstig 25—27,
sJml 24747,
Ameríska hand-
klæðaúrvalið
VIRKA
Klapparstíg 25—27,
simi 24747.
VERDLAUNAGRIPIR
OG FÉLAGSMERKI
Fyrir allar tegundir iprotta. bikar-
ar. styttur. verötaunapeningar .
— Framleiöum telagsmerki
Magnús E. Baldvinsson
Laugavogi Q - Raykjavik Simi 22804
SPARIÐ
tugþúsundir
Endurryðvörn
á 2ja ára fresti
RYÐVÖRN.SF.
Smiðshöfða 1
Sími 30945
......• \ . .
Sparið
þúsundir króna
með mótor- og
hjólastillingu
einu sinni á ári
VBiLA!
BiLASKOÐUN
&STILLING
S 13-10 0
Hátúni 2A