Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Blaðsíða 8
s
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR1. JUNI1982.
jYe-ywonfLA-rS'
HOLUR
UMBOÐS & HEILDVERSLUN
Skeifan 11-108 Reykjavík - @ 86466
Pósthólf 7060-127 Reykjavík
FORTÍÐIN ER: Sprungin og vindlaus dokk.
FRAMTÍÐIN ER: Slöngur sem geta ekki sprungið eða orðið
vindlausar.
• Búið til úr léttu frauðgúmmii
með holum kjarna.
• Auðveld isetning. (■ ■■-?■
• Heldur stöðugum þrýstingi þannig
að hjólið getur borið meiri þunga.
• Eykur liftima dekksins.
• Hefur engan ventil.
• . Hiti og kuldi hafa engin óhrif.
SLANGA
FRAUÐGÚMMÍ
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur held-
ur félagsfund í Domus Medica, Egilsgötu
3, þriöjudaginn 1. júní kl. 20.30.
Dagskrá: Verkfallsboðun.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Trjáplöntur
og sumarblóm
GRÓÐRARSTÖÐIN
LUNDUR
V/VESTURLANDSVEG sími 86825
(gaukriecht
Sértf
-OG FF>YS
PD
2601
HæðHdl455cm
.Kr.MOO'
DwTébci" *kr. 8.250.
Staðgreiðs
‘SSJAftff magn
RAFBUÐ
^SAMBANDSINS
Ármi’ila Q - Q/mi QPQDD
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Bretadrottning
er áhyggjufull
— Argentínumenn senda syni hennar kveðju með
sprengjum
Elísabet Englandsdrottning er ein
af þúsundum áhyggjufullra enskra
mæðra. I hvert sinn sem tilkynnt er
um argentínska árás hlýtur hún aö
velta því fyrir sér hvort sonur henn-
ar sé meðal hinna dauðu. I ræðu sem
hún flutti fyrir helgina sagði hún
meðal annars: „Hugsanir okkar eru
í dag hjá okkar mönnum í Suður-
Atlantshafi. Og í bænum okkar
óskum við þeim framgangs og
öruggrar heimkomu til sinna nán-
ustu.”
Næstelzti sonur hennar, Andrew,
22 ára, er einn af brezku hermönnun-
um sem tekið hafa þátt í styrjöldinni
um Falklandseyjar. Hann er flug-
maður á SEA King-þyrlu sem stað-
sett er á flugvélamóðurskipinu Invis-
ible.
Þegar Andrew prins lauk skóla-
göngu sinni fyrir fimm árum réðst
hann í flotann í tólf ár eins og faðir
hans, Philip prins, hafði gert.
Engum datt þá í hug að stríö væri á
næsta leiti. Hann var áður flugmaður
á Harrier-herþotu en þegar hann
var sendur í stríðið var hlutverki
hans breytt og hann í staöinn gerður
aö flugmanni á SEA .King-þyrlu.
Andrew prins, 22 ára.
Yfirmenn flotans hafa vafalaust tal-
ið að prinsinum væri minni hætta
búin þar. Þegar Elísabet drottning
flutti ræðu sína fyrir helgina höfðu
þegar verið skotnar niður fimm slík-
ar þyrlur og sama dag tilkynntu
Argentínumenn að þeir hefðu skotið
niður tvær í viðbót. Engum þarf því
að hafa komið á óvart þó Elísabet
drottning hafi verið áhyggjufull og
henni tókst ekki heldur að leyna því.
Margir aðstandendur brezku her-
mannanna hafa gagnrýnt brezka
varnamálaráðuneytið. Stundum
hafa liöið meira en tveir sólarhring-
ar þar til tilkynnt hefur verið um
nöfn á skipum sem Argentínumenn
höfðu sökkt eða flugvélum sem
skotnar hafa verið niður.
Móður eins þeirra sem fórust af
tundurspillinum Coventry hafði
þetta að segja: „Það væri miklu
manneskjulegra að láta okkur strax
vita. Alltaf þegar einhverju skipi
hefur verið sökkt hef ég óttazt að það
væri skipið sem sonur minn var á.
Þrívegis fékk ég síðan að vita að svo
heföi ekki verið. Margar nætur hef
ég legið andvaka. Nú er sonur minn
látinn og ég fékk fljótt að vita um það
en hugsið um allar hinar mæðurnar
sem ekkert hafa fengið að vita.
Að sögn talsmanna varnarmála-
ráðuneytisins fær Elisabet drottning
ekki betri upplýsingar en aðrar
mæður brezku hermannanna.
Argentínskir hermenn við Ríó Gallego mála „kveðjur til lltla prinsins” á sprengju sem koma á fyrir í Skyhawk-flugvél.
Það er Andrew prins sem þeir hafa í huga, litli bróðlr Karls krónprins.
Fjöldagröfum her-
manna mótmælt
— Ættingjar látinna hermanna kref jast „sómasamlegrar útfarar”
Fjölskyldur fallinna brezkra her-
manna á Falklandseyjum hafa bitur-
lega mótmælt yfirlýstri ákvörðun
brezku herstjómarinnar að láta grafa
hermennina í fjöldagröf á Austur-
Falklandi.
Ættingjar hermannanna sem féllu í
árásunum á Darwin og Goose Green
segja síðastliðinn föstudag að
ákvörðunin sé „miskunnarlaus”. Þeir
kröfðust þess að líkunum yrði skilað
heim til Bretlands svo unnt væri að
grafa þau á „sómasamleganhátt”.
James Mechan, 55 ára gamall, sem
missti son sinn Thomas í árásunum,
sagði við fréttamenn: Það er hræðilegt
að hann skuli vera grafinn í einhverju
f jarlægu landi. Hvemig á ég að komast
til Falklandseyja til að sjá son minn? ”
Fréttamenn segja að hermennirnir
hafi þegar verið grafnir í fjöldagröf
skammt frá San Carlos höfninni.
Brezka vamarmálaráðuneytið sagði
um mótmæli aðstandenda hinna föllnu
að ákvörðunin væri í samræmi við
viðteknar venjur á stríðstímum.