Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Síða 9
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR1. JtJNl 1982. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Níxoit spáir Kennedy sigri Richard Nixon, fyrrum Banda- ríkjaforseti, lýsti þeirri skoðun sinni í sjónvarpsviðtali í gær- kvöldi að öldungadeildarþing- maðurinn Edward Kennedy myndi fara með sigur af hólmi þegar frambjóöandi demókrata fyrir forsetakosningarnar 1984 yrði útnefndur. Áður þyrfti hann þó að léttast um tíu kíló og „fá nokkrar nýjar hugmyndir”. Nixon sagðist þeirrar skoðunar aö Reagan Bandarikjaforseti yrði á nýjan leik í framboði 1984. Sinatra ósáttur viðekkju Crosbys Frank Sinatra er móðgaður út í Kathryn, ekkju Bing Crosbys. Ekkjan hefur að undanfömu verið að selja ýmsa muni úr safni manns síns s.s. húsgögn, mál- verk og ljósmyndir. Meðal þess sem Kathryn hefur boðið til sölu er árituö ljósmynd af Frank Sin- atra með Barböru konu sinni. Myndrna sendi hann til Crosbys sem þakklæti fyrir brúðargjöf á sínum tíma. „Eg kæri mig ekkert um að þessi mynd sé í fómm hvers sem er,” segir Sinatra og krefst þess að ekkja Crosbys hætti við að selja myndina. Nú er barizt skammt fyrir utan Port Stanley: ÚRSUTAORRUSTAN VIRÐIST NÚ HAFIN — Argentínsku f lugmennimir eru stærsta ógnunin við brezku hermennina Argentinsklr hermenn á Falklandseyjum. Þeirra bíður nú væntanlega hörð orrusta við Port Stanley. Brezkir hermenn nálgast nú höfuð- stað Falklandseyja, Port Stanley, óg eftir síöustu fréttum að dæma virðist sem úrslitaormstan sé nú hafin. Samkvæmt fréttum frá brezka varnar- málaráðuneytinu hafa bardagar átt sér stað um fimmtán kílómetra frá höfuðvígi Argentínumanna á eyjunum. Samkvæmt fréttum ráðuneytisins hafa bardagar brezkra og argentínskra hermanna átt sér stað á Kentfjalli sem er um 450 metra há hæð sem gnæfir yfir Port Stanley og flug- völlinn þar. Augljóst virðist aö það sé brezku hermönnunum ákaflega mikil- vægt frá hernaðarlegu sjónarmiði séð aö ná hæðinni á sitt vald. Talið er aö um sjö þúsund argentínskir hermenn séu í eða við Port Stanley. Ostaðfestar fréttir herma að brezku hermönnunum á eyjunni hafi nú bætzt þrjú þúsund manna Uðsauki og séu því nú átta þús- und manns í Uði þeirra á eyjunum. Liðsstyrkur þessi á að hafa borizt með skemmtiferðaskipinu Elísabetu ann- arri drottningu sem tekið var í þjónustu hersins. I frétt ráðuneytisins var staöfest aðeinuaf brezkuskipun- um við Falklandseyjar, Atlantic Conveyor, hefði verið sökkt eftir aö fransksmiðuö Exocet-eldflaug hæfði þaö. I fréttum frá Buenos Aires er skýrt frá því að argentínskar flugvélar hafi valdið miklum skaða á brezku flug- vélamóðurskipi i árásum á sunnudag. Hemaöarsérfræðingar telja aöþarsé átt við flugvélamóðurskipið Invincible. Þessu er hins vegar mótmælt af brezka vamarmálaráðuneytinu.. I frétt ráðu- neytisins segir að brezki flotinn hafi orðiö fyrir árásum argentínskra flug- véla en ekkert skipanna hefði veríö hæft. Fréttamenn á vígstöðvunum segja að brezku hermennirnir líti á aigentínska flugherínn sem sína alvar- legustu ógnun og fara lofsamlegum orðum um hæfni argentínsku flug- mannanna sem gera djarflegar árásir á brezk herskip úr návígi. Costa Mendez, utanríkisráöherra Argentínu, lýsti því yfir í gær að hann myndi á morgun halda til Havana og taka þar þátt í ráðherrafundi óháðra ríkja og útskýra þar afstööu Argentínu í Falklandseyjadeilunni. Mendez sagði að hin óháðu ríki styddu Argentínu í deilunni. Aðspurður um möguleika á viðræðum um friösamlega lausn sagði Mendez að alltaf værí möguleiki á samningaviðræðum og hann væri enn trúaður á möguleika Sameinuðu þjóð- anna til aö vinna bug á þrjózku Breta. , @ , Umsjón: Gunnlaugur A. Jónsson Magdl Yacoub, enskl hjartaskurðlæknirinn sem framkvæmdi tvær einstæðar hjartaskurðaðgerðlr um helgina. Magdi Yacoub, fremsti hjartaskurð- læknir Bretlands, framkvæmdi um helgina tvær einstæðar skurðaðgerðir á tólf tímum. Hann skipti um hjarta í tveimur helsjúkum sjúklingum sínum og var samfleytt við skurðarborðið í tólf tíma. I tilkynningu frá Harefield- sjúkrahúsinu í London segir að báðum sjúklingunum líði nú vel og hafi aðgerðirnar heppnazt fullkomlega. Fyrri hjartaþeginn var 45 ára gamall námuverkamaður er fékk "hjarta úr 22 ára gömlum manni. Meðan Magdi Yacoub og aðstoðar- menn hans unnu við aðgerðina á hon- um var þeim tilkynnt að heppilegt hjarta stæöi öðrum sjúklingi þeirra til boða í Gloucestershire. Hinn egypzk ættaði Yacoub lauk fyrri skurðaðgerð- inni á rúmum fjórum klukkustundum, settist síðan upp í þyrlu til að sækja nýja hjartað sem hann fékk úr 19 ára gömlummanni er látizt hafði af slys- förum. Síðan hófst síðari skurðaðgerð- in sem einnig stóð í rúmar fjórar klukkustundir. , Jdér vannst ekki tími til að verða þreyttur,” sagði Yacoub eftir þessar einstæðu maraþon- skurðaögerðir. Pólland: Hvatttil allsherjar- verkfalls Nokkrir af leiðtogum Einingar, hinna óháöu verkalýðssamtaka í Póllandi, er farið hafa huldu höfði í Wroclaw hafa hvatt verka- menn til að undirbúa allsherjar- verkfall í þeim tilgangi að knýja fram tilslakanir frá herstjóm- inni. Örygeisþjónusta Alþýðubankans allan sólarhringinn Nú njóta allirviðskiptavinirokkarnæturhólfaþjónustu í útibúi bankans að Suðurlandsbraut 30. í nýrri öryggishvelfingu á sama stað eiga viðskiptavinir auk þess kost á geymsluhólfum af ýmsum gerðum. hægileg bílastæði gera þér kleift að renna við hvenær sem er sólarhringsins, allt eftir þínum hentugleikum. Aukin þjónusta-ankid öryggi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.