Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1982, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982.
Eru daggjöld
skattskyld?
Þór Áslþórsson, Hafnarfirrti:
í 15. grcin laga um þroskahefta
scgir að kjósi framfærandi að annast
sjálfur og hafa á heimili sinu þroska-
heftan einstakling skuli hann fá sem
svarar hálfum daggjöldum á meðal-
stofnun. Er þetta skattskylt?
Svar: Eigi verður séð að i iögum
eða reglugerð sé að finna heimild til
að undanþiggja skattlagningu
greiðslur þær eða slyrki er fyrir-
spurnin lýtur. Á það skal bent að i 2.
tölulið I. málsgr. 66. gr. skattalag-
anna er að finna heimild skattstjóra
til að veita ívilnun til framfærenda
þegar þeir hafa á sínum vegum
einstakling sem haldinn er langvinn-
um sjúkdómi eða fötlun. Telja
verður líklegt að skattstjórar líti svo á
að umræddar greiðslur eða styrkir
sanni að um slika framfærslu sé að
ræða og veiti þvi ívilnun cða gefi eftir
skatllagningti á hluta tekna með
heimild i umræddri 66. gr. Slík íviln-
un hefur áhrif á tekjuskatt, úlsvar og
sjúkratryggingagjald viðkomandi
framfæranda. Eyðublað til notkunar
í þcssu sambandi fæst á skattstofun-
um.
Grundvöllur
sjómanna-
frádráttar
Árni Ingólfsson, Aktireyri, spurði:
Hvað er lagt til grundvallar þegar
sjómaður fer fram á sjómannafrá-
drált?
Svar: I.ögin tala um að þctta skuli
ná yfir þann tima sem sjómaður
hefur laun af slörfum á sjó, þ.c.a.s.
vinnur á skipi og hcfur laun og afla-
hlut. Sama máli gcgnir sé sjómaður
veikur og heldur launum sínum á
meðan. Hins vegar eru ekki taldir
mcð dagar scm menn vinna á vegum
útgerðar i landi.______
Fæðisdagar
reiknaðirtiltekna?
Harpa Hansen, Kcl'lavik:
Sonur okkar sem var í svcil i sumar
og vann þar fyrir fæði sínu og
húsnæði, fékk sent yfirlit frá bónd-
antim yfir fjölda fæðisdaga. Reiknast
þetta okkur, foreldrum hans, til
tekna?
Svar: Þessa upphæð á að telja
fram i reit 26, b-2, á sérframtali fyrir
barnið. Siðan ber að færa tii frá-
dráttar á sama framtali 24 krónur
fyrir hvern rciknaðan dag og fcr það
undir liðinn ,,annar frádrállur”.
Tekjur barna, ef einhverjar eru, eru
skattlagðar sérstaklega með mjög
lágri skattpróscntu, svo mjög ólíklegt
cr að af þessu reiknist miklir skattar.
Eftirminnilegasti maður sem Islendingar hafa séð í sjónvarpinu, Gfsli á Uppsölum:
VILL EKKITAKA VID
AURUM FYRIR ÞÁTT1NN
Fáir menn hafa vakið eins mikla Ragnarsson sýndi svo eftirminnilega
athygli og umtal og gamli einsetu- í sjónvarpsþættinum sínum, Stiklum.
maðurinn, Gisli Gíslason, sem Ómar Gísli var aðalumræðuefnið manna
á meðal eftir að þátturinn var fyrst
sýndur á jólunum, og hefur sjálfsagt
verið á vörum enn fleiri eftir að
þátturinn var endursýndur á mið-
vikudagskvöldið.
Gamla manninum skaut svo upp á
stjörnuhimininn að hann var meðal
annars kosinn maður ársins hjá
mánaðarritinu Samúel og Ómar
Ragnarsson og samstarfsmenn hans
að gerð þessa þáttar hafa ekki haft
undan að svara spurningum fólks um
þennan merkilegan mann.
,,Það hafa ótal margir spurt mig
að því hvort Gísli hefði fengið fötin
sem hann talaði um að gott væri að
fá,” sagði Ómar i viðtali við DV.
