Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1982, Blaðsíða 6
28
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1982.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrótt
Þróttarar ekki
búnir að fá svar
— Vifl erum ekki búnir afl fá Eins og DV hefur sagt frá hafa
svar frá Ítalíu. Það er greinilegt að Þróttarar sent ítölum tilboð um að
forráðamenn Pallamano Tacca þeir leiki báða leiki sína í 8-liða úr-
Magnago eru enn að velta tilboði slitum Evrópukeppni bikarmeist-
okkar fyrir sér, sagði Gunnar ara í handknattleik í Reykjavík.
Gunnarsson, stjórnarmaður -SOS
Þróttar.
Bjarni Gunnar Sveinsson.
Þróttarar lögðu FH-inga, 26-20:
„FH-ingar áttu
ekkert svar við
vamarleik okkar
— þegar við breyttum Í3-3 vörn,” sagði Ólafur H. Jónsson, þjálfari Þróttar
— Þetta var mjög sætur sigur, sagði
Ólafur H. Jónsson, þjálfari Þróttara,
eftir að þeir höfðu lagt FH-inga að velli
26:20 í 1. deildarkeppninni í hand-
knattleik. — Við vissum ekki hvað við
vorum að fara út í — vorum ekki búnir
að leika í langan tíma og því úr spila-
æfingu. En við náðum stemmningunni
vel upp og náðum að setja FH-inga út
af laginu.
Við byrjuðum á því að leika 6—0
vörn gegn þeim en breyttum síðan í 3—
3 vörn, sem FH-ingar áttu ekkert svar
við. Þá settum við upp hraðann þegar
staðan var 14—13, náðurn að brjóta
FH-inga niður og komumst yfir 21:14,
sagði Ólafur, sem var mjög ánægður
með sina menn.
— Ólafur Benediktsson varði mjög
vel og þá var varnarleikur okkar góður,
sagði Ólafur.
Nýttum ekki færin
okkar
— Ég get litið annað sagt en að við
fórum mjög illa með marktækifæri
okkar i leiknum og þá varði Ólafur
Benediktsson mjög vel — hann vann
leikinn fyrir Þróttara, sem léku vel,
sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari FH-
liðsins, eftir leikinn.
Sigurður tekinn
úr umferð
FH-ingar byrjuðu á þvi að taka
Sigurð Sveinss. úr umferð. Þróttarar
létu það ekki á sig fá — Páll Ólafsson
skoraði tvö fyrstu mörk leiksins, 2:0
fyrir Þrótt. Þá vöknuðu frískir FH-
ingar til lifsins, jöfnuðu og komust
yfir 7:4. Leikmenn FH-liðsins léku
mjög vel og maður hafði á til-
finningunni að þeir myndu vinna
öruggan sigur.
Þróttarar voru ekki á því — þeir
náðu að jafna 7:7, en þá voru FH-ingar
ekki búnir að skora i 11 mín. Þróttarar
voru yfir 11:10 í leikhléi.
FH-ingar brotna
Þegar staðan var 14:13 fyrir Þrótt-
ara settu þeir á fulla ferð. Páll skoraði
15:13 og síðan kom Ólafur H. Jónsson
með tvö falleg mörk af linu eftir að
hafa fengið snilldarsendingar frá Sig-
urði Sveinssyni.
Ólafur Benediktsson varði eins og
berserkur í markinu hjá Þrótti —
lokaði markinu langtímunum saman.
FH-ingar fóru að verða óþolinmóðir og
fóru illa með mörg góð marktækifæri
— létu Ólaf verja eða skutu fram hjá
marki Þróttara sem náðu 7 marka for-
skoti, 21:14, og síðan átta marka for-
skoti— 23:15.
FH-ingar reyndu þá að taka bæði
Sigurð Sveinsson og Ólaf H. Jónsson
úr umferð en ekkert dugði.
Þróttar slökuðu á þegar staðan var
26:18, þannig að FH-ingar skoruðu tvö
síðustu mörk leiksins, sem lauk 26:20,
fyrir Þrótt.
Ólafur Benediktsson átti snilldarleik
í marki Þróttar — varði 17 skot í
leiknum. Þá var Páll Ólafsson frískur
og Sigurður Sveinsson einnig, þrátt
.fyrir að hann væri tekinn úr umferð
skoraði hann mörg falleg mörk og átti
góðar línusendingar. Ólafur H. Jóns-
son var einnig góður og Gunnar
Gunnarsson átti góða spretti.
FH-Iiðið lék vel í byrjun og skoraði
Kristján Arason þá falleg mörk en eftir
að Þróttarar breyttu um varnaraðferð
náði Kristján sér ekki á strik. Pálmi
Jónsson var bezti leikmaður FH.
Mörkin í leiknum skoruðu þessir
leikmenn:
Þróttur: Páll 7, Sigurður 7/1,
Ólafur 5, Gunnar 4, Jens 2 og Jón
Viðar 1.
FH: Kristján 5/2, Pálmi 4,
Sæmundur 3, Hans 3, Guðmundur M.
3, Björgvin Guðmundsson 1 og Finnur
Á. I.
Björn Kristjánsson og Karl
Jóhannsson dæmdu leikinn mjög vel.
-sos.
Leöurskór
0 m mm
ur mjog
mjúku leðri
21010. Vanjiáogir loikfímiskór,
loður. Verókr. 92-110.
21051. Latffímlskór með hæl
leður. Verðkr. 149.
22030. FlmMkaskór, leður
m/gúmmísóla. Verðkr. 92- - 22.
Póstsendum
Sportvöruverzlun
/ngótfs
Óskarssonar
Klapparstíg 44.
Sími 11783.
