Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1982, Blaðsíða 6
26
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1982.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Titillinnað
komast í höfn
hjá Ajax
—sigraði ígær en PSV tapaði
Amsterdam-liðið Ajax hefur svo gott
sem tryggt sér meistaratitilinn i
hollenzku knattspyrnunni. í gær vann
Ajax Utrecht 1—0 á heimavelli i úrvals-
deildinni meðan helzti keppinautur
liðsins, Eindhoven-liðið PSV steinlá
fyrir Groningen 4—0. Ajax hefur nú
fjögurra stiga forystu og aðeins þrjár
umferðir eftir.
Þriðji sigur
LALakers
Los Angeles Lakers heídur áfram
sigurgöngu sinni í bandariska körfu-
knattleiknum. Á föstudagskvöld vann
liðið Phonenix Sun 114—106 og hefur
þrjá sigra i þremur leikjum i innbyrðis
viðureign liðanna i úrslitakeppninni.
San Antonio Spuns sigraði Seattle
Supersonic 99—97 á föstudag i þriðja
leik liðanna. Staðan þar 2—1 fyrir
Spurs.
Úrslit í leikjunum í gær í úrvalsdeild-
inni urðu þessi.
Maas Irichl-Feyenoord 1—1
7 ilburg-NEC Nijmegen 2—2
PEC Zwolle-Haarlem 0—0
Tweme -AZ ’67Alkmaar 2—0
de Graafschap-RODA 2—4
Ajax-Utrecht 1—0
Den Haag-Deventer 0—6
Groningen-PSV 4—0
Sparta-NAC BREDA 5—0
Staða efstu liða er nú þannig:
Ajax 31 24 3 4 110—38 51
PSV 31 22 3 6 72—34 47
AZ ’67 31 19 5 7 63—35 43
Haarlem 31 15 8 8 51—37 38
Utrecht 31 16 4 11 51—36 36
Johan Crijuff lék ekki með Ajax í
gær vegna meiðsla. Daninn Jesper
Olsen skoraði eina markið 1 leiknum
við Utrecht.
-hsim.
Auglýsing
um aðalskoðun bifrciða í lögsagnar-
umdæmi Rcykjavíkur í maímánuði
1982.
Mánudagur 3. maí R—25501 til R—26000
Þriðjudagur 4. maí R—26001 til R—26500
Miðvikudagur 5. maí R—26501 til R—27000
Fimmtudagur 6. maí R—27001 til R—27500
Föstudagur 7. maí R—27501 til R—28000
Mánudagur 10. maí R—28001 til R—28500
Þriðjudagur 11. maí R—28501 til R—29000
Miðvikudagur 12. maí R—29001 til R—29500
Fimmtudagur 13. maí R—29501 til R—30000
Föstudagur 14. maí R—30001 til R—30500
Mánudagur 17. maí R—30501 til R—31000
Þriðjudagur 18. maí R—31001 til R—31500
Miðvikudagur 19. maí R—31501 til R—32000
Föstudagur 21. maí R—32001 til R—32500
Mánudagur 24. mai R—32501 til R—33000
Þriðjudagur 25. maí R—33001 til R—33500
Miðvikudagur 26. maí R—33501 til R—34000
Fimmtudagur 27. maí R—34001 til R—34500
Föstudagur 28. maí R—34501 til R—35000
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar til Bif-
reiðaeftirlits ríkisins, Bíldshöfða 8, og verður skoðun fram-
kvæmd þar alla virka daga kl. 08.00 til 16.00
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram full-
gild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að bifreiða-
skattur sé greiddur og vátrygging fyrir hverja bifreið sé í
gildi.
Athygli skal vakin á því að skráningarnúmer skulu vera vel
læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjaldmælir í leigu-
bifreiðum til mannflutninga, allt að 8 farþegum, skal vera
sérstakt merki með bókstafnum L:
— Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á
auglýstum tíma verður hann látinn sæta sektum samkvæmt
umferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til
hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.! skráningarskír-
teini skal vera áritun um það að aðalljós bifreiðarinnar hafi
verið stillt eftir 31. júlí 1981.
