Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1982, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1982, Blaðsíða 8
28 ~ fþróttir DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 3. MAI 1982. íþróttir íþróttir íþróttir Liverpool gefur ekki eftir —11. sigurleikurinn í röð —■ vann auðveldan sigur á Nottingham Forest á laugardag en á aðeins einn heimaleik eftir Liverpool færist nær þrettánda meistaratitli sínum i knattspyrnunni. Vann auðveldan sigur á Nottingham Forest á Anfield á laugardag með tveimur mörkum Craig Johnston i síðari hálfleik. Það var ellefti sigu Liverpool i röð og það er merkileg að þessi sigurganga Liverpool hófsi einmitt. þegar flestir héldu a( leikmenn liðsins væru að gefa eftir. Slegnir út úr Evrópubikarnum af liði, sem þeir léku sundur og saman fyrir ári, CSKA frá Búlgaríu. Óvænt töp Liverpool á heimavelli virtust einnig styrkja þetta álit. En síðan small allt saman, Liverpool leikur frábæra knattspyrnu og ekkert lið á Englandi kemst í samjöfnuð við það nú. Liverpool hefur fjögurra stiga for- ustu á Ipswich, sem er í öðru sæti og hefur auk þess leikið einum leik minna. Það, sem gerir að ekki er hægt að slá því föstu að Liverpool sigri, er a.' lið iá aðeins einn heima- leik eftir vió Tottenham. Fjóra á úti- völlum. Þar á meðal við Tottenham og Arsenal. Einnig Middlesbrough og Birmingham. Liverpool leikur í kvöld, mánudag, við Tottenham á White Hart Lane oi hð Totíenham, verður varla til þess að stöðva sigur- göngu Liverpool. Sex af fasta- mönnum liðsins léku ekki gegn Coventry á laugardag vegna meiðsla. Fyrirliði Liverpool, Graeme Souness, hefur náð sér af meiðslum og getur leikið i Lundúnum i kvöld. Hvort hann verður settur í liðið er önnur saga. Bob Paisley breytir varla liði, sem sigrað hefur í ellefu leikjum í röð. Liverpool hafði mikla yfirburði gegn Forest á laugardag en tókst samt ekki að skora fyrr en í siðari hálf- leiknum. Craig Johnston, sem nú er URSLIT Úrslit í leikjunum á Englandi um helgina urðu þessi. 1. deild Arsenal-West Ham Aston Villa-Man. City Coventry-Tottenham Ipswich-Middlesbro Leeds- Stoke Liverpool-Nottm.For. Man.Utd.-Southampton Notts Co-Birmingham Sunderland-Brighton Swansea-Everton Wolves-WBA 2—0 0—0 0—0 3—1 0—0 2—0 1—0 1—4 3—0 1—3 1—2 2. deild Blackburn-Newcastle Charlton-Watford C. Palace-Barnsley Derby-Cardiff Grimsby-Oldham Leicester-Norwich Luton-Shrewsbury Orient-Rotherham QPR-Bolton Sheff.Wed.-Chelsea Wrexham-Cambridge 3. deild Brentford-Doncaster Bristol City-Gillingham Carlisle-Wimbledon Chesterfield-Swindon Fulham-Reading Lincoln-Briston Rov Newport-Burnley Oxford-Millwall Plymouth-Preslon Portsmouth-Chester Southend-IIuddersfield Walsall-Exeter 4. deild Aldershot-Scunthorpe Blackpool-Hereford Bourncmouth-Hull Bury-Colchester Darlington-Tranmere Halifax-Hartlepool Mansficld-Torquay Peterbro-Wigan Port Vale-York Rochdale-Bradford Stockport-Northampton 4—1 1—1 1—2 0—0 2—1 1— 4 4—1 1—2 7—1 0-0 0—0 2— 2 2—1 2—1 2—1 2—2 1—0 0—0 0—0 0—3 2—0 4—0 2—1 4—0 1—0 1—0 4—3 1—2 2—0 3—1 0—3 0—0 1—1 0—0 einn albezti leikmaður Liverpool, sendi knöttinn í markið. Það kom eftir hornspyrnu. Alan Kennedy fékk knöttinn, renndi til Kenny Dalglish og hann áfram til Johnston. Síðara markið skoraði Johnston á 69. mín. Fékk knöttinn frá Dalglish. Ungur piltur, Steve Sutton, 21 árs, átti frábæran leik i marki