„Þessa ósk sína hefur hann þegar
fengið uppfyllta. Annars skilja þeir
sem til hans þekkja ekkert í því að
hann skuli hafa verið að biðja mig
um föt. Þau fáu föt sem honum hafa
verið gefin um dagana hefur hann
hengt upp og þau fengið að hanga
þar til þau duttu niður af herðatrénu
vegna fúa.”
Ómar sagði að Gísli hefði haft
mjög djúp áhrif á sig persónulega.
„Sérstaklega fannst mér áhrifamikið
hvað hann var sáttur við tilveruna.
Mér fannst hann hafa miklu meira að
gefa mér en ég honum.”
Gísli á rétt á að fá greiðslu fyrir að
koma fram i sjónvarpinu eins og allir
aðrir. Sjónvarpið er aftur á rnóti i
hinum mestu vandræðum með hvaða
hætti þeir eigi að borga honum. Gísli
vill nefnilega ekki sjá peninga.
Það hefur þvi komið til tals að gefa
honum ný gleraugu en hann er með
áratugagömul gleraugu af einhverj-
um manni sem er löngu látinn. Koma
þau honum orðið að litlu sem engu
gagni. Mun i bígerð að Ómar og
Úlfar Þórðarson augnlæknir fari
vestur og eftir það vcrði útbúin ný
gleraugu sem Gísla verði send og
sjónvarpið borgi.
Ómar sagðist ekki eiga neina aðra
ósk til handa þessum gamla manni en
að hann verði látinn í friði það sem
hann á eftir ólifað. „Það væri
fólskuverk að gera honum einhvern
átoðning eða fara að setja hann inn á
einhverja stofnun eða hæli. Þessi
maður þarf og vill fá að ráða því
sjálfur hvað hann gerir og við hverja
hann vill ræða,” sagði Ómar.
Til marks um það hvað Gísla er
lítið gefið um heimsóknir fólks, er að
þegar Árni Johnsen blaðamaður
heimsótti hann fyrir um 5 árum sagði
hann um leið og hann kvaddi að hann
myndi kannski líta við hjá honum
siðar um haustið. „Æ nei, gerðu það
nú ómögulega, það truflar mig svo
mikið við heyskapinn,” sagði þá sá
gamli og bandaði frá sér nteð hend-
inni um leið. . .
-klp-
VERÐUR PETURSTORG
í NÝJ A MIÐBÆNUM?
— hugmynd um að skíra eftir borgarst jórum
strandar á Knud Zimsen
Sjónvarpsstjarnan númer 1. .. Gísli Gíslason á Uppsölum. Gefur Islenzka sjón-
varpið honum ný gleraugu fyrir að koma fram i Stiklum?
DV-mynd Ómar Ragnarson.
„Jú, það er rétt að ég lagði til að
götur og torg i nýja miðbænum í
Kringlumýri yrðu nefndar eftir borgar-
stjóruni Reykjavikur,” segir Gunngeir
Pétursson, skrifstofustjóri bygginga-
fulltrúa Reykjavíkur i samtali við DV.
Hann kvaðst hafa stungið upp á að
hver borgarstjóri léði nafn sitt á eitt
stræti eða eitt torg og yrði byrjað á
þeim fyrsta. Það var Páll Einarsson
sem kosinn var fyrsti borgarstjórinn, 7.
mai 1908.
Gunngeir sagði að hugmyndin hefði
strandað á Knud Zimsen, sem stýrði
borginni i kringum 1930. Hefði
mönnum þótt óviðeigandi að brúka
dönsk nöfn og að minnsta kosti viljað
hugsa málið belur.
Það er því ekki útilokað að götur og
torg hins nýja miðbæjar beri nöfn eins
og Geirsgata, Bjarnabraut, Auðartorg
og jafnvel Péturstorg.
-JB.
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði " Svo mælir Svarthöfði
Loks fundið land við hæf i
Loks hafa íslensku ríkisfjölmiðl-
arnir fundið land við hæfi. Þelta land
veitir þeim kærkomið tækifæri lil að
flytja fréltir ,,með halla", eins og
þeim einum er lagið, sem hafa köllun
að gegna. I.engi hafa okkur borisl
sjónvarpsfréltir ásamt meðfylgjandi
myndaefni frá breskri sjónvarps-
fréllastofnun, og hefur allt það efni
verið réttlætt með þvi að það væri frá
Brellandi. Þessi breska fréllastofnun
er nú ekki merkilegri en það né með
hreinni skjöld en svo, að hún gæti alll
eins verið kostuð af KGB, svona
ámóta og Voice of America er kostuð
af Bandaríkjamönnum lil að reka
nokkur tryppi á Austur-Evrópu.
