Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1982, Page 20
20
DAGBLAÐIÐ & VISIR. ÞRIÐJUDAGUR1. JUNI1982.
PRJÚNAGARN
Hannyröavörur í úrvali.
Smyma, tilbúnir dúkar og löberar.
Gjörið svo vel að lfta inn.
Sjón er sögu ríkari.
Sendum í póstkröfu daglega.
Hof
^ Ingólfsstrsati 1 (gegnt Gamla bfói). Sfmi 16764.
Litur: hvítt
Stærðir: 36-41
Verð kr. 285
Litur:
Stærðir: 31-39
Verð frá kr. 295
Mikið úrval af skóm á alla fjolskyiduna
yersíun KÓOQVOQS .
Homro
borg
Sim
754
AtfhaJður Ingadóttír og Ellmbet Gunnarsdóttír, som báðar hafa starfaO að undirbúningl Kvennaathvarfs, an samtök um
slikt athvarf verOur stofnaO / nmstu viku. Nýlog könnun á ofbeidi / Islenzkum fjölskyldum bendir tíl þess aö hár á landl
sé engu mlnni þörf fyrir kvennaathvarf en i öörum löndum.
ÍMynd: GVA)
Stofnun samtaka
um kvennaathvarf
Markmið samtakanna er að koma á fót athvarfi, þar sem konur og böm
þeirra geta leitað skjóls og stuðnings, þegar dvöl í heimahúsum verður
þeim óbærileg vegna ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra
heimilismanna
„Löngum hefur verið þagað yfir
ofbeldi á heimilum og það álitið
einkamál þeirra, sem valda eða
verða fyrir því. Konur, sem beittar
eru ofbeldi standa einar og úrræða-
lausar og geta hvergi leitað skjóls
eða stuðnings og það þrátt fyrir
aukna félags- og heUbrigðisþjónustu,
en ofbeldi innan fjögurra veggja
heimilisins kaliar engu síður á
aðgerðir hins opinbera en sé því beitt
annars staðar.”
Svo segir í fréttatilkynningu frá
hópi kvenna, sem á morgun, mið-
vikudag, gangast fyrir stofnfundi
Samtaka um Kvennaathvarf.
Markmið samtakanna verður að
koma á fót athvarfi fyrir konur og
börn þeirra, þar sem leita má skjóls
þegar dvöl á heimili verður óbærileg
vegna ofbeldis eiginmanns, sam-
býlismarins eöa annarra heimilis-
manna. Fundurinn verður haldinn á
HótelEsjuannaðkvöldkl. 20.30.
Þörfin engu minni
hér á landi
Álfheiöur Ingadóttir og Elísabet
Gunnarsdóttir, sem báðar hafa
starfaö að undirbúningi stofnfundar-
ins skýrði blm. DV frá dagskrá
fundarins og markmiðum samtak-
anna. Álfheiður mun hefja fundinn
með því að skýra frá aödraganda
hans. Þá mun Ásdís Rafnar leggja
fram drög að lögum samtakanna,
Guðrún Kristinsdóttir segir frá
þróun þessara mála erlendis og
Hildigunnur Olafsdóttir mun segja
frá nýlega gerðri könnun um ofbeldi í
íslenzkum f jölskyldum. Fundarstjóri
verður Ásthildur Olafsdóttir.
Þær Álfheiður og Elisabet
skýröu frá því að könnun sú er Hildi-
gunnur Olafsdóttir mun greina frá á
fundinum bendi ótvírætt til þess aö
hér á landi sé engu minni þörf fyrir
Kvennaathvarf en erlendis. Þessi
könnun hefur verið gerð af Hildi-
gunni, Sigrúnu Júliusdóttur og Þor-
gerði Benediktsdóttur (Niðurstöðrir
hennar munu m.a. birtast í næsta
tölublaöi Geðvemdar).