Forest. Peter Shilton meiddur. Þá voru þeir Willie Young og David Needham sterkir sem miðverðir hjá Forest. Lið Liver- pool jafnt og gott. Helzt að Ronnie Wheelan kæmist ekki í takt við leikinn þannig, að hugsanlegt er að Souness komi í stað hans í kvöld. Liðin voru annars þannig skipuð. Liverpool. Grobbelaar, Neal, Thompson, Hansen, Kennedy, Lee, Lawrenson, Wheelan, Dalglish, Rush og Johnston. Nottingham Forest. Sutton, Anderson, Young, Needham, Gunn, McGovern, Bowyer, Röber, Proctor, Davenport, Wallace og Robertson. Ipswich ekki sannfærandi Þrátt fyrir sigur á heimavelli gegn Middlesbrough var Ipswich-liðið ekki sannfærandi í leik sínum. Litlar likur á að Ipswich hljóti sinn fyrsta meistaratitil í 20 ár. Þó byrjaði liðið mjög vel í leiknum á laugardag og komst í 2—0 með mörkum John Wark og Arnold Mtihren. Mark Hollendingsins var glæsilegt. Beint úr aukaspyrnu með snúning framhjá varnarmönnunum. En eftir að Dave Thomas, enski landsliðsmaðurinn hér á árum áður, Burnley, QPR, Everton, hafði skorað með þrumu- fleyg af 25 metra færi undir lok fyrri hálfleiksins, kom fram mikil taugaveiklun í leik ipswich. Greini- legt var að leikmenn liðsins óttuðust mjög að tapa stigi. Og það munaði stundum litlu að Middlesbrough jafnaði. Varamaðurinn Billy Ashcroft átti skalla rétt yfir mark Ipswich. Fimm mínútum fyrir leiks- lok skoraði Ipswich, heldur óverð- skuldað. Það var Allan Brazil, sem gulltryggði sigurinn. Man. Utd í þriðja sæti Man. Utd. tókst að sigra Southampton á Old Trafford á Luton Town tryggði sér sæti í 1. deild á ný, þegar liðið sigraði Shrewsbury 4—1 á heimavelli á föstudag í 2. deildinni ensku. Luton hefur tvivegis leikið í 1. deild áður en haft þar stutt stanz. Fyrst 1960 til 1963 og síðan aðeins eitt leiktimabil, 1974—1975. Eftir veruna í 1. deild í fyrra skiptið féll Luton meira að segja næstum beint niður í 4. deild. Var þar þrjú leiktimabil en siðan hefur stefnan vcrið beint upp á við. Luton hefur nú 78 stig og á eftir fjóra leiki. Aðeins Watford getur komist upp fyrir þá stigatölu. Á föstudag náði Luton forustu með tnarki Brian Stein á 14. mín. Síðan gekk lítið og á 60. min. jafnaði lan Atkins fyrir Shrewsbury. Það tók leikmenn Luton stundarfjórðung að jafna sig. Þá skoraði Ricky Hill annað mark liðsins eða á 75. mín. Síðan skoruðu þeir Steve White og David Moss á lokamínútunum. Lið Elton John, Watford, virðist öruggt með sæti í 1. deild í fyrsta skipti í sögu félagsins og virðist hafa <?> J /nbro 4 Graeme Souness, fyrirliði Liverpool. Orðinn heill á ný en komst hann i Liverpool-liðið gegn Tottenham i kvöld? — Þá má geta þess, að Hol- lendingurinn Franz Thijssen lék með varaliði Ipswich á laugardag. laugardag þó liðið væri með hálfgert varalið. Sex af aðalmönnum liðsins gátu ekki leikið vegna meiðsla m.a. Steve Coppell, sem ekki hefur leikið að undanförnu. Hávaðarok setti mjög mörk á leikinn. Southampton lék undan vindinum sterka i fyrri hálfleiknum og var þá miklu betra liðiö með Kevin Keegan fremstan i flokki. í síðari hálfleiknum urðu algjör umskipti. Man. Utd. sótti og sótti og þeir Ray Wilkins og Bryan Robson léku mjög vel. Þá voru hin löngu útspörk markvarðarins Bailey meiri möguleika til að standa sig þar en Luton. Þó tapaði Watford stigi í Lundúnum gegn Charlton á laugar- dag. Á The Valley, stærsta leikvang- inum i ensku knattspyrnunni. Þar