Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 30. APRÍL1982. 21 HELGARDAGBÓK Laugardagur 1. maí 16.00 Könnunarferðin. Sjötti þáttur endursýndur. 16.20 iþróttir. Umsjón: Bjarni Felixson. 18.30 Riddarinn sjónumhryggi. 23. þáttur. Spænskur teiknimynda- flokkur. Þýðandi: Sonja Diego. 18.55 Enska knattspyman. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Löður. 56. þáttur. Bandarískur gamanmyndaflokkur. Þýðandi: Ellert Sigurbjörnsson. 21.05 Dans í 60 ár. Hermann Kagnar Stcfánsson stjórnar dansfiokki sem sýnir þróun dans i 60 ár. Stjórn upptöku: Tage Ammendrup. 21.30 Eurður veraldar. Niundi þáttur. Gátur i grjóti. í þessum þætti er reynt aö ráöa gátu stein- hringanna miklu í Bretlandi t.a.m. Stonehenge. Þýðandi og þulur: Ellert Sigurbjörnsson. 21.55 Sveitastúlkan. (The Country Girl). Bandarísk bíómynd frá árinu 1954. Leikstjóri: George Seaton. Aðalhlutverk: Bing Crosby, Grace Kelly, William Holden. Leikstjóra vantar mann í hlutverk í leikrit á Broadway. Hann hefur augastað á leikara sem hefur komið sér út úr húsi víða annars staðar vegna óregl.u. Þýðandi: Björn Baldurs- son. 23.35 Dagskrárlok. Sunnudagur 2. maí 18.00 Sunnudagshugvekja. 18.10 Stundin okkaj. I Stundinni okkar að þessu sinni verða viðtöl við börn í Hólabrekkuskóla og Klébergsskóla um mataræði í' hádeginu. Sýnd verður teiknimynd um Felix og orkulindina og teikni- saga úr dæmisögum Esóps. Kennt verður táknmai og nyr nusvöröur kemur til sögunnar. Börn í Hlíða- skóla sýna leikatriði og trúður kemur í heimsókn. Umsjón: Bryndís Schram. Stjórn upptöku: Elín Þóra Friðfinnsdóttir. 19.00 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Sjónvarp næstu viku. Umsjón: Magnús Bjarnfreðsson. 20.45 Leiklist á landsbyggðinni. Áhugamenn um leiklist á Islandi eru fjölmargir og leggja af mörkum ómælt starf i þágu hennar víðs vegar um landið. I þessum þætti er skyggnst bak við tjöldir, hjá Litla Ieikklúbbnum á ísafirði. Könnuð eru viðhorf bæjarbúa og bæjarstjórnar við starfseminni. Rætt er við formann leikklúbbsins, leikara og maka. Umsjón: Helga Hjörvar. Stjórn upptöku: Maríanna Friðjónsdóttir. 21.35 Bær eins og Alice. iFimmti þáttur. Þýðandi: Dóra Hafsteinsdóttir. 22.25 Blisið á þakinu. Bandaríski trompetleikarinn Joe Newman leikur i sjónvarpssal ásamt Kristjáni Magnússyni, Friðrik Theódórssyni og Alfreð Alfreðssyni. Stjórn upptöku: Tage Ammendrup. 22.55 Dagskrárlok. Mánudagur 3. maí 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Tommiog Jenni. 20.40 Prýðum landið, plöntum trjám. Fjórði þáttur. 20.45 Iþróttir. Umsjón: Bjarni Felixson. 21.20 Alveg á réttum tima. Breskt sjónvarpsleikrit. Leikstjóri: Lyndall Hobbs. Aðalhlutverk: Rowan Atkinson, Nigel Hawthorne, Peter Bull og Jim Broadbent. Bernard fær þær fréttir að hann þjáist af sjald- gæfum blóðsjúkdómi og eigi aðeins hálftíma eftir ólifaðan. En Bernard ætlar að nýta hverja einustu sekúndu. Þýðandi: Ragna Ragnars. Komkaupmennimir hartir fræðslu- mynd, sem sýnd verður á mánu- dogskvötd og fjaliar um fimm kornsölufyrirtæki sem eru nœr einráð é markaðnum. Verður hún sýndkl. 21.55. 21.55 Kornkaupmennirnir. Kana- dísk fræðslumynd. Korn er einhver mikilvægasta nauðsynjavara, jafn- vel mikilvægari en olía. Fimm kornsölufyrirtæki í eigu sjö fjölskyldna eru nær einráð á korn- mörkuðum heimsins. í myndinni er lýst starfsháttum fyrirtækjanna og því valdi sem yfirráð yfir korn- mörkuðunum veitir. Þýðandi og þulur: Gylfi Pálsson. 