Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1982, Side 8
28
DAGBLADID& VÍSIR. MÁNUDAGUR 22. MARZ 1982.
íþróttir j iþrótti ir j íþróttir j íþróttir íþróttir
Graham Roberts
á skotskónum...
— skoraði „Hat-trick” þegarTottenham lagði Dýrlingana
f rá Southampton að velli
Graham Roberts var hetja Totten-
ham, þegar Lundúnarliðið lagði Dýrl-
ingana frá Southampton að velli 3:2 á
White Hart Lane, þar sem 46.827
áhorfendur sáu þennan 22 ára leik-
mann, sem er fæddur í Southampton,
skora öll mörk Tottenhum ,,Hat-
trick” Þetta er í fyrsta skipti sem Ro-
berts skorar þrjú mörk í kik. — Það
var stórkostlegt að skora þrjú mörk
gegn liðinu, sem var í efsta sæti. Við
vorum þreyttir — eftir erfiðan leik gegn
Liverpool á Wembley og mjög erfiðan
leik i Evrópukeppninni í Frankfurt.
Þess vegna hafði það góð áhrif á okkur
að sjá knöttinn hafna þrisvar sinnum í
netinu hjá Southampton, sagði Robert
eftir leikinn.
— Við vorum þó aldrei búnir að
bóka sigur gegn Southampton — vor-
um þess minnugir, að síðast þegar við
lékum gegn þeim hér á White Hart
Lane, vorum við yfir 4:2 þegar 5 mín
voru til leiksloka. Þá tókst Southamp-
ton að jafna 4:4, sagði Roberts.
Roberts skoraði fyrsta markið með
skalla á 30. mín. — eftir sendingu
Hoddle, og síðan var hann aftur á ferð-
inni á 31. mín. Tony Glavin tó þá horn-
spyrnu og sendi knöttinn til Roberts,
sem skoraði með góðu skoti. Hann var
svo nálægt því að bæta tveimur mörk-
um við rétt á eftir — átti skalla í slá og
skalla rétt fram hjá.
Það var í upphafi seinni hálfleiksins,
að Roberts skoraði sitt þriðja mark —
3:0. Glenn Hoddle og Steve Archibald
léku þá skemmtilega í gegnum vörn
Southampton, sendu knöttinn til Ro-
Við þetta tvíefldust leikmenn
Southampton. Kevin Keegan og Mike
Channon voru í vígamóð og Dave
Armstrong lék á fullu, þannig að varn-
arleikmenn Tottenham og Ray
Clemence máttu hafa sig alla við til að
verjast því að Southampton næði að
jafna metin. Þreyttir leikmenn Totten-
ham náðu að verjast og það er óhætt að
segja að heppnin hafi verið með þeim
undir lokin.
Liðin sem léku, voru skipuð þessum
leikmönnum:
Tottenham: — Clemence, Hughton,
Miller, Price, Hazard, Perryman, Ro-
berts, Archibald, Galvin, Hoddle og
Villa.
Southampton: — Katalinic, Ag-
boola, Holmes, Baker, Nicholl, Waldr-
en, Keegan, Channon, Williams Arm-
strong og Ball (Puckett).
-sos
Rimmer réð ekki
við þrumufleyga
frá Wark og McCall
— og Ipswich vann öruggan sigur 3:1 yf ir Aston Villa
• John Wark — skoraói 1000. mark
enskn 1. deildarkeppninnar i ár.
berts, sem skoraði með góðu skoti af 17
m færi. Þessi baráttulagði leikmaður,
féll niður á hné og fagnaði og 46.827
áhorfendur tóku þátt i fögnuði hans.
Það var á því augnabliki sem það rann
upp fyrir mönnum hvers vegna Roberts
lék þennan leik. Það var vegna þess að
Argentínumaðurinn Ardiles var
meiddur.
Þegar Roberts skoraði þriðja mark-
ið, virtist allt vera búið fyrir Southamp-
ton. Dýrlingarir voru þó ekki á þeim
buxunum að gefast upp. Graham Bak-
er minnkaði muninn i 3:1 og rétt á eftir
varði Ray Clemence, markvörður
Tottenham, meistaralega skot frá
Kevin Keegan. Clemence náði að slá í
knöttinn, sem hörkk i þverslána og aft-
ur fyrir mark.
Southampton.
Dave Armstrong náði síðan að skora
annað mark eftir sendingu Keegan.
