Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR1. JUNI1982. Umfangsmikil leit aö opnum báti á Breiðafiröi — engin blys eða talstöð voru um borð Mikil leit fór fram á Breiðafirði á laugardag aö sex metra löngum, opnum báti með þremur mönnum. Tilkynnt var um hvarf þeirra um níu leytið á laugardagsmorgun til björgunarsveitar slysavarnadeild- arinnar í Búðardal. Fólkið hafði fariö frá bænum Hnjúki í Klofningi um hádegisbil á föstudag og ætlaö aö gæta að varpi í Rúfeyjum. Þangaö er um tveggja og hálfrar klukkustund- ar sigling. Fólkið var vel búið og með björgunarvesti um borö en enga tal- stöð og engin neyðarblys. Fjöldi báta var fenginn til að leita, meðal annars frá Stykkishólmi, og fljótlega var kallaö á aöstoð þyrlu. TF-Gró var komin á staðinn um klukkan 11.30 og hafði þá ekkert til bátsins spurzt. Um klukkan 12 á hádegi kom hún þó auga á bátinn þar sem hann lá í vari í Hafnareyjum. Var veður þá fremur óhagstætt, 5—7 vindstig og éljagangur. Fólkiö var vel á sig komið en hafði ekki litizt á veðurút- litið þegar lagt var af staö heim úr eyjunum og því leitað skjóls. Sem fyrr segir hafði það engin neyðarblys eða annan útbúnað til að láta vita af ferðum sinum, en slíkt hefði gert hina víðtæku leit óþarfa því auðveld- lega sést úr eyjunum á nálæga bæi á ströndinni. -JB. Og þá er komið að sjúkraþjálf urunum: Segja þeir upp í næstu viku? „Viö erum mjög óánægð meö úr- skurð kjaradóms. Við ætlum að tala við ráðherra í næstu viku og ef ekkert gerist veit ég ekki hvað við gerum,” sagði Oddný Sigsteinsdóttir sem sæti á í kjaramálanefnd Félags íslenzkra sjúkraþjálfara, en félagið hefur harð- lega mótmælt dómum þeim sem fallið hafa í sérkjarasamningum félagsins viö ríkiogborg. I kröfum félagsins var megináherzla lögö á leiðréttingu á grunnlaunum. Er það til samræmis við aðrar háskóla- menntaðar stéttir meö sambærilega menntun hvað varðar undirbúnings- nám, námslengd, námseiningafjölda, sérhæfni og fleira. Einnig voru grunn- laun hjá sjúkraþjálfurum sem starfa við sjálfseignarstofnanir og eigin fyrir- tæki höfð til hliðsjónar. Samkvæmt sérkjarasamningi BHM eru sjúkraþjálfarar starfandi hjá ríki og borg í launaflokki 105 og fá greiddar 8.757 krónur í laun á mánuði og er það snöggtum lægra en aörir háskóla- menntaðir menn með sambærilega menntun fá að sögn Oddnýjar. Þá fá sjúkraþjálfarar hjá sjálfseignarstofn- unum greitt eftir 108. til 112. launa- flokki og þeir er starfa sjálfstætt enn meir. „Okkur finnst ekki gæta samræmis þama og munum því leita leiða til leið- réttingar á okkar málum. ” — Koma uppsagnir til greina í því sambandi? ,,Eg get ekki neitað því að það hefur skotizt upp í huga manns því svo virðist sem nægir atvinnumöguleikar séu fyrir okkur hjá öðrum stofnunum en á vegum ríkis eða borgar,” sagði Oddný Sigsteinsdóttir. Hjá ríki og borg starfa um 25 sjúkra- þjálfarar, flestir þeirra kvenmenn. -KÞ. VINNUSLYS Á AKUREYRI leyti um helgina Vinnuslys varð í flutningaskipinu Vela, þar sem þaö lá í Akureyrarhöfn, á laugardagsmorgun. Þar varö maður nokkur fyrir lyftara sem verið var aö vinna með um borö og mun hann hafa fótbrotnað. Rólegt var á Akureyri um hvítasunn- una og ölvun ekki áberandi mikil. Vildu lögreglumenn ekki sízt þakka það lokun áfengisútsölunnar á föstu- daginn. Árekstrar urðu þó nokkuö margir. Sex umferðaróhöpp