Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1982, Blaðsíða 3
fþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1982.
Erika Hess fyrsti
heimsmeistarinn
Erika Hess, Sviss, sem hefur forustu í
keppni heimsbikarsins, varrt fyrsti
heimsmeistarinn í Schladming í Austur-
ríki. Sigrafii þá i tvíkeppninni, bruni og
svigi, nýrri grein, sem kemur í stafl
þríkeppninnar ártur. Hess hlaut 8,99
stig samanlagt og sigrafli með nokkrum
yfirburdum. Önnur vard Perrina
Pelen, Frakklandi, nteð 17,95 stig.
Vhristin Cooper, USA, varfl þriðja
med 20,96 stig og í fjórda sæti varð
önnur bandarísk slúlka, Cindy Nelson,
með 21,21 stig. lrena Epple, V-Þýzka-
landi, varrt aöeins sjöunda meö 47,27
stig.
Það var árangurinn i svigkeppninni i
gær sem færði Eriku Hess heims-
meistaratitilinn. Hún sigraði þar á
1:22,03 min. Pelen varð önnur á
1:22,16 min. og Copper þriðja á
Slikt málli sjá anzi ofl í leik Víkings
og KR á laugardag. Árni Tómasson
dómari, vísar Olafi Jónssyni af velli.
Félagar hans Árni Indriðason, Páll
Björgvinsson og Þorbergur Aðalsteins-
son alvarlegir á svip.
-DV-mynd Friðþjófur.
Vömin small saman og
Víkingur vann KR létt
1:22,17 mín. I fjórða sæti varð Dorota
Tlalka. Póllandi, á 1:22,28 min. Þessar
fjórar stúlkur voru i sérflokki. Maríu
Walliser, Sviss, sem var fyrst el'tir
brunkeppnina sl. I'immtudag, gekk
ekki vei i gær. Var ekki meðal 10 fyrstti
i tvikeppninni. Erika Hess var i tóll'ta
sæti eftir brunkeppnina en timamunur
var þá lílill á þeim fremstu.
Vegna rigningar í Schladming er
dagskrá heimsmeistarakeppninnar
alveg komin úr skorðum. Öllu frestað á
föstudag og laugardag. í dag á að
keppa i tvíkeppni karla. Svigið verður
þá á dagskrá.
Keflvíkingar
með 130 stig
Keflvíkingar unnu stórsigur á
Grindvikingum í I. deild körfuknatl-
lciksins í Njarövík á laugardag. Úrslil
130—93 og þessi 130 slig Keflvikinga er
mesta stigaskorun í leikjum vetrarins.
Það var aðeins rétl i byrjun sem
Grindvikingar héldu i við Keflvikinga.
Siðan fór að draga i sundur og mikill
hraði í leiknum. Þegar nitt min. voru til
leiksloka komust Keflvikingar i 100
stigin og bættu við 30 lokamínúturnar.
Hittni leikmanna mjög góð.
Flest stig Keflvikinga skoruðu Tim
Higgsins 34, Björn Skúlason 24 og Þor-
sleinn Bjarnason 19. í liði Grindavikur
voru Mark Holmes 32, Eyjólfur
Guðlaugsson 18 og Hreinn Þorkelsson
16 stigahæslir.
„Þetta var kærkominn stgur sem
við unnum fyrst og fremst á góðri vörn
og markvörzlu. Það sem að er hjá
okkur eins og öðrum liðum er að við
erum ekki í leikæfingu. Höfum aðcins
leikið tvo leiki á tvcimur og hálfum
mánuði. Við erum í góðri líkams-
æfingu. Það hjálpar mjög í hörðum
leiks eins og við KR. Kæruleysi var þó
fuilmikið hjá okkur í lokin, þegar sigur
var i höfn. Við höfum alla möguleika
enn á sigri í mótinu en þetta verður
erfið vika hjá okkur. Tveir leikir
framundan,” sagði Páll Björgvinsson,
fyrirliði Islandsmeistara Víkings í
handknattleiknum, eftir að lið hans
hafði unnið öruggan sigur á KR í Laug-
ardalshöll á laugardag, 23—19. Sá
sigur var öruggari en tölurnar gefa til
kynna. Sex mín. fyrir leikslok hafði
Vikingur átta marka forustu, 22—14.