Lögreglustjórinn í Rcykjavík,
27. apríl 1982.
Platini fer
til Juventus
— og Passarella til Fiorentina
ttölsku knattspyrnufélögin halda
áfram að kaupa marga af snjöllustu
leikmönnum Evrópu til sin. Juventus
festi kaup á Frakkanum Mlchel Platini
frá St. Etienne á laugardaginn. Platini,
sem er 26 ára og fyrirliði franska lands-
liðsins, fékk 600 þús. dollara i eigin
vasa, en St. Etienne fékk 190 þús. doll-
ara.
<----------- m.
Michel Platini. bezti leikmaður
Frakklands, leikur með Juventus næsta
leiktímahil. Enska félagið, Arsenal,
reyndi mjög að fá Platini en leikmaður-
inn valdi heldur ítalska liðið.
Platini hefur leikið 32 landsleiki fyrir
Frakka og skoraö 20 mörk í þeim. Eins
og DV sagði frá fyrir helgina, þá keypti
Juventus Pólverjann Zbigniew Boniek
frá Widzew Ladz. Fyrir hjá Juventus er
Liam Brady, fyrrum fyrirliði Arsenal
en nú eru miklar likur á því að hann
snúi aftur til Englands.
Daniel Passarella, fyrirliði landsliðs
Argentínu í knattspyrnu, fer til Ítalíu
eftir HM-keppnina á Spáni og gerist
leikmaður með Fiorentina frá1 Flórens.
Tido Corsi, formaður félagsins hefur
rætt við Passarella, sem leikur með
River Plate. Fiorentina borgar 1.5
milljón dollara fyrir Passarella.
Með Fiorentina leikur Argentínu-
maðurinn Dabiel Bertoni, sem er
mikill markaskorari.
Celtic þarf nú
aðeins tvö stig
— til að hljóta meistaratitilinn. Á þó þrjá leiki eftir
Glasgow Celtic þarf nú aðeins tvö
stig úr þremur síðustu leikjum sínum til
að halda meistaratitli sinum í skozku
knattspyrnunni. Vann stórsigur 6—0 á
Edinborgarliðinu Hlbernian á laugar-
dag á Parkhead i Glasgow. Óvænt.
markaskorun hjá Celtic þvi i þremur
lelkjum áður við Hibernian á ieiktima-
bilinu hafði Celtic ekki tekizt að skora.
Staðan var 4—0 f hálfleik. Tommy
Burns, Danny Cranie, Roy Aitken og
Murdo McLeod skoruðu og i þeim sið-
ari bættu þeir McLeod og George Mc-
Cluskey tveimur við.
f kvöld leikur Celtic við St. Mirren
og gæti þá tryggt sér meistaratitilinn.
Aberdeen var einnig i stuöi á laugar-
dag. Sigraði Dundee 0—5 á útivelli.
Alex McLeish og Andy Harrow skor-
uðu í fyrri hálfleik, Doug Rougvie,
Dougie Bell og Walker McColl í þeim
síðari. Rangers er í þriðja sæti og vann
auðveldan sigur á Morton í Greenock á
laugardag. John McDonald skoraði
tvívegis fyrir Rangers. Bobby Russell
þriöja markið. Danny Docherty skor-
aði mark Greenock-liðsins. Úrslit 1—3.
Þá gerðu St. Mirren og Dundee Utd.
jafntefli 2—2 í Paisley og Partick og
Aidrie jafntefli 0—0 í Glasgow. Staðan
er nú þannig:
Celtic
Aberdeen
Rangers
DundeeUtd.