voru skráð frá laugardagsmorgni fram á miðjan dag í gær, en öll minni háttar og engin alvar- legslysurðuáfólki. Flestir Akureyringar héldu sig heima viö yfir hátíöina. -JB. Vinningshafamir ásamt fulltrúum úr dómnefnd, þeim Valgerðl Briem og Jóni E. Guðmundssyni. Börnin eru talið frá vinstri: Inga Birna Sigfúsdóttir, Sveinn Krist- inn Ögmundsson, Baldvin Davíð Ragnarsson, Hlín Gylfadóttir, Guðrún Margrét Eys teinsdóttir og Elva Edvaldsdóttir. Börnin teikna aldraða — samkeppni í grunnskólum a vegum Rauða krossins Rauöi kross Islands efndi í vetur til teiknimyndasamkeppni meöal grunn- skólanemenda í tilefni af ári aidraðra. Verkefiiaval var nokkuð frjálst en myndefni skyldi þó tengjast öldruðum á einn eða annan hátt. Þátttakendum var skipt í þrjá aldurshópa, 6—9 ára, 10—12 ára og 13—15 ára. Þrenn verðlaun voru veitt í yngri hópunum, en ein í þeim elzta, enda þátttaka minnst þar. Fyrstu verðlaun voru reiö- hjól en fyrir annað og þriöja sæti fengu bömin bók. Tilgangur með keppninni var að fá fram myndir sem gera mætti vegg- spjöld og kort eftir í tilefni af ári aldr- aöra.Áfjóröahundraðmyndir bárust frá 44 skólum. Dómnefnd var skipuö teiknikennurunum Valgerði Briem og Jóni E. Guðmundssyni, Sólveigu Helgu Jónsdóttur, kennara við Heyrnleys- ingjaskólann, Bryndísi Schram og svo tveimur nemendum, Hjördísi Pálm- arsdóttur úr Lækjarskóla í Hafnarfirði og Hlyni Þórissyni úr Mýrarhúsaskóla. I yngsta flokknum hlutu þessi böm verðlaun: 1. Sveinn Kristinn ögmunds- son, Fossvogsskóla, 2. Baldvin Davíð Ragnarsson, ölduselsskóla, 3. Guörún Margrét Eysteinsdóttir, Fossvogs- skóla. I hópi 10—12 ára bama: 1. Inga Birna Sigfúsdóttir, Fossvogsskóla, 2. Eva Edvaldsdóttir, Varmárskóla og 3. Hlín Gylfadóttir, Fossvogsskóla. Linda Björg Finnbogadóttir, Laugabakka- skóla, Miðfirði, fékk svo verðlaun í elzta hópnum. Að auki vom veittar fjórar viöur- kenningar. Sérstök myndverk bárust frá Heyrnleysingjaskólanum og verða þau sýnd á sýningu sem öldrunarráö Islands gengst fyrir um vinnu og störf aldraðra á Kjarvalsstöðum í júlí. -JB. Steingrímur sýnir í Eden Alltaf er hann Steingrímur Sig- urðsson jafnbráðhress. Kemur eins og fellibylur inn á blað, lætur dynja á manni upplýsingar um nýja málverkasýningu með hraða vélbyssunnar og er svo þotinn. Þær upplýsingar sem náðust em þær helztar að list- málarinn sýnir nú í Eden í Hveragerði og er þetta í sjöunda sinn sem hann sýnir þar. Þarna gefur að líta 74 myndir, flestar nýjar, en auk þess allmargar úr einkaeign sem ekki hafa veriö sýndar áður. Þetta er 47. sýning Steingríms. Sú fyrsta var í Bogasalnum áriö 1966 og síðan hefur hann sýnt víða innanlands sem utan. Sýn- ingin er tileinkuð félagsskapnum ABC við Fljótið helga og henni lýkur6. júní. "SG Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Tími sterku mannanna að koma Benedikt Davíðsson er kominn úr endurreisnarferð til Svartahafs til að efla menn í byggingariðnaði til verk- falla. 