Eftir leik liðanna i fyrri hálfleik að
dæma var þessi Víkingssigur mun
auðveldari en búast hefði mátt við.
Jafnt í hálfleik 11 —11 og KR komst i
12—II í byrjun síðari hálfleiks.
Víkingsvörnin þéttist mjög og mark-
varzla Kristjáns Sigmundss. var frá-
bær. KR-ingar áttu ekkert svar við
þessu og fljótt var greinilegt að Víking-
ar stefndu á sigur. Þó var merkilegt i
þessuni leik að fjórunt sinnum vorunt
leikmenn Víkings tveimur færri. Tíu
sinnum voru leikmenn Vikings látnir
víkja af velli, tvívegis vegna rangra
innáskiptinga. Þremur KR-ingum var
visað af leikvelli. Furðulegt að KR-ing-
ar nýttu ekki þennan liðsmun betur en
raun var á. Það vantaði vissulega neist-
ann i leik þeirra að þessu sinni.
KR-ingar skoruðu tvö fyrstu mörk
leiksins. Ekki i fyrsta skipti, sem
Vikingar eru seinir í gang. En þeir
jöfnuðu í 2—2 og síðah var jafnt á
öllum tölum upp í 6—6. Það var um
miðjan hálfleikinn. Vikingur komsl
siðan tveimur mörkum yfir, 8—6 og
þessi tveggja ntarka ntunur hélzt oftast
frant að lokamínútum hálfleiksins. Þá
urðu tveir Víkingar að víkja af velli,
annar vegna rangrar innáskiptingar og
KR tókst að jafna i 11 — 11 fyrir hálf-
leik.
KR komst í 12—11 á fyrstu min.
síðari hálfleiks en skoruðu svo ekki
mark í 14 mín. Víkingsvörnin mjög
sterk og Kristján frábær i marki. Mis-
tök hins vegar í sóknarleiknunt hjá
Víkingum, en ekki í hraðaupp-
hlaupunum. Á stuttum tima
skoraði Páll Björgvinsson, sem lék einn
sinn bezta leik i vetur, tvö ntörk úr
hraðaupphlaupum og fiskaði að auki
víti, sem skorað var úr. Staðan breyttisl
i 14—12 og Kristján gerði sér litið fyrir
varði tvö vítaköst á stuttum tima frá
bræðrunum Alfreð og Gunnari Gísla-
son. Víkingur skoraði tvö mörk milli
þeirra. Kontnir i 16—12 á 41. min. En
þá komu brottrekstrar' á færibandi.
Víkingar i tvígang tveimur færri en KR-
ingum tókst ekki að nýta sér það. Að
vísu skoraði Haukur Ottesen 13. ntark
KR á 45. mín. en Guðmundi Guð-
mundssyni tókst að skora fyrir Viking
17—13. Siðan var jafnt i liðunum og
Víkingar skoruðu sex mörk gegn einu á
næstu sjö mín. Staðan orðin 22—14 og
það stefndi í stórsigur meistaranna.
KR-ingar ráðvilltir og komust ekkert
áleiðis gegn sterkri vörn Víkings. En
síðan komu aftur brottrekstrar til
sögunnar m.a. aftur röng innáskipting
Vikings. KR-ingar skoruðu fimm mörk
gegn einu síðustu fimm mínúturnar.
Tókst þvi aðeins að laga markatöluna.
