Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1982, Side 2
22
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1982.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Hættir
Einarmeð
lands-
liðið?
— ogtekuraðsér
þjáifun féiagsiiðs
Frá Kjartani L. Pálssyni —
fréttamanni DV I Edinborg. — Sá
I orðrómur hefur verið hér I her-
i búðum islenzka liðsins i Edinborg
I að Einar Bollason hafi hug á að
breyta til og gerast þjálfari hjá
íslenzku úrvalsdeildarliði nsesta
keppnistimabil.
— Ég er með tilboð frá islenzku
félagi en eins og málin standa nú
get ég ekkert sagt nánar um
málið. Ef ég tek að mér þjálfun
liðsins mun ég að öllum likindum
| láta af störfum sem landsliðs-
þjálfari, sagði Einar.
Glæsilegt skot
Jóns Sigurðssonar
— 2 sek. fyrir leikslok, rataði ofan f körfu íra—64:64—og síðan unnu íslendingar
í framlengingu, 74:68
Frá Kjartani L. Pálssyni,
fréttamanni DVI Edinborg.
— Það var ekkert annað hægt að
gera. írar voru yfir, 64:62, og aðeins 2
sek. til leiksloka, sagði Jón Sigurðsson,
sem tryggði íslendingum jafntefli,
64:64, með glæsilegu skoti gegn írum,
þannig að það þurfti að framlengja
leikinn og I framlengingunni voru
Kristbjörn
rak þjálfara
íra af velli
Kristbjörn Albertsson, formaður
KKt, var I sviðsljóslnu, þegar hann
dæmdi leik Ungverja og Íra I EM I
körfuknattleik. Kristbjörn visaði þá
þjálfara Íra af velli, eftir að hann hafði
látið ófriðlega og verið sífellt að senda
tóninn inn á völlinn.
-klp
Rafdeild
JL-hússins
auglýsir.
Nýkomnir
stækkunarglerslampar
og teikniborðslampar
Litir:
hvítt, grátt
og brúnt
Otrúlega hagstæðir
greiðsluskilmálar á
flestum vörufiokkum.
Alit niður í 20% út-
borgun og lánstími alit
að 9 mánuðum.
Opið í öllum deildum:
mánud,-
miðvikud. 9—18,
fimmtud. 9—20,
föstud. 9—22
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Rafdeild
íslendlngar sterkari og unnu örugglega,
74:68.
— Ég fann aö ég myndi hitta ofan i
körfuna þegar ég stökk upp og skaut,
sagöi Jón, sem var hetja íslenzka liös-
ins, en hann lék Ieikinn meiddur.
Leikurinn var æsispennandi og oft á
tíðum mjög vel leikinn hjá íslenzka
liðinu. Undir lokin var spennan mikil
— írar voru yfir 62:61, en þá jafnaði
Jón úr vítakasti, 62:62, þegar 40 sek.,
voru til leiksloka. frar skoruðu 64:62,
þegar 17 sek. voru til leiksloka og síðan
jafnaöi Jón, eins og fyrr segir.
Torfi Magnússon átti mjög góðan
leik, bæði í sókn og vörn. Hann
skoraði 21 stig og hirti 9 fráköst. Simon
Ólafsson, sem var orðinn þreyttur,
búinn að leika inn á allan leik
íslenzka liðsins, skoraði 15 stig og hirti
16 fráköst. Aðrir sem skoruðu voru:
Valur 12, Kristján 9, Jón Sigurðsson 7,
Guðsteinn 5, Ríkharður 4 og Axel
Nikulásson 1. -klp-/-SOS.
Þjálfara Skota var
vísað úr húsinu...
