Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1982, Side 2
22
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1982.
^ fjj/eraugnadeildin
Austurstræti 20 — Sími 14566
Trésmiðir óskast
UppL í síma 81935
milli k/. 8 og 16.
ístak hf.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Eigum ávallt f yrir-
liggjandi á lagcr
Gallabuxur 141/2 oz,
stærðir 25—42, vorð kr. 283,50.
Flauolsbuxur,
stærðir 30—42, vorð kr. 326,-
Barnabuxur,
stærðir 4—14, vorð kr. 203,-
Sumarbuxur, 65% polyostcr & 35% bómull,
stærðir 30—42, vcrð kr. 341,-
Smáraborg Vöruhúsið
Hamraborg 14 Kópavogi. Trönuhraun 6 Hafnarfirði.
Sími 46080. Sími 51070.
íþróttir
íþrótt
íþrótt
Bayern hef ur ekki
unnið í Frankf urt í
tólf ár
Þjálfari Frankf urt var búinn að lofa sigri
fyrirleikinn
Frá Viggó Sigurðssyni — frétta-
manni DV i V-Þýzkalandi: Lothar
Buchmann, þjálfari Frankfurt, lof-
aðl þvi, fyrir leik Frankfurt gegn
Bayern Miinchen, að lelkmenn
Bayem myndu ekki riða feitum hesti
frá Frankfurt. Buchmann og Paul
Breitner, fyrirliði Bayern, eru erki-
fjendur, eftir að þeim lenti saman hér
f blaðaskrifum f vetur. Buchmann
sagði þá að Breitner væri ekki eins
góður leikmaður og hann væri
sagður. Sagði hann að Breitner væri
uppskrifaður f blöðunum og fleira f
þeim dúr. Breitner svaraði með þvf
að segja, að Buchmann væri léiegur
þjálfari — og lið undir hans stjórn
næði aldrei árangri.
Buchman stóð við loforð sín, því
að Frankfurt vann sigur 4—3 í mjög
skemmtilegum leik — einum þeim
bezta, sem hefur verið leikinn í 1.
deildarkeppninni í vetur. Bayern
hefur ekki unniö sigur í Frankfurt i
12 ár.
Leikmenn Frankfurt komust í 2—0
STAÐAN
Staðan er nú þessi í 1. deildar-
keppninni i V-Þýzkalandi:
Hamburger 27 15 8 4 77—34 38
Bayern 27 17 3 7 66—40 37
Köln 28 15 7 6 54—25 37
Dortmund 28 15 4 9 50—33 34
Bremen 27 12 8 7 43—38 32
„Gladbach”28 12 8 8 48—43 32
Kaiserslaut 27 11 9 7 54—47 31
Stuttgart 28 12 7 9 51—42 31
Braunschw 28 14 3 11 52—46 31
Frankfurt 28 12 2 13 68—64 28
Bochum 28 10 7 11 41—40 27
Bielefeld 28 9 5 14 32—41 23
Nurnberg 28 9 5 14 40—62 23
Karlsruhe 28 8 6 14 41—54 22
Dusseldorf 28 6 9 13 41—61 21
Leverkusen 28 7 5 16 37—64 19
Dulsburg 28 7 3 18 34:62 17
Darmstadt 28 4 i 9 15 35:65 17
með mörkum frá Norbert Nachteih
og Bruno Pezzey — þeir skoruðu
báöir með skalla. Paul Breitner
minnkaði muninn í 2—1 á 36. mín.
og síðan jafnaði Karl-Heinz Rumme-
nigge með skalla á 46. min. Karl-
Heinz Körbel skoraði síðan (3—2)
með skalla fyrir Frankfurt, en Klaus
Augenthaier jafnaði 3—3 á 76. mín.
Það var svo Harlad Karger sem
skoraði sigurmark Frankfurt á 86.
mín. —meðskoti af 10 m færi.
Kaltz skoraði tvö
Hamburger SV vann sigur 3—1
yfir Bielefeld. Manfred Kaltz skoraði
tvö mörk úr vítaspyrnum fyrir Ham-
burger og lagði síðan upp mark, sem
Thomas von Heesen skoraði. Felix
Magath lék að nýju með Hamburger.
