Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982. Símar 81666 og 81757 Ingersoll-Rand 1405 1978 4,2 m Internationale grafa. Scania 111 ’78 Scania 141 ’78 Volvo 85 ’77 ekinn aðeins 120 þús. km. Liebhcrr hjólaskófla 4X4 OK veghefill Komatsu ’75 nýuppgerð Spurt ogsvarað á beinní línu DV Hvenær fæst fullur námsfrá- dráttur? Þorgrímur Jóhannesson, Borgarnesi: Fær unglingur, sem fæddur er í apríl 1965, lauk grunnskólaprófi í fyrravor og hélt síðan áfram námi i fjölbraut um haustið, fullan námsfrádrátt. Geta for- eldrar sótt um sérstakan frádrátt vegna stuðnings við nemandann? Svar: Nemandi sem stundað hefur nám fulla sex mánuði á árinu, fær fullan námsfrádrátt. Foreldrar geta sótt um sérstaka ivilnun vegna fjár- hagslegs stuðnings við nemandann og er sá frádráttur m.a. metinn með tilliti til þeirra tekna, er nemandinn hefur sjálfur áflað á árinu. Frádráttur vegna aðstæðna Einar Þorvaldsson, Reykjavík: Get ég farið fram á einhvern sérstak- an frádrátt á grundvelli þess að ég sé einstæður aldraður maður, sem aðeins hef ellilaunin og lífeyri til framfærslu. Svar: Nei, þú átt ekki kröfur á neinum sérstökum frádrætti vegna þessara aðstæðna. Þér mun nýtast bæði fastur frádráttur sem er að lág- marki kr. 11.963 hjá einhleypingi og svo persónuafsláttur, sem er kr. 11.415. Um 10% frádráttinn Friðhjórn Kristjánsson, ísafirði: Ef tekinn er sjómanna- og fiski- mannafrádráttur, fær maður þá ekki fastan frádrátt þ.e. 10% frádráttinn? Svar: Jú hann kemur til viðbótar, þ.e. til skatts en ekki útsvars. Komdu og láttu Dröfn sýna þér byltingu í matreiðslu í Viðhvaðerfastur f rádráttur miðaður? Sævar Halldórsson, Vestmannaeyj- um: Við hvað er miðað þegar fastur frádráttur er hækkaður milli ára. í fyrra var þessi frádráttur uppgefinn á framtölum kr. 5.500, en hefur nú' hækkað í kr. 11.963. Svar: Fastur frádráttur hækkar í samræmi við skattavísitölu. í fyrra var upphæðin, sem gefin var upp á framtali, óbreytt frá árinu áður. Þessu var svo breytt með laga- setningu í ntaí 1981 og frádrátturinn hækkaður i kr. 7.975. Sú upphæð var noruð við útreikning siðasta árs, svo hækkunin er ekki eins mikil og margir hafa haldið. örbylgjuofnunum I verslun okkar á Bergstaöastræti 10A laugardaginn 13. febrúar kl. 10—12. Toshiba örbylgjuofn er meira en bara venjulegur örbylgju- ofn, þú getur matreitt og bakað í honum flestar uppskrift- irnar þínar. Nafn........ Heimilisfang Og sfðast en ekki sfst, svo þú fáir fullkomið gagn af Toshiba ofninum þínum, býður Dröfn þér á matreiðslu- námskeið án endurgjalds. Stærstir í gerd örbylgjuofna EKKERT AÐ HUGSA UM PERSÓNU AFSLÁ? T Skattar af verðbótum ogvöxtum Guðrún Guðmundsdóttir Reykjavík: Maður veitti syni sínum lán árið 1974 vegna íbúðarkaupa. Hann fékk það endurgreitt árið 1981, umreiknað miðað við sölugengi ríkistryggða skuldabréfa, 1975 1. fl. Því spyr ég: Þarf lánveitandi að greiða skatta af verðbótum og vöxtum? Svar: Reglur skv. núgildandi lögum eru þær að vextir og verðbætur eru ekki skattskyldar til tekna en geta hins vegar haft skerðandi áhrif á vaxtafrá- drátt ef hann er notaður. Vaxtatekjur eru ekki skattlagðar hjá þeim sem ekki stunda atvinnurekstur. Spurning: drátt? En fengi lántakandi frá- Svar: Lántakandi á almennt rétt á vaxtafrádrætti ef lán er veitt vegna íbúðakaupa. Að visu eru mörk á því. Heimilt er að draga frá vaxtagjöld af óverðtryggðum lánum í 3 ár, frá og Wieð kaupári ibúðar eða 6 ár frá og með byggingarári. Miðað við þær forsendur sem hér eru gefnar á lántakandi ekki rétt á vaxtafrádrætti á framtali 1982. Einkennis- f öt eru hlunnindi Haraldur Böðvarsson Reykjavík: Mig langar til að spyrja um einkennisfatnað sem atvinnurekandi llætur í té og launþegi er skyldugur að ganga í. Einnig hvernig standi á að þeir sem starfi hjá flugfélagi þurfi aðeins að telja sér einkennisfatnað til tekna að 'hálfu matsverði einkennisfatnaðar rn aðrir þurfi að telja slíkt frant á lúllu matsverði? Svar: Þetta eru hlunnindi sem ber að telja .fram. Hvað flugfólkið snertir hefur verið fallizt á lægra mat hjá því, þar sem vinnutími þeirra í einkennisfatnaði er styttri en annarra.” Sjáðu hvernig bakað er á 1 mínútu, matur hitaður á örskammri stund, hvernig krakkarnir geta poppað án þess að brenna sig eða eyðileggja pottana þína. Og sunnudags- lærið stiknar á 20—30 mínútum. TOSHIBA-örbylgjuofnarnir bjóða upp á stórkostlega mögu leika fyrir fjölskyldur, sem borða á mismunandi tíma, borða mismunandi fæði (megrun, magasjúklingar). Toshiba ofnarnir eru svo einfaldir og öruggir í notkun, að börn geta matreitt í þeim. Til Drafnar H. Farestveit, hússtjórnarkennara Einar Farestveit & Co. hf. Bergstaðastræti 10A. Guðmundur Ásmundsson, Kópa- vogi: — Það er i sambandi við persónu- afsláttinn. Þarf ég að draga hann sjálfur frá hcildarupphæðinni eða fylla hann út sjálfur á skýrsluna? ,,Þú þarft ekkert að ' ugsa um það. ” Guðmundur spur' t þá hvort það sama ætti við ef har.i veldi 10% frádráttinn. Hann fékl sama svar við því. Það yrði ger' við álagning- una. Hagkvæmasta I .iðin fyrir hann væri alltaf valin. Lög um sjómannafrádrátt miða við þann tima er sjómsður hefur laun af störfum á sjó,, 'þ.e. vinnur á skipi og hefur laun og aflahlut. Dagar á vegum útgerðar í landi eru hins vegar ekki taldir með. Toshiba ER669 Verð frá 5.560, Vinsamlega póstsendið frekari upplýsingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.