St. Mirren
Hibernian
Morton
Dundee
Partick
Airdrieo
33 23 6 4 76—30 52
31 18 7 6 55—26 43
33 14 II 8 50—41 39
33 13 10 10 55—35 36
31 14 8 9 48—39 36
34 11 12 11 37—39 34
34 9 10 15 30—53 28
34 10 4 20 45—68 24
33 6 9 18 32—53 21
34 5 7 22 30—74 17
FjMM FRÁ SOCIEDAD
IHM-LIÐISPÁNAR
Spánski landsliðseinvaldurinn i
knattspyrnunni, Jose Santamaria, hinn
frægi leikmaður Real Madrid á árum
áður, valdi fimm lelkmenn frá
meistaraliðinu Real Sociedad i lokahóp
22ja leikmanna i heimsmeistarakeppn-
ina i sumar. í HM-liðinu eru þessir
leikmenn.
Luis Arconada, Sociedad, Javier
Urruticoechea, Barcelona, og Jose
Sempere, Valencia, markverðir.
Jose Camancho, Real Madrid,
Santiago Urquiaga, Bilbao, Miguel
Tendillo, Valencia, Manuel Jimenez,
Gijon, Antonio Maceda, Gijon, Rafael
Gordillo, Betis, og Jose Alesanco,
Barcelona, varnarmenn,
Miguel Alonso, Sociedad, Jesus
Zamora, Sociedad, Joaquin Alonso,
Gijon, Enrique Ramos, Atletico
Madrid, Ricardo Gallego, Real
Madrid, og Jose Sanchez, Barcelona,
framverðir.
Juan Gomez, Real Madrid, Jesus
Satrustequi, Sociedad, Enrique Saura,
Valencia, Roberto Lopez Ufarte,
Sociedad, Enrique Castro Quini,
Barcelona, og Carlos Santilla, Real
Madrid.
-hsim.
EM-keppni 21 árs landsliða f knattspymu:
V-Þýzkaland og Eng-
land leika til úrslita
—Þjóðverjar sigruðu Sovétríkin 5-0 í undanúrslitum á f östudag
Vestur-Þjóöverjar unnu stórsigur á
Sovétrikjunum, eða 5—0, í síöari leik
þjóðanna i undanúrslitum Evrópu-
kcppni landsliða i knattspyrnu, leik-
menn 21 árs og yngri. Leikið var f
Aachen i V-Þýzkalandi á föstudag. 1
jfyrri leiknum sigruðu Þjóðverjar
einnig, 4—3 i Sovétrikjunum.
Samanlagt þvi 9—3. Í úrslitum leikur
Vestur-Þýzkaland við England, sem
sigraði Skotland i hinum leikjunum i
undanúrslitum, og sem skýrt hefur
verið frá hér i blaðinu. Í úrslitum er
leikið heima og að heiman.
Keppnisdagar hafa enn ekki verið
ákveðnir.
f Aachen byrjaði sovézka liðið með
miklum látum. Sótti mjög og fékk tvö
marktækifæri, sem ekki voru nýtt.
Þýzka liðið náði hins vegar óvænt
forustunni á 19. mín. þegar Pierre Litt-
barski, Köln, skoraði. Eftir það
jafnaöist leikurinn og þýzka liðið
skoraði aftur á 38. mín. Uwe Reinders.
Littbarski, sem var einn af þremur
leikmönnum þýzka liðsins, sem leikið
hefur í aðallandsliði Vestur-Þýzkalands,
splundraði vörn sovézka liðsins á fyrstu
mínútunni eftir leikhléið, gaf knöttinn
síðan til Rigobert Gruber, sem skoraði.
Gerd Strack skoraði fjórða mark þýzka
liðsins á 53. mín. og Littbarski, sem oft
lék sovézku leikmennina grátt í leikn-
um, það fimmta. Vippaði knettinum
yfir sovézka markvörðinn. Hans sér-
grein i Kölnar-liðinu.
Þýzka liðið var þannig skipað.
Immel, Strack, Rolff, Gruber, Utten,
Matthaus, Dittus, Kroth, Littbarski,
Reinders, og Voller (Kempe 53. mín).
Áhorfendur 7 þúsund.
hsim.
o