Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ & VISIR. ÞRIÐJUDAGUE1. JUNI1982.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Umhverfisnefnd og
mengun í Eystrasalti
Hiö stillta haf, Eystrasalt, er mjög
mengaö ýmsum stórhættulegum
eiturefnum. Vegna mengunar er
vistfræöilegt jafnvægi hafsins í hættu
og óttazt er aö vissar dýrategundir
dey i út veröi ekki gripið í taumana.
Sænskir vísindamenn sem nýlega
þinguðu í Karlskrona telja aö höfuö-
mengunarvaldar séu skordýraeitriö
DDT sem þegar hefur veriö bannað,
svo og þaö efni sem átti að taka viö
hlutverki þess: taxafan. Þaö efni
hefur að vísu veriö bannað í Svíþjóö
en ekki í hinum 6 löndunum sem
liggja aö Eystrasalti. Bæði efnin ber-
ast með vindi í hafiö. Jafnvel þó að
mengun væri ekki til aö dreifa þá
eru lífsskilyröi erfiö fyrir dýralífiö.
Eystrasalt er stærsta hálfsalta
vatnsflæmi heims og dýr sem þar
lifa veröa að aölagast þessari kyn-
legu blöndu.
I þessu kalda, grunna hafi eru
sjávarföll hæg og þar af leiðandi er
hafiö súrefnissnautt. Líffræöileg
þróun er hægari en annars staöar í
hafinu og ný lífsform dafna illa. Lík-
amar dýra eru smávaxnari en lík-
amar samsvarandi tegunda sem búa
viö hagstæðari skilyröi.
Sture Irberger, umhverfis- og
landbúnaöarráöherra Svía, sagöi
nýlega í viðtali: „Þegar á þaö er
litið, aö auki, aö í þeim sjö löndum
sem liggja aö Eystrasalti búa 140
milljónir manna og aö öll löndin eru
mjög iönvædd, þá er hægt aö gera
sér í hugarlund hvernig umhverfis-
málum er háttaö.” Mats Olsson, aö-
stoðarprófessor viö Náttúrusögu-
safniö, heldur því fram aö stór hluti
vandans sé aö bændur og iðnhöldar
fái undanþágur frá bönnum viö ýms-
um hættulegum efnum og aö þess
vegna gerist slysin.
Selum og otrum liggur viö útrým-
ingu og fiskiemir, flækings-fálkar og
hérahundar fjölga sér litiö. Eitur-
efnin valda selum erfiðleikum viö
fæðingu afkvæma og otrar yfirgefa
nýfædd afkvæmi sín. Skum eggja
hef ur þynnzt vegna mengunarinnar.
Fjöldi grásels var um aldamótin
síöustu 200 þús., en nú em aðeins 2000
eftir og sömu sögu er aö segja um
aðrar selategundir.
Ýmsir aörir mengunarvaldar em
skaölegir, svo sem PCP (Polychlor-
inated bi-phenyl), ýmsir málmar og
svo ýmis efni sem má rekja til papp-
írsiðnaðar, Svía, Finna og Litháa.
Einnig hafa fosfór sem kemur úr
sterkum hreinsiefnum gegnum klóak
og svo nítrógen valdiö nokkrum usla.
Rányrkja hefur valdiö minnkandi
laxveiöi.
Olíulekar frá tankskipum herja á
sjófugla. Síöast í nóvember mnnu
16500 tonn af eldsneyti í Eystrasaltið
úr tankskipi frá Gíbraltar.
Þrátt fyrir allt þetta er ástandið
skárra en fyrir 10 ámm. Sérstaklega
hefur magn fosfórs og DDT minnk-
aö. Þetta má aö einhverju leyti
þakka samvinnu sem tókst milli
landanna sjö sem liggja aö Eystra-
salti: Danmerkur, Svíþjóöar, Finn-
lands, Sovétríkjanna, Póllands og
þýzku ríkjanna áriö 1974. I Sviþjóö
hefur veriö stofnaöur nokkurs konar
dómstóll þar sem umhverfisvernd-
arsinnar gegna hlutverki ákæm-
valdsins og hafa rétt til að rannsaka
ítarlega áætlanir iönrekenda og sér-
stakt ráö sker úr um deilur. Ráöiö
getur sett skilyrði fyrir byggingum
iöjuvera.
Dietrich Timm hjá Sambandi
sænska iðnaöarins kvaðst vera bjart-
sýnn á umhverfisvemd í Eystrasalti,
en ýmsir aðrir em þaö ekki og benda
á að áhyggjuefni séu öldungis fyrir
hendi og þá sérstaklega utan þeirra
svæða sem Svíar stjórna. Einkum
eru austantjaldslöndin talin lítt vak-
andi í umhverfisvemd. Landflótta
pólskur haffræöingur, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, hélt því fram aö
árnar Vistula og Oder væm fullar af
úrgangi sem lítt væri hirt um. Einnig
fullyrti sá hinn sami aö vegna vara-
hlutaskorts rynni úrgangur verk-
smiöja beint i sjóinn án þess að
hreinsast. Sömu sögu hafa lettneskir
útlagar í Stokkhólmi að segja, þ.e. aö
ræsakerfiö sem skilar úrgangi t.d.
pappírsiönaöar í Sovétríkjunum,
hafi ekki veriö endumýjaö síðan
1920, og væri sá úrgangur óhreins-
aður. Hr. Hannerz hjá sænska f isk-
veiöiráöinu sagöi þó viö Reuter aö
„austantjaldslöndunum væri alls
ekki sama um umhverfiö .. .” en
„þaö er greinilegt aö þau koma ekki
Af öldruðum, öldrunarmálum
og öldrunarmálaráðstefnu
Góður morgunmatur, kynlíf og
hófsamleg drykkja eru lyklamir aö
hamingjusamri elli, segir háttsettur
sérf ræðingur hjá S.Þ.