72-manna nefndin hjá ASÍ hefur komist aö þeirri niðurstööu að nauðsyn beri til að efna til allsherjar- verkfalls um miðjan júní. Tvo daga á undan skal halda general-pmfu. Þannig safnast menn saman að ákveðnum ófaraaði eins og flugur að ljósi, alveg eins og brýnast sé af öllu á mjög alvariegum timum að kynda undir óreiðu og upplausn. Það er þegar farið að tala um, að úr þessu geti enginn leyst úr vandamálum ís- lendinga nema sterkir menn, vegna þess að einstakir hópar eru þegar farair að starfa á launagreiðendum utan við lög og rétt. Þeir sem ýta nú hvað mest á aukna upplausn era jafnframt að þrýsta á um kröfuna um sterku mennina. Við þekkjum vinnubrögðin frá liðnum tíma, en nú virðist þó sem krafan um sterku mennina sé nær því að verða að vem- leika en áður. Ljóst er að lögregla, sem hefur við orð að segja upp störfum með sama hætti og hjúkmnarkonur og sjúkra- liðar, og meö sama markmiö í huga, verður ekki til stórræðanna í fram- tíðinni, svo sterkir menn geta ekki stuðst við hana. Hefur svo verið lengi, að þangað hefur ekki verið traust að sækja kæmi á annað borð til upplausnar. Einu skipulögðu sam- tökin í landinu finnast innan ASt og em á snærum manna i byggingariön- aði. Hinir sterku menn framtíðarinn- ar hljóta því að koma þaðan. Þess vegna m.a. er taliö brýnt að standa að launaupphlaupum nú. Og enginn skyldi ætla að ekki áraði fyrir launa- kröfur. Eftir myntbreytingu hefur dýrtíðin fariö svo úr skorðum, að skráð láglaun em næstum óskiljan- leg. Vísitalan er reiknuð út af híuta neyslunnar, og hækkanir vegna hennar em falskar. Á móti kemur að þjóðartekjur fara minnkandi. Mis- muninn geta menn fært til reiknings hjá þeim, sem haga þjóðmálum þannig, að hér er full atvinna, en geta ekki staðið við það nema hafa fólk á óskiljanlegum launum. At- vinnuleysi okkar er falið í þessu. Gegn þessu fyrirkomulagi stefnir nú verkalýöshreyfingin á borði með fomstuliði, sem hefur verið að eyða síðustu vetrardögum við Svartahaf. Og rikisstjórain á ekki margra kosta völ. Margir þeirra em svo langt leiddir að þeir era þessa dagana að leggja atvinnutækjum sínum. Þegar á reynir kernur í ljós að ríkisstjórain getur ekki staðið saman að úrlausnum. Framsóknarflokkur- inn vill draga úr verðbólgu og telja niður. Nú er verðbólgan komin í sex- tíu stig og stefnir töluvert hærra á ár- inu. Alþýðubandalagið vill láta verkalýðinn hafa töluverða hækkun, a.m.k. láglaunahópana. En til þess þarf að leiða vinnuveitendur að samningaborði, sem sumir hverjir myndu líta á sem hvera annan högg- stokk eftir núll-reksturstefnuna und- anfarið. Dr. Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, sér að líkindum fá- ar millileiðir. Málin eru því f öst. Og á sama tima stefnir í verkföll. Foringj- ar launþega ssa ferð sína sem mest þeir mega inn í framtíðarlandið, land hinna sterku manna. Þótt ríkisstjórnin geti ekki staðið saman að lausnum getur hún heldur ekki farið. Það mundi lítið þýða að efna til kosninga vegna þess að ekki er hsgt að kjósa um að þorskurinn komi á miðin og víkur og vogar fyll- ist af loðnu. Það er heldur ekki hsgt að kjósa um aukningu þjóðartekna. Ekki er hsgt að kjósa um að togarar, sem bundnir hafa veriö sökum greiðslufalls, sigli aftur á miðin. Málin eru hreinlega komin í strand. Þau bíða eftir hinum sterku mönn- um, sem nú efla launþegahreyfing- una blinda og skilningsvana gegn samfélaginu. Jafnvel þótt Sjálf- stæðisflokkurinn ynni meirihluta í kosningum kæmi hann engu fram fyrir athöfnum þeirra, sem sækja sjóböðin í Svartahafinu. Þaö er að- eins hægt að sækja sér frest í gengis- fellingar nokkra stund, en jafnvel þsr duga ekki til eilíföar. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.