Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Síða 14
14 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJTJDAGLR1. JtJNI 1982. Bílasmiðja Sturlu Snorrasonar Dugguvogi 23 — Sími 86150 Byggjum yfir Toyota pick-up bíla. Fallegar og vandaðar innréttingar. ATH. Getum einnig afgreitt húsin óásett. Gerum föst tilboð. SÖGUM fyrir giuggum og hurðum gegnum járnbenta steinsteypu Hagkvæmasta lausniu er að iá okkur til þess að saga fyrir gluggum og hurðum gegnum járnbenta steinsteypu. Við vinnum með fullkomnustu tækjum og bjóðum því lægra verð. Við gerum tilboð yður að kostnaðarlausu. Tökum að okkur verk um allt land. Ryklaust — Hagkvæmt — Fljótvirkt. DEMANTSÖGUN SIG©@ byggingaþjónusta sími 83499 Ólafur Kr. Sigurösson hf., Suðurlandsbraut 6. Notaðir tyftarar í miklu úrvaii 2. t raf/m. snúningi 2.5 t raf 1.5 t pakkhúslyftarar 2.5 t disii 3.2 t dísil 4.3 t disil 4.3 t dísil 5.0 t disil m/húsi 6.0 t dísil m/húsi vinnuskúr með dráttarbeizli, m/rafbúnaði, isskáp, hitaskáp fyr- ir vinnuföt o.fl. K.JÓNSSON&CO.HF. Jj Mönnunarreglur og kjör íslenzkra farmanna „Hafskipsmenn svara tveim áleitn- um spurningum” í Morgunblaðinu 6. maí. Hafskipsmenn vitna í 3ja lið í það að að jafnaði sé 2—3 mönnum fleira í áhöfn íslenzkra skipa en hinna er- lendu. Smæstu skipin 4—5 sigla með 1 stýrimann svo vart geta þeir fækkað þar. öll stærstu skipin sigla með 2 stýrimenn í starfi en skrá „lepp” sem 3. stýrimann og hafa hann í háseta- störfum, enda mun eftirlit skráningar- yfirvalda nánast ekkert. Þó mun eitt- hvað af hinum elztu og ellimóöu skip- um vera með 2—3 mönnum fleira en nýtízkulegri erlend skip. Það er hörmuleg staðreynd aö íslenzki kaup- skipaflotinn í dag mun vera ca 12,2 ára en meðalaldur kaupskipaflota heims- ins er 10 ár Nú spyr einhver, eru það þessir 1—3 menn sem valda þessu ó- standi á flotanum, að hann dregst sam- an ár frá ári og úreldist? Ég leyfi mér. að svara því neitandi, meðan íslenzkir farmenn eru með launakjör sem eru frá 52%—59% þeirra launa sem eru meðaltal I.T.F. en sá launataxti er vegið meðaltal eftirfarandi siglinga- þjóða: Norðurlönd, Bretland, Holland, Þýzkaland, Frakkland, Grikkland og nokkur fleiri lönd koma þar við sögu. Það er einmitt frá þessum þjóöum sem flest þau leiguskip er hin íslenzku skipafélög taka á leigu koma. Undirritaöur svaraði í Dagblaöinu 6. júní 1979 grein GunnarsGúðmundsson- ar lögfræðings VSI varðandi þaö sem hann skrifaði: 77 Islendingar vinna störf sem 63 Danir og Þjóðverjar vinna. Var þar vitnað í fækkun á stýri- mönnum um 1 á tveim stæröum skipa. I ljós kom að 1.216.536 kr. ódýrara var að sigla meö 3 íslenzka stýrimenn en 2 danska. Einnig aö 500—600 þúsundum kr. ódýrara var að sigla meö 2 íslenzka stýrimenn en 1 danskan stýrimann og tók þá danski skipstjórinn 12 tima vakt að s jálfsögðu. Lauslega mundi ég áætla að íslenzk- ir launakostnaöurinn sé ca 60—65% af I.T.F. launakostnaði. Burt séð frá 2 út- gerðum er feröakostnaður íslenzkra útgerða nánast enginn. Erlendis