voru áhorfendur 10 þúsund og Charlton náði forustu með marki Phillips. Þegart langt var liðið á leikinn jafnaði Ross Jenkins fyrir Watford eða á 66. mín. Alan Mullery, enski landsliðsmaðurinn hjá Tottenham hér á árum áður, er stjóri Charlton. Það er mikil keppni um þriðja sætið í 2. deild, sem einnig gefur rétt í 1. deild. Sheff. Wed. tapaði þýðingarmiklum stigum í jafnteflis- leiknum við Chelsea á heimavelli. Hefur nú aðeins einu stigi meira en Norwich og Norwich er í miklum ham. Hreint óstöðvandi reyndar eftir að John Deehan og þó einkum Martin O’Neill, sem fór frá Man. City til Norwich á ný, fóru að setja mörk sín á leik liðsins. Norwich vann stórsigur i Leichester á laugardag, sennilega sínum hættulegasta mót- herja um þriðja sætið. Deehan náði forustu fyrir Norwich á 21 mín. eftir hættuleg, alveg inn á vítateig Dýr- iinganna. Eftir eitt þeirra skallaði Gordon McQueen knöttinn til miðherjans 19 ára, Scott McGarvey, sem skoraði. Man. Utd. fékk tækifæri til að skora fleiri mörk en tókst ekki. Liðið er nú í þriðja sæti og ætti að hafa sæmilega möguieika Á UEFA-sæti næsta leiktímabil. Swansea féll úr þriðja sæti. Tapaði illa heima fyrir ungu strák- unum hans Howard Kendals hjá Everton. Þeir komust í 0—3. Adrian Heath skoraði fyrsta markið á 26. mín. Graeme Sharp hin tvö, annað úr vítaspyrnu. Robbie James skoraði eina mark Swansea á 76. min. Talsverð meiðsli eru hjá Swansea. Meiðsli hjá Tottenham Swansea er í fjórða sæti en Tottenham er komið í fimmta sæti. Náði jafntefli 0:0 í Coventry, þar sem sex af aðalmönnum liðsins voru fjar- verandi vegna meiðsla. Meðal annars landsliðsmaðurinn Glenn Hoddle. Tottenham hefur leikið þremur ieikjum minna en liðið fyrir ofan, nema Liverpool. Arsenal vann öruggan sigur á West Ham á Highbury, 2—0, en stöðva varð leikinn í ellefu minútur vegna óláta á áhorfendasvæðunum. Meðal annars var reyksprengju kastað niður á völlinn. Leikmenn voru látnir fara til búningsherbergja meðan lögreglu- menn stilltu til friðar. Til átaka kom milli stuðningsmanna þessara Lundúnaliða og löggan fjarlægði nokkra verstu seggina. Mörk Arsenal voru bæði skoruð í fyrri hálfleik. Graham Rix á 16. mín. með skalla og Alan Sunderland á 44. mín. eftir að hafa fengið langa sendingu fram frá miðverðinum Whyte. Mikil fallbarátta Birmingham og Sunderland styrktu mjög stöðu sína í fallbarátt- unni miklu eftir góða sigra á laugar- dag. Sunderland hafði yfirburði gegn slöku liði Brighton, sem mjög hefur gefið eftir að undanförnu. Gary Rowles skoraöi úr vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum, síðan annað mark i þeim síðari. Ungi strákurinn Colin mikil mistök Wallington, mark- varðar og fyrirliða Leicester. Síðan komst Norwich í 0—3 með mörkum Bell og Bertschin en síðasta markið var sjálfsmark Norman Leet hjá Leicester. QPR, sem leikur til úrslita við Tottenham í bikarkeppninni 22. mai, hefur einnig möguleika á þriðja sætinu eftir stórsigur 7—1 á Bolton á laugardag. Hefur langbezta marka- muninn og er aöeins tveimur stigum á eftir Norwich, þremur á eftir Sheff. Wed, en hefur leikið einum leik minna. Leicester á líka vissa mögu- leika á þriðja sætinu. Á eftir fimm leiki. Fallbaráttan er mikil. Orient og Bolton, lið sem hafa leikið í 1. deild, standa illa að vígi en Grimsby er hendur betur að spjara sig. Virtist lengi vel „dauðadæmt” og lengstum