Johnson vann ein-
vígið við Shouse
— þegar KR-ingar lögðu Njarðvíkínga að velli 72:71
ígærkvöldi íf jörugum leik
KR-ingar náðu að ieggja Danny
house og félaga hans frá Njarðvik að
elli i geysilega fjörugum og
kemmtilegum leik i úrvalsdeildinni í
ærkvöldi — í Hagaskólanum. Mikill
arraðardans var stiginn undir lok
STAÐAN
Staðan er nú þessi í úrvalsdeildinni i
körfuknattleik, eftir leiki helgarinnar:
Valur-Fram 78—77
KR-Njarðvík 72—71
Njarðvík 14 11 3 1201—1097 22
Frain 14 9 5 1171—1079 18
Valur 14 8 6 1134—1100 16
KR 14 8 6 1086—1152 16
ÍR 14 5 9 1089—1150 10
ÍS 14 1 13 1110—1262 2
Stigahæstu menn:
Danny Shouse, Njarðvík 494
Val Brazy, Fram 396
Bob Stanley, ÍR 376
John Ramsey, Val 307
Stu Johnson, KR 268
Simon Ólafsson, F'ram 267
Dennis McGuire, ÍS 257
Jón Sigurðsson, KR 229
Torfi Magnússon, Val 208
Gísli Gislason, ÍS 207
Bjarni Gunnar, ÍS 204
leiksins, þegar staðan var 72—71 fyrir
KR-inga. Þá var dæmd sóknarvilla á
Val Ingimundarson og þurfti Valur að
yfirgefa völlinn með 5 villur, þegar 1,26
mín. voru til leiksloka.
KR-ingar brunuðu þá fram og
reyndi Jón Sigurðsson skot þegar 57
sek: voru til ieiksloka en hitti ekki.
Njarðvíkingar ná hraðupphlaupi og
fékk Shouse tækifæri til að koma
Njarðvíkingum yfir en aldrei þessu
vant brást honum bogalistin tvisvar
sinnum undir körfunni. Njarðvíkingar
fá innkast þegar 45 sek. eru til leiksloka
og leika þeir með knöttinn fyrir framan
vörn KR-inga. Gunnar Þorvarðarson
átti feilsendingu þegar 29. sek. voru til
leiksloka, þegar hann ætlaði að senda
knöttinn út í hornið til Shouse. KR-ing-
ar fengu knöttinn og héldu honum, þar
til flautað var til leiksloka og sigurinn
var þeirra — 72—71.
Leikurinn var allan tímann jafn og
spennandi, en KR-ingar voru oftast yfir
— 43—37 í leikhléi. Þegar 5.30 mín.
voru til leiksloka, voru þeir búnir að ná
10 stiga forskoti — 70—60. Þá tók
Danny Shouse góðan sprett og skoraði
9 stig í röð — 70—69. Stu Johnson
skoraði þá 72—69, en Valur ingimund-
arson náði að minnka muninn j 72—71.
Síðan varð eftirleikurinn eins og við
höfðum sagt frá hér að framan.
Stu Johnson átti mjög góðan leik
með KR — skoraði 31 stig. Þá var
Garðar Jóhannsson góður i byrjun
leiksins — skoraði 19 stig.
Annars var leikurinn einvígi
Johnson og Danny Shouse, sem var allt
í öllu hjá Njarðvík og skoraði 44 stig.
Valur Ingimundarson var óvenjulega
daufur og sömu sögu er að segja um
Gunnar Þorvarðarson og Jónas
Jóhannsson.
Þeir sem skoruðu stigin í leiknum,
voru:
KR: Johnson 31, Garðar 19, Jón S.
8, Ágúst 6, Stefán 4, Páll 2 og Birgir M.
2.
Njarðvík: Danny 44, Valur 9,'-
Gunnar 8, Jónas 6, Jón Viðar 2 og
Sturla 2. -SOS.
Jón tók
gifsiðaf
Jón Sigurðsson, landsliðsmaður í
körfuknattleik hjá KR, varð fyrir því
óhappi í leik gegn Val á dögunum að
flísaðist upp úr beini á litla fingri
vinstri handar og hefur haun verið í
gifsi. Jón tók gifsið af sér — til að
getaleikið með KR gegn Njarðvík í
gærkvöldi.
-SOS
Bjarni
Gunnar og
Ingi hætta
Ljóst er nú að miklar breytingar
eru framundan á liði Stúdenta í
körfuknattleik. Bjarni Gunnar,
einn af máttarstólpum liðslns,
hefur ákveðið að leggja skóna á
hilluna eftir þetta keppnislimabil
og allt bendir til að Ingi Stefánsson
geri það einnig.
Þá er nú fullvíst að KR-ingarnir
Gisli Gíslason, landsliðsbakvörður,
og Árni Guðmundsson ganga aftur
til liðs við sína gömlu félaga í KR
eftir stutta dvöl i herbúðum Há-
skólaliðsins.
Þetta eru fjórir beztu leikmenn
liðsins og er blóðtakan því geysileg
— byrjunarliðið hverfur. Nú er
aðeins spurningin — verða Stúdent-
ar með lið næstu ár? -SOS.
FH- stúlkurnar
komust í 14:0
Fjórir leikir voru leiknir i 1.
deildarkeppni kvenna í handknatt-
leik um helgina:
Víkingur-KR 19—13
Þróltur-FH 2—26
Valur-Fram 12—12
FH-stúlkurnar höfðu algjöra
vfirburði gegn Þrótti — voru yfir
14—0 í leikhléi.
FH 8 7 1 0 158—101 15
Valur 8 5 3 0 128—91 13
Fram 8 5 2 1 143—121 12
Víkingur 9504 155—139 10
KR 8 3 0 5 136—124 6
ÍR 8 2 0 6 128—144 4
Akranes 7 2 0 5 87—139 4
Þróttur 8 0 0 8 93—179 0