Úrslit urðu annars þessi í 1.
deiidarkeppninni í V-Þýzkaiandi:
Dortmund—Werder Bremen 1 —0
Frankfurt—Bayern 4—3
Köln—Leverkusen 5—2
Braunschweig—Karlsruhe 0—0
Stuttgart—Bochum 3—0
Kaiserslaut.—DUsseldorf 1—1
Hamburger—Bielefeld 3—1
Duisburg—„Gladbach” 0—1
Nurnberg—Darmstadt 1—1
Woodcock með þrennur
Englendingurinn Tony Woodcock
skoraði þrjú mörk — á26., 32. og60.
mín. fyrir Köln og átti hann mjög
góöan leik. Rainer Bonhof og Gerd
Strack skoruðu hin mörkin — 5—0.
Þeir Arne-Larsen Ökland og Jurgen
Gelsdorf náðu síðan að minnka mun-
inn fyrir Leverkusen.
Frank Sabrowski varð fyrir því
óhappi að skora sjálfsmark og
tryggja Borussia Mönchengladbach
sigur 1—01 Duisburg.
Atli Eðvaldsson lék siðustu 10 mín.
með Fortuna Dússeldorf þegar
félagið náði jafntefli I Kaiserslautern
— 1—1. Erhard Hofeditz skoraði
mark heimamanna beint úr auka-
spyrnu af 22 m færi á 4. mín. og
aðeins mln. síðar voru Ieikmenn
• Tony Woodcock — skoraði þrjú
mörk fyrir 1. FC Köln.
Ðílsseldorf búnir að jafna — Rudiger
Wenzel. Atli fékk gulliö tækifæri til
að skora rétt fyrir leikslok en honum
brást bogalistin.
Dieter Mtlller og Diter Six (2)
skoruðu mörk Stuttgart og Manfred
Burgsmuller tryggði Dortmund sigur
gegn Bremen — 1—0.
-Viggó / -SOS.
Pezzey til
Bayern?
Pal Csernai, þjálfari Bayern
Miinchen, var þungorður eftir tap
Bayern í Frankfurt. Hann skellti
skuldinni á Walter Junghans, mark-
vörð og Bertram Beierlorzer og sagði
að Bayern þyrfti nú að fá nýjan
„sweeper” I staðlnn fyrlr Beierlorzer.
Sá orðrómur er nú uppi að Bayern
kaupi Austurrikismanninn Burna
Pezzey frá Frankfurt á 2,8 milljónir
marka, sem yrði þá metupphæð í V-
Þýzkalandi. Þannig tölur hafa aðeins
þekkzt á ftalíu og á Spáni. Pezzey er
miðvörður. -Viggó/-SOS.
Tviburabræðurnir Pétur og Ingi Þór glfmdu úrslitaglimu.
Grosswallstadt fékk skell
• St. Gallen frá Sviss gerði sér litið
fyrir og sló út Grosswallstadt f
Evrópukeppni meistaraliða, þegar
Svisslendingarnir unnu góðan sigur
18—17 i sfðari leik llðanna, sem fór
fram i V-Þýzkalandl f gær. Svisslend-
ingarnir unnu fyrri leikinn 16—15.
Allt bendir til að St. Gallen mæti
Honved frá Ungverjalandi i úrslitum.
— Leikmenn St. Gallen léku mjög
vel og góöan handknattleik og það er
greinilegt að Svisslendingar eru að
eignast snjalia handknattleiksmenn-
sem við veröum að hafa gætur á í B-
keppninni I HoIIandi næsta vetur,
sagði Viggó Sigurðsson.
Gummersbach vann sigur yfir
Wintertour frá Sviss I undanúrslitum
IFH-bikarkeppninni 24—12 og leikur
Gummersbach því til úrslita. -SOS.
Pétur
fékk
Gretfe-
beltið
— þegarhannlagði
tvíburabróður sinn Inga
Þórað velli íaukaglímu
Pétur Yngvason tryggði sér Grettis-
beltlð, þegar hann lagði bróður sinn
Inga Þór Yngvason i úrslitaglimu i fs-
landsglimunni, sem fór fram á Húsavik
á laugardaginn. Þeir tvfburabræður
voru jafnir með 6 vinninga og þurftu
þvf að glfma til úrslita og vann Pétur þá
í mjög skemmtilegri glfmu.
Þingeyingurinn Eyþór Pétursson
varð í þriðja sæti og unnu Þingeyingar
því þrefalt. Eyþór og KR-ingurinn Árni
Þór Bjarnason voru jafnir með 4.5
vinninga og þurftu þvi að glíma auka-
glímu um þriðja sætiö, en Eyþór vann.
-SOS