Ekki gallaiaust
Það mátti margt betur fara í þessum
leik. Greinilegt að leikmenn liðanna eru
ekki i leikæfingu vegna hins hörmulega
skipulags á íslandsmótinu. Þó liðin séu
að leika æfingaleiki koma þeir aldrei í
stað keppnisleikja. Alltaf verið að
reyna þar eitthvað á öðrum sviðum
leiksins. KR-ingar tóku Þorberg
Aðalsteinsson úr umferð nær allan
leikinn. Vikingar gerðu það sama
gagnvart Alfreð. Fyrri hálfleikurinn
var ekki góður, þó spennan væri alltaf
fyrir hendi. Víkingunt urðu á fleiri
villur og markvarzla hjá þeim var þá
frekar litil.
En þetta gjörbreyttist í síðari hálf-
leiknum hvað vörn og markvörzlu
viðkont hjá Vikingum. Þeir voru hver
öðrum sterkari í vörninni, Þorbergur,
Ólafur Jónsson, Árni Indriðason, Páll,
Steinar Birgisson og Guðmundur.
Hilmar Sigurgíslason lék þar einnig
stórt hlutverk. Markvarzla Kristjáns
glæsileg . Talsvert um villur í sókninni
hins vegar, Páll og Ólafur hafa þó
sjaldan leikið betur í vetur og auðvitað
sást margt fallegt að venju hjá Víkings-
liðinu. Þorbergur skoraði góð mörk
þrátt fyrir gæzluna en Sigurður
Gunnarsson markahæstur.
Furðulegt hvað KR-liðið brotnaði
eftir þokkalegan fyrri hálfleik og
hvatningin, sem oft hefur verið aðall
leikmanna KR, var nú ekki fyrir hendi.
Liðið mjög ósamstillt í síðari hálfleik.
Bræðurnir Alfreð og Gunnar beztir,
svo og Brynjar Kvaran i markinu.
Mörk Vikings skoruðu Sigurður
Gunnarsson7/5, Páll 5/l,Þorbergur 4,
Ólafur 3, Guðmundur 3, Arni 1. Mörk
KR skoruðu Alfreð 6/2, Gunnar 3,
Haukur Ottesen 3, Jóhannes
Stelansson 3, Haukur Geirmundsson 2,
Friðrik Þorbjörnsson og Ragnar
Hermannsson eitt hvor.
Dómarar voru Árni Tómasson og
Rögnvald Erlings. Vikingur fékk sex
vítaköst. Nýtti öll. KR fékk fimm víta-
köst. Nýtti aðeins tvö. Tiu sinnum voru
leikmenn Víkings látnir vikja af velli en
þrisvar KR-ingar.
-hsím.
SKÍÐI
VEITA ÞÉR
ÁNÆGJU
Red Star
Kneisse/ Fiber
skíðifrá
Austurríki
80-130 cm kr. 677
140-150 cm kr. 759
140-160 cm kr. 949
165-175 cm kr. 1.095
170-190 cm kr. 1.414
175-190 cm kr. 1.414
190 cm kr. 1.899
Cupstar Mid
Cup Star RS
Blue Star GT 175
Blue Star
Mid. 170-185 cmkr. 1.899
BlueStar88 180-190 cm kr. 1.899
Whhe Star
junior 165-175 cm kr. 1.404
RedStar88 180-190 cm kr. 2.439
WhiteStarpro180-210 cm kr. 3.254
GÖNGUSKÍÐI
Tourinfl3s 180-215 cm kr. 800
Blue Star 3s 190-210 cm kr. 1.091
Saiomon bindingar
Look bindingar
<C taElinöO búðin
Armúla 38-SímÍ 83555
Dodgs Maxivan 77 til sölu. Ath. Skipti.
Þetta er burðarjálkur.
Lada Sport '80. Einn sem bfflur eftir
snjónum.
Simca 1508 78. Þetta er bfll sem ekki
eignast vini á bensínstöðvunum.
Hvaða bílasala er með malbikað útisýningarsvæði?
Opið á laugardögum kl. 10—18.
I Hvaða bflasala er með 70—80 bfla linnanhúss? |.