„Það hefur sýnt sig erlendis,”
sagði Álfheiður, ,,aö yfirleitt fer ofbeldi
vaxandi og þá ofbeldi á heimilum
líka. Það er engin ástæða til að ætla
að þessu sé öðru vísi farið hér. En
barsmíöar heima við hafa löngum
þótt einkamál hverrar fjölskyldu, sá
sem fyrir því verður veigrar sér við
að segja frá þeim- og þeir, sem af
ofbeldinu vita, veigra sér einnig viö
að skipta sér af einhverju „sem ekki
kemur þeim við”. Þessar svokölluðu
heimiliserjur eru ekki skráðar sem
slíkar — líkamsárás á heimili fær því
allt aðra meðhöndlun en likamsárás
utan þess.”
.JF’leiri konur en marga grunar búa
við stöðugan ótta og óöryggi, hræðsl-
an verður til þess að þær þora ekki að
leita stuðnings en einangra sig frem-
ur í niöurlægingunni, sem þær finna
tU.”
Frumkvæði kvenna
Um 30 konur hafa starfað að því
um alllangt skeið aö koma kvenna-
athvarfi á fót. Elísabet benti á að
reynsla erlendis sýndi enda að kon-
ur verði sjálfar að hafa frumkvæðið í
þessu. I Noregi eru nú rekin um 20—
30 athvörf. Konur sem þangað leita
eru úr öllum þjóðfélagshópum og
ofbeldið sem þær eru að flýja er
ekki bundið áfengisneyzlu eins og oft
er talið. I viðtalinu við þær Álfheiði
og Elísabetu kom einmitt fram að
barsmíðar væru oft afsakaðar af
almenningi með áfengi, skuldinni
skellt á brennivín eða aðra vímu-
gjafa þegar oft er um allt aðrar or-
sakir er að ræða.
Kvennaathvarf gæti orðið þeim
konum sem ella eiga hvergi leið út
úr vandanum, það skjól og s^ skjöld-
ur, bæði lagalegur og sálarlegur,
sem til þarf. Auk slíks athvarfs væri
brýn nauðsyn á að auka umræðu um
ofbeldi inni á heimilum, vekja á því
athygli og breyta viðhorfum gagn-
vartþví.
Rekið af konum
fyrir konur
I viðtalinu kom enn fremur fram,
að undirbúningshópurinn álitur aö
athvarf verði að vera rekið af konum
sjálfum fyrir konur, án afskipta hins
opinbera. Ætlunin er að aðild að sam-
tökunum verði einstaklingsbundin en
leitað verður stuðnings félagasam-
taka, sveitarfélaga, ríkis og ein-
staklinga við öflun húsnæöis og
rekstur. Drög að starfsáætlun og lög-
um verða eins og áður sagði lögð fyr-
ir stofnfundinn á morgun. Auk þess
verður skipað i vinnuhópa, sem mun
sinna eftirtöldum verkefrium fram
til 1. desember nk.: Gerð áætlunar
um rekstur og öflun fjárframlaga,
leit að húsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu, gerð áætlunar um reglur og
starfshætti, skipulagning fræðslu
fyrir þær sem starfa munu í
athvarfinuog síðastenekkisístmun
starfshópur vinna að því að safna og
miðla upplýsingum. Fundurinn verð-
ur að Hótel Esju annað kvöld kl. 20.30
og er það von aðstandenda að þeir
komi sem vettlingi valda, bæði til að
kynna sér vandamál sem er stærra
en flesta grunar og til að vinna að
lausnþess. Ms
Styrkið og fegríð fikamann a
Dömur! Loikfimi fvrir konur á öllum aldri.
Lcikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Nýtt námskeið hefst 1. júní.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar
fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af vöðva-
bólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufuböð — kaffi —
NÝJUNG: SOLARIUM
Höfum fengið solarium lampa
♦oo*.
Júdódeild Armanns
ÁrmtMÍa Innritun og upplýsingar alla virka daga
AtrrnuM kL 13_22 ísíma 83295_