William Kerring, aöalritari ráð-
stefnu um ö' drunarmál sem haldin
verður í Vínarborg á vegum S.Þ.,
segir aö þaö sé ekki hægt að stööva
gangverk líffræðinnar, en „maður
getur bætt viö sig nokkmm árum
meö ástundun holls lífernis... og þar
sem fólk lifir lengra og heilbrigöara
lífi ætti ekki aö neyða þaö til að
draga sig í hlé eins snemma og raun
er og eftirlauna-aldursmörk eru því
miöur sífellt aö lækka.” Kerring bæt-
ir því við aö með ýmsar reglur heil-
brigðrar skynsemi aö vopni mætti ná
betri árangri en læknavísindin gætu.
Hann mælir sérstaklega meö því aö
snæöa daglega góöan morgunverö,
— þaö bætir meltinguna- láta
áfengisbindindi lönd og leiö og
stunda heilbrigt kynlíf uns maðurinn
meö ljáinn skerst í leikinn. Hr.
Kerrigan skýröi mál sitt ekki nánar,
en lét þess þó getið aö læknar mæltu
ekki meö alg jöru bindindi.
Sameinuöu þjóöirnar álíta að lifs-
líkur hvers borgara alheims muni
veröa 70 ár áriö 2025. Þaö ár mun
fjöldi jaröarbúa, 60 ára og eldri,
veröa meira en 1 milljarður, en var
aðeins 350 milljónir áriö 1975. Enn
segir Kerring „Aö láta gamla fólkiö
veröa ruggustólnum að bráö.. . er
sama og aö dæma þaö til dauða.”
Ráðstefna S.Þ. um
öldrunarmál
Allsherjarþing S.Þ. ákvaö fyrir 4
árum síöan aö halda ráöstefnu um
öldrun íVínarborg. Hefst ráöstefna í
júlí í sumar og vonast Kerring aöal-
ritari hennar til að hún vekji athygli
alheimsins á þessu mikilvæga máli.
Það er e.t.v. engin tilviljun aö Vínar-
borg var valin fundarstaöur því þar
er meöalaldur íbúanna geysihár.
Eitt af verkefnum ráðstefnunnar er
aö samþykkja verkáætlun fyrir alla
heimshluta sem fjalla mun um
alvarlegar afleiöingar öldrunar jafnt
á sviöi efnahags sem félagsmála.
Góður morgunmatur. Hóflega drukkið vin. . .
Kerring álítur aö hækkandi meöal-
aldur sé sigur fyrir mannkynið en að
tryggja veröi aö sigri verði ekki
breytt í harmleik gamla fólksins.
„Stefnan í ákvöröun eftirlauna-
aldurs ætti að byggja á því hvort
gamalt fólk getur og vill vinna en
ekki á fæðingardegi og ári, eins og nú
er miöað viö.” Fjölgun eldri borgara
mun aö sjálfsögöu veröa mest í Asíu,
á Indlandi, í Kína og löndum SA-Asíu
og svo í Afríku. Hr. Kerring segir aö
Kínverjar séu þegar famir aö takast
á við ýmis vandamál sem fjölgun
eldri borgara mun hafa í för með sér.
Sér í lagi kveöst Kerring hafa veitt
því eftirtekt, hversu ríkan þátt gaml-
ingjarnir tækju í daglegu lífi Pekíng-
búa. Nefndi hann sérstaklega
morgunleikfimi. A vorum dögum er
öldrunar-vandamálið í þriöja heim-
inum enn ekki orðið geigvænlegt af
þeirri einföldu ástæöu að gamalt fólk
er enn næsta sjaldgæft af völdum
vosbúöar og hungurs sem þar ríður
húsum. Því er þetta mál 21. aldar í 3*
heiminum. Sömu sögu er ekki hægt
að segja um Evrópu, fjöldi aldraðra
er mikill og vandamálin hrannast
upp. Sem dæmi má nefna aö áriö 2025
veröur fjóröi hver Evrópubúi eldri
en 60 ára. Til samanburðar má geta
að þaö ár verður tíundi hver Suöur-
Amerikani og 15. hver Afríkubúi á
sama aldri, samkvæmt upplýsingum
S.Þ. Konur lifa lengur en karlar
e.t.v. vegna mismunandi gena. I
þriöja heiminum er munurinn þó
minni vegna þrælkunar, bamsburöa,
vinnu og vannæringar. I Evrópu eru
eftirlaunamál kvenna ennþá mikið
vandamál. Kerring bendir á aö lok-
um. aö í þróuðum löndum verði
þriöjungur kjósenda eldri en 60 ára
áriö 2025 og því hljóti stjórnvöld aö
þurfa aö taka enn meira tillit til
þeirra en nú.
Oliumengun ermikið vandamál, en ekkiþað eina.
hugmyndum sínum um umhverfis- vandamál í efnahags- og tækni-
vemd í framkvæmd. Þar sem þau málum þá láta þau umhverfismál
þurfa að takast á viö tröllaukin sitjaáhakanum.”