er far- ið aö skipta um áhafnir á 2—3—4 mán- aða fresti og flogið um allan heim. T.d. er ferðakostnaöur A.P. Moller 75 millj. íslenzkar kr. sl. ár. Samt var gróðinn á 3ja milljarð íslenzkra króna. Þaö kost- ar peninga að græða peninga var sagt einhvem tíma. Það er sorglegt aö flest þau skip sem keypt eru til íslands skuli vera á þeim aldri að hinir erlendu aðil- ar losa sig við þau sem „ellúnóð og úrelt”. Þetta er því miður staðreynd. Nefna má að þegar Austur-Asíufélagiö danska endurnýjaði sem mest komst Kjallarinn Sigurbjörn Guðmundsson meðalaldur flotans niður í rúm 3 ár svo vel varað verki staðiö. Nei íslenzkir kaupskipaútgerðar- menn, þaö hljóta að vera einhverjir aðrir og annarlegri kostnaðarliðir en 1—2 sjómenn á skipi er draga rekstur- inn niður. Heyrzt hefur að jafnan fjölg- aði á kontórnum ef fækkaði um skip. Er ekki of miklu hlaðiö utan á rekstur- inn í landi? Spyr sá sem ekki veit en leitið og þér munuö finna. Góðir farmenn, sýnið samstööu og samhug. Verjið störf ykkar svo að þau séu og verði lífvænleg hvað laun og starfsaðstööu snertir. Annars endast menn ekki lengur í þessum krefjandi störfum, þau verða að færibandastörf- um og þá er til lítils að afla sér dýrrar menntun í sérhæft starf. Eg læt hér fylgja launataxta I.T.F. og íslenzkan samanburö. Jb „Kaup íslenzkra farmanna er 52—59% af “ launum I.T.V. Vart ætti það að verða til þess, að íslenzkum skipum fækkar mánaðar- lega,” segir Sigurbjörn Guðmundsson og gerir grein fyrir þessum launamismun íslendinga og annarra. Launataxti alþjóðasambands flutningaverkamanna, ITF. Gildir tilsiglinga um allan heim, gildistaka 1. september 1981. Allir kauptaxtar og greiðslur í US.$ Staöa Fastakaup Eftirvinna: Greiðsla, fyrir pr. mánuð virkir dagar Laugard., sumarleyfi pr. dag pr. mánuö 1/135 af sunnud., Fæðispen. US4 mánaðarkaupi helgid. 1/75 af. mánaðark. Fæðispen. $ 15,10 pr.dag Dagkaup 1/25 afmánaöark. Skipstjóri 2395 17.70 31.90 95.80 Yfirvélstjóri 2176 16.10 29.00 87.00 Yfirstýrim./2. vélstj. 1546 11.40 20.60 61.80 2. stýrim./3. vélstj. 1238 9.20 16.50 49.50 3. stýrim./4. vélstj. 1193 8.80 15.90 47.70 Loftskeytamaður/rafvirki (rafvélavirki) Bryti 1238 9.20 16.50 49.50 Rafvirki 1041 7.70 13.90 41.60 Bátsmaður/timburmaöur, viðgerðarm./yfirmatsv., donkeym./birgðav. í vél, dælumaður 785 5.80 10.50 31.40 Undirbátsm./rórgengill, aðstoðarrafvirki 729 5.40 9.70 29.20 Fullgildurháseti, spíssari/mótormaður, smyrjari/undirbryti 703 5.20 9.40 28.10 Undirháseti/ hreingerningarmaður 523 3.90 7.00 20.90 Þilfarsdrengur/ drengir i þjónustuliði 300 2.20 4.00 12.00 Þeim skipverjum, eldri en 18 ára sem ekki eru með í þessari upptalningu, skulu ekki greidd lægri laun en full- gildum háseta. Dánarbætur: Við dauðsfall (af slysförum, eða viö skiptapa) / i) til nánasta ættingja: $21.3857 ii) auk þess til hvers barns undir 18 ára aldri $6.127. / Fyrir tapaöa persónulega muni: $2.447. / Fæðispeningar $15.10 pr. orlofsdag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.