URSLIT
Úrslit urðu þessi í ensku knattspyrn
unni á laugardaginn:
l.deild:
Coventry—Arsenal 1:0
Ipswich—Aston Villa 3:1
Leeds—Nott. For. 1:1
Liverpool—Sunderland 1:0
Man. City—Everton 1:1
Middlcsb.—West Ham 2:3
Nolls C.—Man. Uld. 1:3
Stoke—Brighton 0:0
Tottenham—Southampton 3:2
W.B.A.—Birmingham 1:1
Wolves—Swansea 0:1
2. deild:
Bollon—Norwich 0:1
Cardiff—Cambridge 5:4
Chelsea—Rotherham 1:4
C. Palace—Lulon 3:3
Grimsby—Derby 1:0
Newcastle—Oldham 2:0
Q.P.R.—Charlton 4:0
Sheff. Wed.—Leicester 2:0
Watford—Shrewsbury 3:1
Wrexham—Blackburn 1:0
3. deild: Bristol R.—Doncasler 3:0
Burnley—Brentford 0:0
Carlisle—Newporl 2:2
Chesterfield—Brislol C. 1:0
Ex ter —Wimbleton 2:1
Lincoln—Oxford 2:1
Millwall—Huddlesfield Plymouth—Walsall 4:1
Portsmouth—Fulham 1:1
Reading—Cester 4:1
Swindon—Gillingham 0:1
4. deild:
Blackpool—Sheff. Uld. 0:1
Bournemouth—Tranmere 1:1
Halifax—Crewe 2:1
llartlepool—Aldershot 2:2
Hereford—York 3:1
Hull—Port Vale 3:1
Mansfield—Stockport 2:2
Northampton— Bury 1:0
Petersbrough—Scunthorpe 2:1
Rochdale—Darlington 3:2
Wigan—Colchester 3:2
Englandsmeistarar Aston Villa áttu
aldrei möguleika gegn Ipswich á Port-
man Road, þar sem leikmenn Ipswich
léku við hvern sinn fingur og unnu
öruggan sigur 3:1. Varnarmenn Aston
Villa höfðu nóg að gera og á 25. min
skoraði John Wark 1000. markið i
ensku knattspyrnunni á þessu keppnis-
tímabili. Wark skoraði með þurmu-
skoti af 18 m færi sem Jimmy Rimmer,
markvörður Aston Villa, átti ekki
möguieika á að verja.
Rimmer réð síðan ekkert við skot
frá Steve McCall sem lék sinn 100 leik
fyrir Ipswich. McCall skoraði með
þrumufleyg af 25 m færi — hans fyrsta
mark á keppnistímabilinu. Leikmenn
Ipswich bættu síðan þriðja markinu við
fljótlega i seinni hálfleik. Alan Brasil
komst þá inn fyrir vörn Aston Villa og
hættu leikmenn liðsins þá, þar sem þeir
töldu Brasil rangstæðan. Brasil skaut
skoti, sem Rimmer varði — hann hélt
ekki knettinum hrökk hann til Eric
Gates sem skoraði 3:0. Það varsvoKen
McNaugh sem skoraði mark Aston
Villa.
Svanirnir á toppinn
Strákarnir hans John Toshack,
skutust í þriðja sinn í vetur upp á
toppinn í 1. deildarkeppninni. Þeir
náðu að leggja Úlfana að velli — 1:0.
Ian Walsh, sem lék sinn fulla leik fyrir
Swansea, skoraði sigurmarkið á 35.
mín og var það afar glæsilegt. Alan
Curtis lék þá á hinn unga Robert Coy
hjá Úlfunum og sendi knöttinn fyrir
markið, þar sem Ian Walsh var á
réttum stað og skoraði hann með óverj-
andi skalla — kastaði sér fram og skall-
aði knöttinn fram hjá Paul Bradshaw,
markverði Úlfanna. Sterkur varnar-
leikur Swansea, kom síðan í veg fyrir
að Úlfarnir næðu að jafn metin.
Coppell og Wilkins
fóru á kostum
Mancehster United vann góðan sig-
ur, 3:1, yfir Notts County í Nott-
ingham, þar sem ensku landsliðsmenn-
irnir Steve Coppell og Ray Wilkins,
sem var hreint frábær, fóru á kostum
og réðu leikmenn County ekkert við
þá. Coppell skoraði tvö mörk og það
þriðja skoraði Frank Stapelton með
skalla. Gary Bailey, markvörður Uni-
• Trevor Francis
ted varði oft mjög vel, en hann réð þó
ekki við skalla frá Rachid Harkouk á
80.mín.
Rush skoraði fyrir
Liverpool
Leikmenn Sunderland veittu ,,Rauða
hernum” frá Liverpool harða keppni á
Anfield Road og mátti Bruce Grobbel-
aar, markvörður Liverpool oft taka á
honum stóra sínum, til að koma í veg
fyrir að Sunderland skoraði. Það var
lan Rush sem skoraði mark Liverpool á
14. mín., eftir undirbúning þeirra
Graeme Souness og Sammy Lee.
Francis rekinn af
leikvelli
Enski landsliðsmaðurinn Trevor
Francis var rekinn af leikvelli í fyrsta
sinn á keppnisferli sínum, þegar Man-
chester City lék gegn Everton á Maine
Road. Francis var rekinn af leikvelli á
43. mín., eftir að honum hafði lent
saman við Billy Wright, miðvörð Ever-
ton — og léku leikmenn City því aðeins
10 í seinni hálfleik.
