Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1982, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR15. MAl 1982.
7
Auður Sveinsdóttir tandslagsarkitekt: „Garðinn þarf að
skipuieggja um leið og húsið."
Gardena verkfæri og
rafmagnsklippur
Breiðholti — Sími 76450
Ræktaðu garðinn þinn
Leiöbeiningar um trjárækt
<r
MiKTADU
GARDINN
ÞINN
I I 11>ItI l\l\(. \K
Bók þessi fjallar um trjárækt í
görðum í skýru og stuttu máli. Þar
er gerð grein fyrir sögu trjáræktar
í landinu, sagt frá gerð og lífi
trjánna, næringarþörf þeirra,
uppeldi trjáplantna, gróðursetn-
ingu, hirðingu og grisjun. Lýst er
28 tegundum lauftrjáa, 24 runna-
tegundum, og 17 barrviðum, sem
rækta má í görðum hér á landi.
Höfundur bókarinnar, Hákon Bjamason, hefur um tugi ára
verið forustumaður í þessum efnum hér á landi. Sakir
langrar reynslu og þekkingar er hann öðrum færari til að
veita leiðbeiningar um ræktun trjáa, sem að gagni koma.
Fjöldi skýringarmynda eftir Atla Má.
.. .ennfremur minnum við á
Leiðbeiningar um plöntusöfnun
eftir Ágúst H. Bjarnason
Handhægur leiðarvísir með myndum handa þeim sem
vilja kynna sér plönturikið. Aðaláherslan er lögð á að
gera grein fyrir hvernig plöntum er safnað og frá þeim
gengið til varðveislu. Jafnframt kemur bókin að góðum
notum öllum áhugamönnum um náttúruskoðun og
gróðurríki landsins.
eins og stök gorkúla úti í miðjum garði.
Oft hefur hins vegar gleymzt þegar
húsið var byggt að gera ráð fyrir lögn-
um út fyrir gróðurhús eða heitan pott.
Þetta getur því reynzt erfitt. Ekki er
sama í hvaða átt gróðurhúsið snýr.
Það þarf aðallega að vera með stórum
gluggum á móti vestri. Þegar sólin er í
suðri erum við miklu frekar úti. Á
kvöldin er hins vegar orðið of kalt til að
sitja í sólinni úti þó við viljum njóta
hennar lengur. Þá er gott að setjast inn
ígróðurhúsið.
Matjurtagarðar ættu svo að vera sér
og eins leiksvæði barna. Það ætti jafn-
framt að vera þannig að þaö bjóði upp
á einhverja möguleika þegar börnin
stækka án þess að bylta þurfi ölium
garðinum.
Róttur gróður
á róttum stað
„I hverjum stað í garðinum þurfa að
vera réttar plöntur. Þær þarf að velja
eftir því hversu mikið skjól er, hvað
þær þurfa að þola mikinn ágang og svo
framvegis.
Annað þarf líka að athuga. Það er
hverjir ætla að nota garðinn og hugsa
um hann. Margt gamalt fólk getur ekki
staðið í því að hugsa um f jölbreytileg-
an garð. Eins er með ungt fólk, jafnvel
með lítil böm. Þá fer allur dagurinn í
vinnu og enginn tími er til að vinna í
garðinum. Þá er bezt að hafa allt sem
einfaldast.
Oft ægir öliu saman í görðunum hjá
fólki. Mismundandi tegundum af hell-
um, mismunandi trjáviði í skjólveggj-
um og mismunandi gróðri. Heildar-
svipinn vantar þá alveg. Þetta er þó
ekki eins slæmt og það var.
Við höfum verið að komast að því á
undanfömum ámm að það er hægt að
rækta ýmsar jurtir hér í görðum og að
hægt er að koma upp fallegum görðum.
En til þess þarf að setjast niður og
teikna garðinn meö notkun hans i huga
áður en byrjað er að setja niður blóm
eða annað,” sagði Auöur Sveinsdóttir.
DS
Stærðir: 3,17x3,78 (10X12 fet) m/gleri, kr. 10.850,-
2,55 x 3,78 (8x12 fet) m/gleri, kr. 7.900,-
2,55x3,17 (8xi0fet)m/gleri,kr. 7.100,-
Vegghús: 1,91x3,78 (6X12 fet) m/gleri, kr. 6.700,-
Ýmsir fylgihlutir fyrirliggjandi: Hillur, sjálfvirkir gluggaopn-
arar, borð, rakamælar, rafmagnsblásarar o.fl. o.fl.
Sólreitimir eru af nýrri gerð, með plastgleri (óbrjótanlegt) og
innbyggðum, sjálfvirkum opnunar- og lokunarbúnaði, sem
vinnur á sólarorkunni.
Stærð 122 X 92 X 38.
Eden garðhúsin eru nú fyrirliggjandi, en við höfum yfir 10 ára
reynslu í þjónustu við ræktunarfólk. Engin gróðurhús hafa náð
sömu útbreiðslu hérlendis. Þau lengja ræktunartímann og
tryggja árangur. Sem fyrr bjóðum við lægsta verð, ásamt frá-
bærri hönnun Eden álgróðurhúsa. Sterkbyggð og traust hús.
Sýningarhús á staðnum
Kynnisbækur sendar ókeypis
KLIF HF.
Grandagaröi 13
Reykjavík — Sími 23300
Aflmesta garftsláttuvélinfrá Black & Decker RM-1 með
1100 v mótor. 12 tommu sláttubreidd, 4 sláttuhæðir. Tvö-
falt meira grasrými en áður, slær upp að húsveggjum
og út yfir kant. Hlífin öll úr ABS plasti sem brotnar ekki
og ryðgar ekki. Tvöföld einangrun. Árs ábyrgð.
Verð kr. 2.443,20.
STRIMMER
D-409
vélin sem slær grasiö þar sem aðrar sláttuvélar
komast ekki aö. Laufléttur, einnar handar grasskeri með i
kraftmiklum 240 v mótor sem snýr nylonþræðinum 1200 hringi 1
á mínútu. 10 metra nylonþráöur fylgir. Tvöföld einangrun.
Árs ábyrgö. Verð ca kr. 830,
Blacks. Decken
GARÐSLÁTTUVÉLAR
T-1 tólf tommu loftpúðasláttuvél. Lauflétt loftpúöasláttuvél, sem líður yfir
grasflötinn, slær bæði rakt, þurrt og hátt gras af snilld. Tvöföld einangrun,
þrjár hæðarstillingar. 1000 v mótor. Árs ábyrgð.
Verðkr. 2.443,20
G. Þorsteinsson & Johnson
Ármúla 1 - Sími 85533