Sveitamönnum á íslandi, og þó sér-
slaklega á ríkisfjölmiðlunum, er
alveg nóg að vitna lil fréttastofunnar
Visnews til að réttlæta hvaða bull
sem er, einungis vegna þess að þetta
hnII er kennl við Brelland.
Og nú hafa samræmdar aðgerðir
leitt af sér merkilegan landafund,
sem er uppgötvun á ríkinu El Salvdor
og þeirri brúnu stjórn, sem þar fer
með völd gegn hluta almennings. Þar
linnir að sönnu ekki hryðjuverkum,
og Bandaríkjamenn, sem telja Suður-
Ameríku til áhrilasvæðis, hafa lent í
þeirri ógæfu að styðja þessa brúnu
stjórn. Við höfum að visu ekkert bréf
upp á, að Bandaríkjamenn skuli
hreinflífari en önnur stórveldi, en
kostulegur er þessi málarekslur gegn
Bandaríkjunum út af einu smáriki á
sama tíma og stórfelldasta gjaldþrot
bolsévika blasir við öllum heimi bæði
á efnahags og yfirráðasviði. El Salva-
dor virðist ciga að réttlæta innrás og
eiturhernað í Afganistan og herlög
gegn almcnningi í Póllandi.
Slofnun sem heitir Amnesty Inter-
natioanl og þykist hafa yfir sér nokk-
urn virðuleikablæ, virðist ekki
undanskilin þeim „halla”, sem kom-
inn er i kappræður um merkilegheitin
i heimsveldunum. Þar lúta íslenskir
sveitamenn sömu lögmálum og ríkis-
fjölmiðlar, og sjá nú hvergi fang-
clsanir nema í Suður-Ameríku.
Kannski Gulagið hafi verið lagt
niður, eða þær fangabúðir, sem nú er
verið að koma upp i Póllandi.
Stundum skilur maður ekki við
hverja er verið að tala hér á útnár-
anum. Það er t.d. ekki iengur minnsl
á Nicaraqua, þar sem einræðisherra
var hrakinn frá völdum við mikið lof
Visnews og ríkisfjölmiðla. Ekki
hefur verið sagt frá því nema í fram-
hjáhlaupi, að þar rikir nú einn
flokkur og eins flokks stjórn, sem
hefur samkvæmt Póllandsreglunni
svona 2% fólks á bak við sig. Við
höfum enga langa sjónvarpsþætti
fengið frá þessu landi siðan rauða
„lýðræðið” tók við völdum.
Kannski Visnews- menn hafi verið
sendir lieim. A.m.k. virðast islensku
fjölmiðlarnir vera ákaflega sátlir við
nýju sljórnina í Nicaraqua.
Það er að vísu leitl að Bandaríkja-
stjórn skuli helst ekki finna neina
bandamenn í Suður-Ameriku nema
brúnar einræðisstjórnir. Þessar
stjórnir gera þeir að bandamönnum
sínum til að koma i veg fyrir rautl
einræði. Svona fáránlega grófgert cr
mynstur stjórnmála í þessum heims-
hluta. En þeir hafa ekki enn farið
mcð her manns inn í El Salvador, og
þeir föru ekki með her manns inn í
Nicaraqua. Aflur á móti fóru Sovél-
rikin með her manns inn í Afganistan
og reka nú eiturhernað þar gegn al-
menningi. Kvikmynd um þennan
eiturhcrnað hefur verið sýnd i sæmi-
lega frjálsum löndum. Hún fæsl
aftur á móti ekki sýnd á íslandi,
vegna þess að Visnews þarf að
komasl að með efni frá El Salvador.
Segi menn svo að það skipti ekki ein-
hverju máli að hafa áttatíu starfs-
menn á fullu i rússneska sendiráðinu
og innlenda fulltrúa á hlaupum milli
fréttastofa að auki.
Svarthöfði