22.55 Dagskrárlok. Þriðjudagur 4. maí 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. ,20.35 Bangsinn Paddington. Átt- undi þáttur. Þýðandi: Þrándur Thoroddsen. Sögumaöur: Margrét Helga Jóhannsdóttir. 20.40 Fornminjar á Biblíuslóöum. Fimmti þáttur. Landið sem flaut i mjólk og hunangi. Leiðsögu- maður: Magnús Magnússon. Þýðandi: Guðni Kolbeinsson. 21.20 Hulduherinn. Sjötti þáttur. Sporðdreklnn. Líflína þarf að koma hópi flóttafólks undan Þjóðverjum, en í hópnum leynist njósnari Þjóðverja. Þýðandi: Kristmann Eiösson. 22.10 Fréttaspegill. Umsjón: Guðjón Einarsson. 22.45 Dagskrárlok. Sjónvarp Sjónvarp LEIKUST k LANDSBYGGÐINNI—sjónvarp sunnudag kl. 20,45: Af starfi Bandalags íslenzkra leikfélaga Á sunnudagskvöld verður sýndur í sjónvarpinu þáttur um Bandalag ís- lenzkra leikfélaga en leiklist stendur nú í miklum blóma í mörgum lands- hlutum, ekki síður en í Reykjavik. I bandalaginu eru fjölmörg aðildarfé- ilög en framkvæmdastjóri þess er HelgaHjörvar. Hún ákvað að fara í heimsókn með sjónvarpslið eitthvað út á lands- byggðina. Fyrir valinu varð ísafjörð- ur vegna þess að þar var verið að frumsýna nýtt íslenzkt verk, Úr aldarannál eftir Böðvar Guðmunds- son. Var litið inn á æfingar Litla leik- klúbbsins, eins og ísfirzkir leikarar kalla sig. Auk þess var talað við ýmsa sem þessum málum tengjast, hvort sem þeir leika sjálfir, eru kvæntir eða giftir inn í leikhópinn, eða áhorfend- ur og /eða útsvarsgreiðendur. Stjórnandi upptöku er Maríanna Friðjónsdóttir. Litli leikklúbburinn á ísafirði sýndi i fyrra Halelúja eftir Jónas Árnason og er myndin af þcirri sýningu. f vetur tók hann aftur islenzkt verk, Úr aldarannál eftir Böðvar Guðmundsson, og hefúr það ekki verið sýnt annars staðar. Grace Kelly sem þrcytt en þrautseig drykkjumannseiginkona. Hún fékk óskar fyrir leik sinn i þessari mynd. Bing Crosby er eiginmaður hennar, leikari sem farið hefur illa i faðmi Bakkusar, og lengst til hægri er William Holden, maðurinn sem reynir að rifa Crosby upp úr eymdinni. SVEITASÚLKAN—sjónvarp kl. 21.55 laugardag: Grace Kelly reynir að halda Bing Crosby f rá f löskunni Þessi mynd er svarthvít, gerð 1954 og þótti þá góð og hreppti óskarsverðlaun fyrir bezta kvik- myndahandrit og beztan kvenleikara. Hún segir frá leikstjóra (William Holden) sem vantar mann í hlutverk í leikrit á Brodway. Hann hefur áhuga á leikara sem undanfarið hefur hallað sér mjög að flöskunni. Sá er leikinn af Bing Crosby og þykir hann sjaldan hafa gert betur. Hann fékk þó ekki óskar i þetta sinn eins og mótleikari hans, Grace Kelly. Grace Kelly er fædd í Philadelphiu 1929 og er af leikhúsfólki komin. Á árunum 1951 til 1956 lék hún í einum tíu myndum þ.á.m. er Hitchcock- myndin Dial M for Murder og Glugg-> inn á bakhliðinni eftir Hitchcock. Móti Crosby lék hún öðru sinni í myndinni Með finu fólki, 1956. En eftir stuttan og glæsilegan feril venti. hún sínu kvæði í kross, giftist Rainier fursta af Mónakó og steinhætti aö leika. Handrit að Sveitastúlkunni er skrifað af George Seaton. Hann stjómar einnig myndinni og er raunar kunnastur sem leikstjóri. En eldri kvikmyndahúsagestir kannast máske við aðra mynd sem hann skrifaði nandrit að: Óður Bemadettu (1943), sem unga, trúaða stúlku sem fer að sjásýnir. ihh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.