Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Page 16
16 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR1. JUNI1982. Spurningin Lesendur Lesendur Lesendur Ætlarðu að sjá eitthvað á Listahátíð? Olafur Guðnason, bonnaður. Ætli þaö. Ég verð ekkert í bænum. Daníel Pálsson, vélvirkl. Nei, örugglega ekki. Ég hef takmarkaöan áhuga. Guðrún Ottósdóttir, húsmóðir. Nei, þaðheld égekki. Pétur Áraason, skrifstofumaður. Nei, ég held að ég fari frekar að sjá fótbolt- ann með fuilri virðingu fyrir öllum dagskrárliöum Listahátíðar. Heiður Baldursdóttir og Þórey Mjall- hvít Ömarsdóttir: Ég hef bara ekkert hugsað út í það, en það væri mjög gaman að sjá eitthvað. Guðmundur Höskuldsson, vinnur hjá Samvinnutryggingum: Nei, ég held ekki. Mér finnst of mikið tilstand kring um þetta. „ Við Hraunbæ 102— 102H, sem er u-laga blokkarbygging er stórt og mlklð „útivistarsvmði”, en er nú sem stendur (og hefur veriO í mörg ár) moldar- flag meO drasli afýmsu tagi, "segja 3623-0738 og 1641-4883. Útivistarsvædið er moldarfías Hvemig væri hægt að bæta úr ástandinu? 3623-0738 og 1641-4883 skrif a: Við Hraunbæ 102—102H, sem er u- laga bokkarbygging, er stórt og mikið „útivistarsvæði” en er nú sem stendur (og hefur verið í mörg árj moldarflag með drasli af ýmsu tagi. Hverjir eiga þetta moldarflag er ekki alveg á hreinu. Ætla mætti að íbúar við þessar blokkir ættu þaö aö hluta en uppi hafa verið raddir um að Reykjavíkurborg eigi stóran hundraðshluta af svæði þessu. I þessum blokkum er mikil þjónustu- miðstöð fyrir Árbæjarhverfi m.a. Póst- ur og sími, heilsugæzlustöð, apótek o.fl. Einnig er þarna kjörverzlun sem lokað hefur bakhlið verzlunarinnar með mótatimbri. Nú, einnig er þarna fiskverkun sem viröist að einhverju lejrti vera kjörverzluninni til handa. Bílskúrar eru þarna og nokkrir og hef- ur m.a. einn þeirra verið notaöur til selafláninga, þannig að nokkrir íbúar héldu m.a. að um mannsdráp heföi verið að ræða fyrir stuttu, er selablóð flaut þar um allt fyrir utan. Einnig er þetta samkomustaður unglinga og mótorhjólaspyrna er dyggilega stund- ið í undirgangi viö bílskúrana. Sjálf- stæðisflokkurinn hafði þarna athvarf fyrir kosningaskrifstofu hverfisins og einnig til hverfafunda, svo mætti lengi telja. En það sem einkennilegast er að eng- inn virðist eiga eða vilja eiga lóðina og því hefur hún sennilega verið svona ár- um saman, þó hafa „borgarinnar menn” sést hér í vetur þ.á.m. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, og var þá bent og patað vel í allar áttir, en til hvers vit- um við íbúar ekki enn. En hvemig væri að „borgarinnar menn” létu nú hefja framkvæmdir, þó ekki væri nema slétta úr moldinni og henda hingaö nokkrum grastorfum? Samstaða íbúa í milli, sem sumir hverjir segjast ekki eiga í lóðinni, hef- ur nefnilega ekki verið fyrir hendi. Þaö væri svo hægt að innheimta hjá eignar- aðilum að loknu verki og ætti það varla að takast illa. Falklandseyjadeilan: Ýmislegt sem Pétur Guðjóns- son gleymdi að segja f rá — Er logið með þögninni ? Eric A. Kinchin skrifar: KæriPétur! Þakkaþérfyrirkjallaranní DV 24. þ.m. Vafalaust yrði það Argentínu- mönnum til mikils styrks og hug- hreystingar ef þeir vissu aö á tslandi ættu þeir sér máisvara á borð við þig. Ekki ætla ég mér aö taka þátt í nein- um deilum um hvort Argentínumenn eða Bretar eiga siðferðislegt eða sögu- legt tilkall til Falklandseyja, né hvort vopnavald eigi rétt á sér í því sam- bandi. Ég get hins vegar ekki látið hjá líða að fara nokkrum oröum um við- horf þau er fram koma í kjallaragrein þinni. Ég skal f úslega játa að þú beitir fyrir þig hugtakinu „lygi beitt með þögn- inni” af mikilli fimi, en þú ert sekur um nákvæmlega þaö sama sem þú berð Bretum á brýn. Deilumál tveggja ber að meta frá sjónarhólum beggja. Það er áberandi að þú tekur einungis tillit til málflutn- ings Argentínumanna. Mér er með öllu óskiljanlegt hvað veldur, því ekki er gamla nýlendustefnusagan gjaldgeng lengur. Hér er ekki um neitt nýlendu- vandamál að ræða, heldur mannrétt- indi. Falklendingar, vilji þeirra, óskir og hagur viröast ekki skipta þig neinu máli. Þar beitir þú þögninni og sömu- leiðis um einræðisstjórnarfar í Argen- tínu þar sem mannshvörf og morð eru daglegt brauð og hafa verið um langan aldur. Þú þegir um það. Þú segir einnig að stórblöð í Bret- landi fordæmi brezku afstööuna í þessu máli. Þú minnist ekki á stórblööin þar, sem styðja aðgerðir ríkisstjómar sinn- ar; sem telja mannréttindi og vilja Falklendinga þungvæg í þessari deilu. Þér verður einnig tíðrætt um hvað myndi gerast ef Argentínumenn beittu flugflota sínum, „af fullkomnustu gerð”, af fyllstu hörku. Hvaö myndi gerast, ef Bretar beittu þeim vopnum, af „fullkomnustu gerð”, sem þeir ráða yfir? Þú fullyrðir að Magellan hafi fundið eyjarnar. Hvað veizt þú um það? Hef- ur þú einhverjar sannanir í höndum til þess að hrekja aörar fullyrðingar? Bretar og ýmsar aðrar þjóðir telja að enskur sæfari, John Davis, hafi fundið eyjarnar árið 1592. Þú þegir um það — af ásettu ráði, kennski? Þú telur aö BBC og Associated Press sé ekki trúandi en hefur ekkert út á fréttaflutning Argentínumanna aö setja. Argentína hefur einmitt verið töluvert í fréttum og ekki einungis vegna Falklandsdeilunnar, heldur mun fyrr. Þú hefur kannski hvorki heyrt né séð neitt um það? Stjómendur þar eru annars ekki beinlínis annálaðir fyrir sannsögli. Sanngjarnir menn vega og meta málstað beggja deiluaðila. Stríö er ætíð hörmulegt, hver sem í hlut á, svo við skulum vona að þessi deila leysist sem allra fyrst. Gleymum samt ekki þungvægum rétti Falklend- inga sjálfra, sem mann fram af manni hafa byggt þessar eyjar. Stjóm Argentínu hefur við næg vandamál að fást heima fyrir. Falklendingar kæra sig ekki um neina hlutdeild að, né þátt- töku í, því ömurlega stjórnarfari. Síðast en ekki sízt ber að hafa í huga að Argentínumenn tóku Falklandseyjar með vopnavaldi og áttu allt frumkvæði í þessari deilu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.