Leikurinn var mjög góður — hrað-
inn gífurlegur og fjörið eftir því. Eftir
aðeins 5 mín. var knötturinn komin í
netið hjá City. Það var Adrian Heath,
sem skoraði markið, eftir góðan undir-
búning Graeme Sharp. Kevin Bond
náði siðan að jafna metin, 1:1, stuttu
síðar. Leikmenn Everton sóttu mun
meira í seinni hálfleik, en þeir náðu þó
ekki að knýja fram sigur gegn 10 leik-
mönnum City.
Lélegt á High-
field Road
Það var ekki hægt að hrósa leik-
mönnum Coventry og Arsenal fyrjr leik
þerra á Highfield Road í Coventry, þar
sem heimamenn unnu 1:0. Arsenal
fékk aðeins eitt tækifæri í leiknum —
Paul Davies skaut í stöng. Mark
Hateley skoraði mark Coventry með
skalla eftir fyrirgjöf frá Tom English.
Það var hans 12. mark á keppnistíma-
bilinu og hefur hann skorað helmingi
fleiri mörk en markhæsti leikmaður
Arsenal sem er Alan Sunderland.
V-Þjóðverjinn Jurgen Ruber skoraði
mark Forest gegn Leeds, en Frank
Worthington jafnaði úr vitaspymu.
Alister Robertson skoraði fyrir
W.B.A. gegn Birmingham. Kevin
Broadhurst var rekinn af leikvelli fyrir
að brjóta gróflega á Nicky Cross og
þótt leikmenn Birmingham lékjuaðeins
10, náðu þeir að jafna metin 1:1. Tony
Evans skoraði markið á 83. mín.
Belgíumaðurinn Van der Elst og
Paul Goddart komu West Ham yfir 0:2
gegn „Boro”, en þeir Tony McAndrew
og Billy Ashcroft náðu að jafna metin.
Paul Goddart skoraði síðan sigurmark
(2:3) „Hammers” á 89. mín.
Þá brosti Elton John
Watford vann öruggan sigur 3:1 yfir
Shrewsbury og brosti popparinn Elton
John þá breitt. Það voru þeir Luther
Blissett (2) og Ross Jenkins sem
skoruðu mörk liðsins.
Luton varð að sætta sig við jafntefli í
London — 3:3. Raddy Antic, David
Moss og Brian Stein skoruðu mörk
liðsins, en þeir Neil Smillie (2) og Kvein
Mabutt skoruðu fyrir C. Palace.
Garry Bannester og John Pearson
skoruðu mörk Sheff. Wed. Clive Allan
skoraði „Hat-trick” — þrjú mörk fyrir
Q.P.R. David Mills og John Brownlie
skoruðu mörk Newcastle gegn Old-
ham.
Rotherham vann stóríigur 4:1 yfir
Chelsea á Stamford Bridge í London.
Það var Peter Rhoades-Brown sem
skoraði fyrir Chelsea en þeir Billy
Ewan, Ronnie Moore (2) og Tony
Townes skoruðu fyrir Rotherham.
-sos
1. DEILD
Swansea 30 17 5 8 44—34 56
Southampton 32 16 7 9 55—45 55
Man. Utd. 29 15 8 6 43—22 53
Liverpool 28 15 6 7 52—24 51
Ipswich 28 16 3 9 51—39 51
Arsenal 30 14 8 8 25—21 50
Tottenham 25 15 4 6 45—25 49
Man. City 31 13 10 8 44—33 49
Brighton 30 11 12 7 34—30 45
Nott. For. 30 11 11 8 32—34 44
West Ham 29 10 12 7 49—39 42
Everton 30 10 11 9 37—35 41
Aston V. 30 9 10 11 36—40 37
Notts. C. 29 9 7 13 42—45 34
Stoke 31 9 6 16 32—46 33
W.B.A. 26 7 11 8 31—29 32
Coventry 31 8 7 16 38—52 31
Birmingh. 28 6 10 12 39—44 28
Leeds 28 7 7 14 22—41 28
Wolves 31 7 6 18 19—49 27
Sunderland 29 5 7 17 20—42 22
Middlesb. 29 3 10 16 21—42 19
2. DEILD
Luton 29 17 8 4 59—32 59
Watford 31 17 8 6 55—33 59
Sheff. Wed. 32 15 8 9 43—37 53
Rotherham 32 16 4 12 48—36 52
Balckburn 32 14 9 9 39—28 51
Newcastle 30 14 6 10 38—29 48
Q.P.R. 30 14 5 11 40—30 47
Oldham 32 12 10 10 38—38 46
Charlton 32 12 10 10 44—45 46
Barnsley 30 13 6 11 42—31 45
Leicester 28 12 8 8 38—31 44
Norwich 31 13 5 13 40—42 44
Chelsea 30 12 6 12 42—43 42
Cambridge 30 10 6 14 35—39 36
Derby 31 9 7 15 41—57 34
C. Palace 27 9 6 12 23—28 33
Boiton 32 9 5 18 27—43 32
Shrewsb. 29 7 10 12 26—40 31
Wrexham 29 8 6 15 26—38 30
Orient 28 8 6 14 25—38 30
Cardiff 30 8 5 17 30—45 29
Grimsby 27 5 10 12 27—43 25