— og síðan látinn taka pokann sinn
Sá sögulegi atburður gerðist hér á
laugardaginn þegar Ungverjar unnu
Skota örugglega 100:75, að þjálfari
Skota, Bill Miller, var leiddur út úr
húsinu vegna ölvunar. Miller, sem
þykir gott að hella „djús yfir is”,
réðst að öðrum dómaranum með
skömmum, eftir að hafa látið illa
við varamannabekkinn allan
leiklnn. Fyrir stuttu var hann
rekinn sem þjálfari hjá skozku
meisturunum Murry International
og var hann látinn taka pokann
sinn hjá skozka landsliðinu. Hann
stjórnaði liðinu ekld gegn Austur-
ríki I gær.
-klp-
Jón Sigurösson — fyrirliði íslenzka
landsliðsins.
„Ekki á hverjum
degi sem ég hirði
18 fráköst”
sagði Paul Stewart, sem átti st jörnuleik með Skotum
gegníslendingum
• Einar Bollason hélt þrumandi
ræðu yf ir frskum dómara
— Frá Kjartani L. Pálssyni, frétta-
manni DV i Edinborg: — Það er ekld á
hverjum degi sem ég hirði 18 fráköst i
leik. Mér tókst það gegn fslendingum,
þar sem ég þekki þá vel. Simon
Ólafsson var eini leikmaðurinn, sem ég
þurfti að óttast, sagði Paul Stewart,
eftir að hann hafi átt snilldarleik með
Skotum sem unnu íslendinga, 77:64.
Stewart, sem fæddist i Glasgow fyrir
26 árum, er með bandarískan ríkis-
borgararétt og hefur hann aldrei leikið
körfuknattleik í Skotlandi —'eingöngu
I Bandaríkjunum, íslandi og Englandi,
þar sem hann hefur leikið með Fiad og
Owaldine síðan hann hætti að leika
með ÍR.
— íslenzka landsliðið vantar illilega
stóra leikmenn eins og Pétur
Guðmundsson, sagði Stewart, sem
skoraði 26 stig í leiknum.
Leikur ísienzka iandsliðsins var eins
og dagur og nótt gegn Skotum. Leik-
menn liðsins léku mjög vel í fyrri hálf-
leik og voru yfir, 39:32, I ieikhléi. í
Frá
Kjartani L
Pálssyni
íEdinborg
Sími 10600
EM-keppnin í
körfuknattleik
seinni hálfleik hrundi leikur liösins og
skoruðu íslendingar ekki nema 2 stig
fyrstu 5 mín. Leikmenn liðsins skoruöu
aðeins 25 stig í seinni hálfleik.
Þeir sem skoruðu stig liðsins, voru:
Símon 16, Valur 15, Torfi 12, Kristján
7, Gunnsteinn 6 og Ríkharður 4.
Einar hólt rssðu
Einar Bollason, þjálfari íslenzka liðs-
ins, hélt þrumuræðu yfir írska
dómaranum, Seam Tracy, eftir leikinn,
sem vakti mikla athygli áhorfenda.
Skotar höfðu mjög gaman af þessu
og sögðu þeir að Tracy hefði verið að
hefna fyrir írland, þar sem írar kenndu
Kristbirni Albertssyni um tapið gegn
Egyptum en hann dæmdi leik fra og
Egypta, sem írar töpuðu64:68.
-klp-/SOS.
Enginn áhorfandi
á Villa Park
— þegar Aston Villa leikur næsta
Evrópuleik sinn þar
Aganefnd UEFA dæmdi
Aston Villa I 50 þús. svissneskra
franka sekt (14.500 pund) fyrlr
hegðun áhangenda liðsins i Brussel,
þar sem Aston Villa lék gegn
Anderlecht i undanúrslitum
Evrópukeppni meistaraliða. Þá var
Aston Villa dæmt til að leika næsta
Evrópuleik sinn á Villa Park i
Birmingham, án þess að hafa
áhorfendur á leiknum.
Anderlecht var dæmt til að
greiða 5 þús. pund i sekt.
Ósk Anderlecht um að leikur
liðsins og Aston Villa yrði leikinn
upp að nýju var visað frá og mun
Aston Villa mæta Bayern Múnchen
i úrslitaleik Evrópukeppninnar 26.
mai i Rotterdam.
-SOS.