neðst. Hefur nú sjö lið fyrir aftan sig. í 3. deild er Carlisle efst með 76 stig. Oxford hefur 71 stig, Fulham og Lincoln 70 stig. í 4. deild eru Wigan og Sheff. Utd. efst með 87 stig. Bournemouth og Bradford hafa 84 stig og Peterbrough 82 stig. Fjögur lið komast upp úr 3. og4. deild. hsim. West gulltryggði svo sigurinn. Skorar næstum í hverjum leik. Sigur Birmingham var þó miklu athyglisverðari í Nottingham gegn County. Fyrsti útisigur Birmingham í 33 leikjum og Ron Saunders virðist ætla að takast að bjarga liðinu frá falli. Lesley Phillips skoraði fyrir Birmingham í fyrri hálfleik en McCulloch jafnaði. í síðari hálf- leiknum lék Birmingham undan sterkum vindi, rokið setti víða mikinn svip á leikina, og tókst að skora þrisvar. Þeir Tony Evans og Harford skoruðu mörkin en nokkurt ósamræmi var í fréttunum. Ýmist sagt að Evans hafði skorað tvívegis — eða að Harford hefði skorað tvö af þessum þremur mörkum. Ljót staða Úlfanna Middlesbrough virðist svo gott sem fallið þó svo maður afskrifi liðið ekki af gamalli reynslu. Lið, sem virtust alveg kolfallin, hafa stundum bjargað skinninu með góðum loka- spretti. Þá standa Úlfarnir mjög illa að vígi eftir tap á heimavelli gegn nágrönnum sínum frá West Bromwich. Þar geta leikmenn Úlfanna nagað sig í handarbökin. Tony Godden, sem lék í marki WBA á ný, varði vítaspyrnu. Úlfarnir sóttu mjög í fyrri hálfleiknum en WBA skoraði. Einstaklingsframtak Cyrille Regis. I síðari hálfieiknum jafnaöi Andy Gray en Derek Monaghan skoraði sigurmark WBA. Fyrir þennan sigur hafði WBA tapað átta leikjum í röð. Meisturum Aston Villa tókst ekki að skora hjá hinni hrip- leku vörn Man. City og Joe Corringan lék á ný i marki Manchester-liðsins. Þá var heldur ekki skorað mark á Elland Road í leik Leeds og Stoke. Bæði liðin í bullandi fallhættu þó staða Leeds sé örlítið skárri. hsim. STAÐAN Staðan í 1. og 2. deild eftir leikina um helgina. 1. dcild Liverpool 37 24 6 7 73—28 78 Ipswich 38 23 5 10 69—48 74 Man. Utd. 38 19 11 8 52—28 68 Swansea 38 20 6 12 54—44 66 Tottenham 35 18 9 8 57—35 63 Southampt. 39 18 8 13 65—58 62 Arsenal 38 17 10 11 39—34 61 Everton 39 15 12 12 52—48 57 West Ham 38 14 13 11 61—51 55 Man. City 39 14 13 12 47—46 55 A. Villa 38 13 12 13 50—50 51 Nott.For. 38 13 12 13 37—44 51 Brighton 39 12 13 14 40—49 49 Notts Co. 38 13 7 18 58—63 46 Coventry 39 12 10 17 48—55 46 Birmingham 38 9 13 16 49—56 40 Sunderland 39 10 10 19 36—56 40 West Brom. 36 9 11 16 41—47 38 Leeds 37 9 11 17 33—52 38 Stoke 38 10 7 21 38—59 37 Wolves 39 9 9 21 29—59 36 Middlesbro 38 6 14 18 30—48 32 2. deild Luton 38 22 12 4 77—40 78 Watford 39 21 11 7 69—38 74 Sheff.Wed. 39 19 9 11 50—45 66 Norwich 39 20 5 14 59—47 65 QPR. 38 19 6 13 57—36 63 Barnsley 39 18 9 12 55—38 63 Rotherham 39 19 6 14 58—48 63 Leicester 37 17 11 9 52—40 62 Blackburn 39 16 10 13 45—37 58 Newcastle 39 16 8 15 46—43 56 Chelsea 39 15 10 14 56—55 55 Oldham 39 13 13 13 45—50 52 Charlton 40 13 12 15 50—60 51 Derby 39 11 11 17 47—62 44 Grimsby 38 10 13 15 50—59 43 Cambridge 39 11 9 19 42—51 42 C. Palace 38 11 9 18 30—41 42 Wrexham 38 10 11 17 34—46 41 Cardiff 39 11 8 20 42—57 4Í Bolton 40 11 7 22 33—58 40 Shrewsbury 39 9 12 18 34—57 39 Orient 38 9 8 21 31—54 35 Luton í 3ja skipti í fyrstu deikHna! —og Watford kemst þangað í fyrsta sinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.