Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Page 11
I
DAGBLAÐIÐ & VISIR. ÞR ÐJUDAGUR1. JONI1982.
11
„Er með tölvubakteríuna”
— segir Friðrik Skúlason
sem lauk mennta-
skólanámi á aðeins
tveim og hálfu ári
„Ég hafði, held ég, aldrei séð tölvu
fyrr en ég byrjaði í Menntaskólan-
um. En þegar ég kynntist tölvunum í
skólanum f ékk ég tölvubakteríuna og
hef verið með hana síðan,” sagði
Friðrik Skúlason.
Hann útskrifaðist í mailok sem
stúdent frá Mennaskólanum við
Hamrahlið. I stað þess að námið tæki
hann 4 ár eins og það gerir flesta tók
það hann aðeins tvö og hálft ár. Er
Friðrik fyrstur til að ljúka náminu á
svo skömmum tíma. Reyndar hafa
aðrir nemar farið með s vipaðan tíma
en hafa þá fengiö nám úr öðrum skól-
um metið til einkunna. Eg spurði
Friðrik hvort hann hefði ákveðið í
byr jun að f lýta sér svona.
„Nei, þetta kom af sjálfu sér.
Fyrsta eitt og hálfa árið tók ég að-
eins eins margar einingar og ég
mátti. I vetur sá ég svo að ef ég ætl-
aði mér að vera hálfu ári lengur tefði
það mig um heilt ár að geta byrjað í
tölvufræði í Háskólanum. Það er ekki
hægt að hef ja nám um miðjan vetur.
Því ákvað ég að klára núna í vor,”
sagði hann.
Friðrik lauk prófi af náttúrufræöi-
braut. Sem valgreinar tók hann allt
sem kennt var og tengdist tölvum.
Tölvufræði er síðan eina greinin sem
til greina kemur að læra næstu árin.
Eg spurði hvort hann héldi aö nóg
væri að gera á tslandi fyrir tölvu-
fræðinga.
„Já, góður forritari getur alltaf
fengið nóg aö gera. Islenzk fyrirtæki
eru í auknum mæli komin með tölvur
eftir að örtölvubyltingin varð. Hér
Friörik Skúlason varsvo heppinn að fá vinnu i sumar við sitt hæfi. Hann
vinnur i töivubúð og leiðbeinir um
áður voru þaö aöeins stórfyrirtæki
sem höfðu efni á að kaupa heilu IBM
samstæðurnar. Nú hafa jafnvel
brauðbúðir efni á tölvum og kaupa
þær,” sagðiFriðrik.
Hann er sonur Sjafnar Friðriks-
dóttur kennara og Skúla Jóns Sigurð-
arsonar deildarstjóra. Fæddur og
meðferð á töhrum.
DV-mynd GVA.
uppalinn í Reykjavík. Er fjölskyldan
kannski í tölvubransanum?
„Það er bara litli bróöir minn.
Hann er 10 árum yngri en ég og er
þegar orðinn miklu verri en ég. Hann
verður þokkalegur einhvern tíma,”
sagöiFriðrik.
Hann er 18 ára.
DS
HEiMSFRÆG GÆÐAREID
HJÓL Á FRÁBÆRU VERÐI
Karihjól 3ja gfra
Teg. Nr. 2F8 15
grindarhæð: 58 sm
hjólbarðar: 26"
litur: blér.
VERÐ KR.
2970,
Suðurlandsbraut 8
Sími 84670
ÆFINGASTOÐIN
Engihjalla 8 - Kópavogi - Sími 46900
\
Innritun og
upplýsingar
I sfma
46900
og ð staðnum
ÆFING ER LEIÐ TIL ÁRANGURS!